Á bak við heimilisleysi eru einstaklingar með sögu Viðar Gunnarsson skrifar 15. maí 2026 10:21 Í 45 ár hef ég starfað innan velferðarkerfisins. Ég hef hitt hundruð einstaklinga sem hafa glímt við erfið lífsskilyrði, áföll, fátækt og veikindi. En ekkert hefur snert mig jafn djúpt og vinna mín með heimilislausu fólki. Þegar fólk talar um heimilislausa heyri ég oft kaldhæðnisleg og niðrandi orð eins og: Rónar, fíklar, dópistar.Þessi orð segja meira um samfélagið okkar en fólkið sem þau beinast að. Í starfi mínu kynntist ég manni sem sendur var á milli fjölda fósturheimila alla sína æsku. Sem barn fékk hann aldrei öryggi, festu eða ást. Kerfið brást honum aftur og aftur. Þegar hann varð fullorðinn stóð hann einn í heiminum — án stuðningsnets, án fjölskyldu og án trausts til samfélagsins. Smám saman þróaðist vanlíðan, félagsleg einangrun og síðar vímuefnavandi. Að lokum endaði hann heimilislaus. Ekki vegna þess að hann valdi það, heldur vegna þess að samfélagið greip hann ekki þegar þurfti. Mér er minnisstæð kona sem varð fyrir endurteknu kynferðisofbeldi í æsku. Áföllin fylgdu henni inn í fullorðinsárin og hún glímdi árum saman við djúpan sársauka, skömm og sjálfsfyrirlitningu. Hún leitaði í vímuefni til að deyfa minningarnar og vanlíðanina. Hún eignaðist börn sem hún elskaði, en missti þau frá sér þegar neyslan tók yfir líf hennar. Á endanum missti hún heimili sitt. Þegar fólk sá hana á götunni sá það „dópista“. Færri sáu brotna manneskju sem hafði aldrei fengið þá hjálp sem hún þurfti eftir ofbeldið sem hún varð fyrir sem barn. Í starfi mínu kynntist ég manni sem veiktist af alvarlegum geðsjúkdómi um tvítugt. Lífið sem hann hafði ætlað sér og dreymdi um hrundi á svipstundu. Hann átti erfitt með að halda vinnu. Hann missti tengsl við vini og einangraðist smám saman. Til að reyna að róa hugann fór hann að nota vímuefni. Með tímanum missti hann bæði húsnæði og tengsl við fjölskyldu sína. Bak við heimilisleysið var veikur maður sem fékk ekki nægjanlega samfellda geðheilbrigðisþjónustu þegar mest á reyndi. Á bak við hvert heimilisleysi leynast áföll, fátækt, geðrænn vandi, ofbeldi eða alvarleg félagsleg einangrun. Og of oft mætir fólk síðan samfélagi sem svarar með fordómum, niðurskurði og endalausu tali um „einstaklingsábyrgð“. Það er auðvelt að predika um ábyrgð þegar maður hefur sjálfur alltaf haft heimili, öryggi og stuðning. Það er auðvelt að dæma fólk sem sefur úti þegar maður hefur aldrei upplifað að vera yfirgefinn af bæði fjölskyldu og kerfi. Húsnæði er ekki munaður fyrir útvalda.Húsnæði er mannréttindi. Ég vil borg sem lítur á húsnæði sem mannréttindi. Ég vil borg sem fjárfestir í félagslegum úrræðum og mannúð. Ég vil borg þar sem velferð er sameiginleg ábyrgð okkar allra.Ég vil borg sem mætir fólki með virðingu. Ég vel Vinstrið í komandi kosningum því að Vinstrið stendur fyrir öllu því sem ég vil sjá í minni borg, Reykjavík. Vöndum valið og veljum Vinstrið, setjum x við A. Höfundur skipar 13. sæti á lista Vinstrisins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar