Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020

Bandaríkin: Veikur Trump gæti beðið skipbrot
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, smitaðist af Covid-19 og Mike Pence, varaforseti, mætti Kamölu Harris, varaforsetaframbjóðanda, í hefðbundnum kappræðum.

Var heitt í hamsi og kallaði Harris „skrímsli“ og „kommúnista“
Kamala Harris, varaforsetaefni demókrata, og Hillary Clinton, fyrrverandi mótframbjóðandi hans, fengu á baukinn hjá Donald Trump Bandaríkjaforseta í klukkutímalöngu símaviðtali á Fox-sjónvarpstöðinni í dag.

Varaforsetinn endurflutti lygar forsetans
Stiklað á stóru yfir það helsta sem var ósatt í kappræðunum. Margt af því sneri að heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar og ljóst er að Pence sagði mun oftar ósatt en Harris. Mörg þeirra ósanninda eiga rætur sínar í ummælum Trump.

Trump neitar að taka þátt í kappræðum í gegnum netið
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ekki ætla að taka þátt í kappræðum í gegnum netið með Joe Biden, forsetaefni Demókrata.

Tókust hart á um viðbrögð Trumps við faraldrinum
Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, og Kamala Harris, varaforsetaframbjóðandi Demókrata, mættust í kappræðum í Salt Lake City í Utah í nótt.

Varaforsetaefni takast á í kappræðum
Þau Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, og Kamala Harris, öldungadeildarþingmaður og varaforsetaframbjóðandi, munu mætast í kappræðum í nótt.

Enn tapar Trump máli um skattskýrslur sínar
Áfrýjunardómstóll í New York kvað upp úr um það í dag að endurskoðendum Donald Trump Bandaríkjaforseta beri að afhenda ríkissaksóknurum þar skattskýrslur hans. Líklegt er talið að deilan um skattskýrslur forsetans rati öðru sinni fyrir Hæstarétt Bandaríkjanna.

Trump stöðvar viðræður um neyðarpakka en skiptir fljótt um skoðun
Hlutabréfavísitölur vestanhafs hafa tekið kipp upp á við í dag í kjölfar þess að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, virtist snúast hugur varðandi viðræður um opinbera innspýtingu í hagkerfi Bandaríkjanna, svokallaðan neyðarpakka.

Fyrrverandi yfirmaður CIA sakar yfirmann leyniþjónustustofnana um að ganga erinda Trump
John Brennan, fyrrverandi yfirmaður Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA), hefur gagnrýnt John Ratcliffe, núverandi yfirmann leyniþjónustustofnanna Bandaríkjanna, harðlega og segir hann hafa opinberað sérstaklega valin skjöl í pólitískum tilgangi.

Biden vex ásmegin í könnunum
Joe Biden, forsetaframbjóðanda Demókrataflokksins, hefur vaxið ásmegin í skoðanakönnunum sem gerðar hafa verið í kjölfar kappræðna hans og Donalds Trump, forseta.

Stefnir í metkjörsókn vestanhafs
Fleiri en fjórar milljónir Bandaríkjamanna hafa þegar greitt atkvæði utan kjörfundar í forseta- og þingkosningum sem fara fram eftir fjórar vikur. Aldrei áður hafa svo margir verið búnir að greiða atkvæði á þessum tímapunkti fyrir kosningar og stefnir nú í mögulega metkjörsókn.

Leyniþjónustan ósátt við að Trump stefndi heilsu lífvarða í hættu
Ákvörðun Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að láta tvo lífverði frá leyniþjónustunni aka með sig fyrir utan sjúkrahúsið þar sem hann dvelur til að hann gæti heilsað stuðningsmönnum sínum þrátt fyrir að hann sé smitaður af kórónuveirunni hefur vakið furðu og fordæmingu leyniþjónustunnar og lækna.

Trump gagnrýndur fyrir bíltúr fyrir utan sjúkrahúsið
Donald Trump Bandaríkjaforseti fór í bíltúr í gærkvöldi til að heilsa upp á stuðningsmenn sína sem hafa komið saman fyrir utan Walter Reed spítalann í Maryland, norður af höfuðborginni Washington DC.

Bandaríkjamenn á Íslandi uggandi um atkvæði sín
Tafir hjá bandarísku póstþjónustunni og herferð Donalds Trump forseta gegn póstatkvæðum veldur Bandaríkjamönnum búsettum á Íslandi áhyggjum af því að atkvæði þeirra í kosningunum í næsta mánuði verði ekki talin.

