
Enski boltinn

Jóhann Berg lék allan leikinn í fyrsta sigri Burnley | Palace með óvæntan sigur í Manchester
Fjöldi leikja fór fram í ensku úrvalsdeildinni í dag. Burnley vann óvæntan 3-1 sigur á Brentford og Crystal Palace vann enn óvæntari sigur á Etihad-vellinum í Manchester.

Chelsea keyrði yfir Newcastle í seinni hálfleik og heldur toppsætinu
Topplið Chelsea vann góðan 3-0 sigur er liðið heimsótti Newcastle í tíundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Öll mörkin voru skoruð á seinustu 25 mínútum leiksins.

Liverpool kastaði frá sér tveggja marka forskoti
Liverpool kastaði frá sér tveggja marka forskoti er liðið tók á móti Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur 2-2, en Liverpool komst tveimur mörkum yfir snemma leiks.

Forráðamenn United tilbúnir að láta Pogba fara frítt næsta sumar
Enska knattspyrnufélagið Manchester United mun ekki selja franska miðjumanninn Paul Pogba í janúar og er félagið tilbúið að leyfa honum að fara frítt þegar samningur hans rennur út eftir yfirstandandi tímabil.

Arsenal kláraði Leicester í fyrri hálfleik
Arsenal vann góðan 2-0 útisigur er liðið heimsótti Leicester í fyrsta leik tíundu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Bæði mörkin voru skoruð á fyrstu tuttugu mínútum leiksins.

Liverpool fær sinn gamla þjálfara í heimsókn
Brendan Rodgers mætir með lærisveina sína í Leicester á Anfield þegar liðið heimsækir Liverpool í átta liða úrslitum enska deildarbikarsins. Dregið var í morgun, en einnig eru tveir Lundúnaslagir á dagskrá.

Segir að önnur lið vonist eftir sigri United svo Solskjær haldi starfinu
Sparkspekingurinn og fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Paul Merson segir að stuðningsmenn annarra liða en Manchester United vonist eftir sigri Rauðu djöflanna gegn Tottenham á morgun svo Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær haldi starfi sínu lengur sem knattspyrnustjóri liðsins.

Meiddist á lokamínútu æfingarinnar
Króatíski landsliðsmaðurinn Mateo Kovacic hefur bæst á meiðslalistann hjá enska knattspyrnufélaginu Chelsea. Fyrir á listanum eru sóknarmennirnir Romelu Lukaku, Timo Werner og Christian Pulisic.

Brugðumst Solskjær á einum versta degi á okkar ferli
Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, segir að með niðurlægjandi 5-0 tapinu gegn Liverpool á sunnudag hafi leikmenn United brugðist knattspyrnustjóranum Ole Gunnari Solskjær og öllum sem að félaginu komi.

Rodgers ofar en Conte á óskalista United
Forráðamenn Manchester United hafa áhuga á Brendan Rodgers fari svo að Ole Gunnari Solskjær verði sagt upp sem knattspyrnustjóra liðsins.

Bar ábyrgð á andláti Emilianos Sala
David Henderson, sem skipulagði flugið sem fótboltamaðurinn Emiliano Sala lést í, hefur verið fundinn sekur um að hafa stofnað öryggi flugvélarinnar í hættu og bera þar með ábyrgð á slysinu.

Rooney sakar leikmenn United um leti
Wayne Rooney, markahæsti leikmaður í sögu Manchester United, sakar leikmenn liðsins um að leggja sig ekki nógu mikið fram.

Slakað verður á sóttvarnarreglum þegar 85 prósent leikmanna eru bólusettir
Slakað verður á þeim takmörkunum sem sett hafa verið á félög í ensku úrvalsdeildinni þegar 85 prósent leikmanna deildarinnar eru orðnir fullbólusettir.

Bróðir leikmanns Keflavíkur í byrjunarliði Liverpool í gær
Harvey Blair lék sinn fyrsta leik með aðalliði Liverpool í gærkvöldi þegar Liverpool liðið sló Preston út úr enska deildabikarnum og komst áfram í átta liða úrslit.

West Ham mun eiga næst stærsta völl úrvalsdeildarfélaganna
Enska knattspyrnufélagið West Ham United mun geta tekið á móti allt að 67.000 áhorfendum á heimavöll sinn, London Stadium, á næstu árum.

