
Fréttir

Sagði Khamenei „nútíma Hitler“ og að markmiðið sé að fella hann
Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísrael, segir að Ali Khamenei, æðstiklerkur Íran, sé „nútíma Hitler“ og nauðsynlegt sé að bana honum. Þetta sé orðið eitt helsta markmið Ísraela í Íran.

Um helmingur Grindvíkinga segist líklega ætla að snúa aftur
Í hádegisfréttum fjöllum við um stöðuna á þingi en þar var veiðigjaldafrumvarpið enn og aftur til umræðu.

Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru
Sigríður Stefánsdóttir hefur tekið við formennsku í stjórn Rauða krossins á Íslandi (RKÍ) af Silju Báru Ómarsdóttur. Sigríður hefur verið varaformaður undanfarin þrjú ár, átti sæti í stjórn Eyjafjarðardeildar félagsins frá 2021 og hefur verið sjálfboðaliði allt frá 2017.

Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu
Stærðarinnar hvalshræ lenti á stefni Norrænu og losa þurfti hræið af skipinu við höfnina á Seyðisfirði. Hvalurinn var hífður af stefninu og er bundinn við bryggjuna.

Geimskipið sprakk á jörðu niðri
Nýjasta geimflaug SpaceX af gerðinni Starship sprakk í loft upp á jörðu niðri í Texas í nótt. Verið var að undirbúa eldflaugina fyrir tilraun þar sem kveikja átti á hreyflum hennar og varð gífurlega stór sprenging á tilraunapallinum. Engan sakaði í sprengingunni.

Finnar draga sig út úr sáttmála gegn jarðsprengjum
Yfirgnæfandi meirihluti þingmanna á finnska þinginu greiddi atkvæði með því að Finnland segi sig frá Ottawa-sáttmálanum sem bannar notkun jarðsprengna. Tilefnið er vaxandi ógn sem Finnar telja stafa af nágrönnum þeirra í Rússlandi.

„Easy come, easy go“
Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðiprófessor segir að lítið fylgi Framsóknarflokksins í borginni samkvæmt nýrri könnun Gallup komi ekki mikið á óvart miðað við sögulegt fylgi flokksins. Framsókn hafi yfirleitt verið með einn eða engan fulltrúa í borgarstjórn, en hafi unnið óvæntan kosningasigur í síðustu kosningum.

Leita „fjandskapar“ á samfélagsmiðlum námsmanna
Yfirvöld í Bandaríkjunum ætla í framtíðinni að skoða samfélagsmiðla erlendra námsmanna og fræðimanna sem sækja um vegabréfsáritun og dvalarleyfi í Bandaríkjunum. Markmiðið er að leita að fjandskap í garð Bandaríkjanna.

Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum
Fulltrúar borgarstjórnarmeirihlutans í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar samþykktu tillögu um að gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum í gær. Endugerð gatnanna sem var samþykkt í fyrra frestast þó.

Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið
Lögreglan og sérsveitin réðust í umfangsmiklar aðgerðir gegn fíkniefnaframleiðslu víða um landið í gær. Ráðist var í húsleit á Raufarhöfn í gær.

Áframhaldandi landris í Svartsengi
Áframhaldandi landris mælist í Svartsengi en það hefur hins vegar hægt á sér. Líkur á eldgosi munu aukast með haustinu, ef kvikusöfnun heldur áfram. Aðeins rúmur helmingur þess kvikumagns sem var í hólfinu undir Svartsengi í apríl hefur safnast aftur.

Tala látinna í Kænugarði komin í tuttugu og átta
Björgunarsveitir í Kænugarði höfuðborg Úkraínu fundu í gær fleiri lík í fjölbýlishúsinu sem Rússar sprengdu í loft upp aðfararnótt þriðjudagsins.

Bætir í úrkomu í kvöld
Smálægð nálgast nú landið úr suðvestri og má reikna með fremur hægri suðlægri átt í dag og víða skýjuðu veðri með stöku skúrum, einkum síðdegis.

Tugir særðir í Ísrael eftir árás Írana á spítala
Fjöldi er særður á spítala í suðurhluta Ísrael eftir að íranskri eldflaug var skotið á spítalann snemma í morgun. Í erlendum miðlum segir að haft sé eftir stjórnendum að miklar skemmdir séu á spítalanum og að myndefni frá Ísrael sýni glugga springa og svartan reyk leggja frá húsinu við sprenginguna.

Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut
Rétt eftir klukkan tvö í nótt var slökkvilið kallað til vegna bruna í Efnalauginni á Háaleitisbraut. Í dagbók lögreglunnar segir að lögregla og slökkvilið hafi verið send með forgangi vegna mikils elds. Slökkviliði hafi gengið greiðlega að ráða niðurlögum eldsins.

Vinir Gunnfaxa vonast til að bjarga Flugfélagsþristinum
Áhugamenn um Flugfélagsþristinn Gunnfaxa hafa ákveðið að hefja fjársöfnun til að bjarga þessari sögufrægu flugvél frá því að eyðileggjast á Sólheimasandi. Þeir hyggjast koma henni í sýningarhæft ástand í von um að Samgöngusafnið á Skógum taki við henni.

Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu
Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt í þessu. Náttúruvársérfræðingur er að skoða málið en enn er verið að vinna úr gögnum. Hann var 3,4 að stærð.

Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagðist ekki hafa tekið ákvörðun um það hvort hann ætlaði að gera árásir á kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Hann sagðist ekki vilja í stríð við Íran en sagði að þegar valið stæði milli þess að berjast eða leyfa klerkastjórninni í Íran að eignast kjarnorkuvopn yrði maður „að gera það sem maður þarf að gera“.

Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð
Bíllinn sem logaði við munna Norðfjarðargöngunum var hlaðinn þrjú þúsund lítrum af málningu og þrjú þúsund lítrum af olíu. Hann varð því alelda á mjög skömmum tíma en ökumaður komst út af sjálfsdáðum og slapp ómeiddur.

Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði bótakröfu manns sem var handtekinn undir áhrifum kókaíns. Hann vildi meina að orsök þess að kókaínið hefði komist inn í blóðrásina hans væri návígi við skólp, en maðurinn er pípari.

Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni
Harður árekstur varð á horni Hverfisgötu og Klapparstígs þar sem bíll keyrði í hliðina á strætisvagni. Slökkviliðið er á vettvangi ásamt lögreglu og sjúkraflutningamönnum og segir um minniháttar meiðsli að ræða. Einn hefur verið fluttur á bráðamóttöku.

Sammála Attenborough og segir tegundir þurrkaðar út
Tegundir hafa þurrkast út við landið vegna botnvörpuveiða að sögn formanns Landssambands smábátaeigenda. Sambandið tekur undir áhyggjur sem koma fram í heimildarmynd David Attenborough um skaðsemi veiðanna á lífríki sjávar.

Fimmtán Íslendingar vilja komast heim
Hópur Íslendinga hefur óskað eftir aðstoð stjórnvalda við að komast frá Íran og Ísrael. Bandaríkjaforseti gefur óljós svör um hvort hann blandi sér í deiluna.

Staðfesta bann á meðferð trans barna
Hæstiréttur Bandaríkjanna komst í dag að þeirri niðurstöðu að heimilt sé að meina börnum að gangast kynleiðréttingu og fá tengd lyf og tengda læknisþjónustu. Meðferðin felur að mestu í sér notkun lyfja til að stöðva kynþroska eða annarskonar hormónameðferð.

Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina
Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út til aðstoðar lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu við leitina að Sigríði Jóhannsdóttur.

Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun
Hópur Íslendinga hefur óskað eftir aðstoð stjórnvalda við að komast frá Íran og Ísrael. Utanríkisráðherra segir stöðuna eldfima en Bandaríkjaforseti gefur óljós svör um hvort hann hyggist blanda sér í deiluna. Fjallað verðum málið í kvöldfréttum Sýnar.

Ók á húsvegg
Bíl var ekið á húsvegg í dag í umdæmi lögreglustöðvar þrjú sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti. Minniháttar tjón er á bílnum en engin slys urðu á fólki.

Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið
Landlæknir hefur tekið saman ástæður fyrir því að heilbrigðisstarfsfólk hefur verið svipt starfsleyfi. Þar kemur ekkert fram um að skoðanir heilbrigðisstarfsmanns hafi talist óæskilegar.

Óttast um líf fjölskyldu sinnar í Íran: „Ég sef ekki á nóttunni“
Íranskur flóttamaður á Íslandi lýsir áhyggjum af fjölskyldu sinni sem er föst í Teheran, þar sem stríð hefur nú geisað í fimm daga. Hann segir að eiginkona sín og barn séu búin að fá dvalarleyfi hér á landi en fyrirtækið sem skaffar vegabréfsáritanir í Íran sé lokað vegna stríðsins.

Norðfjarðargöng lokuð vegna elds í bifreið
Norðfjarðargöngum, göngin á milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar, hefur verið lokað eftir að eldur kviknaði í bíl.