Ferðaþjónusta

Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela
Hrund Hauksdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Íslandshótela.

Umhverfisráðherra á réttri leið
Veitingastaðir og Samtök ferðaþjónustunnar hafa lengi vel bent á seinagang og flækjustig við leyfisveitingaferli þegar kemur að opnum veitingastaða. Þá hefur verið bent á að einfalt væri að gera rekstur veitingastaða skráningarskyldan í stað starfsleyfisskyldu.

Ólga meðal þristavina vegna örlaga Gunnfaxa
Sú ákvörðun stjórnar Þristavinafélagsins að selja Flugfélagsþristinn Gunnfaxa til landeigenda á Sólheimasandi hefur valdið ólgu meðal þristavina. Bóndinn á Ytri-Sólheimum, kaupandi flugvélarinnar, segir þeim frjálst að fá hana til baka, svo fremi að þeir endurgreiði kaupverðið og kostnað við flutninginn.

Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu
Um sextíu Husky hundar og eigendur þeirra hafa skráð sig í husky hundakeppni, sem fer fram í Eyjafirði í lok mánaðarins. Hjón, sem standa að keppninni og eiga heiðurinn af henni eru sjálf með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu.

Yfir 90% ferðamanna eru ánægðir með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu
Við megum svo sannarlega vera stolt af gestrisni okkar á höfuðborgarsvæðinu en 94% ferðamanna eru ánægðir með heimsókn sína. Að taka vel á móti gestum okkar er lykilatriði í að þeir upplifi sig velkomna og njóti sín.

Kínverskur dómur um banaslys skipti engu máli og TM slapp
Landsréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að kínversk ferðaskrifstofa eigi ekki rétt á bótum úr hendi TM vegna banaslyss sem varð árið 2017. Ferðaskrifstofan hefur þegar greitt aðstandendum þeirra tveggja sem létust bætur og taldi sig því hafa eignast kröfu þeirra á hendur TM. Landsréttur hélt nú ekki.

Dæmdur skattsvikari beri enga ábyrgð á fjármálum fyrirtækisins
Forstjóri Úrvals Útsýnar segir að Viktor Heiðdal Sveinsson, sem sakfelldur var árið 2021 fyrir skattalagabrot í tengslum við ferðaskrifstofur sínar en starfar nú sem ráðgjafi hjá Úrval Útsýn, hafi ekkert með fjármál fyrirtækisins að gera. Hann sjái aðeins um skipulagningu ferða.

Gömlum Flugfélagsþristi bætt við á Sólheimasand
Gömul Douglas Dakota-flugvél, sem landeigendur Sólheimasands keyptu í vetur af Þristavinafélaginu, verður í kvöld flutt eftir þjóðvegum austur í sveitir frá Keflavíkurflugvelli. Fyrirhugað er að skrokknum verði komið fyrir á sandinum nálægt gamla flugvélarflakinu sem verið hefur einn helsti ferðamannastaður Suðurlands.

„Fólk er í áfalli yfir þessu“
Fréttir af fyrirhuguðum breytingum hjá flugfélaginu Play voru áfall fyrir starfsfólk að sögn forseta Íslenska flugstéttafélagsins. Hann segir lagalega óvissu fylgja því að flugrekstur Play verði skráður í öðru landi og að fréttirnar hafi komið starfsfólki í opna skjöldu.

Aukinn samdráttur á flugi til Íslands með breyttu Play
Fyrirhugaðar breytingar á rekstri flugfélagsins Play mun auka samdrátt á framboði flugsæta til Íslands að sögn greinanda. Gengi hlutabréfa Play rauk upp við opnun markaða í morgun.

Rannsókn banaslyss í Brúará miði vel
Rannsókn á banaslysi við Brúará miðar ágætlega að sögn yfirlögregluþjóns. Ferðamaður lést er hún féll í ána á föstudag síðastliðinn.

Þotur notaðar í flugi Icelandair til Nuuk
Icelandair hefur ákveðið að nota Boeing 737 Max-þotur í áætlunarflugi sínu milli Keflavíkur og Nuuk. Þetta er í fyrsta sinn sem farþegaþotur eru notaðar í flugi milli Íslands og höfuðstaðar Grænlands.

Yfirfara þurfi öryggismál við Brúará
Erlendur ferðamaður, kona á fertugsaldri, sem féll í Brúará í gær var úrskurðuð látin á vettvangi. Um er að ræða þriðja banaslysið í Brúará á aðeins nokkrum árum. Sveitarstjóri Bláskógabyggðar segir þetta mikið áhyggjuefni, mikilvægt sé að yfirfara öryggismál við ána sem sé á landi í einkaeigu.

Loka hluta útsýnispallsins vegna aurskriðu
Hluta af útsýnispalli við Dettifoss hefur verið lokað vegna aurskriðu sem féll í gær.

