Innlent
315 316 317 318 319 320 321 322 323 … 334 ›
Taldi niður sekúndurnar þar til konur myndu deyja Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás gegn tveimur konum og hótunarbrot, með því að hafa hótað þeim lífláti og talið niður sekúndur þar til að þær létust. Innlent 19.12.2023 13:18
Átta sækja um embætti forstjóra Veðurstofunnar Átta sóttu um embætti forstjóra Veðurstofu Íslands sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í síðasta mánuði. Innlent 19.12.2023 13:11
Gosmengun á höfuðborgarsvæðinu í nótt Einar Halldórsson teymisstjóri loftgæðateymis Umhverfissstofnunar segir að gosmengunar gæti orðið vart á höfuðborgarsvæðinu seint í nótt eða fyrramálið. Það kemur einnig fram í tilkynningu á síðu Veðurstofunnar. Innlent 19.12.2023 12:58
Fólk geti komið sér í þannig ógöngur að ekki sé hægt að bjarga því Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, biðlar til fólks að fylgja fyrirmælum stjórnvalda varðandi eldgosið. Fólk sem fari að gosinu í óleyfi geti komið sér í þá stöðu að ekki verði hægt að bjarga því. Innlent 19.12.2023 12:57
Þróunin svipuð og var við Fagradalsfjall Áfram dregur úr krafti eldgossins við Sundhnúksgíga en hraunflæði er um það bil fjórðungur af því sem það var í byrjun og er einungis þriðjungur sprungunnar virkur. Kvikustrókar eru lægri en þeir voru í byrjun og eru um það bil þrjátíu metrar þar sem þeir ná hæst. Innlent 19.12.2023 12:45
Þakklát að varúðarsjónarmið hafi verið höfð að leiðarljósi Katrín Jakobsdóttir foræstisráðherra segir ríkisstjórnina að sjálfsögðu hafa rætt eldgosið á Reykjanesskaga á reglubundnum fundi sínum í ráðherrabústaðnum í morgun. Hún sé þess þakklát að varúðarsjónarmið hafi verið höfð í hávegum og enginn hafi verið í Grindavík þegar eldgos hófst. Innlent 19.12.2023 12:38
Lúðvík skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Lúðvík Þorgeirsson í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða til næstu fimm ára, frá 1. mars 2024. Lúðvík hefur síðustu ár starfað sem rekstrarstjóri hjá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Hann tekur við stöðunni af Gylfa Ólafssyni. Innlent 19.12.2023 11:55
Í áfalli og ósofin: Fóru með verðmæti til Grindavíkur í gær Íbúi í Grindavík segir fréttir gærkvöldisins hafa verið mikið áfall þrátt fyrir að eldgosinu fylgi einnig léttir. Fjölskyldan hafi farið í gær með verðmæti aftur til Grindavíkur í kjölfar ummæla lögreglustjórans á Suðurnesjum um að hann teldi líklegt að Grindvíkingar gætu haldið jól heima. Þau séu nú í áfalli og ósofin. Innlent 19.12.2023 11:36
Norðurlandabúar gera ráð fyrir brennisteinsmengun Norska veðurfræðistofan gerir ráð fyrir að brennisteinsmengun úr gosinu sem hófst við Sýlingarfell í gær berist til suðvesturstrandar Noregs um fimmleytið á morgun. Innlent 19.12.2023 10:43
Samþykkja tólf ný götuheiti í Vatnsendahverfi Skipulagsráð Kópavogs hefur samþykkt tillögu umhverfissviðs bæjarins um tólf ný götuheiti í Vatnsendahverfi í Kópavogi og hefur málinu verið vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Innlent 19.12.2023 10:41
Von á erlendum fjölmiðlum og fjölmiðlamiðstöðin opnuð á ný Fjölmiðlamiðstöð fyrir erlenda fjölmiðla, vegna eldgossins á Reykjanesi sem hófst í gærkvöldi, verður opnuð í Hafnarfirði á ný í dag að sögn ferðamálastjóra. Eldgosið hófst um fjóra kílómetra norðaustan Grindavíkur, norðan Sundhnúks í Sundhnúkaröðinni klukkan 22:17 í gærkvöldi. Innlent 19.12.2023 10:27
Framleiðnin gæti vel hafa verið meiri en 200 rúmmetrar Í færslu Eldfjalla- og náttúruvárhóps Suðurlands á Facebook segir að verulega hafi dregið úr framleiðni gossins síðan það hófst fyrir hálfum sólarhring. Innlent 19.12.2023 10:18
Aukafréttatími í sjónvarpi í hádeginu Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar efnir til aukafréttatíma klukkan tólf á hádegi vegna eldgossins á Sundhnúkagígaröðinni norðan Grindavíkur. Innlent 19.12.2023 09:49
Alls ekkert túristagos Eldgosið norður af Grindavík er alls ekkert túristagos að sögn samskiptastjóra almannavarna. Eins og er stefnir hraunið ekki í átt að Grindavík en mögulega gæti það runnið yfir Grindavíkurveg. Innlent 19.12.2023 09:26
