
Handbolti

KA/Þór stelpur gerðu það sem ekkert annað Íslandsmeistaralið hefur gert
Fall var heldur betur fararheill fyrir leikmenn KA/Þórs í úrslitakeppni Olís deildar kvenna í handbolta.

Aldís svaraði kalli Rutar í lokasókninni
Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði markið sem gulltryggði KA/Þór fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins.

Átján ára ísköld á ögurstundu
Hin átján ára Rakel Sara Elvarsdóttir átti stóran þátt í fyrsta Íslandsmeistaratitli KA/Þórs og sýndi oft stáltaugar þegar mest var undir í úrslitakeppninni.

Einar Andri um undanúrslitin í Olís-deild karla: Þetta eru bara tveir leikir og það getur allt gerst
Einar Andri Einarsson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar, fór yfir leikina sem eru framundan í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta. Hann telur að fyrirkomulag mótsins í ár geti spilað stóra rullu.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - KA/Þór 23-25 | KA/Þór Íslandsmeistari í fyrsta sinn
KA/Þór varð í dag Íslandsmeistari í fyrsta sinn eftir sigur á Val, 23-25, í Origo-höllinni. Akureyringar unnu einvígið, 2-0.

Spennt að komast norður og fagna með fólkinu
Aldís Ásta Heimisdóttir hefur spilað frábærlega í úrslitaeinvíginu gegn Val. Hún skoraði 6 mörk í dag og var í skýjunum með Íslandsmeistaratitilinn.

KA/Þór voru langbestar á tímabilinu og áttu þetta skilið
Ágúst Þór Jóhannsson þjáfari Vals var súr með silfrið eftir að hafa tapað úrslitaeinvíginu gegn KA/Þór.

Engin bikarþynnka hjá Lemgo og Alexander á toppnum
Bjarki Már Elísson og lærisveinar í Lemgo urðu bikarmeistarar í vikunni en það stöðvaði ekki Lemgo lestina í dag sem vann sigur, 32-25, á Nordhorn-Lingen.

Lið KA/Þórs getur í dag orðið það tólfta í sögunni til að fagna Íslandsmeistaratitli
Deildarmeistarar KA/Þórs geta í dag orðið tólfta félagið frá upphafi til að fagna Íslandsmeistaratitli í handbolta kvenna, með sigri á Val.

Aron ekki með þegar Barcelona tryggði sig í úrslit
Aron Pálmarsson og félagar í Barcelona eru skrefi nær spænska bikarmeistaratitlinum í handbolta eftir öruggan sextán marka sigur í undanúrslitum keppninnar í kvöld.

Kristján Örn og félagar í góðum málum fyrir lokaumferðina
Íslenski landsliðsmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson og félagar hans í PAUC AIX unnu mikilvægan sigur í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Búið að ákveða leikdaga í undanúrslitum Olís-deildar karla: Allt í beinni á Stöð 2 Sport
Í kvöld varð ljóst hvaða lið kæmust í undanúrslit Olís-deildar karla í handbolta. Valur, Stjarnan, ÍBV og deildarmeistarar Hauka eru komin í undanúrslit og er búið að ákveða leikdaga. Allir fjórir leikirnir í undanúrslitum verða sýndir beint á Stöð 2 Sport.

Árni Bragi: Mjög erfitt að yfirgefa KA
Árni Bragi Eyjólfsson lék sinn síðasta leik fyrir KA. Árni Bragi mun leika með Aftureldingu á næsta tímabili og var hann klökur hugsandi til þess að þetta var hans síðasti leikur fyrir KA.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - KA 33-28 | Valsarar síðasta liðið inn í undanúrslit
Valur vann þægilegan fimm marka sigur á KA í síðasta leik 8-liða úrslita Olís-deildar karla í handbolta. Valur vann einvígið samtals með 9 marka mun og fór því örugglega inn í undanúrslitin.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Stjarnan 28-30 | Ótrúlegur endasprettur tryggði Stjörnunni sæti í undanúrslitum
Stjarnan er komin í undanúrslit Olís-deildar karla í handbolta eftir ótrúlegna endasprett á Selfossi. Garðbæingar unnu leikinn 30-28 og fara áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

Patrekur: Ég elska handbolta
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, var gríðarlega ánægður með sigur sinna manna á Selfossi í kvöld. Lokatölur 28-30 og Stjörnumenn eru því komnir í undanúrslit Íslandsmótsins í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Gummersbach heldur í toppliðin
Lærisveinar Guðjón Vals Sigurðssonar í Gummersbach halda í við topplið þýsku B-deildarinnar í handbolta þökk sé tíu marka sigri liðsins í kvöld.

