Lífið

„Eftir aðgerðina óttast ég það versta og byrja bara að gráta og græt stjórnlaust“
Næringarfræðingurinn Elísabet Reynisdóttir lenti í því í sumar að fyrir rælni tók hún eftir dökkum fæðingarbletti á bakinu og í staðinn fyrir að láta hann í friði lét hún skoða hann og í ljós kom húðkrabbamein á byrjunarstigi.

Skráðu sig í maraþon í tilvistarkreppu
Málfríður Guðný Kolbeinsdóttir og unnusti hennar Hannes Halldórsson fengu tilvistarkreppu í kjölfar þrjátíu ára aldursársins og skráðu sig í maraþon í London. Þetta var þeirra fyrsta maraþon og voru þau haltrandi um London að jafna sig eftir átökin þegar Vísir náði tali af þeim.

Faðir Miley Cyrus hefur fundið ástina á ný
Söngvarinn Billy Ray Cyrus, faðir Miley Cyrus, er kominn með kærustu. Kærastan er ástralska söngkonan Firerose. Það var í apríl á þessu ári sem fyrrverandi eiginkona hans til tuttugu og átta ára, Tish Cyrus, sótti um skilnað.

Beyoncé skín skært fyrir Tiffany & Co
Söngkonan Beyoncé skín skært klædd demöntum frá toppi til táar í nýju myndbandi frá skartgripafyrirtækinu Tiffany & Co. Í því má sjá hana dansa og syngja á fullum skemmtistað af fólki ásamt því að sitja á baki glitrandi hests.

„Goðsagnakennd djammkvöld“
„Mánudagsklúbburinn á Prikinu hefur fengið endurvakningu lífdaga. Goðsagnakennd djammkvöld hér á árum áður,“ segir Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams, eigandi Priksins. Mánudagsklúbburinn var gríðarlega vinsæll fyrir um áratugi síðan og er nú leiddur af þremur ungum konum, þeim Valgerði, Heiðbrá og Nadiu, sem sérhæfa sig í skvísutónum og góðri stemningu.

Allt undir í lokin og tilfinningarnar miklar
Sextán liða úrslitin í Kviss héldu áfram á laugardagskvöldið þegar Keflavík mætti Þór Þorlákshöfn í alvöru landsbyggðarviðureign.

Stjörnulífið: Bleika slaufan, RIFF og Gyða Sól
Íslendingar eru búnir að draga fram úlpurnar og fara hvað á hverju að fjárfesta í sköfum fyrir veturinn. Haustlitir einkenna samt tískuna þessa dagana og þykkar kápur, treflar og kaffibollar eru algeng sjón á Instagram. Listamenn landsins eru að dæla út nýju og spennandi efni og haustið fer vel af stað.

Stuttmynd Audda Blö og Halldóru Geirharðs: „Farðu fram og greiddu þér“
Þátturinn Stóra sviðið fer af stað á nýjan leik á Stöð 2 á föstudagskvöldið en um er að ræða fjölskylduþátt þar sem skemmtun og afþreying eru í aðalhlutverki.

Stökkið: „Það sakar aldrei að sækja bara um“
Ásthildur Helga Jónsdóttir stundar bachelor nám í klassískum kontrabassaleik við Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi. Hún kláraði framhaldspróf í kontrabassaleik frá MÍT áður en hún flutti úr landi fyrir rúmu ári síðan.

Sacheen Littlefeather er látin
Aðgerðarsinninn Sacheen Littlefeather er látin, 75 ára að aldri. Hún hafði barist við krabbamein í brjósti undanfarin ár. Í tilkynningu frá Óskarsverðlaunaakademíunni segir að hún hafi verið umkringd fjölskyldu og vinum þegar hún féll frá.

Sögð ætla að halda tryggð við Adam Levine
Þrátt fyrir allt virðist skilnaður ekki vera í farvatninu hjá poppstjörnunni Adam Levine. Eiginkona hans, fyrirsætan Behati Prinsloo, er sögð ætla að halda tryggð við Levine en hún gengur með þeirra þriðja barn um þessar mundir.

Selja gleraugu Dahmers fyrir morðfjár
Kanadískir safnarar hafa sett gleraugu sem bandaríski fjöldamorðinginn Jeffrey Dahmer var með í fangelsi á sölu. Einn þeirra segir gleraugun og aðra muni fjöldamorðingjans koma frá fyrrverandi heimilishjálp föður Dahmer.

Breyttar matarvenjur Íslendinga: Unnar kjötvörur og soðnar kartöflur að hverfa úr matarmenningunni
Matarvenjur Íslendinga hafa breyst töluvert síðustu áratugi eða síðan fiskbúðingur og fiskibollur í dós voru dags daglega á borðum. Rithöfundurinn og matarunnandinn Nanna Rögnvaldardóttir hefur fylgst vel með þeirri þróun sem hefur átt sér stað.

Hrópað húrra fyrir átta ára Húrra
Afmælisveisla tískufataverslunarinnar Húrra var haldin í gær og mættu velunnarar og tískuáhugamenn landsins til að skála fyrir afmælisbarninu.

