Jól Jólahátíð í Kópavogi - myndir Sannkölluð jólahátíð í Kópavogi var haldin í gær á Hálsatorgi í Kópavogi. Kópavogsbúum og öðrum gestum var meðal annars boðið að taka þátt í laufabrauðsbakstri, hlusta á jólasöngva, fræðast um jólaköttinn og tendra á jólaljósunum á vinarbæjarjólatré Kópavogsbúa. Eins og myndirnar sýna myndaðist sannkölluð fjölskyldustemning. Jól 1.11.2011 00:01 Arnar Grant: Bakar piparkökur og hlustar á jólalög „Þar sem dóttir mín er tveggja og hálfs árs einkennist undirbúningur jólanna auðvitað mikið af því að kynna hana fyrir jólahátíðinni og öllu því sem henni fylgir," segir Arnar Grant líkamsræktarfrömuður. „Við erum dugleg að segja henni frá jólasveinunum, sýna henni öll jólaljósin og skreytingarnar, baka og skreyta piparkökur og hlusta á jólalög." Jól 1.11.2011 00:01 Bjarni Haukur: Góður matur og familían „Ég undirbý jólin með því að minnka vinnu," svarar Bjarni Haukur Þórsson leikari afslappaður aðspurður út í undirbúning fyrir hátíðarnar. Hvað kemur þér í jólagírinn? „Helga Möller á jólin skuldlaust og Pálmi Gunnars kemur sterkur inn á kantinum," svarar hann og bætir við: „Og Skröggurinn hans Ladda. Charles Dickens og Laddi. Það eru jól. „Að kaupa jólatréð með syninum er auðvitað líka málið." Eftirminnileg jól? „Fyrstu jólin með Hauki Bjarnasyni syni mínum," svarar Bjarni Haukur án umhugsunar. „Að upplifa fyrstu jólin með barninu sínu - það er ekkert sem kemst nálægt því. Guð er með þetta!" „Góður matur og familían. Og SMS frá Sigga Hlö: „Gleðileg jól pungur". Svo fer maður bara kannski í bað," segir Bjarni Haukur spurður út í aðfangadagskvöldið í ár. „Þessi kæruleysislega ringulreið milli 15-17.55. Umferð, pakkar, matarlykt, bað, símtöl, teiknimyndir. Gotta love it!" segir Bjarni Haukur áður en kvatt er með jólakveðju.-elly@365.is Jól 1.11.2011 00:01 Aðventuhugleiðing - Séra Þór Hauksson Jól 1.11.2011 00:01 Gullgrafari í fyrra lífi Herdís Egilsdóttir er mikil handverkskona og hefur næmt auga fyrir því að búa til fallega hluti úr því sem öðrum gæti þótt gagnslaust. Jólin 1.11.2011 00:00 Snjókornið Hér er stutt dæmisaga af vef Karls Sigurbjörnssonar biskups á kirkjan.is. Hún birtist fyrst í bókinni Orð í gleði sem Karl tók saman. Jólin 22.12.2010 13:02 Piparkökuhús Það eru ekki jól hjá mörgu barninu - og fullorðna fólkinu - án þess að piparkökuhús sé bakað. Jól 1.1.2010 00:01 Samviskulegar smákökur Hollusta, hamingja, leikur og sköpun eru aðalsmerki jólabakarans Auðar Ingibjargar Konráðsdóttur, sem galdrar fram guðdómlegar og hollustu-jólasmákökur sem fjölskyldan öll getur útbúið saman í ljúfum jólaanda. Jól 1.1.2010 00:01 Prins Pólokökur Þessa uppskrift sendi Þórunn Friðriksdóttir Vísi. Jól 1.1.2010 00:01 Kjörin jólagjöf gegn valkvíða - myndir „Við erum alltaf í góðu skapi og leggjum okkur fram við það að taka vel á móti viðskiptavinum okkar og er umhugað um að þeim líði sem allra best meðan á heimsókn þeirra í Kringlunni stendur." Jólin 1.1.2010 00:01 Pétur Gautur: Ekkert stress á aðfangadagskvöld Á laugardaginn var listamaðurinn Pétur Gautur með opið hús á vinnustofunni sinni í tíunda sinn. Að