Fréttir
244 245 246 247 248 249 250 251 252 … 334 ›
Vill broskarl eða súrkarl í glugga veitingastaða Formaður Neytendasamtakanna kallar eftir því að úttektir heilbrigðiseftirlita verði aðgengilegar almenningi með einföldum hætti við komu á veitingastaði. Slík upplýsingagjöf sé mikið neytendamál enda hvetji hún forsvarsmenn staðina til að standa sig betur auk þess sem matvælaöryggi eykst. Innlent 9.3.2024 14:01
„Við erum að vinna í því að koma í veg fyrir þetta kjaftæði“ Guðný Kristjánsdóttir, íbúi í Reykjanesbæ og tengdadóttir rokkarans keflvíska Rúnars Júlíussonar segir meirihluta bæjarbúa vera ósáttan með ákvörðun bæjarstjórnar Reykjanesbæjar að flytja bókasafn bæjarins í Hljómahöll og takmarka starfsemi Rokksafns Íslands. Hún segist munu berjast gegn áformum bæjarstjórnarinnar með öllum tiltækum ráðum. Innlent 9.3.2024 13:42
Hádegisfréttir Bylgjunnar Formaður Neytendasamtakanna kallar eftir því að úttektir heilbrigðiseftirlita verði aðgengilegar almenningi með einföldum hætti við komu á veitingastaði. Rætt er við formann Neytendasamtakanna í hádegisfréttum Bylgjunnar. Fréttir 9.3.2024 11:42
Vöfflujárnið komið í samband og penninn mundaður Rafiðnaðarsamband Íslands, Matvís og VM, félag vélstjóra og málmtæknimanna, stefna á að undirrita nýja kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins klukkan tvö í dag. Innlent 9.3.2024 11:42
Minnst fimmtán drónaárásum Húta afstýrt í nótt Danska freigátan Iver Huitfeld skaut niður fjóra dróna í nótt sem Hútar sendu út til að gera árás á það. Það kom fram í tilkynningu frá danska hernum frá í morgun. Minnst fimmtán drónar gerðu atlögu að skipaumferð sunnanvert í Rauðahafinu í nótt. Erlent 9.3.2024 10:49
Tvíburarannsókn sýnir sterk tengsl milli áfalla í æsku og geðraskana Rannsókn sem byggði á gögnum úr svokallaðri Tvíburaskrá Svíþjóðar hefur leitt í ljós að einstaklingar sem urðu fyrir áfalli í æsku voru 2,4 sinnum líklegri til að hafa verið greindir með geðsjúkdóm en þeir sem komust í gegnum æskuna áfallalaust. Innlent 9.3.2024 09:00
Peningar ekki vandamál í næsta verkefni Björns Zoëga Björn Zoëga verður framkvæmdastjóri á King Faisal Specialist Hospital and Research Centre í Sádi-Arabíu í apríl. Hann lætur senn af störfum sem forstjóri Karolinska-háskólasjúkrahússins í Stokkhólmi í Svíþjóð. Innlent 9.3.2024 08:08
Ráðinn sem sérhæfður kokkur en settur í ræstingar Flestir þeirra sem fá dvalarleyfi á Íslandi vegna sérfræðiþekkingar, líkt og talið er að fórnarlömb meints mansals Davíðs Viðarssonar hafi fengið, koma frá Víetnam. Sviðsstjóri hjá Vinnumálastofnun segir það koma reglulega fyrir að fólk vinni við allt annað en það er sagt ætla að gera við komuna hingað til lands. Innlent 9.3.2024 07:54
Var stórhissa á því hvað pabbi hafði gert mikið „Við stöndum að eilífu í þakkarskuld við þessa frumkvöðla,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra í ávarpi við opnun sýningar í tilefni 80 ára afmælis Loftleiða. Með uppbyggingu á fluginu með Ísland sem tengimiðstöð hefðu þeir lagt grunninn að þeirri öflugu ferðaþjónustu sem til væri orðin í landinu. Innlent 9.3.2024 07:47
