Körfubolti

„Hefur ekkert með einhverja óvild að gera“
„Þetta snýst ekki um einhverja óvild. Það skiptir engu máli hvaða félag þetta hefði verið. Þetta dæmir sig sjálft,“ segir Hilmar Júlíusson, formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar, um ásakanir Aþenu í garð deildarinnar.

Sáttur á Spáni en NBA draumurinn lifir góðu lífi
Landsliðsmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason skrifaði á dögunum undir nýjan tveggja ára samning við spænska úrvalsdeildarliðið Zaragoza. Tryggvi Snær er á leiðinni inn í sitt fimmta tímabil á Spáni og er nokkuð sáttur með lífið.

Curry-hjónin skilja eftir 33 ára hjónaband
Foreldrar NBA-stjörnunnar Stephens Currys, Dell og Sonya, hafa ákveðið að skilja eftir rúmlega þrjátíu ára hjónaband.

Þór Akureyri fær írskan liðsstyrk
Þórsarar frá Akureyri hafa samið við írska landsliðsmanninn Jordan Blount um að leika með liðinu á komandi leiktíð í úrvalsdeild karla í körfuknattleik. Blount kemur frá Aquimisa Carbajosa í spænsku C-deildinni.

Aþena án heimavallar og segir „óvild“ Stjörnumanna um að kenna
Kvennalið Aþenu er án heimavallar nú þegar rúmur mánuður er í að liðið leiki í fyrsta sinn á Íslandsmótinu í körfubolta. Félagið sakar körfuknattleiksdeild Stjörnunnar um að hafa komið í veg fyrir að Aþena spilaði heimaleiki sína á Álftanesi.

Á leið til Ítalíu en með NBA klásúlu í samningnum
Körfuboltamaðurinn Jón Axel Guðmundsson mun spila með Furtitudo Bologna í efstu deild á Ítalíu í vetur. Hann er þó með NBA klásúlu í samningi sínum við félagið ef lið Vestanhafs skyldu hafa samband.

Fyrrverandi NBA-leikmaður sagður á leið til Stjörnunnar
Bandaríkjamaðurinn Josh Selby er sagður vera á leið til karlaliðs Stjörnunnar í körfubolta. Hann á að baki leiki með Memphis Grizzlies í NBA-deildinni vestanhafs.

Grískur reynslubolti til Njarðvíkur
Njarðvík heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi tímabil í efstu deild karla í körfubolta og ljóst er að liðið ætlar sér stóra hluti í vetur.

Fyrirliði Keflavíkur leggur skóna á hilluna
Erna Hákonardóttir, fyrirliði Keflavíkur í körfubolta, hefur lagt skóna á hilluna. Þessa ákvörðun tók hún þrátt fyrir að vera aðeins 27 ára gömul.

Breiðablik fær bandarískan liðsstyrk
Breiðablik hefur samið við bandaríska bakvörðinn Reili Richardson um að leika með liðinu á komandi leiktíð í úrvalsdeild kvenna í körfubolta. Richardson á að baki unglingalandsleiki fyrir Bandaríkin.

Hættur að leiðrétta það þegar honum er óskað til hamingju með NBA titilinn
Brook Lopez varð NBA-meistari með Milwaukee Bucks liðinu í sumar en ekki tvíburabróðir hans Robin Lopez.

Dallas Mavericks ræður leikmann úr WNBA deildinni sem þjálfara hjá sér
Kristi Toliver er að spila í WNBA deildinni í sumar og fer síðan að þjálfa í NBA-deildinni í vetur. Dallas Mavericks réð hana í gær.

Stelpurnar í riðli með Spánverjum í næstu undankeppni
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta komst að því í morgun hvernig riðill liðsins lítur út í undankeppni Evrópumótsins.

Sinisa Bilic til liðs við nýliða Breiðabliks
Slóveninn Sinisa Bilic mun leika með nýliðum Breiðabliks á komandi tímabili í Domino's deild karla. Hann kemur til liðsins frá Val, en hann hefur einnig leikið með Tindastól í efstu deild á Íslandi.

Tryggvi Snær framlengir við Zaragoza
Tryggvi Snær Hlinason verður áfram í herbúðum Casademont Zaragoza í spænsku ACB deildinni út árið 2023, en hann skrifaði undir nýjan tveggja ára samning í dag.

Draymond og Durant kenna stjórninni um hvernig fór fyrir gullaldarliði Warriors
Draymond Green og Kevin Durant, fyrrum samherjar hjá Golden State Warriors í NBA-deildinni í körfubolta fóru yfir af hverju Durant yfirgaf eitt af bestu liðum NBA-sögunnar sumarið 2019.