því tilefni höfðum við samband við hann og spurðum meðal annars út í jólahaldið hjá honum. Jólin 1.1.2010 00:01 Sörur Uppskrift. Fullkomlega ómótstæðilegar smákökur. Jól 1.1.2010 00:01 Smábitakökur Eysteins Þessar súkkulaðibitakökur fann Eysteinn Eyjólfsson upp þegar hann var ellefu ára gamall fyrir tveimur árum. Jól 1.1.2010 00:01 Selma Björns: Ég hef notið blessunar að eiga mömmu sem er jólabarn „Ég er rosalegt jólabarn og kemst alltaf í gírinn um leið og skammdegið byrjar að vera yfirþyrmandi og maður sér fyrstu seríurnar," svarar Selma Björnsdóttir aðsurð út í jólahátíðina og hennar upplifun á þessum árstíma. „Ég er algjörlega með því að að jólastemning byrji í lok október byrjun desember. Við Íslendingar þurfum jólaljós og fegurð í skammdeginu. Allt sem gleður augað og hjartað." Jólin 1.1.2010 00:01 Rétt meðhöndlun á jólatré - myndir Mikil meirihluti heimila landsins eru með „lifandi” jólatré og vilja að þau haldist falleg öll jólin og felli sem minnst barr. Hann Bjarni í „jólatrésskógi” Blómvals ráðleggur okkur að bleyta jólatréð vel áður en það er tekið inn,m ef þess er kostur, því það gefur meiri barrheldni. Jólin 1.1.2010 00:01 Ostastangir á jólum Þessar kökur eru í miklu uppáhaldi á heimili Dóru Gylfadóttur. Þar eru þær kallaðar "Hollu kökurnar", enda sykurlausar, og því skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnum smákökum. Jólin 1.1.2010 00:01 Sönn jól eru góðar tilfinningar „Eftirminnilegustu jólin eru frá árinu 1999 þegar við hjónin bjuggum ásamt tveimur elstu sonum okkar í Flórída og héldum jólin hátíðleg í 25 stiga hita og jólaföt drengjanna voru stuttbuxur og stuttermabolir," svarar Rósa Guðbjartsdóttir sem gefur út fyrir þessi jól matreiðslubókina „Eldað af lífi og sál" aðspurð um eftirminnileg jól. Jólin 1.1.2010 00:01 Pálmi Gunnars: Upp úr hádegi ilmar húsið „Í aðdragand jólanna geng ég í skóg að ná í jólamatinn. Ég ólst upp við þennan bragðgóða fallega hænsnfugl sem hátiðarmat og hefðin er afar sterk á mínu heimili varðandi þenna hluta hátíðarmatseðilsins," svarar Pálmi Gunnarsson tónlistarmaður aðspurður út í hans jólahefðir. „Það er einstök stemming sem fylgir rjúpnaveiðum. Árstíminn, birtan, snjórinn og einveran, allt helst það í hendur við góða tilfinningu sem fylgir því að ná í hátiðarmatinn." Jólin 1.1.2010 00:01 Serenukökur Óvenjulegar smákökur með kókosfyllingu. Jól 1.1.2010 00:01 Villibráð á veisluborð landsmanna Villibráðin er vinsæl á veisluborðum landsmanna yfir hátíðirnar. Hér gefst lesendum kostur á að kíkja í uppskriftabækur matreiðslumeistara Perlunnar þar sem hreindýr, rjúpur, gæsir og endur koma við sögu. Jól 1.1.2010 00:01 Rúsínukökur Þessa girnilegu uppskrift af rúsínukökum sendi Þórdís Borgþórsdóttir okkur Jólin 1.1.2010 00:01 Stollenbrauð Stollenbrauðið þýska er fallegt og bragðast vel með smjöri og heitu súkkulaði. Jólin 1.1.2010 00:01 Súkkulaðispesíur Guðnýjar Margrétar Þessar Súkkulaðispesíur sendi Guðný Margrét Eyjólfsdóttir, 9 ára. Jól 1.1.2010 00:01 Tökum okkur góðan tíma í að finna möndluna „Ég er nú þegar byrjuð að huga að jólunum. Búin að birgja mig