Yndisleg stund sem allir sem eigi fjölskyldur hljóti að skilja Rúmlega sjötíu manna hópur frá Gasa lenti á Keflavíkurflugvelli í dag og hitti loks ástvini og fjölskyldur á Íslandi. Aðstandendur mættu með blóm og í sínu fínasta pússi til að taka á móti fólkinu sínu en þeir þurftu þó að bíða í dágóðan tíma. Baráttufeðgin segja allt fjölskyldufólk á Íslandi hljóta að sjá fegurðina í sameiningu fjölskyldna eftir margra ára aðskilnað. Innlent 9.3.2024 07:32
Munu fella fleiri aspir á Austurveginum Til stendur að fella fleiri aspir og fjarlægja ýmsan lággróður á miðeyju Austurvegar á Selfossi til að bæta umferðaröryggi. Ný tré verða gróðursett og blómakörum komið fyrir. Innlent 9.3.2024 07:00
Fjölgar um einn í hópi sakborninga Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir engar frekari aðgerðir vera skipulagðar varðandi meint mansal athafnamannsins Davíðs Viðarssonar en að yfirheyrslur og gagnaúrvinnsla gangi vel. Innlent 8.3.2024 23:51
Danir skuli forðast fjöldasamkomur vegna hryðjuverkahættu Danska utanríkisráðuneytið hefur varað danska ríkisborgara búsetta í Moskvu við að sækja fjöldasamkomur í borginni um helgina. Í varúðartilkynningu til þeirra kemur fram að aukin hætta sé á árásum á fjöldasamkomur í Moskvu. Ekki liggur þó fyrir hvað býr á baki þessum viðvörunum. Erlent 8.3.2024 22:45
Bæjarstjórn Hornafjarðar endurskoðar gjaldskrárhækkanir Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykktu á fundi í gær að fella niður gjaldtöku fyrir skólamáltíðir í grunnskólum sveitarfélagsins. Einnig samþykkti bæjarstjórn að endurskoða gjaldskrár sveitarfélagsins á sama grunni. Innlent 8.3.2024 22:02
Þyrlan sótti tvo slasaða vélsleðamenn í sömu ferðinni Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fyrr í kvöld vegna manns sem hafði slasast á fæti á vélsleða við Eyjafjörð og þegar verið var að sækja hann barst annað útkall vegna manns sem hafði slasast á vélsleða hinum megin við Eyjafjörð. Þeir voru báður sóttir og fluttir á sjúkrahús. Innlent 8.3.2024 20:38
Bændur bora í nefið eftir lokun Skellt var í lás klukkan 18:00 í dag í versluninni Borg á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi fyrir fullt og allt. Sumarbústaðaeigendur á svæðinu segjast vera mjög leiðir að hafa enga verslun lengur og hvað þá heimamenn í Grímsnes- og Grafningshreppi. Innlent 8.3.2024 20:31
Hjartnæmar myndir af endurfundum palestínskra fjölskyldna Á áttunda tug palestínskra flóttamanna komu í dag til landsins í dag eftir að hafa hlotið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Þau komu með rútu frá Keflavíkurflugvelli fyrr í kvöld og tóku fjölskyldur þeirra við þeim með faðmlögum, kossum og gleðitárum. Innlent 8.3.2024 19:57
Stungumaðurinn í Hlíðarenda úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Karlmaður um þrítugt var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir stunguárás sem framin var í Hlíðarendahverfinu í Reykjavík í gær. Var það að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 8.3.2024 19:52
Myndband af fólskulegri stunguárás í Valshverfinu Maður veittist að tveimur mönnum með hníf í versluninni OK Market í Valshverfinu í gær. Hann var handtekinn og standa yfirheyrslur enn yfir. Innlent 8.3.2024 19:15
