Bólusetningar

Óbólusettur með Covid-19 en myndi ekki breyta neinu
Nökkvi Fjalar Orrason, athafnamaður og áhrifavaldur, greindist smitaður af kórónuveirunni á landamærunum við komuna til landsins á dögunum. Hann hefur ekki þegið bólusetningu en segist engu myndi breyta um það, þótt hann gæti.

Myndir ársins 2021: Faraldur, fegurð og -hamfarir
Ljósmyndarar og myndatökumenn fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar fönguðu margt dýrmætt augnablikið í ár, eins og þeim einum er lagið. Sigrar og sorgir voru fest á filmu og í mörgum tilvikum sannaðist það fornkveðna; að mynd segir meira en þúsund orð.

Bandaríkjaher þróar nýtt bóluefni
Bandaríkjaher hefur unnið að þróun nýs bóluefnis gegn kórónuveirunni sem á að virka vel gegn öllum mögulegum afbrigðum veirunnar. Gert er ráð fyrir því að bóluefnið verði kynnt opinberlega á næstu vikum.

Fimm ára og eldri skyldaðir í bólusetningu
Bólusetningarskyldu hefur verið komið á í Ekvador í Suður-Ameríku. Allir, fimm ára og eldri, skulu fara í bólusetningu en stjórnvöld tóku ákvörðunina í ljósi fjölgun smita af völdum kórónuveirunnar.

Greindust öll á landamærunum og verða saman á jólunum
Níu manna vinahópur sem kom frá Puerto Rico í fyrradag greindist allur með Covid-19 við komuna til landsins. Í stað þess að húka í einangrun hvert um sig ákváðu þau að framlengja fríið öll saman í sumarbústað á Snæfellsnesi yfir jólin.

Fólk með ómíkron 50 til 70 prósent ólíklegra til að lenda á sjúkrahúsi
Fólk sem sýkist af ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar er 50% til 70% ólíklegra til að þurfa á sjúkrahúsinnlögn að halda en fólk með fyrri afbrigði.

Neyðumst til að bregðast við breyttum eiginleikum veirunnar
Kórónuveirufaraldurinn er og hefur verið óútreiknanlegur, sem hefur neytt yfirvöld til að aðlaga sóttvarnaaðgerðir að nýjum eiginleikum veirunnar. Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi rétt í þessu.

Opið í einkenna- og sóttkvíarsýnatökur alla daga yfir hátíðirnar
Opið verður í sýnatökur á Suðurlandsbraut 34 frá klukkan 8 til 12 á morgun, aðfangadag. Á jóladag verður ekki opið í hraðpróf né PCR-sýnatökur fyrir ferðalög en opið verður í PCR einkenna- og sóttkvíarsýnatöku frá klukkan 10 til 14.

Yfirvöld í Ísrael leggja drög að bólusetningu með fjórða skammtinum
Heilbrigðisyfirvöld í Ísrael leggja nú drög að bólusetningarátaki sem mun miða að því að gefa landsmönnum fjórða skammtinn af bóluefnum gegn Covid-19 til að bregðast við mögulegri bylgju sýkinga af völdum ómíkron-afbrigðisins.

Þórólfur: Óskhyggjan megi ekki blinda okkur sýn
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir mikilvægt að óskhyggja blindi ekki okkur sýn þegar lagt sé mat á stöðu kórónuveirufaraldursins og afleiðingar hans. Hann bendir á að tæplega helmingur þjóðarinnar sé móttækilegur fyrir alvarlegum veikindum vegna ómikron-afbrigðsins.

Bubbi segir ástandið orðið gersamlega, algjörlega og með öllu óþolandi
Löngu uppselt er á hefðbundna Þorláksmessutónleika tónlistarmannsins Bubba Morthens í Hörpu, 1.500 manns hafa keypt miða en Bubbi er nánast búinn að afskrifa tónleikana.

Bólusetningar hafa gert mikið gagn
Orðin bóluefni og bólusetning í íslensku eru líklegast komin frá því að verið var að bólusetja gegn bólusótt.

Börn og lyfjatilraunir
Undanfarnar vikur og mánuði hefur harður áróður verið rekinn fyrir bólusetningu ungra barna við Covid-19. Í síðustu viku var gefið verulega í.

Þórólfur gerir ráð fyrir að fleiri en 200 hafi greinst í gær
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir gerir ráð fyrir að fleiri en 200 hafi greinst með Covid-19 í gær. Hann segir tvær skýringar á miklum fjölda smitaðra síðustu daga; sumir séu ekki að passa sig og nýtt afbrigði, sem muni verða ráðandi hér líkt og annars staðar.

Fauci varar við ferðalögum um jólin og segir ómíkron ógna heilbrigðiskerfinu
Anthony Fauci, sóttvarnalæknir Bandaríkjanna, varar við því að ferðalög fólks landshluta á milli yfir jólahátíðina muni verða til þess að ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar mun dreifast mun meira um Bandaríkin en ella, jafnvel á meðal þeirra sem eru fullbólusettir.