Meistararnir úr leik eftir vítaspyrnukeppni | Tottenham marði Burnley
Fimm leikir fóru fram í enska deildarbikarnum í fótbolta í kvöld og þar með er ljóst hvaða lið eru komin áfram í átta liða úrslit. Ríkjandi meistarar í Manchester City eru úr leik eftir tap í vítaspyrnukeppni gegn West Ham.

Liverpool tryggði sér sæti í átta liða úrslitum
Liverpool heimsótti B-deildarlið Preston North End í 16-liða úrslitum enska deildarbikarsins í kvöld. Rauði herinn mætti með miki breytt lið frá stórsigri sínum gegn Manchester United um liðna helgi, en það kom ekki að sök og liðið fer áfram eftir 2-0 sigur.

Segist ekki hafa hunsað Solskjær: „Stórar lygar til að búa til fyrirsagnir“
Paul Pogba, leikmaður Manchester United, segir ekkert til í því að hann hafi hunsað knattspyrnustjórann Ole Gunnar Solskjær eftir tapið fyrir Liverpool.

Ferguson mætti á æfingasvæði United til að passa upp á Solskjær
Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United, á enn hauk í horni í Sir Alex Ferguson. Skotinn gerði sér ferð á æfingu United í gær til að sýna Norðmanninum stuðning.

Markvörður Brentford frá næstu mánuðina | Gæti opnast pláss fyrir Patrik Sigurð
David Raya, markvörður enska úrvalsdeildarfélagsins Brentford, meiddist illa gegn Leicester City um liðna helgi og verður frá næstu fjóra til fimm mánuðina. Gæti það opnað tækifæri fyrir Patrik Sigurð Gunnarsson sem er í dag á láni hjá Viking í Noregi.

Chelsea og Sunderland áfram eftir vítaspyrnukeppni
Chelsea og Sunderland tryggðu sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum enska deildarbikarsins. Bæði lið fóru áfram eftir vítaspyrnukeppni.

Arsenal komið í átta liða úrslit deildarbikarsins
Tvö mörk í síðari hálfleik dugðu til að tryggja Arsenal áfram í enska deildarbikarnum. Lærisveinar Mikel Arteta unnu 2-0 sigur á Leeds United á Emirates-vellinum í Lundúnum í kvöld.

Æfði einn á Old Trafford eftir stóra skellinn á móti Liverpool
Það skilja fáir í þeirri meðferð sem Donny van de Beek hefur fengið hjá Ole Gunnari Solskjær á tíma Hollendingsins hjá Manchester United.

Fannst að United hefði getað fengið fimm rauð gegn Liverpool
Liverpool-mönnum fannst Anthony Taylor aumka sig yfir leikmönnum Manchester United í leik liðanna á Old Trafford í fyrradag. Hann hefði getað rekið fleiri leikmenn United en Paul Pogba út af.

Ástæðurnar fyrir lélegri pressu United-liðsins
Ole Gunnar Solskjær leggur litla áhersla á að æfa pressu á æfingum Manchester United. Þetta kemur eflaust engum sem horfir reglulega á liðið á óvart.

Zidane sagður ekki hafa áhuga á að taka við Manchester United
Zinedine Zidane verður ekki næsti knattspyrnustjóri Manchester United fari svo að United ákveði að láta Ole Gunnar Solskjær fara.

Mjög líklegt að Solskjær stýri United gegn Tottenham
Ole Gunnar Solskjær verður áfram knattspyrnustjóri Manchester United, allavega um sinn, og stýrir liðinu gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Leikmenn United hafa þó margir hverjir misst trúna á honum.

Sinnuleysi eiganda Man United ástæða slæms gengis félagsins undanfarin ár
Mark Ogden, skríbent á íþróttavef ESPN, telur sinnuleysi Glazer-fjölskyldunnar – eigenda enska knattspyrnuliðsins Manchester United – vera helsta ástæða slæms gengis hjá félaginu.

Fullyrðir að Man Utd hafi sett sig í samband við Conte
Ítalski blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio fullyrðir að Manchester United hafi sett sig í samband við Antonio Conte um að taka við þjálfun liðsins.

Salah með fleiri mörk á Old Trafford á árinu en allir leikmenn United nema einn
Árið 2021 hefur svo sannarlega verið ár egypska kóngsins á Old Trafford í Manchester.