Landslið karla í körfubolta

Daníel rétt missti af stoðsendingatitlinum á EM
Daníel Ágúst Halldórsson átti mjög flott Evrópumót með íslenska tuttugu ára landsliðinu í körfubolta en íslensku strákunum tókst þar að halda sæti sínu í A-deildinni.

Strákarnir unnu Tyrki og héldu sér í A-deild
Ísland tryggði sér áframhaldandi sæti í A-deild Evrópumóts karla í körfubolta U-20 ára með sigri á Tyrklandi í dag, 96-95.

Strákarnir sprungu út og tryggðu sér úrslitaleik um sæti í A-deild
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum tuttugu ára og yngri vann öruggan sigur á Norður-Makedóníu á EM í dag, 116-87.

Stutt gaman hjá strákunum sem réðu ekki við Serbana
Íslenska tuttugu ára landslið karla í körfubolta spilar um þrettánda sætið eftir 22 stiga tap á móti Serbíu á Evrópumótinu í Póllandi í dag, 101-79.

Stelpurnar gapandi í stúkunni yfir troðslu Almars
Almar Orri Atlason og félagar í íslenska tuttugu ára landsliðinu í körfubolta töpuðu á grátlegan hátt með einu stigi á móti Belgíu á Evrópumótinu í gærkvöldi en hann átti tilþrif leiksins.

Þrjátíu stiga tap gegn Slóvenum en sextán liða úrslit framundan
Strákarnir í íslenska U-20 ára landsliðinu í körfubolta áttu litla möguleika gegn sterku liði Slóveníu á EM í Póllandi í dag og töpuðu með þrjátíu stiga mun, 68-98.

Stórkostlegt svar hjá íslensku strákunum eftir skellinn í gær
Íslenska tuttugu ára landslið karla í körfubolta fór á kostum í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í körfubolta i Póllandi.

Norðurlandameistarnir fengu stóran skell í fyrsta leik EM
Íslenska tuttugu ára landslið karla í körfubolta fékk stóran skell í dag í fyrsta leik sínum í úrslitakeppni Evrópumótsins í Gdynia í Póllandi.

Tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum
Íslenska stúlknalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri lagði Búlgaríu með tíu stiga mun í úrslitum B-deildar Evrópumótsins sem fram fer í Búlgaríu. Sigurinn tryggir Íslandi sæti í 8-liða úrslitum.

Þrír Íslendingar í úrvalsliðum Norðurlandamótsins
Íslensku landsliðin skipuð körlum og konum undir 20 ára náðu frábærum árangri á nýafstöðu Norðurlandamóti í Svíþjóð. Karlaliðið vann gullverðlaun og kvennaliðið brons, þrír íslenskir leikmenn voru svo valdir í úrvalslið mótsins.

Almar skoraði fjörutíu stig þegar Ísland varð Norðurlandameistari
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum tuttugu ára og yngri varð í dag Norðurlandameistari eftir sigur á Finnlandi, 79-85. Almar Orri Atlason fór hamförum í leiknum og skoraði fjörutíu stig.

Heimildarmynd um Tryggva Hlinason sýnd á Stöð 2 Sport 2 í kvöld
Heimildarmynd um íslenska landsliðsmiðherjann Tryggva Hlinason verður sýnd á Stöð 2 Sport 2 klukkan 20.45 í kvöld.

Svanirnir hefja flug í úrslitakeppninni
Landsliðsmaðurinn Orri Gunnarsson fagnaði sigri í fyrsta leik austurrísku úrslitakeppninnar í körfubolta þegar lið hans Swans Gmunden lagði Oberwart Gunners að velli, 96-78.

Martin og Anna María eignuðust dreng
Martin Hermannsson landsliðsmaður í körfubolta og Anna María Bjarnadóttir eignuðust dreng á dögunum. Um er að ræða þeirra annað barn saman en fyrir eiga þau soninn Manúel fimm ára.

Umfjöllun: Tyrkland - Ísland 76-75 | Ofboðslega grátleg niðurstaða í Tyrklandi
Íslenska körfuboltalandsliðið stóð sig eins og hetjur í Istanbúl fyrr í dag. Ísland var yfir með einu stigi þegar 3,6 sekúndur voru eftir af leiknum en Tarik Biberovic skoraði með lokaskoti leiksins og tryggði heimamönnum sigur. Grátlegt var það en Íslendingar geta gengið stoltir frá borði.

Erfitt ferðalag Pavel þungbært: „Þarf mitt svæði og minn frið“
Pavel Ermolinskij, aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, var nokkuð brattur en þó þreyttur þegar íþróttadeild sló á þráðinn til hans í dag. Gríðarlangur ferðadagur er um hálfnaður hjá Strákunum okkar sem halda til Tyrklands.

