Tónleikar Kaleo á Þingvöllum 2026
Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Tónlistarhátíðin Bergmál fór fram á Þingvöllum um liðna helgi en undirbúningur hátíðarinnar hefur verið mikið ræddur síðastliðnar vikur. Tekist hefur verið á um hvort að skipulag hafi verið með sem bestum hætti en meðal þeirra sem telja svo vera er starfshópur Lögreglunnar á Suðurlandi. Innlent 22.6.2026 20:10
Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Íslenska sumarið fer vel af stað með blíðviðrisdögum, björtum nóttum og mikið af viðburðum. Stjörnur landsins njóta sín sem aldrei fyrr og voru ófáar þeirra á Bergmáls-tónleikum Kaleo á Þingvöllum á laugardaginn. Lífið 22.6.2026 07:01
Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Vel virðist hafa farið á með Jökli Júlíussyni, nýrri kærustu hans og forsetahjónunum, frú Höllu Tómasdóttur og Birni Skúlasyni á Þingvöllum í gær. Mbl greindi frá því á föstudagskvöld að Jökull hefði eignast nýja vinkonu, brasilíska íþróttafréttakonu og fyrirsætu að nafni Bruna Ludmila. Lífið 21.6.2026 21:01
Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum Það var rjómablíða og bros á svo gott sem hverju einasta andliti á stórtónleikum Kaleo sem fóru fram á Þingvöllum í gær. Viktor Freyr Arnarson ljósmyndari Vísis fangaði stemninguna á tónleikunum þar sem tuttugu þúsund manns létu sjá sig. Lífið 21.6.2026 16:15
Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Skikkja, eða ponsjó, Jökuls Júlíussonar úr Kaleo vakti sannarlega athygli á tónleikum á Þingvöllum í gær. Konan sem prjónaði skikkjuna segist strax í dag hafa fengið fjölda fyrirspurna vegna hönnunarinnar en hún segist hvorki selja flíkur né uppskriftir. Skikkjan er nú komin í eigu Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Tíska og hönnun 21.6.2026 13:43
Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Þjóðgarðsverði líst vel á fyrsta frágang á Þingvöllum en hann skellti sér á svæðið í morgun eftir stórtónleika Kaleo í þjóðgarðinum í gær. Hann segir gesti heilt yfir hafa verið til fyrirmyndar þó aðeins hafi borið á meira rusli undir lok hátíðarinnar í gærkvöldi, ræst hafi úr umferðarmálum eftir teppu sem hafi minnt marga á sögufræga umferðarteppu 1994. Hann biðlar til ferðaþjónustuaðila að keyra með gát um svæðið næstu daga á meðan frágangi stendur. Innlent 21.6.2026 11:28
„Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ „Þetta gekk í rauninni allt saman mjög vel í öllum aðalatriðum,“ segir Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, um tónlistarhátíðina Bergmál á Þingvöllum sem haldin var í gær. Miklar umferðartafir urðu engu að síður í kringum hátíðina, en við því var að búast að sögn lögreglu. Innlent 21.6.2026 09:13
Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Fréttastofu bárust ábendingar frá tónleikagestum á Þingvöllum um miklar tafir á tónleikasvæðinu vegna margmennis. Vonsvikinn gestur segir sviðið of lítið, áhorfendasvæðið rúmi ekki mannfjöldann og ekki sé nægt pláss í kringum matarvagnana. Tónlistarhátíðin Bergmál fór þar fram í dag en búist var við tuttugu þúsund gestum. Innlent 20.6.2026 22:10
Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina „Það er sól í heiði og allir í brosandi góðu skapi,“ segir Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Mikill umferðarþungi hefur verið á leiðinni að Þingvöllum í dag vegna tónlistarhátíðarinnar Bergmáls. Innlent 20.6.2026 18:48
Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Það er líf og fjör á Þingvöllum í dag þar sem fram fara stórtónleikar Kaleo. Búist er við tuttugu þúsund manns á svæðið en Viktor Freyr Arnarson ljósmyndari Vísis var á svæðinu í dag og fangaði stemninguna. Lífið 20.6.2026 15:49
Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Töluverð umferð er á Þingvallasvæðinu að sögn Péturs Sveinssonar, varðstjóra í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt ábendingum til fréttastofu sem og fréttamanni á vettvangi er nú bíll við bíl að Þingvöllum. Umferð hreyfist nú hægt. Innlent 20.6.2026 14:38
Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Bergmál á Þingvöllum nær alla leið heim í stofu þar sem tónlistarhátíðinni verður útvarpað á Bylgjunni í dag. Hlusta má á útsendinguna í spilaranum hér að neðan en útsendingu lýkur klukkan 16:00 á Bylgjunni. Tónlist 20.6.2026 14:16
Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Von er á rjómablíðu á Þingvöllum þar sem tónleikar hljómsveitarinnar Kaleo fara fram. Tónlist mun óma um svæðið til miðnættis og verður hápunktinum útvarpað í beinni á Bylgjunni. Lífið 20.6.2026 13:21
Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Umboðsmenn og tónleikahaldarar eru margir hverjir gáttaðir á umræðunni í kringum tónleikana Bergmál sem haldnir verða á Þingvöllum um helgina. Það sé fullkomlega eðlilegt að ekki megi taka með sér eigin veitingar eða stóla á tónleika. Einn spyr hvort engin takmörk séu fyrir leiðindum þjóðarinnar. Innlent 19.6.2026 22:27
Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Allt er að verða tilbúið fyrir stórtónleika Kaleo sem fara fram á morgun. Meðlimir Kaleo hvetja gesti til að skemmta sér fallega og skora á Bubba Morthens að taka sér pásu frá laxveiði til að kíkja á hátíðina. Innlent 19.6.2026 21:01
Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Tónlistarhátíðin Bergmál fer fram á Þingvöllum á morgun, laugardag. Ferðamenn reka upp stór augu við sjónina en búið er að stilla upp tjöldum, tugum kamra, risastóru sviði og hljóðprufur eru hafnar. Lífið 19.6.2026 13:54
Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Tónleikar hljómsveitarinnar Kaleo fara fram á Þingvöllum um næstu helgi og bera yfirskriftina Bergmál. Umræða hafði skapast undanfarna daga á spjallþráðum Facebook-hópa eftir að í ljós kom að stólar, regnhlífar og veitingar yrðu ekki leyfð á svæðinu. Jakob Frímann tónleikahaldari segir enga ástæðu til að hafa áhyggjur af þessu þó ekki sé gert ráð fyrir því að fólk flytji heilu garðhúsgagnabúslóðirnar með sér. Neytendur 16.6.2026 16:33
Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi Kaleo snýr aftur heim í sumar eftir að hafa spilað á stórum sviðum víða um heim og orðið ein þekktasta íslenska rokksveit síðari ára. Hljómsveitin segir tónleikana Bergmál á Þingvöllum í sumar þó vera í sérflokki. Lífið 28.5.2026 16:40
„Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Söngvarinn Jökull Júlíusson í Kaleo segir það langþráðan draum að spila á Þingvöllum, einum fallegasta stað landsins. Tónleikarnir Bergmál verði sögulegir og staðsetningin því vel við hæfi. Eftir Þingvelli heldur sveitin til Bandaríkjanna þar sem Kaleo kemur fram á Heimsmeistaramótinu í fótbolta og fer síðan á tónleikaferðalag um Norður-Ameríku. Tónlist 15.4.2026 09:10
Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Þingvallanefnd hefur borist tvö erindi vegna fyrirhugaðra tónleika Kaleo á Þingvöllum í sumar. Formaður nefndarinnar segir að erindin verði tekin fyrir en búið sé að gera ýmsar ráðstafanir svo engar raskanir verði á svæðinu. Innlent 14.4.2026 22:21
Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Nánast uppselt er á stórtónleika hljómsveitarinnar Kaleo á Þingvöllum í sumar. Í tilkynningu sem Jakob Frímann Magnússon tónleikahaldari sendi frá sér kemur fram að af þeim tuttugu þúsund miðum sem séu í boði hafi sautján þúsund þegar verið seldir. Tónlist 10.4.2026 12:11
Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Forsala á stórtónleika Kaleo á Þingvöllum í sumar hófst klukkan tíu í morgun og seldust miðarnir sex þúsund upp á innan við mínútu. Tónleikarnir fara fram 20. júní og mun fjöldi íslenskra tónlistarmanna koma þar fram. Tónlist 9.4.2026 12:12
Stórtónleikarnir verða fyrir neðan Öxarárfoss Gert er ráð fyrir að tuttugu þúsund gestir sæki tónleika hljómsveitarinnar Kaleo á Þingvöllum í sumar. Tónleikarnir fara fram á grasflötum fyrir neðan Öxarárfoss og þjóðgarðsvörður segir heilan her fólks munu gæta þess að náttúran beri engan skaða af. Hann kannast ekki við tónleikaumsóknir frá Coldplay eða U2. Innlent 29.3.2026 15:00
Kaleo efnir til tónleikaveislu á Þingvöllum í júní „Þegar Coldplay báðu um leyfi þá var svarið nei og þegar U2 báðu um leyfi þá var svarið nei. Þegar Kaleo biðja um leyfi með Jökul í forsvari; þá er svarið auðmjúkt já.“ Lífið 27.3.2026 07:17