Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020

Bloomberg nú með næstmestan stuðning á eftir Sanders
Milljarðamæringurinn Michael Bloomberg mælist nú með næstmestan stuðning meðal Demókrata á eftir öldungadeildarþingmanninum Bernie Sanders, ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar sem birt var af fréttaveitunni Reuters.

Enn gustar um dómsmálaráðuneyti eftir stormasama viku
Fréttir bárust af nokkrum pólitískum eldfimum málum sem dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur rannsakað í gær í lok viku þar sem efast hefur verið um sjálfstæði ráðuneytisins gagnvart pólitískum þrýstingi Trump forseta.

Fyrrverandi starfsmannastjóri Hvíta hússins deilir á framferði Trump
John Kelly taldi sérfræðing þjóðaröryggisráðsins sem kvartaði undan símtali Trump við forseta Úkraínu aðeins hafa fylgt þjálfun sinni sem hermanns. Trump hefur kallað eftir því að herinn refsi honum fyrir að bera vitni gegn honum í rannsókn Bandaríkjaþings á meintum embættisbrotum.

Saksóknarar uggandi yfir pólitískum þrýstingi frá Trump
Ákvörðun bandaríska dómsmálaráðuneytisins um að taka fram fyrir hendurnar á saksóknurum í dómsmáli gegn vini Trump forseta dregur dilk á eftir sér.

Sterk staða hjá Sanders og veik von fyrir Biden
Bernie Sanders fékk flest atkvæði í prófkjöri Demókrata í New Hampshire fyrir bandarísku forsetakosningarnar í nótt.

Biden í bölvuðum vandræðum
Skammt er síðan Biden mældist með mest fylgi í flestum könnunum Bandaríkjanna.

Saksóknarar sögðu sig frá máli vinar Trump eftir inngrip dómsmálaráðuneytis
Dómsmálaráðuneyti Trump stytti upphaflega kröfu saksóknara um refsingu yfir vini Trump forseta um meira en helming stuttu eftir að forsetinn tísti vanþóknun sinni á kröfunni.

Bernie Sanders efstur í forvali Demókrata í New Hampshire
Öldungadeildarþingmaðurinn Bernie Sanders varð efstur í forvali Demókrata í New Hampshire fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum en forvalið fór fram í gær.

Ummæli Bloomberg um minnihlutahópa og glæpi vekja umtal
Ummæli sem Michael Bloomberg, einn af forsetaframbjóðendum Demókrata og einn ríkasti maður heims, lét falla árið 2015 um að lögregla ætti að einbeita sér að hverfum þar sem minnihlutahópar búi vegna þar séu "allir glæpirnir framdir“ gætu komið honum í klandur.

Sanders líklegastur í New Hampshire
Íbúar New Hampshire í Bandaríkjunum greiða atkvæði í dag í prófkjöri bæði Demókrata og Repúblikana fyrir forsetakosningarnar þar í landi. Trump forseti á sigurinn vísan hjá Repúblikönum en mun meiri spenna er hjá Demókrötum.

Hömlulausi forsetinn: Engin bönd halda Trump lengur
Í kjölfar þess að Trump var sýknaður af ákærum vegna meintra embættisbrota hefur hann farið hart fram gegn óvinum sínum, raunverulegum og ímynduðum. Þeir sem stóðu í hárinu á forsetanum til að byrja með hafa að miklu leyti yfirgefið sviðið og Repúblikanaflokkinn.

Forval flokkanna í New Hampshire fer fram í dag
Forvalið í New Hampshire er númer tvö í röðinni en fyrir viku var kosið í Iowa og þar liggja endanlegar tölur enn ekki fyrir hjá Demókrötum vegna tæknilegra vandamála.

Bæði Buttigieg og Sanders fara fram á að farið verði yfir niðurstöður í Iowa
Pete Buttigieg og Bernie Sanders, forsetaframbjóðendur demókrata og þeir frambjóðendur sem voru efstir í fyrstu forkosningum demókrata í Iowa-ríki hafa báðir farið fram á að farið verði aftur yfir niðurstöður forkosninganna í hluta ríkisins.

Trump rukkar eigin ríkisstjórn vegna gistingar fyrir lífverði
Leyniþjónusta Bandaríkjanna hefur þurft að greiða fyrirtækjum Trump forseta háar fjárhæðir vegna öryggisgæslu á tíðum ferðum hans í eigin klúbba og hótel.

