
Íslenski boltinn

Spáin fyrir Pepsi Max kvenna 2020: Fallbaráttan (8. til 10. sæti)
Vísir mun á næstu dögum spá fyrir um lokastöðuna í Pepsi Max deild kvenna og við byrjum á því að fara yfir liðin sem við teljum munu vera að berjast fyrir lífi sínu í deildinni.

Pepsi Max kvenna eftir 4 daga: Meistarar meistaranna hafa ekki unnið Íslandsmeistaratitilinn í tíu ár
Selfoss varð meistari meistaranna á laugardaginn með 2-1 sigri á Íslandsmeisturum Vals en það hefur ekki boðað gott fyrir kvennaliðin að vinna þennan titil síðasta áratuginn.

5 dagar í Pepsi Max: Sautján ár síðan KR vann titilinn eftir að hafa verið spáð honum
Það hefur ekki boðað gott þegar KR-liðinu er spáð Íslandsmeistaratitlinum en það hefur nú gerst oftar en einu sinni að hin liðin hafa sett pressuna á Vesturbæjarliðið.

Nýr fyrirliði Stjörnunnar lék fyrsta meistaraflokksleikinn aðeins tólf ára
Alex Þór Hauksson, nýr fyrirliði Stjörnunnar, var aðeins tólf ára þegar hann lék sinn fyrsta leik í meistaraflokki. Hann ber Ólafi Jóhannessoni vel söguna og segir hann strax hafa sett svip sinn á Stjörnuna. Álftnesingurinn er afar metnaðarfullur og stefnir hátt.

Pepsi Max-spáin 2020: Ekki nóg að fá aukamann í brúna
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Stjörnunni 6. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar.

Sigurvin vonar að leikmenn ÍA hafi fengið áfallahjálp
Sigurvin Ólafsson, einn sparkspekingur Pepsi Max-markanna, vonast til þess að leikmenn ÍA hafi fengið áfallahjálp eftir síðustu leiktíð, slíkar voru sviptingarnar í gengi liðsins.

Rúnar: Fengum bikar, héldum hreinu og hlupum meira en í síðustu tveimur leikjum
Rúnar Kristinsson var sáttur með sína menn eftir 1-0 sigur á Víkingum í Meistarakeppni KSÍ.

Leik lokið: KR - Víkingur 1-0 | KR meistarar meistaranna
Íslandsmeistarar KR eru Meistarar Meistaranna eftir 1-0 sigur á Víkingum í kvöld.

Sjáðu misheppnað úthlaup Ingvars sem kostaði mark og hjólhestaspyrnu Óskars
KR bætti enn einum bikarnum í safnið í kvöld er liðið vann 1-0 sigur á Víkingi í Meistarakeppni KSÍ en leikið var í Vesturbænum í kvöld.

Arnar Gunnlaugs: Þeir kunna þetta og við þurfum að gjöra svo vel að læra það
Arnar Gunnlaugsson var sáttur með frammistöðu Víkinga þrátt fyrir 1-0 tap gegn KR í Meistarakeppni KSÍ.

Árborg áfram eftir vítaspyrnukeppni og Reynir skoraði níu mörk
GG, Stokkseyri, Árborg og Reynir Sandgerði eru komin áfram í 2. umferð Mjólkurbikarsins en einungis einn leikur er þá eftir í 1. umferðinni. Hann fer fram annað kvöld er ÍH og Berserkir mætast.

Framkvæmdastjóri Fótbolti.net um ákvörðun yfirvalda: „Af hverju erum við að þessu?“
Hafliði Breiðfjörð, framkvæmdastjóri Fótbolti.net, skilur lítið í því að sömu reglur gildi ekki yfir alla viðburði hér á landi.

Kristján Flóki enn frá en Óskar Örn og Sölvi Geir einfaldlega gamlir
KR mætir Víkingum í Meistarakeppni KSÍ í kvöld en nokkrar af stærstu stjörnum liðanna eru fjarverandi.

Víðir, Samherjar og ÍA örugglega áfram | Framlengja þurfti rimmu bjarnanna
Fyrsta umferðin í Mjólkurbikarnum hélt áfram að rúlla í dag en í dag fóru fyrstu leikirnir fram kvennamegin. Það voru bæði spennandi leikir og leikir sem voru langt frá því að vera á spennandi á dagskránni í dag.

Atli Viðar: Held að KR-ingar eigi dálítið í land
Atli Viðar Björnsson spáir því að Víkingur hafi betur gegn KR í Meistarakeppni KSÍ í kvöld en hann segir að Íslandsmeistararnir, KR, eigi smá í land og það sé vegna aldurs liðsins.