Palestínskar fjölskyldur í skýjunum með langþráða endurfundi Fjölskyldur Palestínumannanna sem komu frá Gasa til Íslands í dag bíða óþreyjufull eftir að sjá ástvini sína eftir margra ára aðskilnað í tilfelli þeirra margra í húsnæði á vegum Rauða krossins í Reykjavík. Innlent 8.3.2024 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Rúmlega sjötíu manna hópur frá Gasa lenti á Keflavíkurflugvelli í dag og hitti loks ástvini og fjölskyldur á Íslandi. Aðstandendur mættu með blóm og í sínu fínasta pússi til að taka á móti fólkinu sínu en þeir þurftu þó að bíða í dágóðan tíma. Við sjáum frá deginum í fréttatímanum. Innlent 8.3.2024 18:01
Ekki víst hvers vegna kom ekki til eldgoss Óvíst er hvers vegna kvika braut sér ekki leið til yfirborðs þann 2. mars síðastliðinn þegar kvikuhlaup átti sér stað á Sundhnúksgígaröðinni. Veðurstofan segir ástæðu vera til þess að rannsaka atburðarásina frekar til að varpa betur ljósi á eðli kvikuhlaupa á svæðinu og til að átta sig á hvert framhaldið verður. Innlent 8.3.2024 17:16
Samstaða hefði myndast gegn konu í umtöluðu nauðgunarmáli 23 ára gömul kona sem sýknuð var af ásökunum um rangar sakargiftir í nauðgunarmáli var greind með áfallastreituröskun eftir endurtekin viðtöl hjá sálfræðingi. Skilaboð til vinkonu þess efnis að kynlíf með stráknum hefði verið gott voru ekki nægjanleg til að sanna að hún væri sek um rangar sakargiftir. Samstaða virtist hafa myndast meðal hóps gegn konunni. Innlent 8.3.2024 17:13
Tóku niður crimemarket.is Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð í síðustu viku þar sem fíkniefnamarkaður sem kallaður er crimemarket.is var tekinn niður. Ekki leikur grunur á að Íslendingar séu viðriðnir málið. Innlent 8.3.2024 16:26
Var í símanum undir stýri og fær kaskótryggingar ekki endurgreiddar Vátryggingafélag Íslands þarf ekki að endurgreiða manni kaskótryggingar, sem félagið hafði endurkrafið manninn um í kjölfar umferðarslyss sem hann olli. Maðurinn hafði ekið aftan á röð bifreiða á Reykjanesbraut á meðan hann var í símanum undir stýri og urðu fjórir bílar fyrir skemmdum. Innlent 8.3.2024 16:20
Bein útsending: Eldræður á baráttudegi kvenna Von er á fjölmenni í miðbæ Reykjavíkur á alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir friði og jafnrétti. Efnt er til kvennagöngu fyrir Palestínu og von á eldræðum á baráttufundi í Kolaportinu í framhaldi af göngunni, upp úr klukkan 17. Vísir verður í beinni frá baráttufundinum. Innlent 8.3.2024 16:16
Margir vilja halda rekstri áfram í Grindavík Ríflega þriðjungi fyrirtækja í Grindavík hefur verið lokað vegna jarðhræringanna og rýmingarinnar. Þrátt fyrir það segjast 41,2 prósent fyrirtækjaeigenda stefna að því að halda áfram fullum rekstri í bænum, á einhverjum tímapunkti. Innlent 8.3.2024 16:03
Fimm dóu þegar hjálpargögn lentu á þeim Að minnsta kosti fimm manns eru sagðir hafa látið lífið þegar hjálpargögn sem Bandaríkjamenn vörpuðu á Gasaströndina úr lofti í gær lentu á þeim. Fallhlíf allavega eins vörubrettis opnaðist ekki og það féll til jarðar á miklum hraða. Erlent 8.3.2024 15:22
Milduðu dóm í umfangsmiklu fíkniefnamáli Krzysztof Romaniuk hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Þetta er niðurstaða Landsréttar sem kvað upp dóm sinn eftir hádegið. Innlent 8.3.2024 15:18
Spænskir líffræðingar komu lunda í Reynisfjöru til bjargar Tveir spænskir líffræðingar, sem vinna á veitingastaðnum Svarta fjaran í Reynisfjöru, komu lunda, sem fannst slasaður í fjörunni, til bjargar í morgun. Nokkuð óvenjulegt telst að lundi sé kominn til landsins í byrjun marsmánaðar. Innlent 8.3.2024 15:09