HM í Fischer-skák í Reykjavík 2022

Stórmeistarinn gerir stólpagrín að íslenska bikarnum
Stórmeistarinn Hikaru Nakamura frá Bandaríkjunum, sem vann heimsmeistaramótið í Fischer-skák hér á landi fyrir viku síðan, gerir stólpagrín að íslenska bikarnum.

Nakamura nýr heimsmeistari í Fischer-slembiskák
Stórmeistarinn Hikaru Nakamura frá Bandaríkjunum er nýr heimsmeistari í Fischer-slembiskák.

Carlsen dottinn út og Hjörvar keppir um sjöunda sætið
Ríkjandi heimsmeistarar í skák og Fischer-slembiskák, Magnus Carlsen og Wesley So komust hvorugur áfram í úrslit heimsmeistaramótsins í Fischer-slembiskák sem haldið er hér á landi og lýkur á morgun.

Spassky vill hvíla við hlið Fischers í Laugardælakirkjugarði
Það var múgur og margmenni í Laugardælakirkjugarði í Flóahreppi í dag en ástæðan er sú að skákmeistararnir, sem eru nú að keppa í heimsmeistaramótinu í Slembiskák mættu þangað til að vitja leiðis Bobby Fischers, heimsmeistara í skák. Þar kom fram að Boris Spassky, sem tefldi á móti honum fyrir fimmtíu árum hefur óskað eftir því að fá í hvíla í garðinum eftir sinn dag með Fischer.

Magnús Carlsen tryllti gesti Röntgen með karaókísöng sínum
Myndavélar flugu á loft þegar norska undrabarnið, heimsmeistarinn í skák, greip míkrófóninn og söng Boten Anna á karaókíkvöldi á skemmti- og veitingastaðnum Röntgen í gærkvöldi við mikinn fögnuð.

Carlsen breytti opnunarleik Katrínar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fékk að leika fyrsta leikinn í skák fimmfaldaheimsmeistarans Magnus Carlsen á heimsmeistaramótinu í Fischer-slembiskák í dag. Carlsen fannst leikur forsætisráðherrans greinilega ekki sá besti og dró hann til baka.

Carlsen í góðum málum eftir dag tvö
Norðmaðurinn Magnus Carlsen, heimsmeistari í skák, er í góðri stöðu eftir annan dag HM í Fischer-slembiskák sem fram fer í Reykjavík. Carlsen leikur í B-riðli og vann þrjár af fjórum viðureignum sínum við Þjóðverjann Matthias Blübaum í dag. Aðeins einni lauk með jafntefli.

„Pínu eins og Valur fengi að taka þátt í átta liða úrslitum meistaradeildarinnar“
Heimsmeistaramótið í Fischer-skák hófst í gær. Mótið er haldið hér á landi en Hjörvar Steinn Grétarsson er eini Íslendingurinn á mótinu. Aðeins eru átta keppendur á mótinu, meðal þeirra eru Magnus Carlsen, heimsmeistari í skák, sem talinn er verðandi heimsmeistari í Fischer-skák og Wesley So, núverandi heimsmeistari í Fischer-skák.

Carlsen í öðru sæti með tvo vinninga
Norski stórmeistarinn Magnus Carlsen situr í öðru sæti B-riðils á heimsmeistaramótinu í Fischer slembiskák sem fram fer á Hótel Natura í Reykjavík. Carlsen er með tvo vinninga, en hann laut í lægra haldi gegn Hikaru Nakamura í seinustu skák kvöldsins.

Yfirvofandi málaferli ekki afsökun
Heimsmeistarinn Magnus Carlsen kveðst ekki ætla að láta málsókn skákmannsins Hans Niemann hafa áhrif á taflmennskuna. Carlsen er staddur hér á landi til að taka þátt í heimsmeistaramótinu í Fischer-skák og hafa andstæðingar hans lýst yfir stuðningi.

Allt of mikið svindl í skákheiminum segir maðurinn sem sigraði Carlsen
Einn besti skákmaður heims kveðst ánægður með að heimsmeistarinn Magnus Carlsen hafi rætt svindl í íþróttinni. Tími hafi verið kominn til að einhver stigi fram og hann vonar að umræðan verði til þess að harðar verði tekið á svindli.

Magnus Carlsen kominn til landsins með foreldrum sínum
Norðmaðurinn Magnus Carlsen er kominn til Íslands. Heimsmeistarinn kom með flugvél Icelandair frá Osló í gærkvöldi en með í för eru faðir hans og móðir, Henrik Albert Carlsen og Sigrun Øen.

Býst við Carlsen í úrslitum á Fischerskákmótinu
Margir af öflugustu skákmönnum heims með heimsmeistarann Magnús Carlsen í broddi fylkingar eru á leið til Íslands til að keppa um heimsmeistaratitilinn í Fisher skák. Heimsmeistarinn hlýtur 21 milljón í verðlaun.

Magnus Carlsen mætir til Íslands á sunnudag í baráttu um sextíu milljónir króna
Skákáhugamenn hér á landi iða í skinninu enda aðeins tveir sólarhringar í að heimsmeistarinn Magnus Carlsen komi til landsins. Átta sterkir skákmenn berjast um tæplega sextíu milljóna króna verðlaunafé á heimsmeistaramótinu í afsprengi skákar úr smiðju Bobby Fischer.

Undirbúa hátíð vegna hálfrar aldar afmælis einvígis Fischers og Spasskís
Heimsmeistarinn í skák, Magnus Carlsen, er meðal þeirra sem ætla að heiðra Ísland í tilefni þess að hálf öld verður liðin frá því Bobby Fischer og Boris Spasskí háðu „einvígi aldarinnar“ í Laugardalshöll. Aldrei áður hafði nafn Reykjavíkur komist eins rækilega í heimsfréttirnar eins og þær vikur sumarið 1972 sem þeir Fischer og Spasskí tefldu um heimsmeistaratitilinn í skák á tíma þegar kalda stríðið milli stórveldanna var í hámarki.

Vilja fagna fimmtíu árum frá „einvígi aldarinnar“ með heimsmeistaramóti á Íslandi
Hugmyndir eru uppi um að halda heimsmeistaramót í skák hér á landi árið 2022 þegar 50 ár verða liðin frá svonefndu einvígi aldarinnar á milli þeirra Boris Spassky og Bobby Fisher í Laugardalshöllinni sem vakti heimsathygli.