
Fréttir

Krefjast þess að ríkisstjórn vakni af blundi á „sögulegum“ mótmælum
Meginkrafa mótmæla stærstu heildarsamtaka launafólks landsins á morgun er að ríkisstjórnin vakni af blundi og ráðist í markvissar aðgerðir gegn háu vaxtastigi og verðbólgu, að sögn formanns VR. Hann segir mótmælin söguleg.

Örn réðst á tveggja ára stúlku
Tuttugu mánaða norsk stelpa var hætt komin þegar örn reyndi að hremma hana við sveitabæ fjölskyldunnar í gær. Móðir og nágranni komu í veg fyrir að örninn næði að fljúga á brott með barnið.

Hlaup hafið að nýju í Skálm
Lítið jökulhlaup er hafið í ánni Skálm. Innviði eru ekki talin í hættu að svo stöddu en ekki er talið útilokað að rennslu og vatnshæð í ánni aukist.

Reglur um fæðingarstyrk geri ráð fyrir einsleitum hópi námsmanna
Þórdís Dröfn Andrésdóttir formaður Samband íslenskra námsmanna erlendis, SÍNE, segir nauðsynlegt að breyta reglum um greiðslur til námsmanna úr fæðingarorlofssjóði þannig þær taki mið af fjölbreyttari hópi námsmanna. Þá þurfi einnig að hækka greiðslurnar.

„Eins og eitt stórt þvagpróf af Reykjavík“
Fyrstu niðurstöður mælinga á ópíóíðum í fráveituvatni á Íslandi sýna að neysla þeirra er nokkuð jöfn alla daga vikunnar. Meiri sveiflur er að finna í neyslu á hefðbundnari vímuefnum eins og MDMA, kókaíni, amfetamíni og kannabis.

Hringdi í skólann og varaði við rétt fyrir árásina
Móðir unglingspilts sem skaut fjóra til bana í framhaldsskóla í Georgíu í Bandaríkjunum hringdi í skólann og varaði við „bráðri neyð“ rétt fyrir árásina. Hún hvatti skólaráðgjafa til að fara og finna son hennar strax.

Björgunarsveit í fýluferð vegna neyðarblyss
Áhöfn björgunarskipsins Gísla Jóns á Ísafirði var kölluð út á laugardagkvöldið eftir að tilkynning barst frá íbúa sem hafði séð fleiri en eitt neyðarblys á lofti í firðinum. Sveitin var síðar afturkölluð eftir að ljós kom að blysunum hafði verið skotið á loft af hópi fólks sem hafði komið saman vegna hátíðarhalda fyrir utan veitingastað á Skutulsfjarðareyri.

Umfangsmikil leit að manni sem skaut fimm í Kentucky
Skólar í miðhluta Kentucky verða lokaðir í dag vegna leitar lögreglu að manni sem skaut á tólf bifreiðar og særði fimm á þjóðvegi norður af borginni London á laugardag.

Kalt, blautt og hvasst
Veðurstofan gerir ráð fyrir strekkings norðanátt með rigningu á Norður- og Austurlandi í dag og slyddu eða snjókomu til fjalla. Sunnan heiða verður hins vegar yfirleitt bjart.

Breskar konur stíga fram og ásaka Tate um nauðgun
Tvær konur hafa rætt við BBC og lýst því að hafa verið nauðgað af áhrifavaldinum Andrew Tate. Þriðja konan segist hafa verið nauðgað af Tristan, yngri bróður Andrew.

Sammála um að Rússar þurfi að eiga aðkomu að næstu friðarráðstefnu
Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, sagði í samtali við sjónvarpsstöðina ZDF í gær að hann og Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti væru sammála um að Rússar þyrftu að eiga aðkomu að næstu friðarráðstefnu um endalok innrásarinnar í Úkraínu.

Munurinn nemur þriggja ára skólagöngu
Mikill munur er á leikskólagöngu barna foreldra sem fæddust á Íslandi og barna innflytjenda. Börn innflytjenda sem sækja leikskóla eru hlutfallslega talsvert færri en börn innfæddra og ganga gjarnan seinna í leikskóla. Þessi þróun ýti undir mismunun í skólakerfinu og á vinnumarkaðnum. Það geri heimgreiðslur sömuleiðis.

Fjórir sagðir látnir eftir árásir Ísraela á Sýrland
Minnst fjórir eru sagðir hafa látist í eldflaugaárásum Ísraelshers á bæinn Masyaf í vesturhluta Sýrlands í kvöld. Ekki liggur fyrir hvort hinir látnu séu hermenn

„Gætu orðið áhrifamestu kappræður allra tíma“
Aðeins tveir dagar eru nú í fyrstu kappræður Kamölu Harris og Donalds Trump, sem lýst hefur verið sem mikilvægustu stund kosningabaráttunnar. Frambjóðendurnir mælast hnífjafnir og gríðarleg eftirvænting er fyrir kappræðunum vestanhafs, sem haldnar verða í Fíladelfíu á þriðjudag.

Stjórnarandstöðuleiðtoginn flúinn til Spánar
Edmundo Gonzalez leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela er flúinn úr landi og lentur á Spáni. Handtökuskipun á var gefin út á hendur honum í vikunni.