Mikil óánægja á skrifstofu Sameykis Óánægju hefur gætt meðal starfsmanna stéttarfélagsins Sameykis, meðal annars með framgöngu formannsins Þórarins Eyfjörð. Þetta herma heimildir fréttastofu en viðmælendum ber ekki saman um andrúmsloftið á skrifstofunni nú né í hvaða farveg mál hafa verið sett. Innlent 19.12.2023 09:24
Eldgosið raskar ekki flugumferð Allt flug í dag er samkvæmt áætlun sem gerð var vegna verkfallaflugumferðarstjóra. Þær raskanir sem verða eru því ekki vegna eldgossins. Þetta segir Birgir Olgeirsson hjá PLAY. Innlent 19.12.2023 08:41
Enginn reykskynjari í húsinu Enginn reykskynjari var í húsnæðinu í Skipholti sem kviknaði í í gær. Enginn var heima þegar eldurinn kviknaði og sá gangandi vegfarandi um að tilkynna um eldsvoðann. Innlent 19.12.2023 08:34
Háalvarlegt en léttir á sama tíma Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir það ákveðinn létti hvar gossprungan á Reykjanesskaga liggur, þrátt fyrir að það sé alvarlegt hve nálægt bænum hún er. Til skoðunar er að reisa leiðigarða á svæðinu svo hraun renni ekki til byggðar. Innlent 19.12.2023 08:27
Gosvaktin: Gosið mallar áfram inn í nóttina Eldgos hófst um fjóra kílómetra norðaustan Grindavíkur, norðan Sundhnúks í Sundhnúkaröðinni, klukkan 22:17 í gærkvöldi. Fréttastofa Vísis heldur áfram að vakta ástandið. Innlent 19.12.2023 05:30
Vefmyndavélar Vísis í beinni Eldgos er hafið á Reykjanesskaga. Vísindamenn segja gosið mun öflugara en fyrri gos á svæðinu. Innlent 19.12.2023 05:09
Skásta staðsetningin sem hægt var að fá Búast má við því að hratt muni draga úr hraunflæði eldgossins á Reykjanesskaga. Jarðeðlisfræðingur segir gosið á besta stað miðað við aðstæður. Hraun renni ekki í átt að Grindavík, og það þurfi að renna langt til að ná varnargörðum við Svartsengi. Innlent 19.12.2023 02:48
Vindátt heppileg en gasi gæti slegið niður í Þorlákshöfn Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir vindátt nokkuð stöðuga með tilliti til gasmengunar. Þorlákshöfn er næsta þéttbýli. Á morgun er spáð mjög hagstæðri norðvestanátt. Innlent 19.12.2023 02:31
Ákveðinn léttir að það sé farið að gjósa Hjálmar Hallgrímsson hjá lögreglunni á Suðurnesjum segir ágætt að byrjað sé að gjósa, það sé ákveðinn léttir. Svæðið sé vel vaktað og „allir á tánum.“ Innlent 19.12.2023 02:03
Túristar grétu og hoppuðu af einskærri gleði Páll Viggósson leiðsögumaður var með hóp af túristum í norðurljósaferð og sá þegar gosið hófst. Níu manna fjölskylda frá Bretlandi fékk sannarlega sitthvað fyrir peninginn. Innlent 19.12.2023 01:47
Gossprungan gæti stækkað áfram í átt til Grindavíkur Sérfræðingar Veðurstofunnar sjá á skjálftamælum sínum og GPS mælingum a sprunga hins nýja goss á Reykjanesskaga gæti stækkað til suðurs og í átt til Grindavíkur. Innlent 19.12.2023 01:32
Tvær flugvélar þurftu að hringsóla í skamman tíma Starfsemi á Keflavíkurflugvelli er eðlileg og er flogið bæði til og frá vellinum. Tvær flugvélar Icelandair sem voru á leið til Keflavíkurflugvallar þurftu að hringsóla í skamman tíma á meðan unnin var öskuspá vegna gossins sem hófst um fjóra kílómetra norðaustur af Grindavík klukkan 22:17. Innlent 19.12.2023 01:19
Hraunið renni tífalt hraðar en krafturinn gæti varað skammt Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, segir eldgosið sem hófst í kvöld miklu stærra enn fyrri gos. Um sé að ræða fjögurra kílómetra gossprungu. Innlent 19.12.2023 01:10
Hefðu komist nær ef ekki væri fyrir „pópó“ Fjórir strákar að nafni Jói, Halli, Stefán og Stefán, sem fréttastofa ræddi við á Suðurstrandarvegi við Grindavík í kvöld segjast alltaf halda af stað að eldgosi þegar það fer að gjósa á Reykjanesi. Innlent 19.12.2023 00:51
Enn ekki vitað um áhrif gossins á HS Veitur Forstjóri HS Veitna segir enn ekki vitað hvort flæði eldgossins komi til með að hafa áhrif á innviði þeirra. Innlent 19.12.2023 00:44
Eldgosið vekur heimsathygli Margir stærstu fjölmiðla heims eru að fjalla um eldgosið sem hófst á Reykjanesskaga í kvöld. Innlent 19.12.2023 00:44