Bílar

Skotheldur Alfa Romeo frá ítölskum mafíuforingja seldur á uppboði
Bíllinn var í eigu Francesco Muto frá Cetraro á Ítalíu, Muto var leiðtogi Ndrina Muto flokknum. Muto var handtekinn árið 2016, fyrir hefðbundna mafíu-glæpi.

Lögreglan sektar vegna nagladekkja
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun fara að beita sektum vegna ökutækja á nagladekkjum frá og með miðvikudegi í þessari viku, 20. maí.

Myndband: Keppnisdróni sem ber manneskju
Dróninn er smíðaður úr ökumannsklefa úr Formúlu 1 bíl, hann notar 24 rafhlöður til að fljúga og hefur verið í smíðum í fjögur ár. Nú flýgur hann með manneskju innanborðs.

Toyota reiknar með 80% samdrætti
Toyota reiknar með að umtalsverður samdráttur verði í sölu á nýjum bílum og gerir ráð fyrir 80% samdrætti í hagnaði.

Umferð á höfuðborgarsvæðinu að aukast
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu jókst í síðustu viku miðað við vikuna á undan. Hún er þó nærri 10% minni en í sömu viku í fyrra.

Hundar hafa jákvæð áhrif á aksturslag
Að aka með hund í bílnum dregur úr streitu og hvetur til öruggari aksturs samkvæmt rannsókn sem unnin var af spænska bílaframleiðandanum SEAT í Bretlandi.

Tesla hleðslustöðvar á völdum stöðvum N1 umhverfis landið
N1 og Tesla hafa undirritað samstarfssamning um uppsetningu á Tesla hraðhleðslustöðvum á völdum N1 stöðvum umhverfis Ísland, sem gerir Tesla eigendum kleift að hlaða sína bíla þegar ekið er um þjóðveg 1. Gert er ráð fyrir því að fyrsta stöðin verði komin í rekstur snemma sumars 2020.

Ford deilir gögnum sjálfkeyrandi bíla
Bílaframleiðandinn Ford hefur deilt gögnum úr prófunum sjálfkeyrandi bíla framleiðandans. Markmiðið er að stuðla að og auka rannsóknir og þróun á sviði sjálfkeyrandi bíla.

35% samdráttur í umferð á Hringvegi í apríl
Umferð um Hringveginn dróst saman um næstum 35% í apríl sem er met. Samdráttur á árinu hefur verið um 18% sem einnig er met. Á Mýrdalssandi hefur samdrátturinn numið tæpum 80%.

66% samdráttur í nýskráningu fólksbifreiða í apríl
Í apríl voru nýskráðir 449 fólksbílar í ár en 1305 í apríl 2019. Það nemur samdrætti upp á 66%. Fyrstu fjóra mánuði ársins voru nýskráðir 3268 nýir fólksbílar. Það nemur 27% samdrætti á nýskráningum fólksbíla miðað við fyrstu fjóra mánuði ársins 2019.

Frá hugmynd til hleðslu
Rafbox ehf. er fyrirtæki sem stofnað var fyrir tveimur árum og sérhæfir sig í hleðslulausnum fyrir allar gerðir rafbíla.

Toyota og Lexus hafa selt 15 milljónir tvinnbíla
Árið 1997 kynnti Toyota Prius fyrst til sögunnar. Það var fyrsti fjöldaframleiddi tvinnbíllinn. Nú hefur Toyota selt 15 milljónir tvinnbíla.

Kia framlengir ábyrgðartíma
Kia hefur framlengt ábyrgðartíma allra ökutækja með upphaflegri 7 ára ábyrgð frá Kia sem hefði runnið út milli 1. febrúar til og með 31. maí 2020. Þetta er gert vegna ástands sem skapast hefur vegna COVID 19.

Myndum af BMW iX3 lekið á netið
Myndir af rafjepplingnum BMW iX3 birtust á Instagram í fyrradag. Myndirnar eiga að vera frá framleiðandanum. En það verður að koma í ljós síðar hvort það er satt.

Kínverski rafbíllinn Xpeng P7 með meiri drægni en Tesla Model 3
Kínverski rafbílaframleiðandinn Xpeng tilkynnti í gær um nýjan rafsportbíl sem gengur undir nafninu P7. Hann verður að sögn Xpeng með meiri drægni en Tesla Model 3.

Eldsneytissala dregst saman um 68%
Sala á eldsneyti dróst saman um 42% á milli marsmánaða 2019 og 2020. Meðal dagleg sala sem af er apríl er 68% lægri en meðal dagleg sala í apríl í fyrra.

