Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Muni vitan­lega gera kröfu um sæti í meiri­hluta

Oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri segist þakklátur fyrir meðbyr sem hann hafi fundið fyrir að undanförnu og segir að verði flokkurinn stærstur að loknum kosningum muni hann eðli málsins samkvæmt gera kröfu um sæti í meirihluta.

Innlent
Fréttamynd

Segir Mið­flokkinn selja snákaolíu

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir Miðflokkinn selja snákaolíu með loforðum sínum um auknar heimgreiðslur til foreldra. Hún segir heimgreiðslur langtum stærra mál en Miðflokkurinn boði, þær muni til lengri tíma skerða tekjur mun meira en sem nemur ávinningi.

Innlent
Fréttamynd

Sam­fylkingin stærst á Akur­eyri

Samfylkingin yrði stærsti flokkurinn í bæjarstjórn á Akureyri ef gengið yrði til kosninga nú og myndi bæta við sig tveimur bæjarfulltrúum frá því árið 2022. L-listinn mælist með næstmesta fylgið, rúmu prósentustigi minna en listinn fékk í síðustu kosningum. Sjö framboð myndu ná sætum í bæjarstjórn yrði gengið til kosninga nú.

Innlent
Fréttamynd

Ör­væntir ekki yfir fregnum af falli meiri­hlutans

Bæjarstjóri Kópavogs segist ekki örvænta þó ný könnun Maskínu sem gerð var fyrir DV sýni að meirihluti Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna sé fallinn. Hún segist trúa því að Kópavogsbúar vilji áfram sömu forystu, enda mælist flokkurinn mesta fylgið í bænum. Oddvitar flokkanna sem bæta mestu við sig í Kópavogi segjast sáttir með sitt en útiloka ekkert þegar kemur að meirihlutasamstarfi.

Innlent
Fréttamynd

Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“

Oddvitar í borgarstjórnarkosningum sem tæplega munu ná inn í borgarstjórn samkvæmt nýuppfærðri kosningaspá Vísis eru hvergi bangnir og segja enn langan tíma til kosninga. Oddvita Sósíalistaflokksins er spáð sæti í borgarstjórn, eins og staðan er núna.

Innlent
Fréttamynd

Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarn­veigar dvína

Sjálfstæðisflokkurinn er kominn með ríflega fjögurra prósentustiga forskot á Samfylkinguna í Reykjavík í kosningaspá Vísis. Sjöundi maður hans á nú meiri líkur á að komast inn en sjötti maður Samfylkingar. Líkur sósíalista að ná inn manni hafa aukist en Flokks fólksins dalað.

Innlent
Fréttamynd

Bilið á milli turnanna breikkar

Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í Reykjavíkurborg og eykur forskot sitt á Samfylkinguna. Flokkurinn mælist með ríflega tuttugu og fimm prósenta fylgi í borginni í nýrri könnun Maskínu og hefur farið upp um fjögur prósentustig síðan í mars.

Innlent
Fréttamynd

Drakk ó­vart á­fengi í fyrsta sinn og það undir stýri

Kristinn Jón Ólafsson oddviti Pírata í borgarstjórnarkosningum varð eitt sinn fyrir því óláni að drekka óvart áfengan drykk en Kristinn drekkur ekki áfengi. Óafvitandi keyrði bíl með drykkinn í hendi og skellti sér síðan í útihlaup sem fór ekkert sérstaklega vel.

Lífið
Fréttamynd

„Lygaáróðurs­her­ferð af hálfu pólitískra and­stæðinga“

Ræða Snorra Mássonar, varaformanns Miðflokksins, um regnbogafánann á þingi í síðustu viku hefur vakið sterk viðbrögð. Gagnrýnendur fordæma hann og segja hann hafa svívirt hinsegin samfélagið og regnbogafánann með orðum sínum. Aðrir segja viðbrögðin viðbúin og ofsafengin. Snorri segir snúið úr úr orðum sínum.

Innlent
Fréttamynd

„Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“

„Þetta byrjaði að þróast hægt og rólega, ég veit ekki hvort ég drekk þetta í mig eða hvort þetta var alltaf þarna og tók sinn tíma,“ segir Rúnar Freyr Gíslason, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, í viðtali í hlaðvarpinu Jón Ólafs á spjallinu. 

