Tindastóll á sigurbraut á ný Smári Jökull Jónsson skrifar 3. nóvember 2022 22:07 Pétur Rúnar Birgisson sneri aftur í lið Tindastóls í kvöld eftir fjarveru vegna meiðsla. Vísir Tindastóll lagði Stjörnuna að velli í Subway-deild karla í körfuknattleik í kvöld en leikið var á Sauðárkróki. Lokatölur 98-89 og Tindastóll því kominn á sigurbraut á ný eftir tvö töp í deildinni í röð.
Leikurinn í kvöld var jafn og liðin skiptust á að hafa forystuna í fyrri hálfleik. Tindastóll hafði endurheimt menn úr meiðslum en Sigtryggur Arnar Björnsson og Pétur Rúnar Birgisson voru báðir komnir aftur á gólfið eftir fjarveru í síðustu leikjum. Að loknum fyrri hálfleik var staðan 48-44 gestunum í vil og leikurinn galopinn. Í þriðja leikhluta náðu heimamenn hins vegar frumkvæðinu og komust mest níu stigum yfir. Stjarnan beit þí í skjaldarendur í lok fjórðungsins og fyrir lokafjórðunginn var staðan 72-69 og spennandi tíu mínútur framundan í Síkinu. Þar var það Tindastóll sem hafði betur. Stjarnan jafnaði í stöðunni 74-74 en því svöruðu heimamenn með níu stigum í röð og náðu góðri forystu. Þann mun náðu Garðbæingar aldrei að brúa og heimamenn kláruðu leikinn á vítalínunni. Lokatölur í Síkinu 98-89. Antonio Woods átti frábæran leik í liði Tindastóls og skoraði 36 stig og þar af fimm þriggja stiga körfur. Sigtryggur Arnar Björnsson skoraði 17 stig líkt og Ragnar Ágústsson. Hjá Stjörnunni var Robert Turner stigahæstur með 37 stig en Julius Jucikas skoraði 12 stig.
Subway-deild karla Tindastóll Stjarnan Mest lesið EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti United boðið að skrapa botninn á tunnunni Fótbolti Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Brottreksturinn kom Horner í opna skjöldu Formúla 1 Hélt fótboltabúðir fyrir hinsegin ungmenni Sport Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Körfubolti Sengun í fantaformi í sumarfríinu Körfubolti Algjörir yfirburðir PSG gegn Real Madrid Fótbolti Djokovic í undanúrslit í fjórtánda sinn Sport Landsliðsþjálfaranum létt og spenna í hópnum Sport Fleiri fréttir Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Sjá meira