

Föstudagurinn þrettándi, litadýrð haustsins, tímamót og utanlandsferðir lituðu samfélagsmiðla hjá stjörnum landsins í liðinni viku.
Allt frá hörmulega bílslysinu í París fyrir næstum þrjátíu árum hefur ríkt tortryggni í garð opinberra skýringa á andláti Díönu prinsessu. Mælingar hafa sýnt að næstum fjórir af hverjum tíu Bretum trúðu því ekki að um slys hafi verið að ræða og þriðjungur taldi að hún hafi verið myrt. Var þetta bara bílslys eða er ástæða til að tortryggja opinberar skýringar?
Húsfyllir var á Haustráðstefnu Advania, sem haldin var í 30. skipti í Hörpu á dögunum. Aðalfyrirlesarinn í ár var gervigreindarstjarnan Nina Schick en hún hefur síðustu misseri verið ráðgjafi fyrir Bandaríkjaforseta, NATO og marga fleiri í málefnum gervigreindar.
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er með frægustu konum í heimi, hefur tekið að sér ýmis áhugaverð verkefni í gegnum tíðina og fengið að kynnast alls konar fólki. Í nýju tískuheimildarmyndinni In Vogue: The 90's afhjúpar Kim hvert hennar fyrsta starf var, að fara út að ganga með hundinn hennar Madonnu.
Bandaríski tónlistarmaðurinn Tito Jackson, einn af upprunalegum liðsmönnum sveitarinnar Jackson 5 og bróðir Michaels Jackson heitins, er látinn.
Ísaki Hilmarssyni og Grétu Maríu Birgisdóttur hefur tekist að safna saman sextíu fæðingarsögum feðra. Nú stendur til að gefa sögurnar saman í bók og hafa þau Ísak og Gréta hafið söfnun til að fjármagna bókina á Karolina Fund.
Árni Oddur Þórðarson fyrrverandi forstjóri Marel og Kristrún Auður Viðarsdóttir fjárfestir giftu sig óvænt í Dómkirkjunni í gær. Árni Oddur og Kristrún hafa verið saman í um tvö ár. Hjónin höfðu ekki boðið til brúðkaups heldur var veislan óvænt. Greint var fyrst frá brúðkaupinu á vef mbl.is í gær.
Ragnar Axelsson – Raxi – hefur lagst í sérstaka leiðangra en hann flýgur við annan mann yfir óbyggðir Íslands og festir á filmu brot af þeim undrum og furðum sem þar getur að líta. Við hin fáum að njóta afrakstursins því ef Raxi kann eitthvað þá er það þetta að taka myndir.
„Nýr kafli þýðir oft nýjar áskoranir og nýjar venjur og því er gott að nýta kaflaskil til þess að pússa aðeins rútínuna hjá sér og mögulega breyta aðeins til, taka eitthvað nýtt inn og skilja eitthvað annað eftir,“ segir Sara Snædís Ólafsdóttir, heilsuþjálfari og stofnandi Withsara.
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Krakkatíunni!
Tónlistarmaðurinn Erpur Eyvindarson nýtur nú lífsins á Ítalíu með nýju kærustunni sinni, Lísbetu Rós Ketilbjarnadóttur.
Tuttugu og fimm ár liðin frá því að Magni Ásgeirsson gekk til liðs við hljómsveitina Á móti sól og af því tilefni blæs hljómsveitin til tónleika í Bæjarbíói í Hafnarfirði í kvöld. Hann segir þá munu halda áfram að spila fram á síðasta dag.
Ný bronsstytta af Elísabetu annarri Bretadrottningu hefur vakið mikil viðbrögð meðal íbúa á Norður Írlandi. Sumir segja styttuna móðgandi þar sem hún líkist grínkarakter frekar en drottningunni sjálfri.
Biskupsbústaðurinn við Bergstaðastræti 75 er seldur. Séra Agnes M. Sigurðardóttir, sem vígði eftirmann sinn í embætti fyrir tæpum tveimur vikum er því síðasti biskupinn til að búa í húsinu. Félag í eigu Birnu Jennu Jónsdóttur fjárfestis keypti húsið.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður hefur vakið athygli út fyrir landsteinana. Ítalskur samfélagsmiðlanotandi sýnir Vilhjálmi mikinn áhuga og fer um víðan völl í umfjöllun sinni um stjörnulögmanninn.
