
Veiði


Bender þeysist um sveitir landsins
Gunnar Bender hefur í samstarfi við Myndform gefið út nýjan DVD-disk sem er safn af því besta sem sýnt var í þáttunum Veiðivaktinni á sjónvarpsstöðinni ÍNN síðasta sumar.



Enginn bilbugur á norðanmönnum
Þótt blikur séu á lofti í stangaveiðiheiminum segist formaður Stangaveiðifélags Akureyrar síður en svo eiga von á samdrætti í sölu á svæðum félagsins.

I hope I got the right one!
Ekki er öruggt að lax sem leiðsögumaður bandarískrar konu landaði fyrir hana í Víðidalsá hafi verið nákvæmlega sá sem konan veiddi. Um þetta má lesa í bók um Víðidalsá og Fitjá.

Mengun í Ytri-Rangá aðallega ímyndarmál
Úrgangur sem lekið hefur í Ytri-Rangá frá kjúklingasláturhúsi á Hellu er fyrst og fremst sjónræn mengun en hefur ekki valdið skaða í lífríkinu.

Víðidalsá og Fitjá komnar á bók
Vegleg bók um Víðidals og Fitjá í Húnaþingi er komin á markaðinn. Með bókinni fylgja veiðilýsingar, kort og uppflettiskrár.

Melta söluskrána með hangikjötinu
Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur framlengt umsóknarfrest um veiðileyfi næsta sumars til 28. desember. Fresturinn átti að renna út í dag.

Hóta úrsögnum vegna breytinga í Elliðaánum
Liðsmenn Stangaveiðifélags Reykjavíkur deila um breytingar á úthlutun veiðileyfa í Elliðaánum næsta sumar. Árnefndin var á móti breytingunni.

Bleikjan horfin úr Tungufljóti?
Laxarækt í Tungufljóti í Biskupstungum er sögð hafa hafa hrakið bleikju sem þar var meira og minna á braut. Deilur hafa verið um svokallaða Tungufljótsdeild á vatnasvæðinu.

Tómt skothylki gæti skilað góðri veiði
Skotveiðifélag Íslands minnir nú félagsmenn sína á að skila inn tómum skothylkjum svo þeir eigi möguleika á að vinna 150 þúsund króna eldsneytisúttekt.

Rektorinn rekur veiðisögu sína
"Glettni veiðigyðjunnar - ekki nema það þó!" er titill nýrrar veiðibókar sem kom út fyrir skömmu. Þetta er saga Bjarna Kristjánssonar, sem er mörgum kunnur sem "Rektorinn" bæði vegna þess að hann var lengi rektor Tækniskóla Íslands en ekki síst af því að vinsæl straumfluga var nefnd eftir honum. Það var Kolbeinn Grímsson sem hnýtti fluguna á sínum tíma þegar þeir félagar voru við veiðar í Laxá í Mývatnssveit.

Aldrei verið skrifuð dýrari bók um lax
Bókin Salmon – Salmon: With a Chapter on Iceland er nú til sölu á eBay fyrir 400 þúsund krónur. Bókin var gefin út í 100 eintökum árið 1979. Kristján Eldjárn fekk fyrsta eintakið og Karl Bretaprins annað. Bókin er prentuð á 100 prósenta bómullarpappír, sem er afar sjaldgæft.

"Umræðan er byggð á algjörum misskilningi"
Óðinn Sigþórsson segir að umræðan um fyrirhugaðar breytingar á lögum um lax- og silungsveiði byggi á "algjörum misskilningi."

SVFR sendi ekki umsögn
Formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur segir að stjórn félagsins hafi ekki þótt við hæfi að senda inn umsögn við frumvarp um breytingar á lögum um lax- og silungsveiði. Hann segir mikla vigt í afstöðu Veiðimálastofnunar.

"Þarfnast meiriháttar skoðunar"
Veiðimálastofnun gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarp sem hefur það meðal annars að markmiði að auðvelda stofnun deilda innan Veiðifélaga og færa þeim aukið vald.

Umdeildar breytingar á lögum um lax- og silungsveiði
Nýtt frumvarp um breytingar á lögum um lax- og silungsveiði auðveldar stofnun deilda innan veiðifélaga. Auk þess er deildunum falið aukið ákvörðunarvald í ýmsum málum.

Sjaldan fleiri laxaseiði í Langá
Nýlegar seiðamælingar í Langá á Mýrum gefa góð fyrirheit. Þrír af fjórum seiðaárgöngum mælast yfir langtímameðaltali. Í nýrri skýrslu er veiðin síðasta sumar krufin til mergjar.

Söluskrá SVFR: Óbreytt verð á 17 svæðum og lækkað verð á einu
Söluskrá Stangaveiðifélags Reykjavíkur er komin til félagsmanna. Á 17 veiðisvæðum helst verð óbreytt og í Árbót og Tjörn lækkar verð um 13 til 20 prósent milli ára.

Stórmerkileg tíðindi frá Írlandi
Þetta er gert til að halda í núverandi viðskiptavini svo og til að tryggja nýliðun í greininni. Vegna þessa munu veiðileyfi í Blackwater lækka um rúmlega 50% á milli áranna 2012 og 2013

Kamparí, Viðbjóður og Klingenberg
"Jósef Reynis, arkítekt og Langárbóndi veiddi hér sumarið 1967 fyrsta laxinn á Fjallinu frá því laxastiginn opnaði. Þá vissu menn auðvitað ekkert hvar lax myndi veiðast og leituðu með logandi ljósi. Svo mikil var hamingja hans og veiðifélagans er 12 punda hrygna var komin á land, að þeir skáluðu í Kamparí og helltu góðum slurk í Langá."

Veiðimenn nær hættir að sleppa laxi í Fáskrúð í Dölum
Reyndar er vart talandi um að veiðimenn hafi sleppt löxum aftur því aðeins fjórir laxar af þessum 157 sem létu glepjast af agni veiðimanna var gefið líf. Það mun vera 2,5% af sumarveiðinni.

Landnám laxa í Selá gengur vonum framar
Rannsóknir Veiðimálastofnunar í Selá í Vopnafirði sýna að landnám laxa í efri hluta árinnar gengur vel.

Stangveiðifélag Selfoss vísar gagnrýni á bug
Við hjá stjórn SVFS höfum hingað til ekki tjáð okkur um málsatvik eins og þau snúa að okkur enda teljum við að SVFR sé að slá ryki í augu félagsmanna sinna...

Segir SVFR svikið af Selfyssingum
"Þeir höfðu ekki einu sinni dug í sér að láta okkur vita af svikunum fyrr en við gengum eftir því. Að mati stjórnar SVFR er þetta ódrengileg framkoma og nú spyrjum við okkur hvort við eigum yfirhöfuð samleið með aðilum sem starfa á þennan hátt. Við höfum því ákveðið að endurskoða formlega aðild okkar að Landssambandi stangaveiðifélaga."

Ársskammtur étinn á þremur dögum
Refur og ágangur veiðimanna í tímaþröng er ógn við rjúpuna segir Þorsteinn Hafþórsson. Miður sé að heyra talsmann umhverfisráðherra segja veiðidaga valda með tilliti til þess að sem verst viðri til veiða.

Veiðikortið 2013 klárt í jólapakkann
Elliðavatn hefur eins og kunnugt er bæst við flóru áfangastaða veiðikortshafa við borgarmörkin.

