Íslenski boltinn

Ritar opið bréf til Vöndu: „Sem rýtingur í brjóst okkar stelpna“
Friðjón Árni Sigurvinsson, þjálfari fjórða flokks kvenna KF/Dalvíkur í fótbolta, ritar opið bréf til Vöndu Sigurgeirsdóttur, formanns KSÍ, og birtir á samfélagsmiðlum. Greinir Friðjón Árni þar frá raunum liðsins sem fær ekki, sökum reglugerðar KSÍ, að taka þátt í úrslitakeppni Íslandsmótsins. Reglugerðin sé sem rýtingur í brjóst stelpnanna sem sitji eftir niðurbrotnar.

„Þetta á ekki heima á fótboltavellinum eða neins staðar“
Knattspyrnudeild ÍBV harmar framkomu stuðningsmanna liðsins í leiknum gegn Val í Bestu deild kvenna í lok síðasta mánaðar. ÍBV fékk hundrað þúsund króna sekt vegna ókvæðisorða sem nokkrir stuðningsmenn liðsins létu rigna yfir annan aðstoðardómara leiksins. Eyjamenn ætla að endurskoða verkferla hjá sér og vonast til að svona lagað komi ekki fyrir aftur.

Klara biður aganefnd KSÍ að skoða afskipti Arnars
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ hefur óskað eftir því við aga- og úrskurðarnefnd sambandsins að hún taki til skoðunar afskipti Arnars Gunnlaugssonar, þjálfara Víkings Reykjavíkur, af leik liðsins við Val í Bestu deild karla á dögunum.

„Ég er búinn að vinna þetta allt“
Það var mikilvægt fyrir nýjasta íslenska atvinnumanninn Loga Tómasson að pakka golfsettinu er hann hélt út til Noregs hvar hann samdi við Strömsgodset í vikunni. Hann segir erfitt að yfirgefa Víking en er spenntur fyrir komandi tímum.

Besti þátturinn: Jón Jónsson reif fram skóna og keppti fyrir Þrótt Reykjavík
Þáttur þrjú af Besta þættinum er kominn út en að þessu sinni mættust lið Þróttar og FH í skemmtilegri viðureign. Í þættinum eru leikmenn og stuðningsmenn liða í Bestu deildinni paraðir saman í keppni á móti öðru pari annars liðs.

Valsmenn íhuga að kæra „fjarstýringu“ Arnars
Valur íhugar að kæra afskipti Arnars Gunnlaugssonar, þjálfara Víkings, af leik liðanna í Bestu deild karla á sunnudaginn.

Stuðningsmenn ÍBV sögðu dómara að hengja sig og skjóta sig
Knattspyrnusamband Íslands hefur sektað ÍBV um hundrað þúsund krónur vegna framkomu stuðningsmanna liðsins í garð dómara. Honum var meðal annars sagt að hengja sig og skjóta sig.

Frammistaða Frederiks veki upp spurningar: „Eins og honum liði ekki vel“
Frammistaða Frederik Schram, markvarðar Vals, í leik liðsins gegn toppliði Víkings Reykjavíkur á dögunum var til umræðu í uppgjörsþætti Bestu deildarinnar, Stúkunni í gær.

Heyrðu samskipti dómara þegar upp úr sauð á Framvellinum: „Þetta er rautt!“
Í Stúkunni, uppgjörsþætti Bestu deildar karla í gærkvöldi, var dregin fram ansi athyglisverð upptaka af samskiptum dómara í leik Fram og ÍBV í 5.umferð deildarinnar.

Sjáðu Emil Atla skjóta niður KR-inga
Stjörnumenn fögnuðu fimm hundraðasta leik Daníels Laxdal í gær með flottum 3-1 sigri á KR-ingum í Garðabænum. Öll mörkin úr leiknum eru nú aðgengileg á Vísi.

Puttarnir í klessu og ráðlagt að hvíla
Sindri Kristinn Ólafsson, markvörður FH, mun mögulega ekki spila næsta leik liðsins eftir að lenda í árekstri og meiðast á fingrum í leiknum gegn HK í Bestu deild karla í knattspyrnu á sunnudag.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - KR 3-1 | Emil Atla með þrennu í tímamótaleik Daníels Laxdal
Stjörnumenn unnu KR nokkuð sannfærandi í kvöld í 20. umferð Bestu deildar karla í Garðabænum í kvöld. Daníel Laxdal var maður kvöldsins fyrirfram en Emil Atlason stal þrumunni með þrennu. Mjög fagmannleg frammistaða hjá Stjörnunni sem taka völdin í kapphlaupinu um fjórða sætið í deildinni.

Fjölnir pakkaði Grindavík saman
Fjölnir vann 5-1 sigur á Grindavík í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Þá gerðu Ægir og Grótta 2-2 jafntefli en heimamenn í Ægi voru manni færri allan síðari hálfleikinn.

Segir enga formlega beiðni hafa komið frá Breiðabliki
Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings, segir enga formlega beiðni hafa komið frá Íslandsmeisturum Breiðabliks um að færa leik liðanna og spila hann í komandi landsleikjahléi.

Fimm hundraðasti meistaraflokksleikur Daníels í kvöld
Daníel Laxdal spilar í kvöld meistaraflokksleik númer fimm hundruð fyrir Stjörnuna en hann er langleikjahæsti leikmaður félagsins.