„Þetta er alvöru hret“
Appelsínugular viðvaranir vegna hvassviðris og snjókomu hafa verið gefnar út fyrir allt Norðurland annað kvöld og fram eftir þriðjudegi. Veðurfræðingur segir þetta ansi glögg veðurafbrigði en þó ekki í líkingu við fjárfellishretið haustið 2012.

Skoða að breyta Hópinu í safn
Bæjarráð Grindavíkur hefur frestað niðurrifi íþróttamiðstöðvarinnar Hópsins og skoðar nú að breyta húsinu í safn. Forseti bæjarstjórnar vill losna við lokunarpósta og hleypa öllum inn í bæinn á næstunni.

Fegurðarsamkeppnin sem tók ljótan snúning
Umfangsmikið ágreiningsmál skekur nú heim fegurðarsamkeppna, en skipuleggjendur Miss Universe Fídji hafa verið sakaðir um að hagræða úrslitum keppninnar. Á rúmri viku hefur úrslitum keppninnar verið breytt tvisvar og alvarlegum ásökunum verið kastað á hendur skipuleggjenda.

Ópíóðar í fráveituvatni og einstakt samband stúlku og æðarfugls
Bæjarráð Grindavíkur hefur frestað niðurrifi íþróttamiðstöðvarinnar Hópsins og skoðar nú að breyta húsinu í safn. Forseti bæjarstjórnar vill losna við lokunarpósta og hleypa öllum inn í bæinn á næstunni. Við förum til Grindavíkur í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Kom út og sá alelda Rebeccu hlaupa í áttina að sér
„Þegar ég kom út sá ég Rebeccu hlaupa alelda í áttina að húsinu mínu hrópandi ‚hjálpaðu mér‘,“ segir Agnes Barabara, nágranni úgöndsku hlaupakonunnar Rebeccu Cheptegei sem lést eftir að fyrrverandi kærasti kveikti í henni.

Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum
Appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir allt Norðurland vegna hvassviðris og talsverðrar snjókomu á mánudagskvöld og út þriðjudaginn. Samgöngutruflanir eru líklegar og Veðurstofan mælir ekki með ferðalögum.

Fólk sem líti aldrei glaðan dag reyti hár sitt yfir saklausri auglýsingu
Brynjar Níelsson segir kynþokka og gleði vera eitur í beinum þeirra sem kenni sig við kvenfrelsi og jafnrétti og vísar þar í þau hörðu viðbrögð sem umdeild auglýsingaherferð Play vakti í vikunni.

Áður óséð myndefni tekið eftir morðið á Kennedy fer á uppboð
Áður óséð myndband sem sýnir bílalest Johns F. Kennedy bruna í borginni Dallas skömmu eftir að Bandaríkjaforsetinn þáverandi var skotinn til bana 22. nóvember 1963 verður boðið upp seinna í þessum mánuði.

14 pör eða hjón í Hrunamannahreppi eiga von á barni
Sjaldan eða aldrei hefur verið ein mikil uppbygging á Flúðum eins og núna því um 70 íbúðir eru þar í byggingu. Samhliða er mikil fjölgun í sveitarfélaginu en þegar síðast var vitað eiga fjórtán pör á Flúðum og næsta nágrenni von á barni á næstu vikum.

Sturluð stemning á tónleikum Skálmaldar undir norðurljósunum
Um 1.500 gestir lögðu leið sína í Heimskautsgerðið á Raufarhöfn í gær á stórtónleika hljómsveitarinnar Skálmaldar. Skippuleggjandi segir stemninguna hafa verið ólýslanlega.

Skaut þrjá til bana á landamærunum
Þrír voru skotnir til bana á landamærum Jórdaníu og Vesturbakkans í dag. Ísraelski herinn segir hina látnu hafa verið ísraelska, almenna borgara. Þeir voru allir karlmenn á sextugsaldri.

Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land
Gular og appelsínugular viðvaranir eru í kortunum næstu tvo daga. Fyrstu tvær viðvaranirnar eru gular og taka gildi á miðnætti á Ströndum og Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra. Búist er við slyddu og snjókomu á fjallvegum. Færð gæti spills tog ferðamenn sagðir eiga að geta búist við vetrarfærð.

Engin vopn á Ljósanótt og Októberfest
Töluvert var um ofbeldisbrot og unglingadrykkju á Ljósanótt í Reykjanesbæ um helgina. Tilkynnt var um fjórar líkamsárásir og einn hátíðargestur kýldi tvo lögreglumenn í andlitið. Gestir Októberfest í Reykjavík voru töluvert rólegri.

Bæjarráð vill opna Grindavík fyrir almenningi
Bæjarráð Grindavíkur vill að lokunarpóstar við bæinn verði fjarlægðir og bærinn verði opnaður sem fyrst fyrir almenningi. Forseti bæjarstjórnar segist vilja sýna fólki að bærinn sé ekki vesældin ein.

Hundi haldið sofandi eftir amfetamíneitrun
Hundur sem fór á lausagöngusvæðið á Geirsnefi á föstudag liggur nú þungt haldinn eftir að hafa orðið fyrir amfetamíneitrun.