
Lokun Borgarskjalasafns

Það er enn tími…
Í dag ætti með réttu að fagna 70 ára afmæli Borgarskjalasafns Reykjavíkur, sem var stofnað 7. október 1954. Venjulega hefði verið haldið upp á það með sýningu, málþingi eða á annan hátt. Fregnir hafa ekki borist af því að það verði gert. Enda kannski ekki furða, þar sem meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur samþykkti þann 7. mars 2023 að leggja niður safnið með ellefu atkvæðum gegn tíu atkvæðum minnihlutans.

Um aðgengi að upplýsingum
Þann 27. september birtist pistill eftir Sigurð Gylfa Magnússon prófessor í menningarsögu við Háskóla Íslands þar sem hann skorar á borgarstjóra og bæjarstjóra Kópavogs að endurskoða ákvarðanir þeirra um að hætta rekstri Borgarskjalasafns og Héraðsskjalasafni Kópavogs.

Áskorun til borgarstjóra og bæjarstjóra Kópavogs
Hinn 7. mars 2023 tók Borgarstjórn þá örlagaríku ákvörðun að loka Borgarskjalasafni. Sú ákvörðun kom langflestum Reykvíkingum í opna skjöldu og óhætt er að segja að vísindafólk í hug- og félagsvísindum hafi verið felmtri slegið.

Allt orðið að einhverjum Excel-æfingum
Prófessorar lýstu yfir miklum áhyggjum af stöðu safnamála og sameiningu skjalasafna á opnum fundi allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis í morgun. Fjárhagslegir hagsmunir ráði för en menningarhlutverkið mæti afgangi.

Bein útsending: Ræða framtíð opinberrar skjalavörslu
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis heldur opinn fund í dag þar fyrirkomulag og framtíð opinberrar skjalavörslu verður til umræðu.

Ríkið mun rukka vegna tilfærslu héraðsskjalasafna
Menningarmálaráðherra segir að ríkið muni rukka þau sveitarfélög sem í sparnaðarskyni hafa ákveðið að loka sínum héraðsskjalasöfnun og færa Þjóðskjalasafni Íslands lögbundin verkefni þeirra. Ráðherra hefur skipað starfshóp um framtíðarfyrirkomulag skjalavörslu landsins. Vanda þurfi til verka við varðveislu sögu þjóðarinnar.

Til hvers eru skjalasöfn?
Það virðist sem ekkert lát sé á aðsókninni að skjalasöfnum þessa dagana. Svo virðist sem hverju sveitarfélaginu á fætur öðru finnist þau vera stofnanir sem megi leggja niður án þess að taka faglega umræðu um tilgang þeirra eða gagnsemi.

Gögn Borgarskjalasafns telja tíu kílómetra
„Borgarskjalasafn er stórt safn, stærsta héraðsskjalasafnið, og ríflega tíu kílómetrar af gögnum. Það þarf að skoða hvaða tímalínu Reykjavíkurborg hefur í huga en það er sett fram áætlun til fjögurra ára um aðlögun í þeirra skýrslu.“

Tillaga um lokun Borgarskjalasafns samþykkt
Tillaga borgastjóra um framtíðarstarfssemi á starfssemi Borgarskjalasafns var samþykkt í borgarstjórnarfundi í dag með ellefu atkvæðum gegn tíu.

Sakar borgarskjalavörð um að hafa ítrekað farið með fleipur
Formaður borgarráðs sakar borgarskjalavörð um að hafa farið ítrekað með fleipur í fjölmiðlum. Hann segir borgarfulltrúa Flokks fólksins og fleiri hafa étið umrædd ummæli „hrátt“ upp.

Þjóðskjalasafn vanti fjármagn eigi það að taka við starfsemi Borgarskjalasafns
Borgarstjórn mun í dag ákveða hvort Borgarskjalasafn verði lagt niður. Til umræðu hefur komið að sameina safnið Þjóðskjalasafni og hefur þjóðskjalavörður óskað eftir fundi hjá ráðuneytinu vegna umfangsins. Við blasi að talsvert meira fjármagn þurfi til Þjóðskjalasafns eigi það að taka við verkefninu.

Segir óvenjulega staðið að málinu og leynd hafa ríkt um tillöguna
Svanhildur Bogadóttir borgarskjalavörður segir vægast sagt óvenjulega hafa verið staðið að þeirri tillögu að leggja niður Borgarskjalsafn. Svo mikil leynd hafi ríkt yfir tillögunni að hvorki hún né aðrir starfsmenn safnsins voru látnir vita.

Ósmekklegar ávirðingar gagnvart borgarskjalaverði í skýrslu KPMG
Nú verður Borgarskjalasafn lagt niður á fundi borgarstjórnar þriðjudaginn 7. mars og til grundvallar er skýrsla KPMG. Sagt er að gjörningurinn sé til að spara. Það sjá allir í hendi sér hvílíkt kjaftæði það er.

Segir tillögu borgarstjóra „vanreifaða“ og „ótæka“ og vill vísa henni frá
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hyggst mun á borgarstjórnarfundi á morgun leggja til að tillögu borgarstjóra um niðurlagningu Borgarskjalasafns verið vísað frá á þeim grunni að tillagan sé vanreifuð og byggð á aðkomu ríkisins án þess að búið sé að ganga frá samkomulagi um málið við ríkið.

Segir borgarstjóra í „hefndarleiðangri“
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst gegn fyrirhugaðri lokun Borgarskjalasafns og segir vinnu að baki tillögunni óvandaða. Hann túlkar ákvörðunina sem hefndaraðgerð borgarstjóra gegn safninu. Borgarstjóri segir að vandað verði til verka í hvívetna; milljarðar muni sparast með breyttum rekstri.

„Galið og algert óráð“ að loka Borgarskjalasafni
Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn, segir að það sé algert óráð og galið að loka Borgarskjalasafni. Það sé ýmislegt sem vanti upp á til að hægt sé að taka jafn afdrifaríka ákvörðun og þessa. Þá gæti hún haft í för með sér óafturkræfar afleiðingar og valdið miklum skaða.

Verður opið hjá ykkur á föstudaginn?
Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, hefur lagt fram tillögu í borgarráði um að Borgarskjalasafn Reykjavíkur verði lagt niður í núverandi mynd og mun borgarráð afgreiða hana fimmtudaginn 2. mars.

Sex milljarða króna tálsýn
Ríkisútvarpið greindi nýlega frá því að flutningur á starfsemi Borgarskjalasafnsins yfir til Þjóðskjalasafnsins sparaði Reykjavíkurborg heila sex milljarða króna á næstu sjö árum. Vísaði ríkisfjölmiðillinn til orða Dags B. Eggertssonar borgarstjóra sem aftur vísaði til kostnaðargreiningar sem KPMG vann fyrir Reykjavíkurborg.

Sagnfræðingar ósáttir við mögulega lokun Borgarskjalasafnsins
Sagnfræðingar eru ósáttir við að mögulega verði Borgarskjalasafnið lagt niður í núverandi mynd og segja meinlegt að þetta sé gert án samráðs við borgarskjalavörð eða aðra fagmenn. Ekki megi draga úr getu til varðveislu og miðlunar sögunnar og „ekki síst á tímum upplýsingaóreiðu og falsfrétta“.

Segir það lýsa metnaðarleysi að leggja niður Borgarskjalasafnið
Borgarskjalavörður segir hugmyndir um að leggja niður Borgarskjalasafnið metnaðarlausar en tillögu þess efnis var frestað í borgarráði í gær. Starfið yrði sett áratugi aftur í tímann.