Lífið

Vopnuð nágrannakona réðst á Charlie Sheen
Bandaríski leikarinn Charlie Sheen varð fyrir líkamsárás á heimili sínu í vikunni. Kona á fimmtugsaldri hefur verið handtekin vegna málsins.

Þrír fjórðu þjóðarinnar vill útiloka Ísrael frá Eurovision
Þrír af hverjum fjórum Íslendingum vilja útiloka Ísrael frá þátttöku í Eurovision í Malmö í Svíþjóð í maí. Þetta er niðurstaða könnunar Prósents.

Stjörnulostinn þingmaður tíu árum síðar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar var stjörnulostin þegar hún rakst á tvíburasysturnar Laufeyju Lín og Juniu Lin Jónsdætur í verslun í Garðabænum.

Töfrablær yfir jólahúsi ársins í Kópavogi
Daltún 1 er jólahús Kópavogs í ár. Í umsögn dómnefndar segir að einföld litasamsetningin sveipi ákveðnum töfrablæ yfir húsið, allt um kring. Að þessu sinni voru einnig valdar Jólagata og Fjölbýlishús ársins.

Brúðkaup ársins 2023
Á hverju ári greinum við á Vísi frá brúðkaupum og hér fyrir neðan má sjá yfirferð yfir þekkta Íslendinga sem gengu í hnappelduna á árinu 2023.

Króli spyrill í Gettu betur í stað Kristjönu Arnars
Kristjana Arnarsdóttir er hætt sem spyrill í Gettu betur. Kristinn Óli Haraldsson, Króli, tekur við starfinu.

Ver jólunum í faðmi kærastans
Páll Óskar Hjálmtýsson, einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar, ætlar að halda jólin með kærastanum sínum. Það er í fyrsta skiptið í langan tíma sem hann er ekki með systkinum sínum og þeirra fjölskyldum.

Egill og Sigurveig kveðja Skólastrætið
Miðbæjarhjónin Egill Helgason sjónvarpsmaður og Sigurveig Káradóttir vert í Safnahúsinu eru á leið úr Skólastrætinu þar sem þau hafa búið um árabil.

Húmor í jólaskreytingum Brynju
Myndlistarkonan Brynja Harðardóttir Tveiten er með mjög sérstakar jólaskreytingar heima hjá sér þar sem hún notar mikið gamla kassa og gamla hluti á einstaklega skemmtilegan hátt.

Konan á bak við Iceguys dansana
Dansarinn og danshöfundurinn Stella Rósenkranz hefur komið víða að í skemmtanabransanum og unnið með fjölbreyttum hópi tónlistarfólks. Hún er kóreógrafer hjá strákasveitinni Iceguys og manneskjan á bak við vinsælu danssporin í laginu Krumla.

Ásdís Rán og Þórður halda jólin í Búlgaríu
Fyrirsætan og ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir og kærastinn hennar Þórður Daníel Þórðarson ætla að halda jólin saman í Búlgaríu en vonast til að komast til Íslands á milli jóla og nýárs til að fagna áramótunum hér á landi.

Skellihló með kærastanum á rauðu ljósi
Stórleikkonan Aníta Briem hló sig máttlausa á einleik Kristínar Þóru Haraldsdóttur í Þjóðleikhúskjallaranum. Inga Lind skellti sér til Barcelona og Ólafur Ragnar sneri aftur frá Osló.

Home Alone fjölskyldan tilheyrir eina prósentinu
McCallister fjölskyldan úr Home Alone jólamyndunum væri í hópi hinna ofurríku ef hún væri raunveruleg, miðað við eignir fjölskyldunnar og hús hennar í Chicago borg í Bandaríkjunum.

Einföld ráð fyrir betra kynlíf
Bandaríski kynlífs- og sambandsráðgjafinn Todd Baratz segir að fólk sem vilji stunda gott kynlíf verði að sýna metnað og dugnað með því að æfa sig. Það sé lykillinn að ánægjustundum í rúminu.

Arnór Dan og Vigdís Hlíf selja slotið
Arnór Dan Arnarson, söngvari í hljómsveitinni Agent Fresco, og Vigdís Hlíf Jóhönnudóttir í markaðsdeild Landsbankans hafa sett hæð sína við Laugarnesveg í Reykjavík á sölu. Ásett verð er 109,9 milljónir.

Jón Gunnar og Ingibjörg Ásta slá sér upp
Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, og Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs hjá Líflandi, eru að slá sér upp.

Grínaðist með gosið og nafn Þorvalds Þórðarsonar
„Eins og alltaf, byrjum við á stóru fréttinni frá Íslandi.“ Þetta sagði Stephen Colbert, stjórnandi The Late Show, í upphafi þáttar síns á CBS í gærkvöldi. Þar ræddi hann á léttum nótum um eldgosið á Reykjanesi og nafn Þorvalds Þórðarsonar.

