Úkraína
1 2 3 4 5 6 … 90 ›
Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sækir Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, heim í dag auk fjölmargra þjóðarleiðtoga frá Evrópu sem standa við bakið á Úkraínumönnum vegna innrásar Rússa. Erlent 18.8.2025 14:10
Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Útlit er fyrir að fundur Volodomírs Selenskí Úkraínuforseta og Donalds Trump Bandaríkjaforseta í dag geti reynst þeim fyrrnefnda erfiður, að mati stjórnmálafræðings. Að loknum fundi þeirra tveggja munu Evrópuleiðtogar slást í hópinn, en þeir standa þétt við bak Selenskís. Erlent 18.8.2025 13:13
„Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að hann og aðrir leiðtogar Evrópu deili vilja til að binda enda á innrás Rússa í Úkraínu eins fljótt og auðið er. Friðurinn þurfi að vera varanlegur. Hann segir það í höndum Rússa að binda enda á stríðið sem þeir hófu. Erlent 18.8.2025 09:47
Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram „Selenskí Úkraínuforseti getur bundið enda á stríðið við Rússa svo til samstundis, ef hann vill, eða hann getur haldið áfram að berjast.“ Þetta sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti á samfélagsmiðli sínum Truth Social í gærkvöldi. Erlent 18.8.2025 06:34
Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Allt stefnir í að fundur Bandaríkjaforseta með Selenskí Úkraínuforseta og leiðtogum Evrópu marki tímamót í vegferðinni að friði. Alþjóðasamfélagið stóð á öndinni föstudagskvöldið og kveið niðurstöðum fundar Pútíns og Trump í Alaska sem reyndust svo ekki ýkja miklar. Á morgun sest Selenskí í sama stól og hann sat í þegar hann fékk illa útreið en í þetta sinn verður hann ekki einn. Erlent 17.8.2025 22:57
„Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Fyrrverandi utanríkisráðherra segir nauðsynlegt að Evrópuþjóðir fari að taka raunverulegar ákvarðanir um hvernig binda megi enda á átökin í Úkraínu. Málið snúist ekki eingöngu um hvar landamæri liggja heldur að úkraínska þjóðin fái að taka ákvarðanir sem fullvalda þjóð, til dæmis um að ganga í Evrópusambandið og NATO. Innlent 17.8.2025 14:01
Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Forsætisráðherra Íslands mun ekki sækja fund Bandaríkjaforseta og Úkraínuforseta í Hvíta húsinu í persónu en fjöldi þjóðarleiðtoga í Evrópu úr röðum „bandalags hinna viljugu“ er á leið til sækja fundinn á morgun eftir að hafa fengið boð frá Donald Trump Bandaríkjaforseta. Erlent 17.8.2025 13:46
Trump sagður hlynntur afsali lands Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður hlynntur tillögu Vladímírs Pútín Rússlandsforseta að binda enda á innrásarstríð Rússa með því að láta þeim eftir að innlima austurhéröð Úkraínu. Þetta kom í ljós þegar upplýsingum úr símafundi hans með leiðtogum Evrópu var lekið. Erlent 17.8.2025 00:06
Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Evrópskir leiðtogar hafa fengið boð á fund Bandaríkjaforseta og forseta Úkraínu í Washington-borg á mánudag. Bandaríkjaforseti lagði til á fundi með forseta Rússlands að Úkraína fengi svokallaða öryggistryggingu, svipaða og kveðið er á um í NATO-samningnum, án þess að ganga inn í bandalagið. Erlent 16.8.2025 20:26
„Það hefði auðvitað verið betra“ Það hefði verið betra, að mati utanríkisráðherra, hefði Trump haldið í kröfu Evrópuleiðtoga um að semja fyrst um vopnahlé milli Úkraínu og Rússlands og síðan frið, frekar en að halda friðarviðræður „undir sprengjuregni og drápsvél Rússa.“ Hún gerir enga athugasemd við rauða dregilinn sem tók á móti Pútín á leiðtogafundinum í Alaska í gær, svo lengi sem gjörningurinn skili „réttlátum og langvarandi friði í Evrópu.“ Innlent 16.8.2025 16:28
Selenskí mun funda með Trump Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti mun eiga fund með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Washington-borg á mánudag. Sá fundur mun koma í kjölfar fundar Trump með Vladímír Pútín Rússlandsforseta sem fór fram í gærkvöldi. Erlent 16.8.2025 09:24
Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Fundi forseta Rússlands og forseta Bandaríkjanna er lokið. Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir þá hafa komist að ákveðnum skilningi um málefni Úkraínu en engar nánari upplýsingar fengust um hvað fælist í þeim skilning. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist ætla upplýsa evrópska leiðtoga, þar á meðal Úkraínuforseta, um hvað fór fram á fundinum. Erlent 15.8.2025 23:24
Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Úkraínuher hefur gert umfangsmikla gagnárás gegn rússneska hernum og frelsað svæði sem Rússar höfðu tekið yfir í Úkraínu. Bandaríkjaforseti og Rússlandsforseti sitja nú fund. Erlent 15.8.2025 21:20
Pólitískur refur og samningamaður mætast Mikil eftirvænting ríkir fyrir leiðtogafund Bandaríkjanna og Rússlands sem hefst klukkan sjö í kvöld að íslenskum tíma. Krafa Rússa á fundinum lýtur í raun að því að Úkraína verði leppríki Rússlands, segir prófessor í sagnfræði. Óljóst sé hvort Úkraínumenn neyðist til að fallast á slíka niðurstöðu. Innlent 15.8.2025 13:08
Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist í gær telja að Vladimir Pútín Rússlandsforseti vildi komast að samkomulagi um frið í Úkraínu og að hann teldi 75 prósent líkur á því að fundur þeirra í Alaska í kvöld myndi bera árangur. Erlent 15.8.2025 06:44
Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Augu umheimsins beinast nú að borginni Anchorage í Alaska þar sem fundur Trump og Pútín fer fram á morgun í Elmendorf-Richardson-herstöðinni . Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu og íbúa stolta af þeirri athygli sem borgin nýtur nú í heimspressunni. Erlent 14.8.2025 12:15
Starmer og Selenskí funda í dag Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, og Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti munu funda í Downing-stræti nú fyrir hádegi, í aðdraganda fundar Donald Trump Bandaríkjaforseta og Vladimir Pútín Rússlandsforseta á morgun. Erlent 14.8.2025 08:47
Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Forseti Frakklands segir það hafa verið gert kýrskýrt að aðeins Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, hafi umboð til að ræða möguleg skipti á landsvæði við Rússa á fundi með Bandaríkjaforseta. Selenskíj sagðist jákvæður að fundi loknum. Erlent 13.8.2025 15:33
Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Stíf fundarhöld í aðdraganda fundar forseta Bandaríkjanna og Rússlands í Alaska eru á dagskrá í dag. Forseti Úkraínu er í Berlín til að ræða við evrópska ráðamenn sem eiga einnig stefnumót við Bandaríkjaforseta gegnum fjarfundarbúnað. Erlent 13.8.2025 10:42
Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti segir ekki koma til greina að gefa eftir Donbas-héruðin, ekki síst vegna þess að Rússar myndu nota þau sem stökkpall fyrir frekari landvinninga síðar meir. Erlent 13.8.2025 06:52
Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Austurhéruð Úkraínu eru glötuð að mati sérfræðings en sætti Vladímír Pútín Rússlandsforseti sig við landvinninga eina og sér geti vopnahlé verið í sjónmáli. Afleiðingarnar sem það kynni að hafa fyrir Úkraínusinnaða íbúa á hernumdum svæðum gætu gert friðinn langþráða, ansi dýrkeyptan. Erlent 12.8.2025 13:28
Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Rússneskir hermenn hafa á undanförnum dögum komist djúpt gegnum varnir Úkraínumanna í austurhluta Úkraínu. Þar eru þeir sagðir hafa fundið veikleika á varnarlínunni og nýtt sér hann en Úkraínumenn eru að senda liðsauka á svæðið til að reyna að stöðva Rússa. Erlent 12.8.2025 10:02
Leiðtogar Evrópu ítreka sjálfsákvörðunarrétt Úkraínumanna Leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandsins hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir ítreka rétt Úkraínumanna til að ákvarða eigin framtíð. Þá segja þeir mögulegt samkomulag verða að tryggja öryggishagsmuni Úkraínu og Evrópu. Erlent 12.8.2025 06:45
„Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lýsti í dag fundinum sem hann mun eiga með Vladimír Pútín, kollega sínum í Rússlandi, sem „þreifingafundi“. Þeir muni ræða „skipti á landsvæði“ milli Úkraínumanna og Rússa og lýsti hann einnig yfir vonbrigðum með Pútín í tengslum við friðarviðræður. Erlent 11.8.2025 22:31
Sagður slaka á kröfum og útiloka ekki landsvæðaskipti Leiðtogar sex Evrópuríkja munu sitja fjarfundi með Volodimír Selenskí Úkraínuforseta og Donald Trump Bandaríkjaforseta á miðvikudag. Selenskí er sagður hafa slakað á kröfum sínum og hann útiloki ekki að láta eftir landsvæði í friðarsamningum. Erlent 11.8.2025 16:16
Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna segir fund Selenskí Úkraínuforseta og Pútíns Rússlandsforseta í bígerð. Það sé spurning um hvenær en ekki hvort. Erlent 10.8.2025 21:04
Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Norðurlönd og Eystrasaltsríkin lýsa í sameiginlegri yfirlýsingu yfir stuðningi við fullveldi Úkraínu í aðdraganda fundar Vladímírs Pútín Rússlandsforseta og Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Innlent 10.8.2025 17:53
Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fyrrverandi sendiherra Íslands í Bandaríkjunum og Rússlandi furðar sig á aðdraganda fyrirhugaðs leiðtogafundar forseta ríkjanna tveggja. Hann vonar að fundurinn reynist óþarfur, þar sem hann kunni að gera málstað Úkraínu ógagn frekar en nokkuð annað. Erlent 10.8.2025 15:25
Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Hvíta húsið hefur til skoðunar hvort bjóða eigi Volodimír Selenskí Úkraínuforseta á friðarviðræðufund Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Vladimírs Pútín Rússlandsforseta í Alaska á föstudag. Erlent 10.8.2025 08:53
Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Varaforseti Bandaríkjanna og utanríkisráðherra Bretlands funduðu í dag á Englandi og ræddu þeir nýjustu vendingarnar í stríði Úkraínu og Rússlands, nefnilega tilvonandi fund Bandaríkja- og Rússlandsforseta í Alaska næsta föstudag. Úkraínskir ráðamenn og evrópskir þjóðaröryggisráðgjafar voru einnig viðstaddir fundinn. Erlent 9.8.2025 23:29