Ástand á bráðamóttöku Landspítalans

Fréttamynd

Sakfelling hjúkrunar­fræðingsins sé sorg­leg

Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir sakfellingu Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðings sorglega. Áhrifin sem slíkur dómur kynni að hafa á stéttina séu gríðarleg. Hún gagnrýnir jafnframt að ákvæðum, sem varða rannsóknir lögreglu á atvikum í heilbrigðisþjónustu, hafi ekki verið fylgt eftir af stjórnvöldum.

Innlent
Fréttamynd

Ný bráða­mót­taka að taka á sig mynd

Framkvæmdum við Nýjan Landspítala miðar vel þessa dagana en þó er ekki gert ráð fyrir að hann verði tekinn í gagnið fyrr en árið 2030, eða fjórum árum á eftir áætlun. Á spítalanum verður stærsta bráðamóttaka Norðurlandanna.

Innlent
Fréttamynd

Kerfið er vanda­málið ef það styður ekki ný­sköpun

Með nýsköpun í heilbrigðiskerfinu er hægt að framlengja sjálfstæða búsetu fólks, draga úr þörf fyrir innlagnir og leysa stóran vanda, að mati sérfræðings hjá Fjársýslu ríkisins. Framlínustofnanir þurfi að snúa bökum saman og kerfið eigi að treysta heilbrigðisstarfsfólki til þess að leita lausna.

Innlent
Fréttamynd

Bráðamóttakan megi ekki vera „forarpyttur sýkinga og hættu“

„Hvers vegna er álagi innan Landspítalans svona misskipt milli Bráðamóttöku og legudeilda Landspítala með tilheyrandi skaða fyrir sjúklinga og starfsfólk? Við viljum að Bráðamóttakan og hennar starf verði framvegis verndað, frekar en að hún sé gerð að forarpytti sýkinga og hættu.“

Innlent
Fréttamynd

„Við syst­kinin erum bara vinnandi fólk“

Kona á níræðisaldri með Alzheimer gæti þurft að bíða í allt að fjögur ár eftir að komast á hjúkrunarheimili. Sonur hennar segir sárt að horfa upp á að ekki hafi verið brugðist fyrr við, þrátt fyrir að í mörg ár hafi legið fyrir að þörf væri fyrir fleiri rými.

Innlent
Fréttamynd

Yfir­völd hafi út­vegað tvö ný rými og ó­breytt á­stand

Ástandið á Landspítalanum er óbreytt að sögn stjórnenda þar þrátt fyrir ákall um að þörf sé á aðgerðum nú þegar. Aðeins sé búið að útvega tvö hjúkrunarrými annars staðar. Formaður Læknafélags Íslands fagnar því að stjórnvöld viðurkenni vanda spítalans og boði aðgerðir. Það þurfi að vinna hratt.

Innlent
Fréttamynd

Þjökuð af sam­visku­biti meðan pabbinn bíður eftir plássi

Dóttir manns á níræðisaldri sem hefur legið á Landspítalanum í á fjórða mánuð vegna þess að ekki losnar pláss á hjúkrunarheimili segir tímabært fyrir ríkt land á borð við Ísland að huga að forgangsröðun. Hún segir sorglegt að maður sem hafi staðið sína plikt sé fastur á sjúkrahúsi, með takmarkaðan heimsóknartíma og enga endurhæfingu. Þótt hann sé einn af á annað hundrað sem bíða eftir plássi verði að muna að hann sé ekki tala á blaði. Ekki frekar en fjölskylda hans sem er þjökuð af samviskubiti.

Innlent
Fréttamynd

„Við erum ára­tugum of sein“

Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, segir að til að bæta ástandið á Bráðamóttökunni þurfi að huga að rót vandans. Það sé allt of hæg uppbygging hjúkrunarrýma. Þetta er meðal þess sem hún sagði í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Við styðjum kollega okkar á bráða­mót­töku Land­spítalans!

Þetta ástand er óviðunandi og getur ekki haldið áfram lengur. Við höfum verið á hæsta stigi viðbúnaðar svo mánuðum skipti með yfirlögnum á öllum legudeildum spítalans. Með yfirlögnum er átt við að fleiri sjúklingar dvelja á deildum en gert er ráð fyrir vegna húsnæðis og mönnunar heilbrigðisstarfsmanna.

Skoðun
Fréttamynd

Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni

Forstjóri Landspítalans segir virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni þegar það skoðar hvernig eigi að taka á stöðu bráðamóttökunnar. Alma Möller, þá landlæknir, sagði í minnisblaði til heilbrigðisráðherra árið 2022 að staðan á bráðamóttökunni væri svo slæm að ef það væri ekki eina bráðamóttakan á landinu myndi hún mæla með því að henni yrði lokað tímabundið.

Innlent
Fréttamynd

Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni

Forstjóri Landspítalans segir til skoðunar að leigja hótelrými tímabundið til að létta undir með starfsemi bráðamóttökunnar. Rýmunum yrði ráðstafað til þeirra sem dvelja á sjúkrahótelum og þannig myndi legurýmum fjölga svo hægt væri að létta á álaginu á bráðamóttökunni.

Innlent
Fréttamynd

Ekki ég!

Það er hrollvekjandi að hugsa til þess að á að minnsta kosti 45 árum hafi lítið sem ekkert breyst þegar kemur að umönnun aldraða og hinum svokallaða „fráflæðisvanda“ sem annars er skelfilegt orð.

Skoðun
Fréttamynd

Mannfjandsamleg stefna á bráðamóttökunni

Ástandið á bráðamóttöku Landspítalans er óboðlegt og hefur verið lengi. Forstjórar LSH koma og fara en enginn þeirra virðist ráða við að skipuleggja bráðamóttöku svo sómi sé að. Aðstæður þar eru óásættanlegar bæði fyrir starfsmenn og sjúklinga. Engu virðist breyta hve miklu fé er varið til spítalans, ekkert lagast og raunar versnar ástandið frekar ef eitthvað er.

Skoðun
Fréttamynd

Við­brögð Ölmu mikil von­brigði

Formaður Félags bráðalækna lýsir miklum vonbrigðum með viðbrögð heilbrigðisráðherra við neyðarópi starfsmanna bráðamóttökunnar. Hamfaraástand ríki þar á degi hverjum og bregðast þurfi tafarlaust við.

Innlent
Fréttamynd

Vinna að því að fækka sjúk­lingum og flytja annað

Alma Möller heilbrigðisráðherra segir mikilvægast að fækka sjúklingum á spítalanum og flytja þau annað sem hafa lokið meðferð og geta farið annað. Á næstu dögum bætist við hjúkrunar- og dagdvalarrými til að taka við sjúklingum. Hún segir að sér líði ekki vel með stöðu spítalans og vanlíðan starfsfólks. 

Innlent
Fréttamynd

Starfs­fólk bráða­mót­töku óttist um heilsu sína og öryggi

Starfsfólk bráðamóttöku Landspítala óttast um öryggi sitt og sjúklinga þar sem ekki er hægt að tryggja sýkingavarnir, segir formaður Félags hjúkrunarfræðinga. Vinnuaðstæður séu óboðlegar. Stéttarfélög allra starfsmanna bráðamóttökunnar hafa boðað til fundar síðdegis.

Innlent
Fréttamynd

Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili lands­manna

Formaður Læknafélags Íslands segir stöðuna á Landspítalanum aldrei hafa verið verri, sífellt séu ný met slegin í fjölda sem liggi á bráðamótttökunni og einnig hafi nýtt met fallið á dögunum en nú bíði yfir hundrað manns á Landspítalanum eftir hjúkrunarrými. Hún segir nýja hugmynd að lausn með ólíkindum og spyr hvort næsta skref sé að leggja aldrað fólk inn á heimili landsmanna?

Innlent
Fréttamynd

„Hve­nær í ó­sköpunum er botninum náð á þessum vinnu­stað?“

Slæmar vinnuaðstæður og þrengsli á bráðamóttöku Landspítalans geta útsett starfsfólk og sjúklinga fyrir ýmsum sýkingum að mati framkvæmdastjóra hjá Landspítalanum. Formaður Læknafélags Íslands segir starfsstéttina í töluverðu uppnámi í kjölfar berklasmits sem átti sér mögulega stað á bráðamóttökunni.

Innlent
Fréttamynd

Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar

Aldrei hafa jafn margir leitað á bráðamóttöku Landspítalans vegna hálkuslysa á einum degi líkt og á þriðjudag þegar níutíu slösuðust. Leggja þurfti fimm inn á sjúkrahúsið.

Innlent
Fréttamynd

Annasamasti dagur á bráða­mót­töku í lækna minnum

Hálfgert hættuástand skapaðist sunnan- og vestanlands fyrir akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur vegna flughálku í morgun. Rekja má fjölda umferðaróhappa og slysa til hennar. Á hádegi höfðu þrjátíu manns leitað á bráðamóttöku vegna hálkumeiðsla en í kvöld hafði sú tala hækkað í áttatíu.

Innlent
Fréttamynd

Að byggja upp flæði og traust í heil­brigðis­kerfinu

Í nýlegri grein hér á Vísi setur Jón Magnús Kristjánsson skýrt fram hvers vegna endurtekið álag og ófremdarástand skapast á bráðamóttöku Landspítala. Umfjöllunin er mikilvæg og gagnleg og setur í orð þann veruleika sem heilbrigðisstarfsfólk og sjúklingar upplifa ítrekað.

Skoðun
Fréttamynd

Hvers vegna er endur­tekið ó­fremdar­á­stand á bráðamóttökunni?

Ástandið á bráðamóttöku Landspítala er reglulega til umræðu í samfélaginu. En af hverju er þetta svona? Til að skilja stöðuna sem reglulega skapast á bráðamóttöku, verður að líta á heilbrigðiskerfið sem eina samtengda keðju. Ef einn hlekkur keðjunnar gefur eftir, hefur það strax áhrif á hina.

Skoðun
  • «
  • 1
  • 2