Líf Rutar Rúnarsdóttur og fjölskyldu hennar kollvarpaðist fyrir þremur árum þegar eldri bróðir Rutar féll fyrir eigin hendi. Systkinin voru afar náin og Rut missti því bæði bróður og kæran vin á sama tíma. Áfallið breytti Rut á þann hátt að hún syrgði ekki bara bróður sinn heldur einnig gömlu útgáfuna af sjálfri sér, manneskjuna sem hún hafði verið áður en áfallið dundi yfir.
Gestrisni, ljúfir tónar, notaleg lýsing, fallega dekkað borð og framsetning ljúffengra rétta eru grunnatriði þegar kemur að hinni fullkomnu matarupplifun. Hér að neðan má finna uppskriftir að þriggja rétta veislu ásamt nokkrum einföldum ráðum til að gera matarboðið sem eftirminnilegast.
Einar Falur Ingólfsson er listamaður. Hann tók stökkið eftir að hafa fjallað um list í 40 ár. En hann hafði verið að fikta við listsköpun lengi samhliða vinnu. Einar Falur er lærður ljósmyndari og kennir ljósmyndun, er bókmenntafræðingur en starfaði lengstum innan vébanda Morgunblaðsins.
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.
Finnskum útvarpsáhugamanni tókst á dögunum að bæta íslenskum útvarpsstöðvum í safn þeirra erlendu útvarpsstöðva sem hann nær að hlusta á í sumarbústaði sínum í finnskri sveit í norðurhluta Finnlands í Lapplandi. FM 957, Gullið og fleiri útvarpsstöðvar hljóma því í eyrum Finnans.
Bandaríski tónlistarmaðurinn Justin Timberlake viðurkenndi að hafa ekið bíl sínum þrátt fyrir að hann væri ekki í ástandi til þess fyrir dómi í New York í dag. Hann hvatti fólk til að þess að aka ekki ölvað.
Vigdís Björk Segatta, einn helsti brúðkaupsskipuleggjandi landsins og eigandi Luxwedding, og eiginmaður hennar Ólafur Jón Jónsson flugmaður hjá Icelandair, hafa sett fallegt einbýlishús við Sveinskotsvör á Álftanesi á sölu.
Tilfinningarnar voru við völd þegar nýju Ljósavinaverkefni var ýtt úr vör með pompi og prakt á Sjálandi í vikunni. Fjöldi fólks mætti á viðburðinn sem einkenndist af ljúfum tónum og fjölbreyttri dagskrá.
Ísland mun taka þátt í Eurovision á næsta ári. Þetta kemur fram í svörum frá Ríkisútvarpinu til fréttastofu. Áður hafði ákvörðun um þátttöku í keppninni verið frestað. Fram kemur að fyrirkomulag á vali á framlagi Íslands verði kynnt síðar.
Hvað er það sem hefur alveg slegið í gegn í görðum landsins síðastliðin ár? Jú heitir pottar og einnig kaldir pottar og köld gróðurhús. Þar er hægt að rækta ótrúlegustu ávexti og fleira framandi sem er hreinlega eins og í útlöndum. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og skoðaði það heitasta í görðum landsins.
Nýjasta kvikmynd Rúnars Rúnarssonar Ljósbrot var frumsýnd fyrir fullum sal á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto fyrr í vikunni. Um er að ræða eina stærstu kvikmyndahátíð Norður-Ameríku og hlaut myndin standandi lófaklapp, að því er fram kemur í tilkynningu.
Kúreki norðursins, sagan af Johnny King verður frumsýnd næsta laugardag. Myndin fjallar um gamlan íslenskan kántrýsöngvara sem er á krossgötum í lífinu og þarf um leið að gera upp fortíðina.
Æskuvinirnir og grínistarnir Steindi Jr. og Dóri DNA fara í sprenghlægilegt ferðalag um heiminn í nýjum þáttum sem bera heitið 1 stjarna. Þar prófa þeir verstu staði í heimi. Dóri segist hafa fengið nóg af Steinþóri og lýsir honum sem skelfilegum ferðafélaga á meðan Steindi heldur ekki vatni yfir Dóra.
Bandaríski leikarinn Chad McQueen, sem er einna þekktastur fyrir hlutverk sitt í fyrstu Karate Kid-myndunum, er látinn. McQueen, sem var sonur stórleikarans Steve McQueen, varð 63 ára gamall.
„Ég er að koma undan stórkostlegu sumri þar sem ég eignaðist dóttur í júní og hef ég gefið mig alfarið á vald hennar og er núna akkúrat að hefja störf aftur eftir sumarfrí með henni,“ segir Níels Thibaud Girerd, leikari og leikstjóri. Hann segir lífið gott og skemmtilegt.