Fréttir
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 334 ›
Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar Fyrsta skip sögunnar sem er alfarið knúið af endurnýjanlegri orku og vetni sem framleitt er um borð þess kom til hafnar í Reykjavík í gær. Innlent 9.7.2026 14:05
Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Flugkennarinn Leandro Andrés Bertazzo, 42 ára, fannst látinn eftir að hafa stokkið út úr dyrum flugvélar og með því skilið nemanda sem hann var að kenna eina eftir svo hún varð að lenda vélinni sjálf. Atvikið átti sér stað yfir bænum Toledo í Argentínu á laugardag, samkvæmt yfirlýsingu frá ríkissaksóknara landsins sem birt var á þriðjudag. Erlent 9.7.2026 13:48
„Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Aðstæður sem skólahjúkrunarfræðingum er boðið upp á í grunnskólum er dapurleg, að sögn formanns félags hjúkrunarfræðinga. Jákvætt sé að yfirvöld skapi heildræna áætlun til framtíðar í málaflokknum en erfitt sé að byggja upp þjónustu þegar hún sé stopul. Innlent 9.7.2026 13:00
Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Karlmaður hefur verið dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn barni. Hann gekkst við því að hafa sent 15 ára stúlku mynd af getnaðarlim í fullri reisn auk skilaboðanna „riða i kvöld?“ Innlent 9.7.2026 12:56
Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Björgunarsveitin Garðar var kölluð út þegar bátur strandaði á skeri rétt utan við Húsavík. Innlent 9.7.2026 12:52
Breskt herskip siglir um Hvalfjörð Breska flugmóðurskipið HMS Prince of Wales er nú statt í Hvalfirði en bresk flotadeild hefur tekið þátt í æfingum NATO á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Æfingar tengdar loftrýmiseftirliti og loftvörnum fara fram við Ísland. Innlent 9.7.2026 11:50
„Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ „Þetta er ekki í samræmi við mín samtöl, meðal annars við Hollendinga og mína kollega. Ég spái því að þetta verði ekki síðasta fréttin sem Morgunblaðið flytur með þessum hætti.“ Innlent 9.7.2026 11:42
Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að setja á laggirnar sérstakt umbóta- og hagræðingarteymi til að auka skilvirkni stjórnsýslunnar og bæta rekstur bæjarins. Fannar Jónasson, fyrrverandi bæjarstjóri Grindavíkur, leiðir teymið. Innlent 9.7.2026 11:36
Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Utanríkisráðherra segir orð forsætisráðherra Hollands um að Ísland verði að gangast undir sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins til að öðlast aðild ekki í samræmi við samtöl þeirra á milli. Hún gefur lítið fyrir umfjöllun Morgunblaðsins. Innlent 9.7.2026 11:35
Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra blandar sér í umræðuna um íslenska fánann, sem hefur verið í deiglunni frá því að tveir ónefndir aðilar tóku sig til og máluðu hann yfir inngildingarfána sem hefur verið við tröppur Grafarvogskirkju. Innlent 9.7.2026 11:01
Skemmdarvargarnir enn ófundnir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir mennina sem máluðu íslensku fánalitina yfir regnbogafána á tröppum Grafarvogskirkju í gærnótt enn ófundna. Hún segir að á myndefni af svæðinu sjáist að minnst tveir hafi verið að verki. Innlent 9.7.2026 10:43
Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Félag sjúkraþjálfara gagnrýnir stjórnvöld fyrir skort á samráði í aðdraganda þess að kynnt voru komugjöld til sjúkraþjálfara sem taka munu gildi fyrsta september. Félagið bendir á hættu þess af því að gjaldtaka sem þessi geti dregið úr aðgengi, seinkað endurhæfingu og dregið úr líkum á því að fólk leiti sér aðstoðar. Brýnt sé að setja hámark á hve mikið skjólstæðingar greiði árlega í komugjald. Innlent 9.7.2026 09:00
Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Ungur maður er grunaður um fjöldamörg afbrot, þar á meðal hnífaárásir og heimilisofbeldi gegn móður sinni. Maðurinn er sagður ekki sýna iðrun þegar hann ræði brotin sem hann er sakaður um að hafa framið, heldur lýsi hann þeim án svipbrigða og segir að honum sé sama um áhrif þeirra á aðra. Innlent 9.7.2026 08:00
Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og aðrir leiðtogar NATO-ríkjanna fengu skammbyssu að gjöf frá Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta við lok leiðtogafundar NATO í Ankara í gær. Nafn hvers og eins leiðtoga var áletrað á byssuna sem sá fékk að gjöf og fylgdi kassi af skotfærum með, auk græja til að hreinsa byssuna. Innlent 9.7.2026 07:53
Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Stjórnvöld í Rússlandi hafa bannað útflutning á dísilolíu en Rússar glíma nú við eldsneytisskort í kjölfar ítrekaða árása Úkraínumanna á orkuinnviði í landinu, til að mynda birgða- og olíuhreinsunarstöðvar. Erlent 9.7.2026 07:43
Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Bandaríkjaher hélt áfram árásum á Íran í gær, eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að tímabundið vopnahlé væri úr sögunni. Samkvæmt írönskum miðlum heyrðust sprengingar í hafnarborgunum Bandar Abbas og Sirik, auk þess sem gerðar voru árásir á skotmörk í Bushehr héraði, þar sem er að finna kjarnorkuinnviði. Erlent 9.7.2026 07:15
Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Skemmdarverk við Grafarvogskirkju setti svip sinn á útför þar í dag þar sem lögregluborðar og málningarfótspor blöstu við gestum. Formaður Samtakanna 78 segir um mikið áhyggjuefni að ræða. Innlent 9.7.2026 06:35
Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði alls sjö ökumenn grunaða um akstur undir áhrifum fíkniefna í nótt. Að venju var mestur erill hjá lögreglu miðsvæðis í Reykjavíkurborg. Innlent 9.7.2026 06:28
Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Landhelgisgæslan fann göngumann sem hafði lent í hremmingum í Sveinsgili við Torfajökul í nótt eftir fimm klukkutíma leit. Manninn sakaði ekki og var fluttur með þyrlu gæslunnar til Reykjavíkur, blautur og kaldur. Innlent 9.7.2026 02:43
Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Ungbarn sem hafði fundist hreyfingarlaust í sundlaug í Arizona-ríki Bandaríkjanna og úrskurðað látið reyndist vera á lífi. Það kom í ljós þegar barninu hafði verið komið fyrir í köldu líkhúsi sjúkrahúss. Erlent 9.7.2026 00:02
„Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Bandaríkjaher gerir nú árásir á Íran. Samkvæmt írönskum fjölmiðlum hafa sprengingar heyrst við suðurströnd landsins og á eyjum þeirra í Persaflóa. Erlent 8.7.2026 23:24
Ætla aftur að mála regnbogafánann Grafarvogskirkja ætlar að standa fyrir því að fáni hinsegin fólks verði aftur málaður við tröppur kirkjunnar á næstu dögum. Málað var yfir fánann með íslensku fánalitunum af óþekktum einstaklingum í skjóli nætur, um síðustu nótt. Innlent 8.7.2026 22:25
Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Hafrúnu Kristjánsdóttur, prófessor í sálfræði, brá í brún þegar hún skrollaði um Facebook í gær og sá að verið væri að líkja Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrverandi forseta lýðveldisins, við engan annan Adolf Hitler. Hún hvetur fólk til að vera kurteisara í umræðunni nú þegar minna en tveir mánuðir eru til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Innlent 8.7.2026 21:34
Hitatölurnar hækka fyrir austan Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, segir að hitinn gæti farið upp í allt að 25 stiga hita á Austurlandi um helgina. Mikill gangur sé í veðrinu. Veður 8.7.2026 20:56
Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Rússneskt herskip siglir nú innan efnahagslögsögu Íslands. Sama skip lagði leið sína fram hjá Íslandi fyrr í sumar. Fylgst er grannt með ferðum skipsins. Innlent 8.7.2026 20:18
Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Innheimtustofnun Sveitarfélaga, eða IHS, var í dag sýknuð í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfum Jóns Ingvars Pálssonar, fyrrverandi forstjóra hennar, sem hljóðuðu upp á 91 milljón krónur. Innlent 8.7.2026 19:21
Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi lauk í dag en þar fór Bandaríkjaforseti mikinn og hélt áhuga sínum á Grænlandi til streitu. Forsætisráðherra segir mikla hlýju hafa einkennt fundinn og vel fór á milli hennar og Donalds Trump. Innlent 8.7.2026 18:52
Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands telur Ríkisútvarpið ekki hafa brotið gegn siðareglum blaðamanna. Páll Steingrímsson kærði umfjöllun fjölmiðilsins frá því í apríl. Innlent 8.7.2026 18:38
Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi lauk í dag þar sem Bandaríkjaforseti fór mikinn og hélt áhuga sínum á Grænlandi til streitu. Forsætisráðherra segir mikla hlýju hafa einkennt fundinn og að vel hafi farið á milli hennar og Donalds Trump. Tómas Arnar fjallar um málið í kvöldfréttum. Innlent 8.7.2026 18:00
Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Efnahagsstöðugleiki og upptaka evrunnar heilla formann Ungra Evrópusinna við aðild að ESB en hann líti á krónuna sem „misheppnaða tilraun.“ Ungt fólk víða um heim glími við atvinnuleysi og það sé ekki evrópskt vandamál. Innlent 8.7.2026 17:08