Sanders og Buttigieg taldir líklegastir til afreka í New Hampshire
Forval Demókrataflokksins fyrir forsetakosningar heldur áfram í New Hampshire á morgun. Horfur Joe Biden, fyrrverandi varaforseta, eru ekki góðar þar.

Segir óvíst að Biden þoli að vera í tapsæti í mánuð
Demókratar eru í erfiðri stöðu eftir forval flokksins í Iowa. Miklar tafir urðu á því að endanleg úrslit yrðu tilkynnt vegna misræmis í tilkynningu talna frá kjörfundunum. Donald Trump, Bandaríkjaforseti, var svo sýknaður af ákærum fyrir embættisbrot sem var nokkuð fyrirséð.

„Buttigieg er enginn Obama“
Forsetakosningar fara fram í Bandaríkjunum í nóvember næstkomandi, þar munu Demókratar freista þess að koma í veg fyrir annað kjörtímabil Donald Trump, núverandi forseta Bandaríkjanna. Kosningabaráttan innan Demókrataflokksins er í fullum gangi en þegar hafa farið fram forkosningar í ríkinu Iowa.

Trump siglir seglum þöndum að endurkjöri
Ef allt fer sem horfir þá verður Donald Trump endurkjörinn forseti Bandaríkjanna eftir rúma níu mánuði.

Bandaríkin: Trump sýknaður og Demókratar klúðra
Umdeilt forval Demókrataflokksins í Iowa og fyrirsjáanleg sýknun Donald Trump, forseta, er það helsta sem er til umfjöllunar í þriðja þætti Bandaríkjanna, hlaðvarps fréttastofu um bandarísk stjórnmál.

Formaður landsnefndar Demókrata kallar eftir endurskoðun niðurstaðna í Iowa
Miklar tafir hafa orðið á því að tilkynnt verði um endanleg úrslit forvalsins í Iowa vegna misræmis í tilkynningu talna frá kjörfundunum. Vandamálin eru rakin til tæknilegra örðugleika í nýju snjallforriti sem var notað til að halda utan um talninguna.

Talning í Iowa sögð plöguð af misræmi og mistökum
Sérfræðingar New York Times fundu þó engar vísbendingar um vísvitandi hagræðingu úrslita og telja að misræmið hafi ekki hyglað efstu tveimur frambjóðendunum.

Trump sýknaður af ákærum um embættisbrot
Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur sýknað Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, af tveimur ákærum fyrir embættisbrot.

Enn mjótt á munum hjá Demókrötum í Iowa
Niðurstöður úr prófkjöri Demókrata í Iowa fyrir bandarísku forsetakosningarnar fóru loks að berast í gærkvöldi eftir langa töf. Mjótt er á munum á milli efstu frambjóðenda.

Hætta við að nota forrit sem setti forval í Iowa í uppnám
Ekki er búist við endanlegum úrslitum í forvali demókrata í Iowa fyrr en í fyrsta lagi síðar í dag. Göllum í snjallforriti hefur verið kennt um tafirnar.

Stefnuræða Trump: Forsetinn dásamaði efnahagslífið en Pelosi reif ræðuna
Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt í nótt stefnuræðu sína á Bandaríkjaþingi þar sem hann lagði línurnar fyrir komandi kjörtímabil en hann sækist eftir endurkjöri.

Buttigieg efstur í forvali Demókrata sem stendur
Pete Buttigieg, fyrrverandi borgarstjóri South Bend í Indiana, er sem stendur efstur í forvali Demókrataflokksins í Iowa fyrir forsetakosningarnar sem fara fram í nóvember næstkomandi.

Trump flytur stefnuræðu fyrir kviðdómi sínum
Stefnuræða Bandaríkjaforseta ber upp kvöldið áður en öldungadeild Bandaríkjaþings er líkleg til að sýkna hann af kæru um embættisbrot.

Banna misvísandi kosningaáróður á Youtube
Bannað verður að dreifa röngum upplýsingum um framkvæmd kosninga í Bandaríkjunum, villa á sér heimildir og dreifa ósannindum um kjörgengi eða ríkisborgararétt frambjóðenda.

Vonast til þess að úrslit í fyrsta forvali demókrata liggi fyrir í dag
Ringulreið ríkir um úrslit fyrsta forvals demókrata fyrir forsetakosningarnar vegna misræmis í tilkynningum kjörstaða um tölur.

Óánægja og tafir í Iowa
Miklar tafir hafa orðið á því að hægt sé að greina frá úrslitum í forvali demókrata í Iowa sem fram fór í gær.