upp af kertum til að hafa það kósý í skammdeginu svo það er nú þegar orðið nokkuð jólalegt á heimilinu," svarar María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona aðspurð út í undirbúning fyrir jólin. „Mér finnst líka svo gott að hafa kerti hjá mér í vinnuni yfir dimmasta tímann. Svo er ég búin að kaupa nokkrar Jólin 1.1.2010 00:01 Rjómalöguð sveppasúpa Sveppirnir eru steiktir uppúr smjöri og hveitinu er blandað saman við, þá er soðinu blandað saman við og hrært þar til kekkjalaust. Jólin 1.1.2010 00:01 Súkkulaðikransatoppar Hrærið marsípan, flórsykur og kakó saman,bætið eggjahvítu út í og blandið vel. Jólin 1.1.2010 00:01 Sætar súkkulaðispesíur Þessar Súkkulaðispesíur sendi Guðný Margrét Eyjólfsdóttir, 9 ára, okkur. Jólin 1.1.2010 00:01 Villibráð að hætti Jóa Fel: Krónhjörtur, sveppablanda og steiktar perur Maukið í morteli sveppi og einiber, kryddið með salt og pipar. Veltið kjötinu uppúr kryddinu og steikið við háan hita. Bakið í ofni við 180° í sirka 12 mínútur en það fer efti því hversu þykk steikin er. Hafið steikina létt steikta eða í sirka 55° í kjarnhita. Jólin 1.1.2010 00:01 Spennufíkill korter fyrir jól „Ég veit ekki hvort það er tilviljun eða dulin spennufíkn, en ég fer oft af stað í breytingar heima hjá mér korter fyrir jól, það er sennilega að þá hefur maður jólin til að reka á eftir manni sem einhverskonar „skiladag", segir útvarpsmaðurinn Gunnlaugur Helgason, betur þekktur sem Gulli Helga, spurður út í undirbúning fyrir hátíðarnar. „Ég skal alveg viðurkenna að það er voða gaman að fara í breytingar heima hjá sér en það þarf oft einhvern eða eitthvað til að ýta manni af stað og í þessu tilfelli var það dóttir mín sem vildi ekki hafa bleika litinn í herberginu sínu lengur," segir Gulli. Hvað kemur þér í hátíðarskap? „Frost, snjór, piparkökur, Ó helga nótt með Agli Ólafs, jólaljós og smá áhyggjur af jólagjöfunum. Annars er sú venja hér á heimilinu að pakka jóladiskum og jólamyndunum (DVD) með skrautinu þannig að þegar að kassarnir eru opnaðir þá er oft sest niður og horft á skemmtilegar myndir sem tengjast jónunum, ég mæli með: Love Actually, Chrismas Vacation, White Christmas, It´s a Wonderful Life svo einhverjar séu nefndar," segir hann. Eftirminnileg jól „Ætli að séu ekki jólin sem yngsti sonur okkar fæddist, Ágústa konan mín var sett 19. des en á aðfangadag var hann ekki enn kominn í heiminn. Hún mátti ekki hósta þá hélt ég að hún væri að fara fæða, en svo fór hún af stað um nóttina og hann fæddist á jóladag. Pabbi hans er líka smiður en móðir hans heiti Ágústa ekki María," segir Gulli hlæjandi. Stúfur birtist alltaf á aðfangadagskvöld „Við höfum fengið „óvænta" heimsókn undanfarin 20 ár á aðfangadag, þá hefur Stúfur komið með pakka heim til okkar, veit ekki af hverju, sennilega eru börnin mín svo stillt. Undanfarin jól hefur verið hamborgarahryggur á aðfangadag, en núna verður þríréttað því ég fékk gefins tvær rjúpur og ég mun borða þær báðar aleinn. Yngsti sonur minn vill nautalund og restin hamborgarahrygg þannig að það verður fjör í eldhúsinu þann daginn," segir Gulli að lokum. - elly@365.is Jólin 1.1.2010 00:01 Piparkökur með brjóstsykri Smjör mulið út í þurrefni og sírópi og kaffi bætt við. Jólin 1.1.2010 00:01 « ‹ 23 24 25 26 27 28 29 30 31 … 32 ›