Viðkvæmur hópur bólusettur á þriðjudag og aðrir beðnir um að koma annan dag
Þriðjudaginn 21. desember stendur til að bólusetja viðkvæman hóp í Laugardalshöll og er fólk beðið um að koma frekar aðra daga í bólusetningu ef það mögulega getur.

Sannarlega ekki slæmt að gera tilraunir á börnum
Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfja- og eiturefnafræði við Læknadeild Háskóla Íslands, biðlar til foreldra að láta sér ekki niðurstöður úr tilraunum sem hafa verið gerðar á börnum með bóluefni sem vind um eyru þjóta. „Við erum svo heppin að hópur barna hefur nú þegar tekið að sér að taka þátt í tilraun og sýnt fram á gagnsemi,“ segir hann í færslu á Facebook.

Með húmorinn að vopni við mótmæli gegn bólusetningum barna
Andstæðingar bólusetninga og aðgerða stjórnvalda gegn heimsfaraldrinum virðast hafa þróað með sér örlítinn húmor og smekk fyrir orðaleikjum. Á annað hundrað manns tóku þátt í mótmælum gegn bólusetningum barna í dag og voru slagorð mótmælenda mörg í frumlegri kantinum.

Slagorð úr vopnabúri hernaðarandstæðinga nýtt gegn bólusetningum barna
Hernaðarandstæðingar eru afar ósáttir við að andstæðingar bólusetninga skuli nota þekkt slagorð úr þeirra vopnabúri. Boðað hefur verið til mótmæla þeirra sem gjalda varhug við bólusetningum undir yfirskriftinni Friðarganga.

Gengst við því að hafa gert of mikið úr veikindum barna
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur gengist við gagnrýni á umfjöllun hans um veikindi barna af völdum Covid-19 og leiðrétt fyrra mat sitt í samræmi við það.

Mæla með notkun annarra bóluefna fram yfir efnið frá Johnson & Johnson
Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna hefur ráðlagt notkun annarra bóluefna fram yfir bóluefnið frá Johnson & Johnson vegna blóðsegavandamála, sem eru talin hafa valdið níu dauðsföllum í Bandaríkjunum.

Nokkrar Afríkuþjóðir næstum alveg óbólusettar
Austur-Kongó, Búrúndí, Kamerún, Tjad og Malí eru meðal þeirra ríkja þar sem fæstir eru bólusettir. Í Evrópu hafa bólusetningar gengið hvað hægast í Búlgaríu, Moldavíu og Bosníu og Hersegóvínu.

176 greindust með Covid-19 innanlands í gær
195 greindust með Covid-19 í gær, þar af 176 innanlands.

Þetta er bara „business as usual”
„Þetta er bara business as usual,” mælti maður sem var mættur í þriðju sprautuna í Laugardalshöll í haust. Heldur meiri uppgjöf í röddinni en hjá þeim sem gengu spenntir inn í sama sal í vor.

Óbólusett börn geta veikst mikið af nýjum veiruafbrigðum
Prófessor í barnalækningum og smitsjúkdómum segir það samfélagslega ábyrgð fullorðinna að láta bólusetja börnin sín, sem geti veikst alvarlega af nýju afbrigðum veirunnar. Ljósið í myrkrinu, að börnin mundu öll sleppa vel, er slokknað. Faraldurinn er á hraðri uppleið enn á ný og það eru óbólusett börn sem halda honum uppi, segir sóttvarnalæknir.

„Ég ítreka að þetta verður alltaf val“
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir afar mikilvægt að ef verði af bólusetningu barna hér á landi að þá verði það undirbúið með öllum tiltækum ráðum og upplýsingum. Lykilatriði sé að fólk átti sig á því að um val sé að ræða.

Litlar forsendur fyrir tilslökunum fyrir jól
Sóttvarnalæknir telur að óbreyttu líklegt að þær takmarkanir sem nú eru í gildi vari fram yfir jól. Hvorki forsætis- né heilbrigðisráðherra eru spenntir fyrir sérréttindum fyrir bólusetta eins og komið hefur verið á mjög víða í Evrópu.

Þeir sem fengu örvunarskammt eftir Janssen fá annan örvunarskammt
Bóluefnið frá AstraZeneca er búið og verður ekki á boðstólnum þar sem eftir lifir árs. Þeir sem fengu upphaflega bóluefnið frá Janssen og svo örvunarskammt, geta komið í þriðju bólusetninguna fimm mánuðum eftir örvunarskammtinn.

Tuttugu og sjö hermenn látnir fara fyrir að neita bólusetningu
Tuttugu og sjö bandarískir hermenn hafa verið látnir fara af bandaríska flughernum fyrir að neita að þiggja bólusetningu. Formlega skýringin á brottrekstrinum er neitun hermannanna við að fylgja fyrirmælum.

Mælt með að börn sem hafa fengið Covid-19 fái líka bólusetningu
Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að öllum fimm til ellefu ára börnum hér á landi verði boðin bólusetning gegn Covid 19. Sjúkdómurinn geti verið alvarlegur hjá börnum á þessum aldri og bólusetning minnki líkur á langtímaáhrifum. Bólusett verður í grunnskólum landsins.