
Skoðun

Gera þarf skurk í búsetumálum eldri borgara
Eldri borgarar þurfa að geta notið lífsgæða og búið á heimilum sínum sem allra lengst. Til þess þarf nauðsynlega þjónustu, þ.e. heimilishjálp og heimahjúkrun. Þegar eldri borgarar með vistunarmat flytja í hjúkrunarrými má biðtími eftir slíku rými ekki verða óhæfilega langur.

„Ég hefði nú ekkert á móti því að taka aðeins í tæjuna“
Þegar ég var barn var ég örlítið dekkri á hörund en vinir mínir og hafði stundum með mér óvenjulegt nesti í skólann.

Vilt þú breytingu á stjórn landsins?
Á laugardaginn kjósum við okkur sextíu og þrjá einstaklinga til að setjast á Alþingi næstu fjögur árin, nýja forystu fyrir landið okkar.

Hugsjónir ójafnaðarmanns - svar við bréfi Kára
Kári, til mín rignir skilaboðum um að fleira þurfi ég ekki að aðhafast í kosningabaráttunni, því að verðmætasta stuðningsyfirlýsingin sé komin, umvöndunarpistill frá Kára Stefánssyni. Hver þarf óvini þegar maður á vini eins og þig?

Af hverju er nauðsyn að fá Sósíalista inn á þing og í næstu ríkisstjórn?
Vegna þess að Sósíalistaflokkurinn er með mannúðlegustu stefnuna í húsnæðismálum, sem felst meðal annars í því að öruggt og viðráðandi húsnæði á að vera ein af grunnstoðum velferðarkerfisins og sá markaður á ekki að vera leiksvæði fjársterkra braskara, sem hugsa um lítið annað en eigin hag.

Búsetufrelsi og lögheimilisskráning
Það illa falið leyndarmál að margir kjósa að búa í húsum sem kallast ýmist heilsárshús, frístundahús eða einfaldlega sumarbústaðir.

Rangfærslur og aðrar villur í umræðunni um Evrópusambandið
Formaður Heimssýnar, Haraldur Ólafsson skrifar rangfærslu grein um Evrópusambandið á vísir.is þann 24. nóvember 2024. Ég ætla að svara hverjum lið fyrir sig eins og hægt er og á eins einfaldan hátt og hægt er.

Geðveikir frasar – en það þarf að vera plan!
Mörgum er tíðrætt um geðheilbrigðismál í kosningum. Auðvelt er að slengja fram fullyrðingum um að bæta þurfi geðheilbrigðiskerfið á Íslandi.

Þarf Ábyrg framtíð 14,1% til að komast í kappræður Heimildarinnar?
Stærsta leyndarmál íslenskra stjórnmála í dag er að Ábyrg Framtíð býður aðeins fram í einu kjördæmi. Í könnun Prósent 22. nóvember fær Ábyrg Framtíð 0,7% fylgi á landsvísu.

Þess vegna er ég á lista VG í Suðurkjördæmi
Ég bjó í Noregi að mestu frá 1967 til vors 1979. Þar voru á því tímabili tveir flokkar vinstra megin í stjórnmálum, Arbeiderpartiet og Sosialastisk venstreparti.

Svínsleg mismunun gagnvart eldra fólki
Tugþúsundir eldri borgara hafa fengið bakreikning frá Tryggingastofnun á undanförnum árum vegna vanáætlaðra fjármagnstekna.

Hverjir myrða konur?
308 konur hafa verið myrtar í Danmörku frá aldamótum vegna kyns síns, það er 308 kvennamorð (e. femicide) hafa verið framin í Danmörku á 21. öldinni. Kvennamorð er kynbundið ofbeldi þar sem konur eða stúlkur eru myrtar vegna kyns síns.

„Það sé ykkur til fæðu“ - hugleiðing um jólamat
Ég hef lengi haft þessi skrif í kollinum því það er erfitt að sannfæra og rökstyðja við nokkurn mann orðið það sem mælir gegn neyslu kjötafurða, jafnvel þó kvalræði dýranna blasi við í öllum kjötkælum verslana þar sem þau liggja sundurbútuð í plastumbúðum skreyttum af flinkum hönnuðum svo þau rati í maga landsmanna.

Ferðafrelsið er dýrmætt
Ferðafrelsi er kannski ekki eitthvað sem menn alla jafna velta mikið fyrir sér frá degi til dags. Kannski vegna þess að okkur finnst það svo sjálfsagður hlutur. Að mega ferðast frjálsir um vegi og slóða um fjöll og fyrnindi umvafin náttúrunni við hvert fótmál.

Viðreisn er Samfylkingin
Fylgi flokka hefur verið á reiki undanfarnar vikur og mánuði, samkvæmt skoðanakönnunum, en einn flokkur hefur fengið mikinn byr í seglin undanfarið og mig langar að beina sjónum að honum: Viðreisn.

Mannúðleg innflytjendastefna
Það er óumdeilanlegt að innflytjendamál eru meðal helstu áskorana samtímans. Í heimi sem verður sífellt samtengdari, með fólksflutningum vegna stríðs, loftslagsbreytinga og efnahagslegra erfiðleika, er mikilvægt að við höfum stefnu sem er bæði skilvirk og mannúðleg.

