Frjálsar íþróttir

Besti kringlukastari landsins er líka högglengsti kylfingur landsins
Guðjón Guðmundsson heimsótti Golfstöðina á dögunum og fann þar meðal annars kringlukastarann Guðna Val Guðnason sem er líklega högglengsti kylfingur landsins þegar kemur að því að slá í golfhermum.

Íslendingar skiluðu Michigan skólanum sama titli með fjögurra ára millibili
Íslenski millivegahlauparinn Baldvin Þór Magnússon varð um helgina MAC svæðismeistari í átta kílómetra víðavangshlaupi.

Spretthlaupari skotinn til bana
Ekvadorinn Alex Quinonez, sem vann til verðlauna á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum 2019, var skotinn til bana í borginni Guayaquil í Ekvador síðastliðið föstudagskvöld.

Morðingi Agnesar Tirop handtekinn eftir flótta undan lögreglunni
Lögreglan í Kenía hefur handtekið Emmanuel Rotich sem er grunaður um að hafa myrt eiginkonu sína, langhlauparann Agnesi Tirop.

Morðingja Agnesar Tirop enn leitað
Lögreglan í Kenía leitar að eiginmanni Agnesar Tirop sem er grunaður um að hafa myrt hana í fyrradag.

Ein skærasta frjálsíþróttastjarna Kenía myrt af eiginmanni sínum
Keníska frjálsíþróttastjarnan Agnes Tirop fannst látin á heimili sínu í gær. Í yfirlýsingu frá keníska frjálsíþróttasambandinu segir að eiginmaður hennar hafi stungið hana til bana.

Örn og Haukur Clausen útnefndir í Heiðurshöll ÍSÍ í dag
Tvíburabræðurnir og frjálsíþróttamennirnir Örn og Haukur Clausen voru útnefndir í Heiðurshöll ÍSÍ á framhaldsþingi 75. íþróttaþings ÍSÍ í dag. Þeir eru 21. og 22. einstaklingurinn sem hljóta útnefningu í hina óáþreifanlegu höll afreksíþróttafólks og afreksþjálfara Íslands.

Segir ekkert því til fyrirstöðu að frjálsar íþróttir fái eigin þjóðarleikvang í Laugardal
„Með því að frjálsar hafi ekki pláss lengur á Laugardalsvelli þá þurfum við nýjan leikvang,“ sagði Freyr Ólafsson, formaður Frjálsíþróttasamband Íslands í Sportpakka Stöðvar 2 í kvöld.

Handhafi næstelsta heimsmetsins látinn
Besti sleggjukastari sögunnar, Úkraínumaðurinn Júrí Sedykh, lést í gær af völdum hjartaáfalls, 66 ára að aldri.

Gætu tekið kannabis af listanum yfir bannefni eftir að Sha'Carri missti af ÓL
Alþjóðalyfjaeftirlitið, WADA, skoðar nú hvort það eigi að fjarlægja kannabis af listanum yfir bannefni.

Breska boðhlaupssveitin við það að missa Ólympíusilfrið
Fljótlega eftir Ólypíuleikana var greint frá því að CJ Ujah, einn afmeðlimum bresku boðhlaupssveitarinnar, hefði verið settur í bann á meðan að rannsókn á lyfjamisnotkun færi fram. Nú hefur annað sýni greinst jákvætt og því er sveitin við það að missa silfurverðlaun sín ú 4x100 metra spretthlaupi.

Finnur fyrir kláðanum og íhugaði að taka þátt á Ólympíuleikunum
Usain Bolt, fljótasti maður í heimi, segir það ekki koma til greina að snúa aftur á hlaupabrautina þó hann finni enn fyrir kláðanum.

Fékk bónorð á hlaupabrautinni
Keula Nidreia Pereira Semedo frá Grænhöfðaeyjum komst ekki í undanúrslit í 200 metra hlaupi á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó. Hún fékk hins vegar bónorð strax eftir hlaupið í undanrásunum.

Ólympíuleikarnir og aðstaða frjálsíþróttafólks í Reykjavík
Mikið er frábært að lífið sé smám saman að færast í eðlilegra horf eftir að heimsfaraldurinn skall á. Við erum að byrja að lifa með þessum vágesti og feta okkur í átt að lífinu líkt og það var fyrir heimsfaraldur. Það er því einstaklega gleðilegt að Ólympíuleikarnir sem áttu að fara fram síðasta sumar gátu farið fram núna í sumar og þvílík veisla sem hefur verið að fylgjast með því frábæra íþróttafólki sem þar keppti.

Bergrún áttunda í langstökki
Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir hafnaði í 8. sæti í langstökki í flokki T37 á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó í dag.