Mark og stoðsending frá Guðjóni Pétri í Kópavogsslagnum
Breiðablik byrjar Pepsi Max-deild karla með sigur á bakinu en þeir unnu HK í Kópavogsslag, 3-1, er liðin mættust á Kópavogsvelli í dag.

6 dagar í Pepsi Max: Atli Guðna á hælum Gumma Ben
Atli Guðnason náði ekki að nálgast methafann Guðmund Benediktsson á stoðsendingalistanum á síðasta tímabili.

Þróttur marði 4. deildarlið og KFG skoraði sjö
Þróttur lenti í töluverðum vandræðum með 4. deildarlið Álafoss í 1. umferð Mjólkurbikarsins en Lengjudeildarliðið vann einungis 1-0 sigur.

Ágæt yfirlýsing en fyrst og fremst bónusleikur
„Þetta var kannski ágæt yfirlýsing og það er frábært að geta skrifað söguna áfram með Selfossi, en þetta var að mínu mati fyrst og fremst bónusleikur,“ sagði Dagný Brynjarsdóttir eftir að Selfoss fagnaði 2-1 sigri á Val í meistarakeppni KSÍ í fótbolta.

Umfjöllun: Álftanes - Fram 0-4 | Vandræðalaust hjá Fram á Bessastaðavelli
Álftanes tók á móti Fram í 1. umferð Mjólkurbikars karla í dag. Það voru gestirnir úr Grafarholtinu sem höfðu betur og unnu sannfærandi 4-0 sigur.

Sjáðu langskotið sem tryggði Selfyssingum fyrsta titil sumarsins
Anna María Friðgeirsdóttir tryggði Selfossi fyrsta titil sumarsins í kvennaflokki er hún skoraði sigurmark liðsins í 2-1 sigri á Val í Meistarakeppni KSÍ sem fór fram á Origo-vellinum í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Selfoss 1-2 | Bikarmeistararnir sýndu að þeim er fyllsta alvara
Selfoss vann meistarakeppni KSÍ í fyrsta sinn í dag, í fyrsta sinn sem liðið tók þátt, þegar Selfyssingar unnu Valskonur 2-1 á Hlíðarenda eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik.

Vonast eftir því að fá bæði Castillion og Arnór Guðjohnsen
Fylkir hefur hug á að styrkja liðið fyrir komandi átök í Pepsi Max-deild karla en Geoffrey Castillion og Arnór Borg Guðjohnsen gætu leikið með liðinu í sumar.

Brynjar Ásgeir ekki með FH í sumar
Brynjar Ásgeir Guðmundsson, leikmaður FH, missir af öllu tímabilinu vegna meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu.

Afturelding skoraði tólf, auðvelt hjá Fram og dómarinn meiddist á Ásvöllum | Öll úrslit dagsins
Það var nóg um að vera í Mjólkurbikarnum í dag og mikið af mörkum litu dagsins ljós. Lítið var um óvænt úrslit í þeim leikjum sem búnir eru.

Vængir Júpiters og Hvíti Riddarinn áfram í bikarnum
Tveimur leikjum er lokið í 1.umferð Mjólkurbikars karla en leikið er út um allt land í bikarnum í dag.

Framherjar FH settu fimm í síðasta æfingaleiknum - Leiknir R. skellti Stjörnunni
Steven Lennon með þrennu og Morten Beck tvö í síðasta æfingaleik FH fyrir átökin í Pepsi-Max deildinni. Stjarnan tapaði fyrir Lengjudeildarliði Leiknis R.

Pepsi Max kvenna eftir 6 daga: Þrjár landsliðskonur snúa heim og hafa allar orðið meistarar
Pepsi Max deild kvenna fær 233 landsleikja innspýtingu í sumar þegar þrjá reynslumiklar landsliðskonur snúa aftur heim og engin þeirra fór í Íslandsmeistaralið Vals sem ætti að gera deildina enn meira spennandi.

Mættur til Vopnafjarðar ári eftir að hafa verið orðaður við ensk úrvalsdeildarlið
Var sagður næsti Dele Alli í grein The Mirror fyrir einu ári síðan en samdi í gær við Einherja á Vopnafirði.

Guðmundur skoraði fimm á Selfossi | ÍR og Njarðvík áfram
Guðmundur Tyrfingsson gerði sér lítið fyrir og skoraði fimm mörk er Selfoss komst áfram í 2. umferð Mjólkurbikarsins eftir 5-0 sigur á Snæfell á Selfossi í dag.