
Lífið

F1: The Movie frumsýnd í Egilshöll – sjáðu myndirnar
Það mátti heyra öskrið í vélunum og sjá hvíta tjaldið stjörnuprýtt á forsýningu F1: The Movie í Sambíóunum Egilshöll á miðvikudag.

Beckham á spítala
David Beckham hefur verið lagður inn á spítala af óþekktum ástæðum. Victoria Beckham birti mynd á samfélagsmiðlum af knattspyrnumanninum fyrrverandi í sjúkrarúmi með hægri handlegginn í fatla.

Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza
Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson og Guðlaug Elísa Jóhannsdóttir eru stödd saman í fríi ásamt börnum sínum tveimur á spænsku eyjunni Ibiza. Bæði hafa birt myndir frá dvölinni á samfélagsmiðlum.

Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar
Gunnar Smári Egilsson er eldhugi, hann býr yfir óvenju miklum sannfæringarkrafti. Hann er kjaftfor og lætur menn ekki eiga neitt inni hjá sér. Um það eru mörg dæmi, hann til að mynda hefur lent í heiftarlegum illdeilum við þá sem halda úti hægrisinnuðum hlaðvörpum, svo sem Stefán Einar Stefánsson.

Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur
Fimm ár eru síðan Eurovision myndin fræga með Will Ferrell í aðalhlutverki um Húsvíkinga sem kepptu í Eurovision fyrir Íslands hönd var frumsýnd. Myndin setti Húsavík á kortið á alþjóðavettvangi og enn í dag flykkjast Eurovision aðdáendur þangað að bera þorpið augum, og til að skoða Eurovision-safnið sem þar hefur risið.

Wintour víkur úr ritstjórastólnum eftir 37 ár
Breska tískudrottningin Anna Wintour mun stíga til hliðar sem ritstjóri tímaritsins American Vogue eftir 37 ár í starfi.

Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal
Það var líf og fjör í Laugardalnum í Reykjavík í dag þegar nokkur hundruð börn fóru í skrúðgöngu og fögnuðu Regnbogadeginum.

Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október
Íslensku sjónvarpsverðlaunin verða veitt í fyrsta sinn þann 30. október í Gamla bíói. Veitt verða verðlaun fyrir sjónvarpsefni sem var frumsýnt á Sýn, Sjónvarpi Símans og Rúv á árunum 2023 og 2024.

Djúsí maísstönglar frá BBQ kónginum
Næstu fimmtudaga mun BBQ kóngurinn, í samvinnu við Nathan & Olsen, færa lesendum Vísis girnilegar uppskriftir fyrir grillsumarið.

Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom
Poppsöngkonan Katy Perry og leikarinn Orlando Bloom eru hætt saman eftir margra ára samband ef marka má dægurmiðla vestanhafs. Síðustu vikur hafa borist reglulegar fréttir af erfiðleikum í sambandi þeirra.

Reykjalundur hlýtur alþjóðlega gæðavottun fyrir endurhæfingarþjónustu
Reykjalundur hefur fengið alþjóðlegu gæðavottunina CARF, sem staðfestir að stofnunin uppfylli ströng fagleg gæðaviðmið og vinni að stöðugum umbótum í starfseminni sem miði að því að auka gæði þjónustunnar við notendur.

Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond
Kanadíski leikstjórinn Denis Villeneuve mun leikstýra næstu mynd um breska spæjarann James Bond fyrir Amazon MGM Studios sem keyptu réttinn að seríunni í febrúar.

Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum
„Þetta var súrrealísk upplifun sem fór langt fram úr öllum væntingum,“ segir Ragnheiður Skúladóttir, betur þekkt sem Heiða. Hún skellti sér á mjög svo einstakan viðburð í Versölum fyrir utan París nú á dögunum.

Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir
Í sögufrægu húsi í hjarta Hafnarfjarðar, þar sem kaffihúsið Súfistinn var og hét í þrjátíu ár, rís nýr kaffibar að nafni Barbara. Eigandi segir Hafnfirðinga hrannast inn á staðinn, þar sem framkvæmdir standa enn yfir, til að segja sögur af húsinu og lýsa yfir þakklæti yfir að húsið öðlist nýtt líf.

Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum
Innipúkinn fer venju samkvæmt fram í Reykjavík um verslunarmannahelgina. Einvala lið tónlistarmanna kemur fram á hátíðinni, meðal annars Ragga Gísla og Hipsumhaps, Sigga Beinteins og Babies flokkurinn, Ásdís, Birnir, Bríet, Floni og Mugison.

Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi
„Að þurfa að taka ákvarðanir út frá fórnum, að vita að allt sem maður áður gat svo auðveldlega dregur dilk á eftir sér og skilur eftir feitan reikning sem þarf að borga í marga daga á eftir,“ segir Manuela Ósk Harðardóttir, framkvæmdastjóri Ungfrú Ísland, sem fékk heilablóðfall aðeins 39 ára gömul.

„Las þetta allt í drasl í gamla daga“
Norðlenskir krakkar sem elska ævintýri Tove Jansson mega heldur betur hlakka til því í Kjarnaskógi er verið að reisa Múmínskóg með öllu tilheyrandi. Framkvæmdastjóri skógræktarfélags Eyfirðinga segir hugmyndina hafa sprottið út frá síberíulerkinu, því trén eru heilt ævintýri í sjálfu sér.

Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur
Sjö manns sóttu um stöðu safnstjóra Listasafns Reykjavíkur sem auglýst var á dögunum. Einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.

Þorgerður brák grafin úr gleymsku
Í tilefni af Brákarhátíð, árlegri sumarhátíð Borgarbyggðar, hefur Jónný Hekla Hjaltadóttir gert stutta myndasögu í japönskum manga-stíl sem fjallar um Þorgerði brák, írskan þræl og fóstru Egils Skallagrímssonar, sem hátíðin heitir eftir.

„Þú gerir heiminn að betri stað“
Grammy-verðlaunahafinn og tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir sendi kærastanum sínum, Charlie Christie, stutta en afar einlæga kveðju á Instagram í tilefni afmælis hans í gær.

Stálu senunni í París
Menningarhöfuðborgin París iðar af tískulífi um þessar mundir og stærstu stjörnur heims láta sig ekki vanta á sjóðheitar sýningar tískurisa á borð við Louis Vuitton.

Ástin kviknaði á Humarhátíð
Söngkonan og Eurovision farinn Diljá Pétursdóttir fagnar tímamótum í dag þar sem hún og kærasti hennar Róbert Andri Drzymkowski hafa verið ástfangin í akkúrat tvö ár.

Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið
Rúrik Gíslason mætti með kærustu sinni Sóleyju Birnu Horcajada Guðmundsdóttur í brúðkaup hjá félaga sínum Sverri Inga Ingasyni og Hrefnu Dís Halldórsdóttur á dögunum. Þetta er fyrsta myndin sem næst af þeim opinberlega saman.

Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu
Hjónin Frosti Logason fjölmiðlamaður og Helga Gabríela Sigurðardóttir, kokkur og áhrifavaldur, hafa sett íbúð sína við Háaleitisbraut á sölu. Eignin er á efstu hæð í fjölbýlishús sem var byggt árið 1964. Ásett verð er 84,9 milljónir.

Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “
Leikarinn Aron Már Ólafsson, betur þekktur sem Aron Mola, er á leið á sína elleftu Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Aron var gestastjórnandi í morgunþættinum Brennslan á FM957 fyrr í vikunni þar sem hann deildi tíu ráðum um hvað skal gera og hvað ekki til þess að njóta hátíðarinnar sem best.

Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla
Jeff Bezos, einn ríkasti maður heims, hefur ákveðið að færa brúðkaupið sitt úr miðbæ Feneyja eftir mótmæli íbúa og loftslagsaðgerðasinna. Um tvö hundruð gestir hafa boðað komu sína, þar á meðal heimsfrægt fólk.

Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins
Materialists er rómantísk gamanmynd sem fjallar um ástarþríhyrning hjónabandsmiðlara, ríks fjárfestis og fátæks leikara. Myndina skortir þó tvennt: gamanið og rómantíkina. Eftir stendur mynd um grunnhyggið, óspennandi og leiðinlegt fólk.

Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu
Fyrsta fjölbragðaglímufélag Íslands er nú orðið að veruleika. Félagsmennirnir fimm stefna á sýningu í lok sumars og binda vonir við að skilja sterka arfleið eftir sig hér á landi.

„Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“
„Við Dalli erum ekki þekkt fyrir hálfkák svo við ákváðum snemma að taka dansinn alla leið og tókum Dirty Dancing,“ segir Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir. Hún og hennar heittelskaði Dalmar Ingi Daðason gengu í hjónaband núna í júní og vissu strax að þau vildu halda miðbæjarbrúðkaup. Sólin var heiðursgestur allan daginn og dagurinn algjörlega fullkominn.

Zendaya sást í miðbænum
Bandaríska kvikmyndastjarnan Zendaya sást á götum miðborgarinnar í dag en hún er hér á landi ásamt einvala liði Hollywood-stjarna við tökur á nýrri mynd Christopher Nolans, Ódysseifskviðu.