Bergrún stórbætti eigið Íslandsmet í Tókýó
Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir bætti eigið Íslandsmet í kúluvarpi er hún keppti í flokki F37, hreyfihamlaðra, á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó í dag. Hún lenti í sjöunda sæti í greininni.

Patrekur bætti Íslandsmet í Tókýó
Hlauparinn Patrekur Andrés Axelsson bætti eigið Íslandsmet í 400 metra hlaupi er hann keppti í flokki blindra á Ólympíumóti fatlaðra ásamt meðhlaupara sínum Helga Björnssyni.

Fraser-Pryce hljóp á þriðja besta tíma sögunnar
Jamaíska spretthlaupakonan Shelly-Ann Fraser-Pryce hljóp í gær hundrað metra spretthlaup á þriðja besta tíma sögunnar á Demantamótaröðinni í frjálsum íþróttum þegar hún kom í mark á 10,60 sekúndum.

Elísabet varð fjórða í Nairóbi
Elísabet Rut Rúnarsdóttir varð fjórða í sleggjukasti á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum fyrir 20 ára og yngri sem fram fer í Nairóbi í Kenýa. Hún var aðeins hálfum metra frá eigin Íslandsmeti.

Elísabet Rut komst í úrslit á HM U20 í Kenía
Elísabet Rut Rúnarsdóttir tryggði sér í morgun sæti í úrslitum í sleggjukasti á heimsmeistaramóti tuttugu ára og yngri sem fer fram þessa dagana.

Sha'Carri ekki í vinaleit þegar hún keppir við Ólympíumeistarann um helgina
Bandaríska frjálsíþróttakonan Sha’Carri Richardson er farin að kynda vel upp fyrir athyglisvert spretthlaup sem fer fram um helgina.

Safnaði fyrir aðgerð lítils barns með því að bjóða upp Ólympíusilfrið sitt
Pólski spjótkastarinn Maria Andrejczyk vann silfur á Ólympíuleikunum í Tókýó á dögunum en hún var tilbúin að láta frá sér silfrið sitt aðeins nokkrum vikum síðar.

Útilokuð frá Ólympíuleikunum en fær nú að keppa við Ólympíumeistarann
Heimurinn fékk ekki að sjá fljótustu bandarísku konuna hlaupa á Ólympíuleikunum í Tókýó en það verður bætt úr því á Prefontaine Classic mótinu.

Kasólétt Ásdís reif upp hundrað kílóin fimm sinnum í röð
Ásdís Hjálmsdóttir Annerud á að von á sín fyrsta barni þessa dagana en það kemur ekki í veg fyrir að hún taki alvöru æfingar í lyftingasalnum.

Fann konuna sem borgaði leigubílinn og sá til þess að hann gat unnið ÓL-gullið
Ólympíumeistarinn Hansle Parchment frá Jamaíku lenti í miklum hrakförum á leið sinni á keppnisstaðinn á Ólympíuleikunum í Tókýó á dögunum og hann var mjög þakklátur konunni sem bjargaði honum fyrir horn.

Rannsaka lyfjamisnotkun bresks spretthlaupara og Ólympíusilfrið í hættu
Breski spretthlauparinn CJ Ujah hefur verið dæmdur í keppnisbann fyrir meinta lyfjamisnotkun. Ujah var hluti af breska liðinu sem vann til silfurverðlauna í 4x100 metra spretthlaupi á Ólympíuleikunum, en verðlaunin gætu nú verið í hættu.

Sakaður um óíþróttamannslega framkomu á Ólympíuleikunum
Henti öllum vatnsflöskunum í jörðina og tók síðustu flöskuna sjálfur. Óheppni? Ekki að mati netverja sem hafa látið einn Ólympíufara heyra það.

FH þrefaldur bikarmeistari í frjálsum íþróttum
FH varð í dag þrefaldur bikarmeistari í frjálsum íþróttum þegar liðið vann karlaflokk, kvennaflokk og samanlagða keppni. ÍR-ingar þurftu að sætta sig við annað sæti í öllum flokkum.

Fyrsti Indverjinn til að vinna til verðlauna í frjálsum í 121 ár
Indverjinn Neeraj Chopra varð í dag fyrsti Indverjinn í sögunni til að vinna til gullverðlauna í frjálsum íþróttum á Ólympíuleikum. Hann fagnaði sigri í spjótkasti karla eftir kast upp á 87,58 metra.

Norðmaðurinn ungi setti Evrópu- og Ólympíumet er hann hlaut gull
Hinn tvítugi Jakob Ingebrigtsen hlaut í dag gull í 1500 metra hlaupi karla á Ólympíuleikunum í Tókýó. Hann var aðeins tveimur sekúndum frá heimsmeti en bætti bæði Evrópu- og Ólympíumet með frábæru hlaupi.