Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Sigurgeir Þorkelsson skrifar 19. júní 2026 13:54 Hljómsveitin Kaleo verður aðalnúmerið á tónlistarhátíðinni Bergmáli. Vísir/Viktor Freyr Tónlistarhátíðin Bergmál fer fram á Þingvöllum á morgun, laugardag. Ferðamenn reka upp stór augu við sjónina en búið er að stilla upp tjöldum, tugum kamra, risastóru sviði og hljóðprufur eru hafnar. „
Þetta er mjög tilkomumikið,“ sagði Tómas Arnar Þorláksson fréttamaður sem ræddi við Egil Tómasson svæðisstjóra og Ósk Gunnarsdóttur, einn skipuleggjanda, í beinni útsendingu frá Þingvöllum í hádegisfréttum. Á bak við tónlistarhátíðina liggur margra mánaða skipulagsvinna. „Við Egill höfum bæði verið að framkvæma stóra viðburði hér á landi en getum bæði sagt með vissu að þetta er sá allra stærsti og flóknasti sem við höfum haldið,“ segir Ósk. Sérstakt öryggisráð, skipað tuttugu til þrjátíu manns, með fulltrúum frá bæði lögreglu og slökkviliði hefur fundað vikulega. „Það er allt búið að vera til fyrirmyndar. Við vorum að taka öryggisúttekt í morgun, það var hreinlega klappað hér, allir aðilar í skýjunum. Nú vantar bara fólkið.“ Það eru ekki aðeins tónlistarunnendur sem munu skemmta sér á morgun, áhugafólk um skipurit má einnig vel við una. Vísir Gagnrýnt hefur verið að gestir megi ekki taka með sér tjaldstóla og regnhlífar. „Við náttúrulega erum að fá tuttugu þúsund manns á svæðið, við fylgjum bara alþjóðlegum öryggisstöðlum í kringum svona stóra viðburði, þetta er bara gert fyrir öryggi fólks. Þetta er ekki gert af illvild, þetta er bara nauðsynlegt,“ segir Egill Ekki verður leyfilegt að hafa mat og drykk með sér inn á svæðið en skipuleggjendur lofa góðu úrvali þegar inn á svæðið er komið. Vísir „Ég vil árétta að fólk þarf ekki að koma með regnhlíf, hér eru tjöld og samkvæmt spánni eru 15 gráður og sól,“ segir Ósk. „Það eru bekkir og borð úti um allt á veitingasvæðinu. Við erum með klappstóla víðs vegar á svæðinu. Það eru sérstólasvæði fyrir óléttar konur og fleiri sem kunna að þurfa. Það verður nóg af sætum á morgun og ég tala nú ekki um ef það verður bongó, þá erum við Íslendingar bestir í pikknikk, það er bara að taka teppin með og hafa það kósí með okkur.“ Samkvæmt Ósk eru örfáir miðar enn lausir.
Kaleo Þingvellir Tónlist Tónleikar Kaleo á Þingvöllum 2026 Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sahara Ray látin Lífið Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Costanza á klakanum Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Sjá meira