Banksy opinberaður, enn einu sinni Samúel Karl Ólason skrifar 19. mars 2026 11:10 Verk Banksy, eða Robin Gunningham, hafa lengi vakið athygli á heimsvísu. Getty/Alexi Rosenfeld Hulunni hefur enn einu sinni verið svipt af götulistamanninum Banksy, sem hefur í rúma þrjá áratugi farið huldu höfði, að mestu. Hann er fæddur 1973 sem Robin Gunningham og er frá Bristol í Englandi. Hann breytti þó nafni sínu í David Jones til að eiga auðveldara með að fara huldu höfði.
David Jones er eitt algengasta karlmannsnafn í Bretlandi en óljóst er hvort Banks notist enn við það nafn. Hann ferðaðist þó undir því nafni til Úkraínu árið 2022. Það voru blaðamenn Reuters sem opinberuðu hver Banksy er en þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Gunningham er bendlaður við listaverkin frægu. Eftir að blaðamenn Reuters töldu sig vita með vissu hver hann væri leituðu þeir til hans en hann neitaði alfarið að ræða við þá. Lögmaður Banksys sendi þeim þó tölvupóst þar sem hann hafði eftir listamanninum að ýmsir hlutar fréttar Reuters væru rangir, án þess þó að tilgreina hvaða hluta fréttarinnar væri um að ræða. Lögmaðurinn bað um að fréttin yrði ekki birt og sagði að það myndi brjóta gegn friðhelgi einkalífs hans og setja hann í hættu. Hann sagði að Banksy hefði ítrekað verið hótað í gegnum árin og sagði að opinberun á því hver hann væri myndi einnig koma niður á almenningi. Í frétt Reuters segir að þessi ummæli hafi verið tekin til greina en ákveðið hafi verið að almenningur hefði hag af því að skilja þennan heimsfræga og gífurlega áhrifamikla listamann betur. Farið hefði verið eftir sömu gildum og blaðamenn Reuters hefðu alltaf gert. Þau sneru að því að fólk og stofnanir sem leitast við að móta og hafa áhrif á samfélagslega og pólitíska umræðu eigi að sæta ábyrgð, gagnrýni og jafnvel afhjúpun. Því hefði Banksy komist hjá um árabil. Opinberaður af Daily Mail 2008 Hver Banksy er hefur lengi verið vitað af fjölda fólks, sem þekkir hann og hefur unnið með honum í gegnum árin. Þá er þetta alls ekki í fyrsta sinn sem Gunningham er tengdur við listaverkin í fjölmiðlun. Það hefur nokkrum sinnum verið gert áður eins og til að mynda af vísindamönnum við Queen Mary-háskólann árið 2016. Sjá einnig: Hulunni hugsanlega svipt af huldulistamanni Þá opinberaði Daily Mail fyrst að Gunningham væri Banksy árið 2008. Skemmdi eigið verðmætasta verk Banksy byrjaði að spreyja verk sín á veggi í Bristol á síðustu öld en um miðjan fyrsta áratug þessarar aldar fóru listaverk hans að birtast í borgum um allan heim. Vinsældir hans jukust mjög hratt og verðmæti verka hans sömuleiðis. Þau fóru að seljast fyrir fúlgur fjár á uppboðum. Eitt frægasta verk hans er „Stúlka með blöðru“ en í gjörningi árið 2018 eyðilagði hann verkið á sviði, rétt eftir að það hafði verið selt á uppboði fyrir 1,1 punda. Myndband sem Banksy birti í kjölfarið sýndi að verkið átti allt að eyðileggjast en einungis hluti þess skemmdist. Eftir þetta fékk listaverkið nafnið „Ástin er í ruslinu“ og þremur árum eftir það seldist verkið aftur. Þá seldist það fyrir 18,6 milljónir punda eða rúma þrjá milljarða króna. Verkið er það verðmætasta sem Banksy hefur gert. Í samtali við BBC segir forstjóri Brandler listagallería að nafnleysið hafi reynst Banksy þægilegt upp á það að geta gengið um án þess að vera þekktur. Það að búið sé að opinbera hann muni þó ekki koma niður á vörumerki hans. Listaheiminum sé alveg sama og vörumerkið sé orðið svo rótgróið.
Bretland England Myndlist Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Sjá meira