Enski boltinn

Koulibaly heldur áfram að safna rauðum spjöldum
Kalidou Koulibaly, miðvörður Chelsea, nældi sér í tvö gul spjöld og þar með rautt er Chelsea steinlá gegn Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina. Leikmaðurinn er duglegur að safna spjöldum og má ætla að hann næli í fleiri rauð í treyju Chelsea á komandi misserum.

Rooney myndi ekki láta Ronaldo byrja í kvöld
Wayne Rooney telur að sinn gamli liðsfélagi Cristiano Ronaldo eigi best heima á varamannabekknum í kvöld þegar Manchester United tekur á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Klopp sýnir Ten Hag enga samúð
Hollendingurinn Erik ten Hag stendur nú í svipuðum sporum og Þjóðverjinn Jürgen Klopp var í fyrir sjö árum. Ten Hag er ætlað að koma stórveldi Manchester United aftur í hæstu hæðir en strax heyrast efasemdaraddir um að hann sé maðurinn til þess, eftir slæm úrslit í fyrstu tveimur umferðum ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Búast við betrumbættu tilboði United í Antony
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United er sagt ekki vera tilbúið að gefast upp á vonum sínum að fá brasilíska vængmanninn Antony frá Ajax í sínar raðir áður en félagsskiptaglugginn lokar í lok ágústmánaðar.

Englandsmeistararnir björguðu stigi gegn Newcastle
Englandsmeistarar Manchester City sóttu hið nýríka félag Newcastle heim í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur 3-3 í bráðfjörugum leik þar sem meistararnir lentu tveimur mörkum undir um miðjan síðari hálfleik.

Áfrýjar í nauðgunarmáli Ronaldo
Kathryn Mayorga hefur áfrýjað ákvörðun héraðsdómara í Bandaríkjunum sem vísaði í sumar frá lögsókn sem hún höfðaði gegn fótboltastjörnunni Cristiano Ronaldo vegna meintar nauðgunar árið 2009.

Baulað á stigalaust lið West Ham sem hefur ekki skorað mark
Brighton & Hove Albion vann 2-0 útisigur á West Ham United á Lundúnavellinum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. West Ham er á meðal liða sem hefur eytt mestu í leikmannakaup í sumar en það gengur hvorki né rekur í upphafi deildarinnar.

Liprir Leedsarar léku sér að Chelsea
Leeds og Chelsea eru enn taplaus eftir fyrstu tvær umferðir ensku úrvalsdeildarinnar og mætast í Leeds. Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Chelsea, var dæmdur í bann eftir leik liðsins gegn Tottenham um seinustu helgi, en fær þrátt fyrir það að vera á hliðarlínunni í dag.

Félög í ensku úrvalsdeildinni eytt meiru í einum glugga en nokkru sinni fyrr
Með kaupum föstudagsins bættu félög í ensku úrvalsdeildinni met yfir eyðslu í einum félagsskiptaglugga. Þá voru tólf dagar eftir af glugganum og líklegt að meira bætist við.

Arteta tileinkaði sigurinn vallarstjóra sem lést langt um aldur fram
Arsenal vann öruggan 3-0 sigur á Bournemouth er liðin áttust við á heimavelli síðarnefnda liðsins á suðurströnd Englands í ensku úrvalsdeildinni í gær. Mikel Arteta, stjóri Arsenal, tileinkaði sigurinn vallarstjóra félagsins, sem lést degi fyrir leik.

Enginn skorað jafn mikið fyrir eitt lið og Kane í sögu ensku úrvalsdeildarinnar
Harry Kane, framherji Tottenham og enska landsliðsins, varð í gær sá leikmaður sem hefur skorað flest mörk fyrir eitt og sama liðið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Klopp segir að Liverpool eigi að fá stigin verði stórleiknum frestað
Stuðningsmenn Manchester United hafa boðað til mótmæla fyrir utan heimavöll liðsins, Old Trafford, fyrir stórleik United og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni næstkomandi mánudag. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að sitt lið ætti að fá þrjú stig ef fresta þarf leiknum vegna mótmælanna.

Arsenal á toppinn eftir öruggan sigur
Arsenal vann afar sannfærandi 0-3 útisigur er liðið heimsótti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Sigurinn lyftir liðinu í það minnsta tímabundið á topp deildarinnar.

Zaha í stuði gegn lærisveinum Gerrards | Dramatík víða á Englandi
Fjórir leikir voru á dagskrá um miðjan dag í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Í þremur þeirra voru mörk á lokakaflanum sem skiptu sköpum.

Mikil vonbrigði hjá bæði Jóhanni Berg og Jóni Daða
Jóhann Berg Guðmundsson var í fyrsta sinn í leikmannahópi Burnley, en kom þó ekki við sögu, er liðið gerði vonbrigða jafntefli í ensku B-deildinni í fótbolta í dag. Jón Daði Böðvarsson og félagar í Bolton þurftu að þola tap.