Vörumerki Línu Birgittu á tískuvikunni í París
Tískuvörumerkið Define the Line í eigu Línu Birgittu Sigurðardóttur fékk boð um að taka þátt í tískuvikunni í París. „Ég fékk boð um að taka þátt í PFW fyrir nokkrum mánuðum en það var fyrirtæki í New York sem hafði samband við mig eftir að hafa fylgst með vörumerkinu,“ segir Lína í samtali við Vísi.

Fréttakviss vikunnar: Spurt um landslið Íslands, sundlaugar og skemmdarverk
Hversu vel fylgist þú með fréttum og líðandi stund? Taktu þátt í Fréttakvissi sem er í boði á Vísi á laugardögum.

Hefur unnið sem fyrirsæta um allan heim
Kristín Lilja Sigurðardóttir hefur ferðast um allan heim í starfi sínu sem fyrirsæta og gengið á tískupöllum fyrir risa á borð við Dior og Kenzo ásamt því að hafa setið fyrir í herferðum fyrir stórfyrirtæki á borð við Zöru og Bottega Veneta. Kristín Lilja er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.

Svipta hulunni af þema Met Gala
Óhætt er að segja að hinn árlegi Met Gala viðburður sé einn stærsti tískuviðburður ársins. Á hverju ári er valið sérstakt þema fyrir viðburðinn sem skærustu stjörnur heims klæða sig eftir. Það hafa því eflaust margir beðið spenntir eftir því að fá að vita hvaða þema verður fyrir valinu fyrir þennan stórviðburð á næsta ári.

Telur sig vera búinn að koma auga á næstu Idol stjörnu
Þessa dagana fara fram dómaraprufur Idolsins sem sýnt verður á Stöð 2 í haust. Dagarnir hafa því verið ansi langir hjá leikaranum Aroni Mola sem er annar kynnir Idolsins ásamt sjónvarpskonunni Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur.

Trevor Noah hættir eftir sjö ár á skjánum
Þáttastjórnandinn Trevor Noah ætlar að hætta sem stjórnandi þáttarins The Daily Show á Comedy Central. Trevor hefur séð um þættina í sjö ár. Hann segist fyrst og fremst finna fyrir þakklæti þegar hann horfir yfir farinn veg.

Jón Jónsson og Auður gefa út lag sem þeir sömdu óvart
Tónlistarmennirnir Jón Jónsson og Auður gáfu í dag út sitt fyrsta lag saman. Lagið ber heitið Ég var ekki þar og var það samið alveg óvart fyrir tólf dögum síðan. Þeim fannst lagið passa vel inn í haustið og ákváðu þeir þess vegna að hafa hraðar hendur við útgáfu þess.

Voru trúlofuð í leyni þegar hann barnaði aðra konu
Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian var trúlofuð barnsföður sínum Tristan Thompson án þess að nokkur vissi. Parið var trúlofað í níu mánuði áður en kom í ljós að Tristan hefði eignast barn eftir framhjáhald með annarri konu.

Katla og Halldóra ríða á vaðið í fyrsta þættinum af Stóra sviðinu
Þátturinn Stóra sviðið fer af stað á nýjan leik á Stöð 2 í kvöld en um er að ræða fjölskylduþátt þar sem skemmtun og afþreying eru í aðalhlutverki.

Orrifinn hannar bleiku slaufuna í ár
Söfnunarátakið Bleika slaufan er farið af stað en í ár var slaufan hönnuð af þeim Helgu Friðriksdóttur og Orra Finnbogasyni hjá Orrifinn Skartgripum. Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins, tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.

Fyrstu sýningarnar gríðarlega erfiðar: „Ég kom bara heim og lagðist í rúmið“
Bubbi Morthens segir að hann hafi hreinlega grátið og farið heim og lagst í rúmið þegar sýningin Níu líf byrjaði í Borgarleikhúsinu í fyrra.

Þórunn Ívars segir frá upplifun sinni á bótox og fitufrystingu
Áhrifavaldurinn Þórunn Ívarsdóttir talar um þær meðferðir sem hún hefur undirgengist hjá Húðlæknastöðinni. Þar nefnir hún meðal annars bótox, fitufrystingu og háreyðingarlaser.

Svavar Pétur er látinn
Svavar Pétur Eysteinsson, tónlistarmaður sem gekk undir listamannsnafninu Prins Póló, er látinn, 45 ára að aldri.

Khloé hafnaði bónorði Tristans
Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian segist hafa hafnað bónorði frá barnsföður sínum Tristan Thompson. Hún segist ekki hafa getað sagt já við spurningunni á þeim tímapunkti þar sem hún vilji vera stolt af slíkum tíðindum.

Hailey Bieber opnar sig um kynlífið og Selenu Gomez dramað
Fyrirsætan Hailey Bieber opnaði sig um kynlíf sitt og eiginmannsins Justin Bieber í hlaðvarpinu Call Her Daddy. Þar segist hún einnig hafa rætt málin með fyrrverandi kærustu kappans, Selenu Gomez, eftir að hún gekk í hjónaband með Justin.

Fjölmiðlakonan Katie Couric greindist með brjóstakrabbamein
Fjölmiðlakonan Katie Couric greindi frá því í gær að hún hefði greinst með brjóstakrabbamein fyrr í sumar. Meinið var fjarlægt og hún lauk geislameðferð fyrr í vikunni.