Hryðjuverk í Útey
7 8 9 10 11 ›
Íslensk hjúkrunarkona á vaktinni í Osló "Ástandið var mjög "kaótískt" til að byrja með, fyrst eftir að fréttist af sprengingunni í Osló voru allir mjög sjokkeraðir og síðan enn frekar þegar fréttist af skotárásinni," segir Anna María Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur, sem vinnur á spítala í Sandvika sem er skammt frá Osló. Innlent 23.7.2011 13:15
Skipulagði voðaverkin í litlu einbýlishúsi Norskir fjölmiðlar hafa birt mynd af húsinu sem fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik bjó í og skipulagði voðaverkin sem hann framdi í gær. Hann sprengdi upp bifreið í miðborg Oslóar og skaut svo ungmenni á eyjunni Útey sem er skammt frá Osló. Norska lögreglan hefur staðfest að minnsta kosti 92 hafi látið lífið. Erlent 23.7.2011 14:12
Þetta var fjöldamorðinginn að hugsa Skrif Anders Behring á norska öfgavefinn document.no hafa verið þýdd á ensku. Þar kemur fram djúpstætt hatur hans á fjölmenningarstefnu og Íslam sem hann segir vera að taka yfir Evrópu. Innlent 23.7.2011 13:03
Hver er Anders Breivik? Anders Behring Breivik, norski byssumaðurinn sem handtekinn var í gær og er talinn bera ábyrgð bæði á sprengjuárásinni í Osló og skotárusunum í Útey, hlaut þjálfun í norska hernum, átti fjölda vopna og er sagður hægrisinnaður trúarofstækismaður. Erlent 23.7.2011 12:19
Jóhanna - Hugur okkar hjá norsku þjóðinni "Þetta eru svo hörmulegir atbuðir að engin orð fá því lýst. Við finnum innilega til með norsku þjóðinni á þessum hræðilegu tímum. Hugur okkar er með Norðmönnum og ekki síst fórnarlömbum og aðstandendum þeirra sem eru kannski að ganga í gegnum erfiðustu tíma sem Norðmenn hafa gengið í gegnum,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. Innlent 23.7.2011 12:10
Skaut á fólk sem reyndi að synda af eyjunni Nýjustu fréttir norska ríkissjónvarpsins herma að annar maður hafi verið handtekinn í tengslum við fjöldamorðin á Útey í gær. Norska lögreglan staðfesti á blaðamannafundi í morgun að Breivik, sem handtekinn var í gær, hafi átt sér vitorðsmann. Erlent 23.7.2011 12:03
Fórnarlamba minnst í Eyjum Stafkirkjan á Heimaey verður opin í dag og hægt verður að minnast þeirra sem misst hafa lífið í árásunum í Osló og Útey í gær. Kirkjan er opin frá klukkan 11 til 17, flaggað verður í hálfa stöng og hægt er að rita samúðarkveðjur í sérstaka minningarbók þar í dag og næstu daga. Innlent 23.7.2011 11:54
Ólafur Ragnar: Hugur Íslendinga hjá Norðmönnum Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sendi í morgun samúðarkveðjur til Haraldar Noregskonungs og norsku þjóðarinnar. Í kveðjunni lýsti forseti djúpri samúð allra Íslendinga vegna hinna skelfilegu atburða í Noregi. Hugur okkar væri hjá fjölskyldum og vinum þeirra sem látist hefðu og við vonuðum að þau hefðu styrk til að glíma við hina miklu sorg. Innlent 23.7.2011 11:34
Hugsanlegt að annar byssumaður hafi verið á eyjunni Fjölmörg vitni á eyjunni Útey segjast handviss um að byssumaðurinn á eyjunni í gær hafi ekki verið einn að verki þegar hann varð að minnsta kosti áttatíum og fjórum að bana. Þau segja að skothljóð hafi heyrst á mismunandi stöðum á eyjunni. Erlent 23.7.2011 11:19
Við erum öll Norðmenn Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, lofaði í gær að Norðurlöndin myndu standa saman eftir árásirnar í gær. Bildt tjáði sig á Twitter og sendi samúðarkveðjur til Norðmanna og bauð fram aðstoð. "Við erum öll Norðmenn,“ sagði hann jafnframt. Erlent 22.7.2011 22:51
