Landslið karla í fótbolta

Fréttamynd

Upp­gjörið: Fær­eyjar - Ís­land 0 - 2 | Umspilssæti Ís­lendinga stað­reynd

Íslenska U21 árs landslið karla tryggði sér sæti í umspili um sæti á Evrópumótinu eftir sannfærandi 0-2 sigur á Færeyjum ytra í lokaumferð undankeppninnar í kvöld. Íslenska liðið þurfti nauðsynlega á sigri að halda og treysta um leið á að Sviss myndi ekki vinna Frakkland. Strákarnir kláruðu sitt verkefni af miklu öryggi og Frakkar réttu risastóra hjálparhönd þegar þeir völtuðu yfir Svisslendinga. Umspilssæti Íslendinga er því staðreynd.

Fótbolti
Fréttamynd

Utan vallar: Sögu­fræg vin­átta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar

Eist­land og Ís­land mætast í mikilvægum leik í Þjóða­deild Evrópu í Tallinn í kvöld. Saga þjóðanna tveggja á sér rík tengsl og út frá stöðu alþjóðamála í dag er hægt að líta aftur í tímann og sjá hvaða áhrif smáríki gat haft í hinu stóra sam­hengi. Tvær þjóðir sem meta full­veldi og sjálf­stæði mikils, ógnin úr austri vofir yfir Eistum.

Fótbolti
Fréttamynd

Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig

Eistlendingar eru á sinni fjórðu leiktíð í C-deild Þjóðadeildarinnar en hefur aldrei vegnað eins vel og núna og ættu að mæta með gott sjálfstraust í toppslaginn við Íslendinga í 4. riðli í Tallinn í kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

And­leg og líkam­leg heilsa fín í mikilli törn

Þrátt fyrir mikla leikjatörn og ferðalög er staðan á íslenska landsliðinu góð. Einn af reynslumestu leikmönnum liðsins er í góðu standi líkamlega og andlega séð fyrir mikilvægan leik gegn Eistlandi ytra í kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

Gylfi klár og mun spila stórt hlut­verk í kvöld

Gylfi Þór Sigurðsson mun spila stóra rullu í leik Íslands gegn Eistlandi ytra í Þjóðadeild UEFA í kvöld. Gylfi er að spila nokkuð laskaður en vill spila hverja mínútu í öllum leikjum að sögn landsliðsþjálfarans.

Fótbolti
Fréttamynd

Arnar um Aron Einar: „Ekkert per­sónu­legt“

„Ég ætla rétt að vona það,“ segir Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari, aðspurður á blaðamannafundi í dag hvort Aron Einar Gunnarsson hafi verið ósáttur að vera tekinn af velli í hálfleik í 3-0 sigri á Búlgaríu um helgina.

Fótbolti
Fréttamynd

Arnar sat fyrir svörum í Tallinn

Arnar Gunnlaugsson og Guðlaugur Victor Pálsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi á Lilleküla-vellinum í Tallinn þar sem Ísland mætir Eistlandi í Þjóðadeildinni annað kvöld. 

Fótbolti
Fréttamynd

Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“

Vísir heilsar frá Tallinn í dag þar sem fram undan er leikur Ís­lands gegn heima­mönnum í lands­liði Eist­lands í Þjóða­deildinni í fót­bolta á morgun. Ís­lenska lands­liðið er á góðu skriði og spenna að byggjast upp. Staðan á Gylfa Þór Sigurðs­syni og staða Arnars Gunn­laugs­sonar var til um­ræðu í þætti dagsins.

Fótbolti
Fréttamynd

Mark­vörður Eista meiddur

Karl Hein, markvörður eistneska landsliðsins og Werder Bremen í Þýskalandi, mun ekki spila leik liðsins við Ísland í Tallinn í Þjóðadeildinni annað kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

Gylfi með til Eist­lands

Gylfi Þór Sigurðsson flaug með íslenska landsliðinu til Eistlands þrátt fyrir meiðsli. Hann fékk högg á rifbeinin undir lok leiks við Búlgaríu.

Fótbolti
Fréttamynd

Fljúga til Fær­eyja í há­deginu

U21 landslið karla í fótbolta á að komast til Færeyja fyrir lokaleik liðsins í undankeppni EM á næsta ári í dag. Liðið fór í fýluferð til Keflavíkur í gær og sneri við í flughliðinu.

Fótbolti
Fréttamynd

Strákarnir sitja fastir

U21 landslið karla í fótbolta situr fast hér á landi vegna þoku í Færeyjum. Liðið á að mæta heimamönnum á þriðjudag og vonast er til að komast út á morgun.

Fótbolti
Fréttamynd

„Mikael Ander­son kom inn með því­líka orku“

„Þetta var sterkur sigur,“ sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari eftir annan 3-0 sigur Íslands í röð. Liðið vann Búlgaríu í dag á Laugardalsvelli og er efst í sínum riðli með sjö stig eftir þrjá leiki í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Fótbolti
Fréttamynd

„Lærði bara mikil­væga reglu“

„Þetta var drulluskemmtilegt. Gaman að spila á Laugardalsvelli með svona mikið af fólki og strákarnir í gírnum. Þetta var geggjað,“ sagði Orri Steinn Óskarsson eftir frábæra frammistöðu í 3-0 sigrinum gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni í dag.

Fótbolti
Fréttamynd

„Erum að spila á móti of­boðs­lega slöku liði“

„Tja, það er fjölbreytni í leiknum…“ sagði Bjarni Guðjónsson á Sýn Sport í hálfleik, ekkert sérstaklega hrifinn af frammistöðu manna í fyrri hálfleik í leik Íslands við Búlgaríu í Þjóðadeildinni í fótbolta á Laugardalsvelli.

Fótbolti
Fréttamynd

„Ég get al­veg sagt þér að hann er ekki sáttur“

„Áhættusamt. Óhætt að segja það,“ sagði Kári Árnason í umræðum á Sýn Sport um það byrjunarlið sem Arnar Gunnlaugsson hefur valið fyrir leikinn við Búlgaríu í Þjóðadeildinni í dag. Kári botnar lítið í þeirri ákvörðun að taka Gylfa Þór Sigurðsson út úr byrjunarliðinu.

Fótbolti