Mikilvæg mörk í Bestu deild kvenna í gær: Sjáðu þau öll
Stjarnan, Keflavík, Valur og Þór/KA fögnuðu öll sigri í Bestu deild kvenna í fótbolta í gær.

„Gerum tilkall í að vera eitt af sterkustu liðum sögunnar“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings Reykjavíkur segir sitt lið gera tilkall til þess að vera metið sem eitt af bestu liðum Íslandssögunnar. Víkingar eru búnir að stinga af á toppi Bestu deildarinnar og settu í gær nýtt stigamet í efstu deild karla.

Kjánalegt athæfi og dýrt spaug fyrir Selfoss: „Ótrúlega sorglegt“
Katla María Þórðardóttir, leikmaður Bestu deildar liðs Selfoss í fótbolta, missti í gær stjórn á skapi sínu í leik liðsins gegn Þór/KA og fékk verðskuldað að líta rauða spjaldið. Atvikið var til umræðu í uppgjörsþættinum Bestu mörkin.

Sjáðu sigurmörk Fylkismanna, Blika og Framara og öll hin mörkin í Bestu í gær
Fimm leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær og nú má sjá öll mörkin úr leikjunum hér inn á Vísi.

Sjáðu mörkin þegar að Víkingar skráðu sig á spjöld sögunnar
Víkingur Reykjavík skráði sig á spjöld sögunnar í gær með sigri sínum á Val í toppslag 20. umferðar Bestu deildar karla í gærkvöldi. Sigurinn sá til þess að liðið hefur slegið stigametið í efstu deild.

Íslenski CrossFit kóngurinn skoraði tvö mörk á Íslandsmótinu í fótbolta
Íslenski CrossFit kappinn Björgvin Karl Guðmundsson er nú í hvíld eftir átökin á heimsleikunum og eitt af því sem hann hefur stundum gert er að hjálpa sínu félagi í fótboltanum.

Umfjöllun og viðtöl: HK - FH 2-2 | Anton Søjberg skoraði tvö í jafntefli
HK og FH gerðu jafntefli í fjögurra marka leik. FH komst yfir í fyrri hálfleik og var með forystuna í 50 mínútur en þá jafnaði Anton Søjberg og fylgdi því eftir með öðru marki þegar þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson tryggði síðan FH stig að lokum.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Víkingur 0-4 | Víkingar geta farið að setja kampavínið í kælinn eftir stórsigur gegn Val
Víkingur er kominn með 11 stiga forskot á toppi Bestu deildar karla í fótbolta en Fossvogsliðið lagði Val, sem situr í öðru sæti deildarinnar, að velli með fjórum mörkum gegn engu í toppslag liðanna í 20. umferð deildarinnar á Origo-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. Eftir þennan sigur hefur Víkingur 53 stig á toppnum en Valur kemur svo næst með 42 stig.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - KA 2-1 | Heimamenn nýttu Evrópuþreytu gestanna
Fram og KA mættust í Úlfarsárdalnum í 20. umferð Bestu deildar karla nú í dag. Eftir afar spennandi og skemmtilegan leik fór svo að lokum að Fram vann afar mikilvægan 2-1 sigur þar sem sigurmarkið kom á 90. mínútu.

Óskar Hrafn: Átti alls ekki von á því
Breiðablik vann Keflavík 2-1 í Bestu deild karla í knattspyrnu þar sem Ágúst Eðvald Hlynsson skoraði bæði mörk heimamanna. Óskar Hrafn, þjálfari Breiðabliks, var sáttur með flest allt í leik sinna manna í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Keflavík 2-1 | Ágúst Eðvald sá um gestina
Breiðablik mætti Keflavík í kvöld í 20. umferð Bestu deildarinnar. Lauk leiknum með 2-1 sigri heimamanna þar sem Ágúst Eðvald Hlynsson skoraði bæði mörk Blika.

Ekki til betri tilfinning
Aron Jóhannsson var hetja Fram í dag þegar liðið lagði KA 2-1 í Bestu deild karla í knattspyrnu. Aron skoraði sigurmarkið á 90. mínútu eftir góða skyndisókn. Hann var að vonum gríðarlega sáttur þegar hann mætti í viðtal eftir leik.

Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll - Valur 0-3 | Öruggur sigur Vals á Króknum
Íslandsmeistarar Vals fóru í góða ferð á Sauðárkrók í 17. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Lokatölur 0-3 og gott gengi ríkjandi Íslandsmeistara Vals heldur áfram.

Fylkir vann lífsnauðsynlegan sigur í Eyjum
Fylkir gerði góða ferð til Vestmannaeyja í Bestu deild karla í knattspyrnu. Orri Sveinn Stefánsson skoraði sigurmarkið þegar fimm mínútur lifðu leiks og Fylkir lyfti sér upp úr fallsæti.

„Þið sjáið hvernig deildin er núna í ár“
ÍBV náði í stig á erfiðum útivelli í Bestu deild kvenna í knattspyrnu þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Breiðablik á Kópavogsvelli. Todor Hristov var að vonum sáttur með stigið en fannst sitt liði þó geta hafa farið til Eyja með öll þrjú stigin úr Kópavoginum.