Á förum frá Arsenal | Hvert mark kostaði 4,5 milljónir
Nicolas Pépé er sagður á leið til Nice í Frakklandi á láni frá Arsenal. Óhætt er að segja að Fílabeinsstrendingurinn hafi ekki slegið í gegn í Lundúnum.

250. mark Kane tryggði Tottenham sigur
Harry Kane skoraði sitt 250. mark fyrir Tottenham er hann tryggði liðinu 1-0 sigur á Wolverhampton Wanderers í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni á Tottenham-vellinum í Lundúnum. Tottenham mætti áræðið til leiks eftir hlé í kjölfar slaks fyrri hálfleiks.

„Hann býr heima hjá mér meðan kærastan er í burtu“
Portúgalinn João Cancelo, leikmaður Manchester City, segir þá Bernardo Silva vera tengda sterkum böndum. Silva er landi hans og liðsfélagi hjá Englandsmeisturunum.

Antony skrópaði á æfingu | United undirbýr 100 milljóna tilboð
Brasilíski kantmaðurinn Antony, sem leikur með Ajax í Hollandi, vill endurnýja kynnin við Erik ten Hag, þjálfara Manchester United. Hollenskir miðlar segja hann hafa skrópað á æfingu í gær eftir að félagið hafnaði 80 milljón evra boði frá United í kappann.

Ferguson varði Giggs í réttarsal | Sagður hafa haldið við átta konur
Sir Alex Ferguson, fyrrum þjálfari Manchester United, og lærifaðir Ryans Giggs, sagði frá góðu sambandi sem hann hefði átt við Giggs í gegnum tíðina fyrir rétti í Manchester-borg. Giggs er sakaður um líkamsárás gegn fyrrverandi kærustu sinni, Kate Greville.

Klopp ætlaði að hringja inn í útvarpsþátt til að láta fyrrum leikmann heyra það
Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool, segist hafa verið nálægt því að hringja inn í útvarpsþátt í vikunni eftir að hann heyrði ummæli Gabriel Agbonlahor um Manchester United. Agbonlahor fór þá ófögrum orðum um erkifjendur Liverpool í Manchester United.

Tuchel dæmdur í bann en Conte sleppur með sekt
Mikill hiti var í leik Chelsea og Tottenham í stórleik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildarinnar um seinustu helgi. Eftir að leikurinn var flautaður af lenti þjálfurum liðanna, þeim Thomas Tuchel og Antonio Conte, saman með þeim afleiðingum að báðir fengu að líta rauða spjaldið.

United og Real Madrid komast að samkomulagi um Casemiro
Manchester United hefur komist að samkomulagi við Real Madrid um kaupverðið á brasilíska miðjumanninum Casemiro. United mun greiða rétt tæplega 60 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Dagný í tíuna líkt og uppáhaldsleikmaður hennar þegar hún var yngri
Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir hefur spilað í treyju númer 32 síðan hún gekk í raðir enska úrvalsdeildarliðsins West Ham United. Hún hefur ákveðið að breyta til og mun spila í tíunni í vetur en hennar uppáhaldsleikmaður er hún var yngri lék alltaf í treyju númer 10.

Klopp: Auðveldari aðstæður fyrir mig en fyrir Ten Hag
Jürgen Klopp mætir Erik ten Hag í fyrsta sinn í enska boltanum á mánudaginn þegar Liverpool heimsækir Manchester United á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni.

Luis Suárez varar Darwin Nunez við: Þetta á eftir að verða verra
Luis Suárez var frábær í búningi Liverpool en það gekk einnig mikið á hjá honum þann tíma sem hann spilaði á Anfield. Nú var landi hans Darwin Nunez fljótur að koma sér í vandræði.

Ólíklegt að Man. Utd nái að klára Casemiro fyrir Liverpool leikinn
Það virðist fátt ætla að koma í veg fyrr það að brasilíski miðjumaðurinn Casemiro taki tilboði enska úrvalsdeildarliðsins Manchester United og að Real Madrid sé tilbúið að selja hann.

Leicester neitar að selja sína bestu menn þrátt fyrir gylliboð Chelsea og Newcastle
Tveir af betri leikmönnum enska úrvalsdeildarliðsins Leicester City hafa verið orðaðir við Chelsea annars vegar og Newcastle United hins vegar. Leicester neitar hins vegar að selja þó félögin séu tilbúin að greiða morðfjár fyrir leikmennina.

Mike Dean viðurkennir mistök í stórleik Chelsea og Tottenham
Myndbandsdómarinn Mike Dean viðurkennir að hann hafi gert stór mistök í aðdraganda seinna jöfnunarmarks Tottenham gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi þegar Cristian Romero reif Marc Cucurella niður á hárinu.

Real Madrid opnar á möguleikann að Casemiro fari til United
Spænska stórveldið Real Madrid virðist vera opið fyrir því að leyfa brasilíska miðjumanninum Casemiro að fara til Manchester United ef félagið er tilbúið að greiða yfir 60 milljónir punda fyrir leikmanninn.