Hvað er vandamálið á húsnæðismarkaðinum og hvernig leysum við það
Hann hefur ekki farið fram hjá kjósendum loforðaflaumur framboðanna þegar kemur að húsnæðismálum, „brjótum land, útrýmum lóðaskorti, einföldum byggingarreglugerð ...“ allt kunnugleg stef svona korteri fyrir kosningar.

Er heilbrigði besta lausnin?
Ég sá Áslaugu Örnu fyrst þegar hún kom með systur sína, Nínu, að borða á veitingastaðnum mínum Happ. Sennilega kom hún þangað þar sem aðgengi fyrir hjólastóla var gott og vonandi hefur henni líka þótt maturinn góður.

Samfylkingin hafnar einkavæðingu í skólakerfinu
Ísland er í fararbroddi meðal þjóða þegar kemur að jöfnuði í menntakerfinu. Félags- og efnahagslegir þættir hafa mun minni áhrif á námsárangur íslenskra barna en gengur og gerist í öðrum löndum. Þessi staða er ekki sjálfsögð; hún er ávöxtur kerfis sem hefur lagt áherslu á jafnt aðgengi að gæðum í menntun og traustan stuðning við öll börn, óháð bakgrunni þeirra.

Sjálfskaparvíti Samfylkingar og Viðreisnar
Það hefur verið erfitt að sitja á sér undanfarna daga þegar að frambjóðendur Samfylkingarinnar lofa betri tíð fyrir kjósendur með bættri efnahagsstjórn. Þar er rætt um að „negla niður verðbólgu og vexti“, eins og það sé einfalt verkefni.

Evrópudagur sjúkraliða
Evrópudagur sjúkraliða er í dag en hann er tilefni til að heiðra og viðurkenna mikilvægt framlag sjúkraliða um allan heim. Á þessum degi er kastljósinu beint að ómetanlegu starfi sjúkraliða við að veita umönnun, hjúkrun og stuðning við landsmenn alla.

Baráttan um Ísland og sjálfstæði þjóðar
Enn og aftur stöndum við frammi fyrir manngerðum hörmungum sem dynja yfir skuldsett heimili og leigumarkaðinn. Atburðarrás sem virðist vera hönnuð af gæslufólki fjármagns og sérhagsmuna til að komast yfir sem mest af eignum og tekjum almennings.

Alvöru aðgerðir í húsnæðismálum – x við V
Vinstri græn leggja höfuðáherslu á umbætur í húsnæðismálum fyrir ungt fólk fyrir þessar kosningar. Þótt ýmislegt hafi gengið vel á Íslandi, þá er einn hópur sem hefur setið eftir umfram aðra. Kaupmáttur fólks á aldrinum 30-39 ára hefur staðið í stað í tuttugu ár.

Er skynsemi Sigmundar Davíðs o.fl. skynsamleg?
Sigmundur Davíð boðar það, að Miðflokkurinn muni standa fyrir pólitík skynseminnar.

Ráðherrann
Ég þekki aðeins til geðhvarfasýki og annarra geðsjúkdóma úr bæði náminu mínu og eigin reynslu í lífinu.

Nándarhryðjuverk er mannréttindabrot sem fær lítil viðbrögð frá samfélaginu
Á Íslandi og víðar hefur hugtakið „heimilisofbeldi“ verið notað til að lýsa ofbeldi í nánum samböndum. Nýrra hugtak, „nándarhryðjuverk“ hefur risið upp til að lýsa alvarlegum afleiðingum þessa ofbeldis betur.

Willum Þór – fyrir konur
Í tíð Willums Þórs Þórssonar sem heilbrigðisráðherra hefur hann unnið markvisst að kvenheilsumálum, sem hafa oft verið vanrækt í heilbrigðisumræðunni. Þrátt fyrir að kvenheilsa sé grundvallaratriði í lýðheilsu hafa þessi mál ekki fengið þá athygli sem þau eiga skilið.

Af hverju kýs ég Samfylkinguna?
Við lifum á tímum áskorana þar sem mismunur á aðstæðum fólks getur haft djúpstæð áhrif á lífsgæði þess. Það er ekki nóg að bjóða upp á yfirborðskenndar lausnir eða frasa heldur er þörf á stefnu sem miðar að raunverulegum og varanlegum breytingum.

Uppeldi, færni til framtíðar - fór í skúffu stjórnvalda!
Mikilvægasta hlutverk okkar í lífinu er að ala upp komandi kynslóðir. Að uppalendur og þeir sem eiga samskipti við börn og unglinga reyni að vera góðar fyrirmyndir og kappkosti að eiga góð samskipti við þau, allt með því markmiði að þau þroskist og dafni svo þeim farnist sem best í lífi og starfi.

Við sem förum til Tenerife - Vaxta og húsnæðispyntingar á almenningi komið frá lífeyrissjóðum og leigufélögum
Lífeyrissjóðskerfið á Íslandi er hannað til að úthluta ákveðnum hluta tekna einstaklinga í eigin fjármögnun við starfslok. Þó að þetta kerfi sé ætlað til þess að stuðla að fjárhagslegu öryggi í framtíðinni, þá gerir þessi fjármögnun íbúum í raun þvert á móti erfitt fyrir í dag og fólk upplifir sig m.a þvingað til að borga frekar en að finna fyrir fjárhagslegu öryggi.