Bjartsýnir á bata Trump
Ástand Donald Trump Bandaríkjaforseta batnar með degi hverjum að sögn lækna hans.

Veikindi Trumps „katastrófa á Biblíu-leveli“
Kórónuveirusmit Donalds Trumps Bandaríkjaforseta er „katastrófa á Biblíu-leveli,“ og setur stórt strik í reikninginn fyrir kosningabaráttu hans að mati sérfræðinga um Bandarísk stjórnmál.

Kamala gerir gæfumuninn, segir Magnús sem spáði rétt 2016
Magnús Ólafsson sá fyrir sigur Trump á sínum tíma. Hann rýnir nú í stöðuna fyrir Vísi og greinir. Lesturinn gæti reynst huggun þeim sem hafa áhyggjur af öðrum fjórum árum með Trump í stóli forseta Bandaríkjanna.

Stefna ótrauðir að tilnefningu Barrett þrátt fyrir smit á þingi
Þrír af öldungadeildarþingmönnum Bandaríkjanna hafa smitast af Covid-19 og þrír til viðbótar eru í sóttkví. Allir eru þeir Repúblikanar og þess vegna hefur Mitch McConnell, forseti þingsins, frestað þingi um tvær vikur.

Trump á tilraunalyfjum sem unnin eru úr erfðabreyttum músum
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur fengið blöndu tilraunalyfja sem ætlað er að draga úr einkennum vegna Covid-19, sjúkdómsins sem nýja kórónuveiran veldur.

Stíga varlega til jarðar vegna smits forsetans
Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, segir að Covid-19 smit Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, sé öflug áminning um að taka þurfi faraldur nýju kórónuveirunnar alvarlega.

Biden ekki með Covid-19
Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, hefur ekki smitast af Covid-19. Hann fór í skimun í dag eftir að opinberað var að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefði smitast.

Vissu af smitinu en fóru samt að hitta fólk
Hvíta húsið vissi af því að einn nánasti ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseti væri smitaður af kórónuveirunni á miðvikudagskvöld en forsetinn og aðrir sem voru útsettir fyrir smiti héldu samt áfram að vera á meðal fólks. Trump og eiginkona hans greindust bæði smituð í gærkvöldi.

Veikindi Trumps gætu trompað ása Bidens
Tíðindin í nótt um Covid-smit Donalds Trump gætu hugsanlega valdið straumhvörfum í forsetakosningunum.

Hvað gerist ef Trump verður veikur?
Donald Trump Bandaríkjaforseti er smitaður af Covid-19 og verði hann veikur gæti það haft mikil áhrif á bæði baráttu hans til að ná endurkjöri og stjórn Bandaríkjanna.

Grímulausir ráðgjafar og fjölskylda Trump útsett fyrir smiti
Donald Trump Bandaríkjaforseti var í samskiptum við fjölda ráðgjafa, ættingja, bakhjarla og stuðningsmanna sem gæti nú verið útsettur fyrir kórónuveirusmiti eftir að forsetinn og eiginkona hans greindust smituð.

Bandarísku forsetahjónin smituð af kórónuveirunni
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, og Melania Trump, eiginkona hans, eru smituð af kórónuveirunni sem veldur sjúkdómnum Covid-19.

Trump-liðar ósáttir við áætlaðar breytingar á kappræðum
Í kappræðunum gekk Trump fram af mikilli hörku og hunsaði margar þeirra reglna sem hann hafði samþykkt að fara eftir. Þær snúa meðal annars að framíköllum og tímalengd ummæla.

Bandaríkin: Fyrstu kappræðurnar vöktu mikla athygli
Fyrstu kappræður forsetakosninga Bandaríkjanna fóru fram aðfaranótt miðvikudagsins. Þar mættust þeir Donald Trump, forseti, og Joe Biden, frambjóðandi Demókrataflokksins, á sviði í fyrsta sinn. Óhætt er að segja að úrkoman hafi verið sérstök.

Hafna beiðni Pompeo að fá áheyrn hjá páfa
Páfagarður í Róm hefur hafnað beiðni frá Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þess efnis að hann fái áheyrn hjá páfa.

Skipuleggjendurnir lofa minni óreiðu næst
Skipuleggjendur kappræðnanna fyrir bandarísku forsetakosningarnar hafa heitið því að breyta skipulagi þeirra svo koma megi í veg fyrir stöðug frammígrip, líkt og gerðist ótt og títt í fyrstu kappræðum kosningabaráttunnar í nótt.