Jólahátíð í Kópavogi - myndir Sannkölluð jólahátíð í Kópavogi var haldin í gær á Hálsatorgi í Kópavogi. Kópavogsbúum og öðrum gestum var meðal annars boðið að taka þátt í laufabrauðsbakstri, hlusta á jólasöngva, fræðast um jólaköttinn og tendra á jólaljósunum á vinarbæjarjólatré Kópavogsbúa. Eins og myndirnar sýna myndaðist sannkölluð fjölskyldustemning. Jól 1.11.2011 00:01
Arnar Grant: Bakar piparkökur og hlustar á jólalög „Þar sem dóttir mín er tveggja og hálfs árs einkennist undirbúningur jólanna auðvitað mikið af því að kynna hana fyrir jólahátíðinni og öllu því sem henni fylgir," segir Arnar Grant líkamsræktarfrömuður. „Við erum dugleg að segja henni frá jólasveinunum, sýna henni öll jólaljósin og skreytingarnar, baka og skreyta piparkökur og hlusta á jólalög." Jól 1.11.2011 00:01
Bjarni Haukur: Góður matur og familían „Ég undirbý jólin með því að minnka vinnu," svarar Bjarni Haukur Þórsson leikari afslappaður aðspurður út í undirbúning fyrir hátíðarnar. Hvað kemur þér í jólagírinn? „Helga Möller á jólin skuldlaust og Pálmi Gunnars kemur sterkur inn á kantinum," svarar hann og bætir við: „Og Skröggurinn hans Ladda. Charles Dickens og Laddi. Það eru jól. „Að kaupa jólatréð með syninum er auðvitað líka málið." Eftirminnileg jól? „Fyrstu jólin með Hauki Bjarnasyni syni mínum," svarar Bjarni Haukur án umhugsunar. „Að upplifa fyrstu jólin með barninu sínu - það er ekkert sem kemst nálægt því. Guð er með þetta!" „Góður matur og familían. Og SMS frá Sigga Hlö: „Gleðileg jól pungur". Svo fer maður bara kannski í bað," segir Bjarni Haukur spurður út í aðfangadagskvöldið í ár. „Þessi kæruleysislega ringulreið milli 15-17.55. Umferð, pakkar, matarlykt, bað, símtöl, teiknimyndir. Gotta love it!" segir Bjarni Haukur áður en kvatt er með jólakveðju.-elly@365.is Jól 1.11.2011 00:01
Gullgrafari í fyrra lífi Herdís Egilsdóttir er mikil handverkskona og hefur næmt auga fyrir því að búa til fallega hluti úr því sem öðrum gæti þótt gagnslaust. Jólin 1.11.2011 00:00
Snjókornið Hér er stutt dæmisaga af vef Karls Sigurbjörnssonar biskups á kirkjan.is. Hún birtist fyrst í bókinni Orð í gleði sem Karl tók saman. Jólin 22.12.2010 13:02
Piparkökuhús Það eru ekki jól hjá mörgu barninu - og fullorðna fólkinu - án þess að piparkökuhús sé bakað. Jól 1.1.2010 00:01
Samviskulegar smákökur Hollusta, hamingja, leikur og sköpun eru aðalsmerki jólabakarans Auðar Ingibjargar Konráðsdóttur, sem galdrar fram guðdómlegar og hollustu-jólasmákökur sem fjölskyldan öll getur útbúið saman í ljúfum jólaanda. Jól 1.1.2010 00:01
Kjörin jólagjöf gegn valkvíða - myndir „Við erum alltaf í góðu skapi og leggjum okkur fram við það að taka vel á móti viðskiptavinum okkar og er umhugað um að þeim líði sem allra best meðan á heimsókn þeirra í Kringlunni stendur." Jólin 1.1.2010 00:01