Lífið
Fréttamynd

Kosningapallborð frétta­stofu: Mun Sjálf­stæðis­flokkurinn halda velli í Garða­bæ?

Það styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí og eins og stendur eru þrjár vikur þangað til landsmenn ganga til kosninga. Við höldum áfram að hita upp fyrir stóru stundina og því munu oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Garðabæ koma saman í kosningapallborði fréttastofu til að ræða þau helstu málefni sem eru undir í kosningunum.

Innlent
Fréttamynd

„Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“

Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins segir margar drottningar í flokknum aðspurður hvers vegna hann hafi ekki mætt í Silfrið í Ríkisútvarpinu á dögunum. Hann segist mæta í öll viðtöl sem þjóni markmiðum framboðsins, Heimir Már Pétursson kosningastjóri flokksins sé toppmaður þó hann geti við fyrstu sýn virst ógnvekjandi.

Lífið
Fréttamynd

Nánast búin með staf­rófið

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar er hafin og hafa þegar tvö hundruð og þrjátíu manns kosið hjá sýslumönnum og sendiráðum. Frambjóðendur á landinu öllu eru ríflega þrjú þúsund.

Innlent
Fréttamynd

Út­lit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni

Það verður flókið að mynda meirihluta í borgarstjórn í vor miðað við nýuppfærða kosningaspá Vísis að mati stjórnmálafræðings. Stóru tíðindin nú séu þau að það mikla sóknarfæri sem opnast hafi á vinstri væng íslenskra stjórnmála sé byrjað að fyllast, sérstaða Vinstrisins sé miklu skýrari en ella.

Innlent
Fréttamynd

Nám Hildar sé merki­legra en menntunar­fræði leik­skóla

Félag leikskólakennara gagnrýnir hugmyndir Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, um að stytta nám leikskólakennara. Þau segja Hildi finnast sitt nám, en hún er með gráður í stjórnmála- og lögfræði, mikilvægara heldur en menntunarfræði ungra barna.

Innlent
Fréttamynd

Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi

Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík vill takast á við mönnunarvandann í leikskólum borgarinnar með fjárveitingu upp á mörg hundruð milljónir en oddviti Sjálfstæðisflokksins bendir á áð íslenskt leikskólakerfi sé þegar mjög kostnaðarsamt. Tekist var á um málið í Sprengisandi.

Innlent
Fréttamynd

„Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir utankjörfundaratkvæðagreiðslu fara vel af stað í húsakynnum sýslumannsins við Hlíðarsmára í Kópavogi. Gott húsnæði með nóg af bílastæðum geri gæfumuninn enda mikilvægt að fólk komist á réttan stað.

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hlutinn fallinn sam­kvæmt nýrri könnun

Meirihlutinn er fallinn í borginni ef marka má nýja könnun Gallups. Vinstrið er með sterka innkomu og bæta Miðflokkurinn og Viðreisn töluvert við sig frá síðustu kosningum. Á sama tíma missa Framsókn, Píratar og Sósíalistaflokkurinn mikinn hluta síns fylgis. Stór hluti svarenda gaf ekki upp afstöðu sína eða kaus að skila auðu.

Innlent
Fréttamynd

Af hverju? - Af hverju ekki?

Á meðan jafnaldrar mínir eru farnir að huga að eftirlaunum, því að taka út séreignarsparnaðinn, hætta að vinna og taka það rólega, þá kýs ég að hefja minn stjórnmálaferil. Hvað í ósköpunum gengur þér til gamli maður?

Skoðun
Fréttamynd

„Það er ekki hægt að taka jafnaðar­manninn úr mér“

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins hélt áfram að hamast í Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra vegna kosningafundar Samfylkingarinnar í Kópavogi en Sjálfstæðismenn vilja meina að þar hafi Kristrún lofað um 15 milljörðum árlega úr ríkissjóði í kosningaloforð Samfylkingar á sveitarstjórnarstigi.

Innlent