Umheimurinn hugsar til Norðmanna Fjölmargir þjóðhöfðingjar hafa sent Norðmönnum samúðarkveðjur og sagt hug þjóðar sinnar vera með Norðmönnum. Erlent 23.7.2011 10:24
Svona lítur hann út Maðurinn sem talinn er eiga sök á fjöldamorðunum í Noregi í gær heitir Anders Behring Breivik. Hann er róttækur hægrimaður, ofsatrúarmaður og jafnvel talinn tengjast nýnasistasamtökum. Innlent 23.7.2011 09:42
Lögregla eykur viðbúnað vegna árásanna Lögreglan hefur gert ákveðnar ráðstafanir hér á landi vegna atburðanna í Noregi. Þetta sagði Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri við Fréttablaðið síðdegis í gær. Innlent 22.7.2011 22:51
Hvetur Íslendinga til að flagga í hálfa stöng Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að hugur Íslendinga sé hjá norsku þjóðinni sem hafi orðið fyrir gríðarlegu áfalli í gær. Hún hafði samband við Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, í gær og bauð honum alla mögulega aðstoð og kom til hans samúðarkveðjum. Innlent 22.7.2011 22:51
Grafalvarlegt mál en yfirvegun mikilvæg Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mun eiga fund með íslenskum lögregluyfirvöldum og fara yfir tíðindin frá Ósló. Hann segir að stjórnvöld fylgist vel með málinu fyrir milligöngu lögregluyfirvalda. Málið sé grafalvarlegt og áhyggjuefni að slíkt skuli gerast. Innlent 22.7.2011 22:51
Mannskæðasta árás á Noreg frá stríði Lögregla hafði í gærkvöldi staðfest að tíu manns hefðu látist í skotárás í Útey, skammt vestan Óslóar í gær. Vitni segja að á bilinu tuttugu til þrjátíu hafi látist. Lögregla telur að árásin þar og sprengjuárás sem varð skömmu áður í Ósló tengist. Sprengiefni fannst einnig á eyjunni. Erlent 22.7.2011 22:51
Óslóarbúar harmi slegnir Rögnvaldur S. Reynisson, starfsmaður RARIK, er staddur í Ósló í sumarfríi. Þegar sprengingin varð var hann í miðborg Óslóar skammt frá skrifstofu Jens Stoltenberg forsætisráðherra. Rögnvaldur segir það óskemmtilega lífsreynslu að verða vitni að atburðum sem þessum. Innlent 22.7.2011 22:51
„Þetta er mikill sorgardagur“ "Þetta mun sennilega breyta þeirri sýn sem við Norðmenn höfum haft á heiminn,” segir Tor Magnus Horten, arkitektanemi í Ósló. "Maður getur kannski gert sér það í hugarlund núna hvernig Óslóarbúum leið þegar Þjóðverjar hertóku borgina 9. apríl árið 1940.“ Innlent 22.7.2011 22:51
Herinn vaktar miðborgina Að minnsta kosti sjö létust og tíu eru alvarlega slasaðir eftir að mikil sprenging varð í miðborg Óslóar síðdegis í gær, í miðju hverfi opinberra stjórnarbygginga þar sem nokkur ráðuneyti hafa aðsetur ásamt hæstarétti landsins og lögreglunni. Erlent 22.7.2011 22:51
Í það minnsta 91 fallinn í Noregi Norska lögreglan hefur staðfest að a.m.k. 91 hafi fallið í hryðjuverkaárásunum í Noregi í gær. Þar af féllu 84 í skotárásinni í Útey. Þetta staðfesti lögreglustjórinn Øystein Mæland á blaðamannafundi um klukkan hálffjögur í nótt. Hann segir þó tölu látinna að öllum líkindum eiga eftir að hækka. Erlent 23.7.2011 02:29
Sendiherrann í Noregi: Það setur að okkur óhug við tíðindin "Það setur að okkur óhug við þessi miklu tíðindi. Þetta er í fyrsta skipti sem svo alvarlegt tilræði á sér stað í Noregi frá seinni heimsstyrjöldinni. Efst í huga okkar á þessari stundu er að ganga úr skugga um að engir Íslendingar hafi komið við sögu. Við munum hafa opið fram eftir svo lengi sem við teljum gagn að því,“ sagði Gunnar Pálsson, sendiherra Íslands í Ósló, skömmu eftir hryðjuverkaárásina í gær. Innlent 22.7.2011 22:51