Toyota kynnir Yaris jeppling
Toyota ætlaði upphaflega að kynna Yaris jepplinginn á bílasýningunni í Genf sem var aflýst vegna COVID-19. Bíllinn er settur á markað til höfuðs Nissan Juke og Ford Puma sem dæmi. Hann á að vera fáanlegur seinna á þessu ári í Japan en á því næsta í Evrópu.

Myndband: Ferrari 812 lagaður eftir mikið tjón
Myndband það sem fylgir fréttinni er eitt fárra þar sem einstaklingur setur tíma, peninga og orku í að laga bíl sem virðist handónýtur á að líta. Bíllinn er ekki af verri gerðinni, Ferrari 812.

EQS verður flaggskip rafbílaflota Mercedes-Benz
Mercedes-Benz EQS verður flaggskip rafbílaflota þýska bílaframleiðandans þegar hann kemur á markað árið 2022. Bíllinn var frumsýndur í hugmyndaútgáfu á bílasýningunni í Frankfurt í fyrra undir nafninu Vision EQS.

Bílasala hefur dregist saman um rúmlega helming í Evrópu
Bílasala í Evrópu hefur dregist saman um um rúmlega helming á milli mars í fyrra og mars í ár. Í mars 2019 seldust 1,2 milljón nýrra bíla innan Evrópusambandsins en í ár voru það 570 þúsund.

Bentley skannar Blower bílinn til að smíða 12 eintök í viðbót
Bílaframleiðandinn Bentley vinnur nú að því að smíða 12 eintök í viðbót af hinum goðsagnakennda Blower Bentley. Til þess þarf að skanna alla 630 íhlutina og smíða sambærileg eintök.

Góð ráð um viðhald bíla í samkomubanni
Umferðatölur frá Vegagerðinni sýna að samkomubann sem nú er í gildi vegna COVID-19 hefur dregið verulega úr akstri almennings. Það er því gott að huga að því hvað er skynsamlegt að gera til að viðhalda bílnum sínum sem best, þegar honum er ekið minna en ella.

Lögreglan sektar ekki strax fyrir nagladekkjanotkun
Frá og með gærdeginum 15. apríl er notkun negldra hjólbarða óheimil á Íslandi. Þessi regla er þó háð tíðarfari og því undir löggæsluyfirvöldum komið hvenær nákvæmlega hafist er handa við að sekta fyrir notkun slíkra hjólbarða.

Renault hættir að selja fólksbíla með sprengihreyfli í Kína
Renault ætlar að draga sig út úr eigendahópi Dongfeng Renault Automotive Company, sem franski framleiðandinn á til helminga við kínverska framleiðandann Dongfeng Motor Group Co. Félögin stóðu saman af sölu Renault bíla í Kína.

Hummer EV verður sennilega ekki fyrsti raf-pallbíllinn
Forseti General Motors hefur gefið út yfirlýsingu sem segir að Hummer gæti orðið fyrsti raf-pallbíllinn á markað.

Heimasíður sem halda bílaáhugafólki uppteknu í samkomubanni
Bílaáhugafólk þarf sína afþreyingu í samkomubanni eins og aðrir. Hér eru nokkrar heimasíður þar sem verja má klukkustundum við fjölbreytt en bílatengd málefni.

McLaren smíðar bíl sem gengur fyrir manngerðu eldsneyti
Breski bílaframleiðandinn McLaren ætlar að halda áfram að þróa tilraunabíl sem á að ganga fyrir eldsneyti útbúnu á tailraunastofu. Með því vill McLaren lækka umhverfsáhrif aksturs niður fyrir það sem gengur og gerist við akstur hreinna rafbíla.

Bílaleigur nýskráðu 57% minna af bílum í mars
Bílaleigur nýskráðu í mars síðastliðnum 211 fólks- og sendibíla en í mars á síðasta ári nýskráðu bílaleigur 486 fólks- og sendibíla. Samdrátturinn nemur því 57%.

Apple CarKey væntanlegur í haust
Við prófanir á iOS 14, hugbúnaði fyrir iPhone og iPad, snjalltæki framleidd af Apple kom í ljós að Apple hyggst bjóða upp á Apple CarKey, eða Apple bíllykil.

Aldrei meiri samdráttur í umferðinni
Umferð á höfuðborgarsvæðinu dróst saman um 21 prósent í mars samanborið við mars í fyrra. Þá var samdráttur mestur við Mýrdalssand eða 52,3 prósent.