Búnir að vinna sjö heimaleiki í röð með Martin í liðinu
Martin Hermannsson spilaði á ný með íslenska körfuboltalandsliðinu í gærkvöldi og var stigahæstur í flottum endurkomusigri á Ungverjum.

„Hann spyr mig strax á æfingu hvernig nóttin var fyrir mig“
Grindvíkingurinn í íslenska landsliðinu hefur mátt upplifa sérstakan vetur. Hann er að spila sem atvinnumaður á Spáni en á meðan er heimabærinn hans rýmdur og hvert gosið á fætur öðru kemur upp við bæinn.

Kristófer Acox fór ekki með til Tyrklands
Kristófer Acox verður ekki með íslenska landsliðinu í öðrum leik liðsins í undankeppni EM sem fer fram í Tyrklandi á sunnudaginn.

Utan vallar: Ástæðan fyrir því að Elvar var maður leiksins í gær
Íslenska körfuboltalandsliðið byrjaði undankeppni EM mjög vel í gærkvöldi með endurkomusigri á Ungverjum. Það voru margir að skila til liðsins í gær og því ekki auðvelt að velja mann leiksins. Það var þó andlegur styrkur eins manns sem mér fannst standa upp úr.

Myndasyrpa frá magnaðari endurkomu í fullri Laugardalshöll
Ísland hefur leik í undankeppni Evrópumóts karla í körfubolta sem fram fer á næsta ári með gríðarlega mikilvægum fimm stiga sigri á Ungverjalandi fyrir framan troðfulla Laugardalshöll.

„Innilegar þakkir til áhorfenda í stúkunni“
Landsliðsþjálfarinn Craig Pedersen gat ekki leynt ánægju sinni með sigurinn í kvöld, enda enginn þörf á því.

Góður annar leikhluti lagði grunninn að sigri Ítalíu
Ítalía lagði Tyrkland í undankeppni EM karla í körfubolta sem fram fer á næsta ári. Um var að ræða fyrsta leik þjóðanna í undankeppninni. Ítalía og Tyrkland eru í B-riðli ásamt Íslandi og Ungverjalandi.

„Þurfum við að vera villimenn og keyra þetta upp í smá íslenskt rugl“
„Mér líður mjög held ég, eins og allri þjóðinni,“ sagði Kristófer Acox eftir frækinn fimm stiga sigur Íslands á Ungverjalandi í fyrsta leik þjóðanna í undankeppni EM 2025 í körfubolta. Það var vitað fyrir leik að þetta væri algjör lykilleikur í því hvernig undankeppnin myndi þróast.

Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Ungverjaland 70-65 | Undankeppnin hefst á lífsnauðsynlegum sigri
Ísland byrjar undankeppnina fyrir EM 2025, EuroBasket, með glæsilegum fimm stiga sigri á Ungverjum, sem fyrir fram eru taldir helstu keppinautar Íslands um þriðja sætið í B-riðli, sem veitir þátttökurétt á mótinu. Lokatölur í troðfullri Laugardalshöll 70-65.

Segir Martin gera alla aðra leikmenn betri
Craig Pedersen, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, talar vel um Martin Hermannsson fyrir leik Íslands og Ungverjalands í Laugardalshöllinni í kvöld. Craig segir Martin alltaf að verða betri og betri.

Tómas Valur ekki í hóp í kvöld en spilar fyrsta landsleikinn í Tyrklandi
Búið er að ákveða hvaða tólf leikmenn glíma við Ungverja á fjölum Laugardalshallarinnar í kvöld.

Ekkert Jordan-móment hjá Elvari: „Það var einhver misskilningur“
Elvar Már Friðriksson er ánægður með lífið í Grikklandi þar sem hann hefur spilað með PAOK Þessalóníku í vetur. Elvar verður í sviðsljósinu í kvöld þegar Ísland mætir Ungverjalandi í undankeppni EM í Laugardalshöllinni.

„Ef ekki núna, hvenær þá?“
Jón Axel Guðmundsson er einn leikmanna íslenska liðsins sem þurfti að stíga fram og taka á sig meiri ábyrgð í fjarveru Martins Hermannssonar undanfarin ár og hann hefur á þessum tíma orðið að algjörum lykilmanni í íslenska liðinu.

„Ég er búinn að bíða eftir þessu mómenti mjög lengi“
Þetta er stór dagur fyrir íslenska körfuboltalandsliðið og ekki síst fyrir Martin Hermannsson sem snýr í kvöld til baka í íslenska landsliðið þegar liðið mætir Ungverjum í Laugardalshöllinni í undankeppni EM 2025.