Handbolti

Aron fagnaði sigri gegn sínum gömlu félögum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron skoraði eitt mark og lagði nokkur upp til viðbótar í dag.
Aron skoraði eitt mark og lagði nokkur upp til viðbótar í dag. vísir/eva björk
Aron Pálmarsson og félagar í Veszprém báru sigurorð af Kiel, 29-27, í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag. Þetta var fyrsti leikur Arons gegn sínum gömlu félögum í Kiel eftir að hann gekk til liðs við Veszprém í sumar.

Aron skoraði eitt mark fyrir ungversku meistarana sem eru búnir að vinna fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum í A-riðli. Veszprém er í 1. sæti riðilsins veð níu stig, þremur stigum á undan Kiel.

Peter Gulyas og Momir Ilic skoruðu fimm mörk hvor fyrir Vezprém en Domagoj Duvnjak var markahæstur í liði Kiel með sjö mörk.

Alfreð Gíslason stýrir Kiel sem mætir Celje frá Slóveníu í næsta leik sínum í Meistaradeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×