Erlendur ferðamaður féll í Brúará
Fjölmennt lið frá björgunarsveitum auk þyrlu Landhelgisgæslunnar var kallað út á fimmta tímanum í dag vegna einstaklings sem féll í ána Brúará við Hlauptungufoss. Einstaklingurinn er fundinn en lögregla hefur ekki veitt neinar upplýsingar um líðan hans. Um er að ræða erlendan ferðamann.

Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir
Reykjavíkurborg hefur selt húsið við Sóleyjargötu 27 til félags í gistiheimilarekstri á 310 milljónir króna. Um er að ræða um 360 fermetra eign, en ljóst er að ráðast þarf í viðamiklar endurbætur.

Gestum ráðið frá að heimsækja Dettifoss vegna stórrar skriðu
Þjóðgarðsverðir í Vatnajökulsþjóðgarði ráða gestum frá því að heimsækja Dettifoss. Stór aurskriða féll úr klettabrúnum Jökulsárgljúfra við útsýnispalla rétt norðvestan við fossinn.

Parísarhjólið rís á ný
Reykjavíkurborg hyggst endurtaka leikinn frá síðasta sumri og semur við Taylor's Tivoli Iceland um uppsetningu á parísarhjóli í miðborginni.

Um 100 skemmtiferðaskip í Vestmannaeyjum í sumar
Um hundrað skemmtiferðaskip koma til Vestmannaeyja í sumar og eru þau fyrstu nú þegar komin. Koma skipanna er mikil vítamínsprauta fyrir bæjarfélagið fyrir allskonar þjónustu.

Sirkushundur skemmtir ferðamönnum á Höfn í sumar
Tíkin Panda hefur meira en nóg að gera í sumar á Höfn í Hornafirði því hún er sirkus hundur og verður með fjölmargar sýningar með eiganda sínum í allt sumar fyrir farþega á skemmtiferðaskipum, sem koma á Höfn.

Banaslysið haft áhrif á undirbúning manngerðra íshella
Banaslysið í Breiðamerkurjökli á síðasta ári hefur haft töluverð áhrif á undirbúning fyrir tvo manngerða íshella sem fyrirhugaðir eru í Langjökli. Sveitarstjóri Bláskógabyggðar segir að tekið verði tillit til allra athugasemda forsætisráðuneytisins.

Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir
Samtök ferðaþjónustunnar, evrópsku hagsmunasamtökin HOTREC og yfir 25 landssamtök fyrirtækja í gistiþjónustu víðs vegar um Evrópu standa nú sameiginlega að hópmálsókn gegn bókunarfyrirtækinu Booking.com. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastóri SAF, vonast til þess að sem flest íslensk hótel taki þátt í málsókninni. Í því felist möguleiki til að endurheimta verulegar fjárhæðir frá fyrirtækinu.

Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin
Lava Show hlaut á dögunum Viator Experience verðlaunin 2025 en Viator er heimsins stærsta markaðstorg á sviði ferðaþjónustu.

Ábyrg ferðamennska
Nú er íslenska ferðasumarið að ganga í garð og fólk eflaust farið að gera plön fyrir hvert það eigi að ferðast í sumar. Í því tilefni langar Landvarðafélagi Íslands að segja nokkur orð um ábyrga ferðamennsku.

Ferðamenn hljóti að gera grín að Íslendingum
Arkitekt segir stærðarinnar varðturna í miðborginni vægast sagt hallærislega. Hann botnar ekkert í hönnuninni og segist aldrei hafa séð annað eins.

Er sanngjarnt að hækka virðisaukaskatt á mat og gistingu til að láta erlenda ferðamenn borga meira?
Í umræðum um aukna tekjuöflun ríkissjóðs hefur sú hugmynd komið fram að hækka lægra þrep virðisaukaskatts – sem nær m.a. yfir mat, gistingu og ferðaþjónustu – til að „láta ferðamenn greiða meira“.

Skiptar skoðanir á „forljótum“ varðturnum gegn vasaþjófnaði
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur komið upp varðturnum með eftirlitsmyndavélum við Hallgrímskirkju og á Skólavörðustíg til að sporna gegn aukinni tíðni vasaþjófnaðar. Skiptar skoðanir eru milli íbúa miðborgarinnar á turnunum, sem þykja ljótir þrátt fyrir að gegna göfugum tilgangi.

Sannfærður um að fjárfestingin standi undir sér
Perlan í Reykjavík er formlega komin í hendur nýrra eigenda en borgarstjóri skrifaði undir 3,5 milljarða kaupsamning í morgun.

Græddu á hjólinu í fyrra og vilja endurtaka leikinn
Reykjavíkurborg hyggst auglýsa eftir áhugasmömum aðila til að reka parísarhjól á Miðbakka í sumar. Verkefnið skilaði borginni ágóða á síðasta ári.

Leigubílstjóri fór í svaðilför á Teslunni inn í Þórsmörk og sneri heill heim
Leigubílstjóri sem ók Teslu yfir fjölda lækja inn í Þórsmörk segir nútímarafbíla vel hannaða til að keyra gegnum djúpa polla eða læki. Hann hafi verið meðvitaður um áhættuna en farið varlega og eru engin ummerki eftir svaðilförina á bílnum.