

Keflavík er deildarmeistari í Subway-deild kvenna eftir æsispennandi 74-75 sigur á Njarðvík í Ljónagryfjunni. Daniela Morillo tryggði Keflavík sigurinn af vítalínunni þegar innan við sekúnda var eftir af leiknum.
Max Strus skoraði ótrúlega sigurkörfu í nótt og kórónaði með því magnaða frammistöðu sína á lokamínútunum þegar Cleveland Cavaliers vann dramatískan 121-119 sigur á Dallas Mavericks í NBA-deildinni í körfubolta.
Hjalti Þór Vilhjálmsson þjálfari Vals hafði ærna ástæðu til að brosa í leikslok eftir góðan sigur á Þór í Subway-deild kvenna. Lokatölur á Hlíðarenda 90-84.
Topplið B-deildar Subway-deildar kvenna mættust á Hlíðarenda í kvöld en bæði lið voru með 16 stig fyrir leikinn og því ljóst að sigurliðið myndi sitja eitt í toppsætinu að leik loknum.
Fjölnir vann góðan 21 stigs sigur er liðið heimsótti Snæfell í B-deild Subway-deildar kvenna í körfubolta í kvöld, 57-78.
Bandaríska körfuboltakonan Caitlin Clark er búin að bæta stigamet kvenna í 1. deild bandaríska háskólaboltans en eltir nú uppi fleiri stigamet.
Joe Mazzulla, þjálfari Boston Celtics, er mikill knattspyrnuaðdáandi en hann horfir mikið upp til Pep Guardiola og nýtir sér hugmyndafræði Spánverjans þó svo að lið hans spili í NBA-deildinni í körfubolta.
Það er eins og samveran með hinum stórstjörnum NBA-deildarinnar á stjörnuhelginni hafi kveikt í Jókernum.
Í Lögmáli leiksins í kvöld verður meðal annars farið yfir slagsmálin í leik New Orleans Pelicans og Miami Heat og rödd ofurstjörnunnar Zions Williamson.
Íslenska körfuboltalandsliðið stóð sig eins og hetjur í Istanbúl fyrr í dag. Ísland var yfir með einu stigi þegar 3,6 sekúndur voru eftir af leiknum en Tarik Biberovic skoraði með lokaskoti leiksins og tryggði heimamönnum sigur. Grátlegt var það en Íslendingar geta gengið stoltir frá borði.
Boston Celtics unnu áttunda leik sinn í röð, 116-102 gegn New York Knicks. Paulo Banchero tryggði Orlando Magic sigur með villuskoti þegar innan við sekúnda var eftir og Kevin Durant varð níundi stigahæsti leikmaður í sögu NBA deildarinnar.
Það fór allt í hund og kött í New Orleans þegar heimamenn í Pelicans mættu Miami Heat. Leiknum lauk með 11 stiga sigri Miami en í fjórða leikhluta sauð upp úr á milli liðanna.
Steve Kerr og Golden State Warriors hafa komist að samkomulagi um tveggja ára framlengingu á samningi þess fyrrnefnda til ársins 2026. Því fylgir launahækkun sem mun gera Steve Kerr að launahæsta þjálfara NBA deildarinnar.
Fjórir leikmenn fengu að fjúka af velli eftir átök sem brutust út í leik Miami Heat og New Orleans Pelicans í nótt.
Pavel Ermolinskij, aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, var nokkuð brattur en þó þreyttur þegar íþróttadeild sló á þráðinn til hans í dag. Gríðarlangur ferðadagur er um hálfnaður hjá Strákunum okkar sem halda til Tyrklands.
Martin Hermannsson spilaði á ný með íslenska körfuboltalandsliðinu í gærkvöldi og var stigahæstur í flottum endurkomusigri á Ungverjum.
Grindvíkingurinn í íslenska landsliðinu hefur mátt upplifa sérstakan vetur. Hann er að spila sem atvinnumaður á Spáni en á meðan er heimabærinn hans rýmdur og hvert gosið á fætur öðru kemur upp við bæinn.
Kristófer Acox verður ekki með íslenska landsliðinu í öðrum leik liðsins í undankeppni EM sem fer fram í Tyrklandi á sunnudaginn.
Íslenska körfuboltalandsliðið byrjaði undankeppni EM mjög vel í gærkvöldi með endurkomusigri á Ungverjum. Það voru margir að skila til liðsins í gær og því ekki auðvelt að velja mann leiksins. Það var þó andlegur styrkur eins manns sem mér fannst standa upp úr.
Ísland hefur leik í undankeppni Evrópumóts karla í körfubolta sem fram fer á næsta ári með gríðarlega mikilvægum fimm stiga sigri á Ungverjalandi fyrir framan troðfulla Laugardalshöll.
Landsliðsþjálfarinn Craig Pedersen gat ekki leynt ánægju sinni með sigurinn í kvöld, enda enginn þörf á því.
Ítalía lagði Tyrkland í undankeppni EM karla í körfubolta sem fram fer á næsta ári. Um var að ræða fyrsta leik þjóðanna í undankeppninni. Ítalía og Tyrkland eru í B-riðli ásamt Íslandi og Ungverjalandi.
„Mér líður mjög held ég, eins og allri þjóðinni,“ sagði Kristófer Acox eftir frækinn fimm stiga sigur Íslands á Ungverjalandi í fyrsta leik þjóðanna í undankeppni EM 2025 í körfubolta. Það var vitað fyrir leik að þetta væri algjör lykilleikur í því hvernig undankeppnin myndi þróast.
Ísland byrjar undankeppnina fyrir EM 2025, EuroBasket, með glæsilegum fimm stiga sigri á Ungverjum, sem fyrir fram eru taldir helstu keppinautar Íslands um þriðja sætið í B-riðli, sem veitir þátttökurétt á mótinu. Lokatölur í troðfullri Laugardalshöll 70-65.
Kevin Durant, leikmaður Phoenix Suns í NBA-deildinni, hefur sent Charles Barkley tóninn eftir að hann gagnrýndi hann fyrir skort á leiðtogahæfileikum.
Craig Pedersen, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, talar vel um Martin Hermannsson fyrir leik Íslands og Ungverjalands í Laugardalshöllinni í kvöld. Craig segir Martin alltaf að verða betri og betri.
Búið er að ákveða hvaða tólf leikmenn glíma við Ungverja á fjölum Laugardalshallarinnar í kvöld.
Elvar Már Friðriksson er ánægður með lífið í Grikklandi þar sem hann hefur spilað með PAOK Þessalóníku í vetur. Elvar verður í sviðsljósinu í kvöld þegar Ísland mætir Ungverjalandi í undankeppni EM í Laugardalshöllinni.
Jón Axel Guðmundsson er einn leikmanna íslenska liðsins sem þurfti að stíga fram og taka á sig meiri ábyrgð í fjarveru Martins Hermannssonar undanfarin ár og hann hefur á þessum tíma orðið að algjörum lykilmanni í íslenska liðinu.
Þetta er stór dagur fyrir íslenska körfuboltalandsliðið og ekki síst fyrir Martin Hermannsson sem snýr í kvöld til baka í íslenska landsliðið þegar liðið mætir Ungverjum í Laugardalshöllinni í undankeppni EM 2025.