Spilar fyrir íslenska landsliðið en hefur aldrei spilað körfuboltaleik á Íslandi
Emma Grace Theodórsson er nýtt nafn fyrir marga sem fylgjast með körfuboltanum á Íslandi. Hún er komin í íslenska átján ára landsliðið þrátt fyrir að hafa aldrei búið eða spilað á Íslandi.

Haukakonur lentu á móti liði frá Portúgal
Kvennalið Hauka í körfubolta mætir portúgalska liðinu Uniao Sportiva í undankeppni EuroCup en dregið var í dag. Haukar eru fyrsta kvennaliðið í fimmtán til að taka þátt í Evrópukeppni.

Skipt á milli NBA liða í annað skiptið á aðeins 48 klukkutímum
Patrick Beverley var aðeins leikmaður Memphis Grizzlies í tvö sólarhringa því honum hefur nú verið skipt áfram til Minnesota Timberwolves í NBA deildinni í körfubolta.

Enn verið að borga NBA leikmönnum sem eru löngu hættir að spila
Það eru sumir fyrrum körfuboltamenn sem fá enn vel borgað fyrir að gera ekki neitt. Skórnir eru kannski komnir upp á hillu en peningarnir streyma áfram inn á bankareikninginn.

Sigrún Sjöfn síðasta systirin til að yfirgefa Skallagrím
Fjölnir hefur heldur betur styrkt sig fyrir komandi tímabil í efstu deild kvenna í körfubolta. Hin 32 ára gamla Sigrún Sjöfn Ámundadóttir mun leika með liðinu á komandi leiktíð.

Elvar með flest stig og hæsta framlagið en liðinu gekk best með Kristófer á gólfinu
Íslenska körfuboltalandsliðið tryggði sér sæti í undankeppni HM 2023 með nokkuð sannfærandi sigri á Dönum. Íslenska liðið vann tvo af fjórum leikjum sínum í FIBA bubblunni í Svartfjallalandi og endaði í öðru sæti í riðlinum.

Stjörnumenn fá slóvenskan liðsstyrk
Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur gengið frá samningum við Slóvenann David Gabrovsek um að leika með liðinu á komandi tímabili í Domino's deild karla.

Umfjöllun: Ísland - Danmörk 89-73 | Ísland komið áfram eftir þægilegan sigur á Dönum
Íslenska körfuboltalandsliðið tryggði sér sæti í undankeppni HM með 16 stiga sigri á Dönum, 89-73, í síðasta leik sínum í riðlinum í forkeppninni í FIBA bubblunni í Svartfjallalandi.

Popovich sendi gagnrýnendum tóninn: Hvernig í fjandanum líst ykkur á okkur núna?
Eftir óvænt töp í aðdraganda Ólympíuleikanna sem og fyrsta leik á leikunum sjálfum var umræðan í kringum bandaríska landsliðið í körfubolta ekki jákvæð. Gregg Popovich, þjálfari liðsins, sendi spekingum tóninn í ræðu sem hann hélt inn í klefa eftir að Bandaríkin höfðu tryggt sér gullið.

Sigur á Dönum í kvöld færir liðinu sæti í undankeppninni og um leið leiki í vetur
Íslenska körfuboltalandsliðið var hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í undankeppni HM í körfubolta á móti Svartfjallalandi í gær en strákarnir okkar fá annað tækifæri í kvöld.

Einhentur körfuboltamaður fékk boð um að spila í bandaríska háskólaboltanum
Þegar viljinn og metnaðurinn er fyrir hendi er allt hægt. Dóminískur körfuboltastrákur lætur ekkert stoppa sig og fagnaði stórum tímamótum á dögunum.

Bakvörðurinn Basile til Njarðvíkur
Bandaríkjamaðurinn Dedrick Basile mun leika með Njarðvík í efstu deild karla í körfubolta á komandi leiktíð. Basile átti stórgott tímabil með Þór Akureyri á síðustu leiktíð og vonast Njarðvíkingar eftir annarri eins frammistöðu í vetur.

Jón Axel hitti áfram illa í tapi Phoenix Suns í Sumardeild NBA í nótt
Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson spilaði með Phoenix Suns í nótt þegar liðið tapaði naumlega á móti Cleveland Cavaliers í Sumardeild NBA í Las Vegas.

Umfjöllun: Ísland - Svartfjallaland 80-82| Flautukarfa tryggði Svartfjallalandi lygilegan sigur
Ísland tapaði á grátlegan hátt gegn Svartfjallalandi 80-82. Ísland var tíu stigum yfir þegar fjórði leikhluti fór af stað. Staðan var 80-80 þegar tæplega 27 sekúndur voru eftir af leiknum.Elvar Már Friðriksson fékk þá tækifæri til að koma Íslandi yfir undir lok leiks en skot hans mislukkaðist og Svartfellingar keyrðu af stað sem endaði með sigur flautukörfu frá Igor Drobnjak. Nánari umfjöllun væntanleg