„Get ekki látið ykkur Íslendinga skrifa allskonar bull um mig“
Leoncie vinnur nú að nýrri ævisögu. Hún vill segja sögu sína sjálf. Hún er tónlistakona og skemmtikraftur og segist hafa nóg að gera.

Júródansari Little Big er látinn
Rússneski dansarinn Dmitry Krasilov, betur þekktur undir listamannsnafninu Pukhlyash, er látinn. Krsailov var 29 ára gamall og er hvað þekktastur hér á landi fyrir að hafa dansað í atriði rússnesku sveitarinnar Little Big í Eurovision árið 2020.

Þau komu til Íslands 2023
Hópur svokallaðra Íslandsvina stækkaði umtalsvert á árinu sem er að líða. Vegna fjölda funda sem fóru fram hér á landi bættust erlendir stjórnmálaleiðtogar í umræddan hóp. Þá tróð heimsfrægt tónlistarfólk upp á Íslandi á árinu. Aðrir voru komnir á klakann í öðrum erindagjörðum, sumir voru einfaldlega í fríi.

Fjöldi fólks sækir að Hafnarfjarðarhöfn til að skoða jólaljósin
Á fimmta tug smábátaeigenda hafa skreytt báta sína í Hafnarfjarðarhöfn fyrir jólin. Formaður félags smábátaeigenda í Hafnarfirði og Garðabæ segir fjölda fólks gera sér leið niður á höfn á kvöldgöngunni til að virða fyrir sér ljósin.

„Á maður ekki alltaf að stefna á toppinn?“
„Á maður ekki alltaf að stefna á toppinn?“ segir Birgitta Líf Björnsdóttir markaðsstjóri World Class spurð hvort hún stefni á að verða næsta íþróttavörulínudrottning landsins. Nýlega setti hún á markað nýja íþróttavöru- og lífstílslínu undir heitinu WCGW.

Avengers: Kang Dynasty í uppnámi eftir sakfellingu Majors
Marvel Studios hafa ákveðið að rifta samningi sínum við leikarann Jonathan Majors, eftir að hann var fundinn sekur í gær um að hafa ráðist á kærustu sína, Grace Jabbari.

Lærir húsasmíði í hjólastól: „Reyni að gera allt sem ég gerði fyrir slys“
Sigurjón Heiðar Sigurbjörnsson lætur ekkert stoppa sig þrátt fyrir að notast við hjólastól eftir að hafa lent í alvarlegu slysi í september fyrir tveimur árum. Magnús Hlynur Hreiðarsson hitti þennan hressa og skemmtilega nemanda í húsasmíði á Sauðárkróki á dögunum.

„Lífið er jafn fallegt og það er miskunnarlaust“
Aldís Amah Hamilton leikkona biðlar til fólks að taka utan um fólkið sitt og skapa dýrmætar minningar í stað þess að týna sér í jólastressi og fullkomnunaráráttu yfir hátíðirnar.

Sagði strákunum mínum frá kjaftasögum um mig
Sigmar Vilhjálmsson segir að það hafi verið erfitt að viðurkenna fyrir strákunum sínum að hann hafi misst bílprófið eftir að hafa keyrt undir áhrifum áfengis. Simmi, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar segist hafa dauðskammast sín fyrir atburðarrásina í kringum bílprófsmissinn, ekki síst af því að hann vilji vera góð fyrirmynd fyrir drengina sína.

Marvel stjarna dæmd fyrir heimilisofbeldi
Marvel stjarnan Jonathan Majors hefur verið dæmd fyrir að hafa ráðist á kærustuna sína. Réttarhöld í málinu hafa staðið yfir í hálfan mánuð en dómstóll upplýsti um niðurstöðu sína í dag.

Sköllóttur rakari á Siglufirði gerir það gott
Eini rakarinn á Siglufirði, sem er sköllóttur segist ekki mynda þiggja það að fá hár aftur enda sé dásamlegt að vera sköllóttur. Rakarinn hefur hins vegar meira en nóg að gera í vinnunni við að klippa heimamenn og snyrta skeggið á körlunum.

Tvö féllu í yfirlið og allur varningur seldist upp
Tæplega tíu þúsund manns mættu á IceGuys í tónleika í Kaplakrika í Hafnarfirði um helgina og segir einn skipuleggjanda tónleikanna aldrei séð aðra eins eftirspurn eftir miðum. Að minnsta kosti tvö féllu í yfirlið á tónleikunum og fengu aðstoð sjúkraliða á staðnum.

Magnús Scheving selur slotið við Sunnuflöt
Magnús Scheving Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Íshesta og fyrrverandi forstjóri Klakka, og eiginkona hans, Þórey Edda Heiðarsdóttir, sviðsstjóri mats og rýni hjá Virk, hafa sett glæsilegt einbýlishús sitt við Sunnuflöt 37 í Garðabæ á sölu. Ásett verð er 225 milljónir.