Meintur byssumaður nafngreindur Norska sjónvarpsstöðin TV 2 fullyrðir að Norðmaðurinn sem var handtekinn í dag fyrir skotárásina í Útey í Noregi heiti Anders Behring Breivik. Hann er sagður tilheyra hægriöfgahreyfingu á austurhluta Noregs. Hann er sagður vera skráður fyrir tveimur skotvopnum. Sjálfvirkri byssu og skammbyssu af gerðinni Glock. Maðurinn er grunaður um að hafa banað minnst 10 manns í Útey Erlent 22.7.2011 23:59
Staðfest að sprengja fannst í Útey Ósprengdar sprengdur fundust í Útey í dag. Ekki er vitað hverskonar sprengjur er um að ræða. Þetta staðfesti lögreglustjórinn í Osló á blaðamannafundi sem var haldinn um klukkan ellefu að dönskum tíma í nótt. Erlent 22.7.2011 23:20
Húsleit hjá byssumanninum Norska lögreglan gerði nú ellefta tímanum í kvöld húsleit í íbúð mannsins sem handtekinn var í Útey seinnipartinn í dag. Maðurinn fór klæddur eins og lögreglumaður í Útey og sagðist vera kominn þangað vegna sprengjunnar sem sprakk í Osló fyrr í dag. Skömmu síðar hóf hann að skjóta á fólk í kringum sig. Lögreglan hefur staðfest að 10 eru látnir en fullyrt er að tala fallinna muni hækka. Fyrr í kvöld var í norskum fjölmiðlum haft eftir sjónarvottum að allt að 30 væru látnir. Erlent 22.7.2011 22:54
Lögreglan staðfestir að minnst 10 hafi fallið í skotárásinni Við höfum fengið upplýsingar um það að tíu hafi fallið, en við búumst við því að tala fallinna munu hækka, segir norska lögreglan í fréttatilkynningu um skotárásina í Útey í dag. Norska ríkissjónvarpið og Verdens Gang höfðu eftir vitnum í dag að á þriðja tug manna væru látnir Norska Aftenposten segir að 17 manns hafi verið fluttir á sjúkrahús. "Miðað við það sem ég hef séð hafa minnst fjórir verið skotnir og drepnir,“ segir umdæmisstjóri ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins í Þelamörk. Erlent 22.7.2011 22:07
Biskup sendir Norðmönnum samúðarkveðjur Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur sent samúðarkveðjur til Ole Christian Kvarme, biskups í Osló, og til Dag Wernø Holter, sendiherra Noregs á Íslandi, vegna þeirra árásanna í Osló og Útey í dag. Innlent 22.7.2011 21:41
Árásarmaðurinn er norskur Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir Norðmenn vera litla en stolta þjóð sem láti ekki hræða sig. Í kvöld kom Stoltenberg í fyrsta sinn fram eftir árásirnar í Osló og Útey í dag. Hann ræddi þá við blaðamenn ásamt dómsmálaráðherranum Knut Storberget. Stoltenberg sagði hugsanir sínar og bænir vera hjá hinum særðu og ættingjum þeirra sem misstu ástvini í dag. Erlent 22.7.2011 20:53
Boðað til minningarathafnar Boðað hefur verið til minningarathafnar við Tjörnina í Reykjavík á morgun vegna árásanna á Osló og í Útey í dag. "Þeir sem vilja geta mætt með kerti,“ segir á síðu á samskiptavefnum Facebook sem stofnuð hefur verið vegna athafnarinnar. Athöfnin hefst klukkan 18. Innlent 22.7.2011 20:33
Byssumaðurinn sást í Osló fyrr í dag Maðurinn sem hóf skothríð á eyjunni Útey seinnipartinn sást í miðborg Osló skömmu áður en sprengja sprakk þar í dag. Hann er nú yfirheyrður af lögreglu sem kannar hvort hann beri einnig ábyrgð á árásunum í höfuðborginni, að því er fram kemur á vef norska dagblaðsins Verdens Gang. Árásarmanninum er sagður norrænn í útliti og hávaxinn. Lögreglan upplýsir ekki hvort maðurinn sé norskur ríkisborgari. Erlent 22.7.2011 20:14
Obama vottar Norðmönnum samúð sína Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir atburðina í Noregi í dag sýna að alþjóðasamfélagið verði að vinna saman til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Hann vottar Norðmönnum samúð sína og hefur heitið norskum stjórnvöldum fullum stuðningi við rannsókn árásanna í Osló og Útey. Erlent 22.7.2011 19:47