Pétur Gautur: Ekkert stress á aðfangadagskvöld Á laugardaginn var listamaðurinn Pétur Gautur með opið hús á vinnustofunni sinni í tíunda sinn. Að því tilefni höfðum við samband við hann og spurðum meðal annars út í jólahaldið hjá honum. Jólin 1.1.2010 00:01
Smábitakökur Eysteins Þessar súkkulaðibitakökur fann Eysteinn Eyjólfsson upp þegar hann var ellefu ára gamall fyrir tveimur árum. Jól 1.1.2010 00:01
Selma Björns: Ég hef notið blessunar að eiga mömmu sem er jólabarn „Ég er rosalegt jólabarn og kemst alltaf í gírinn um leið og skammdegið byrjar að vera yfirþyrmandi og maður sér fyrstu seríurnar," svarar Selma Björnsdóttir aðsurð út í jólahátíðina og hennar upplifun á þessum árstíma. „Ég er algjörlega með því að að jólastemning byrji í lok október byrjun desember. Við Íslendingar þurfum jólaljós og fegurð í skammdeginu. Allt sem gleður augað og hjartað." Jólin 1.1.2010 00:01
Rétt meðhöndlun á jólatré - myndir Mikil meirihluti heimila landsins eru með „lifandi” jólatré og vilja að þau haldist falleg öll jólin og felli sem minnst barr. Hann Bjarni í „jólatrésskógi” Blómvals ráðleggur okkur að bleyta jólatréð vel áður en það er tekið inn,m ef þess er kostur, því það gefur meiri barrheldni. Jólin 1.1.2010 00:01
Ostastangir á jólum Þessar kökur eru í miklu uppáhaldi á heimili Dóru Gylfadóttur. Þar eru þær kallaðar "Hollu kökurnar", enda sykurlausar, og því skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnum smákökum. Jólin 1.1.2010 00:01
Sönn jól eru góðar tilfinningar „Eftirminnilegustu jólin eru frá árinu 1999 þegar við hjónin bjuggum ásamt tveimur elstu sonum okkar í Flórída og héldum jólin hátíðleg í 25 stiga hita og jólaföt drengjanna voru stuttbuxur og stuttermabolir," svarar Rósa Guðbjartsdóttir sem gefur út fyrir þessi jól matreiðslubókina „Eldað af lífi og sál" aðspurð um eftirminnileg jól. Jólin 1.1.2010 00:01
Pálmi Gunnars: Upp úr hádegi ilmar húsið „Í aðdragand jólanna geng ég í skóg að ná í jólamatinn. Ég ólst upp við þennan bragðgóða fallega hænsnfugl sem hátiðarmat og hefðin er afar sterk á mínu heimili varðandi þenna hluta hátíðarmatseðilsins," svarar Pálmi Gunnarsson tónlistarmaður aðspurður út í hans jólahefðir. „Það er einstök stemming sem fylgir rjúpnaveiðum. Árstíminn, birtan, snjórinn og einveran, allt helst það í hendur við góða tilfinningu sem fylgir því að ná í hátiðarmatinn." Jólin 1.1.2010 00:01
Villibráð á veisluborð landsmanna Villibráðin er vinsæl á veisluborðum landsmanna yfir hátíðirnar. Hér gefst lesendum kostur á að kíkja í uppskriftabækur matreiðslumeistara Perlunnar þar sem hreindýr, rjúpur, gæsir og endur koma við sögu. Jól 1.1.2010 00:01
Rúsínukökur Þessa girnilegu uppskrift af rúsínukökum sendi Þórdís Borgþórsdóttir okkur Jólin 1.1.2010 00:01
Stollenbrauð Stollenbrauðið þýska er fallegt og bragðast vel með smjöri og heitu súkkulaði. Jólin 1.1.2010 00:01
Súkkulaðispesíur Guðnýjar Margrétar Þessar Súkkulaðispesíur sendi Guðný Margrét Eyjólfsdóttir, 9 ára. Jól 1.1.2010 00:01
Tökum okkur góðan tíma í að finna möndluna „Ég er nú þegar byrjuð að huga að jólunum. Búin að birgja mig upp af kertum til að hafa það kósý í skammdeginu svo það er nú þegar orðið nokkuð jólalegt á heimilinu," svarar María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona aðspurð út í undirbúning fyrir jólin. „Mér finnst líka svo gott að hafa kerti hjá mér í vinnuni yfir dimmasta tímann. Svo er ég búin að kaupa nokkrar Jólin 1.1.2010 00:01