Bjarki Már bikarmeistari eftir sigur á lærisveinum Guðmundar
Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson varð í dag þýskur bikarmeistari í handbolta er lið hans Lemgo lagði Melsungen að velli í úrslitum. Landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson er þjálfari Melsungen og þá leikur Arnar Freyr Arnarsson með liðinu.

Sjáðu brottvísanaflóðið í Krikanum í gær
Mikið gekk á í seinni leik FH og ÍBV í átta liða úrslitum Olís-deildar karla í gær. Hvorki fleiri né færri en sextán tveggja mínútna brottvísanir voru gefnar í leiknum sem endaði með 33-33 jafntefli en Eyjamenn fóru áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

Nítján ár síðan að KA-menn „risu upp frá dauðum“ á Hlíðarenda
Valsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson og KA-þjálfarinn Jónatan Þór Magnússon upplifðu það sjálfir á eigin skinni þegar KA snéri við vonlítilli stöðu á Val fyrir næstum því tveimur áratugum. Nú þurfa KA-menn að endurtaka leikinn á Hlíðarenda í kvöld ætli þeir ekki að fara í sumarfrí.

Gummi Gumm getur orðið bikarmeistari í fyrsta sinn sem þjálfari í dag
Guðmundur Guðmundsson getur orðið bikarmeistari í fyrsta sinn á þjálfaraferlinum þegar Melsungen mætir Lemgo í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í Hamborg í dag.

Sjáðu ótrúlega endurkomu Eyjamanna í Krikanum
Þrátt fyrir að vera þremur mörkum undir þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir tókst ÍBV að koma til baka gegn FH og tryggja sér sæti í undanúrslitum Olís-deildar karla.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Afturelding 36-22 | Gat vart verið þægilegra hjá deildarmeisturunum
Haukar voru í einkar góðum málum fyrir leik kvöldsins gegn Aftureldingu en deildarmeistararnir unnu fyrri leik liðanna með tíu marka mun. Leik kvöldsins unnu þeir með 14 marka mun og einvígið með 24 mörkum hvorki meira né minna.

Gunnar um tímabilið: Feginn að tímabilinu sé lokið
Gunnar Magnússon þjálfari Aftureldingar var stoltur af sínu liði eftir leik sem datt út í 8-liða úrslitum á móti deildarmeisturum Hauka.

Umfjöllun og viðtöl: FH - ÍBV 33-33 | Sigtryggur vann
ÍBV er komið í undanúrslit Olís-deildar karla eftir 33-33 jafntefli við FH í Kaplakrika í kvöld. Fyrri leikurinn í Eyjum endaði einnig með jafntefli, 31-31, en ÍBV fór áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

Sigursteinn: Fannst halla stórkostlega á okkur í dómgæslunni
Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var skiljanlega í sárum eftir að hans menn féllu úr leik fyrir ÍBV í átta liða úrslitum Olís-deildarinnar í kvöld. Liðin gerðu jafntefli, 33-33, en Eyjamenn fóru áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

Sigtryggur: Lagt upp með að ég endaði með boltann
Sigtryggur Daði Rúnarsson brosti út að eyrum eftir leikinn gegn FH enda ástæða til. Hann skoraði markið sem tryggði ÍBV jafntefli, 33-33, og sæti í undanúrslitum Olís-deildarinnar.

Íslendingaslagur í úrslitum
Melsungen, lið Guðmundar Guðmundssonar, tryggði sér sæti í úrslitum þýsku bikarkeppninnar í handbolta með sigri á Hannover-Burgdorf í kvöld, lokatölur 27-24.

Sigvaldi Björn og Haukur meistarar með Kielce
Łomża Vive Kielce varð pólskur meistari í handbolta í gærkvöld er liðið lagði SPR Stal Mielec með níu marka mun, lokatölur 33-24. Sigvaldi Björn Guðjónsson og Haukur Þrastarson leika með liðinu.

Bjarki markahæstur í stórkostlegri endurkomu gegn Kiel
Bjarki Már Elísson og félagar í Lemgo komu sér í dag í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í handbolta eftir ótrúlegan leik gegn Kiel.