Rjómalöguð sveppasúpa Sveppirnir eru steiktir uppúr smjöri og hveitinu er blandað saman við, þá er soðinu blandað saman við og hrært þar til kekkjalaust. Jólin 1.1.2010 00:01
Súkkulaðikransatoppar Hrærið marsípan, flórsykur og kakó saman,bætið eggjahvítu út í og blandið vel. Jólin 1.1.2010 00:01
Sætar súkkulaðispesíur Þessar Súkkulaðispesíur sendi Guðný Margrét Eyjólfsdóttir, 9 ára, okkur. Jólin 1.1.2010 00:01
Villibráð að hætti Jóa Fel: Krónhjörtur, sveppablanda og steiktar perur Maukið í morteli sveppi og einiber, kryddið með salt og pipar. Veltið kjötinu uppúr kryddinu og steikið við háan hita. Bakið í ofni við 180° í sirka 12 mínútur en það fer efti því hversu þykk steikin er. Hafið steikina létt steikta eða í sirka 55° í kjarnhita. Jólin 1.1.2010 00:01
Spennufíkill korter fyrir jól „Ég veit ekki hvort það er tilviljun eða dulin spennufíkn, en ég fer oft af stað í breytingar heima hjá mér korter fyrir jól, það er sennilega að þá hefur maður jólin til að reka á eftir manni sem einhverskonar „skiladag", segir útvarpsmaðurinn Gunnlaugur Helgason, betur þekktur sem Gulli Helga, spurður út í undirbúning fyrir hátíðarnar. „Ég skal alveg viðurkenna að það er voða gaman að fara í breytingar heima hjá sér en það þarf oft einhvern eða eitthvað til að ýta manni af stað og í þessu tilfelli var það dóttir mín sem vildi ekki hafa bleika litinn í herberginu sínu lengur," segir Gulli. Hvað kemur þér í hátíðarskap? „Frost, snjór, piparkökur, Ó helga nótt með Agli Ólafs, jólaljós og smá áhyggjur af jólagjöfunum. Annars er sú venja hér á heimilinu að pakka jóladiskum og jólamyndunum (DVD) með skrautinu þannig að þegar að kassarnir eru opnaðir þá er oft sest niður og horft á skemmtilegar myndir sem tengjast jónunum, ég mæli með: Love Actually, Chrismas Vacation, White Christmas, It´s a Wonderful Life svo einhverjar séu nefndar," segir hann. Eftirminnileg jól „Ætli að séu ekki jólin sem yngsti sonur okkar fæddist, Ágústa konan mín var sett 19. des en á aðfangadag var hann ekki enn kominn í heiminn. Hún mátti ekki hósta þá hélt ég að hún væri að fara fæða, en svo fór hún af stað um nóttina og hann fæddist á jóladag. Pabbi hans er líka smiður en móðir hans heiti Ágústa ekki María," segir Gulli hlæjandi. Stúfur birtist alltaf á aðfangadagskvöld „Við höfum fengið „óvænta" heimsókn undanfarin 20 ár á aðfangadag, þá hefur Stúfur komið með pakka heim til okkar, veit ekki af hverju, sennilega eru börnin mín svo stillt. Undanfarin jól hefur verið hamborgarahryggur á aðfangadag, en núna verður þríréttað því ég fékk gefins tvær rjúpur og ég mun borða þær báðar aleinn. Yngsti sonur minn vill nautalund og restin hamborgarahrygg þannig að það verður fjör í eldhúsinu þann daginn," segir Gulli að lokum. - elly@365.is Jólin 1.1.2010 00:01
Piparkökur með brjóstsykri Smjör mulið út í þurrefni og sírópi og kaffi bætt við. Jólin 1.1.2010 00:01