

Höttur batt endi á fjögurra leikja taphrinu sína með mögnuðum endurkomusigri á Álftnesingum í kvöld. Eftir skelfilega byrjun komu Hattarmenn til baka með Obi Trotter fremstan í flokki en hann skoraði sautján stig í fjórða leikhluta.
Keflavík tók á móti Þór Þorlákshöfn í Bónus deild karla í kvöld þegar lokaumferðin fyrir jólafrí fór fram. Keflavík sýndi mátt sinn og megin og fór með sannfærandi nítján stiga sigur 105-86.
KR-ingar tóku á móti Grindvíkingum á Meistaravöllum í kvöld í jöfnum og spennandi leik, sem endaði með 120-112 sigri heimamanna eftir framlengingu.
Melsungen varð síðasta liðið til að tryggja sig áfram í undanúrslit þýsku bikarkeppninnar í handbolta, með 30-28 sigri gegn Flensburg í átta liða úrslitum.
Tveir leikir í Sambandsdeildinni hafa orðið fyrir töluverðum truflunum af völdum áhorfenda. Hlé var gert á leik Djurgården og Legia vegna blysa sem kastað var inn á völlinn og Christopher Nkunku, leikmaður Chelsea, átti erfitt með að taka hornspyrnu vegna klósettpappírskasts.
Guðjón Valur Sigurðsson og lærisveinar hans í Gummerbach eru úr leik í þýsku bikarkeppninni í handbolta eftir 36-33 tap á útivelli gegn Kiel í átta liða úrslitum.
„Það er fínt að koma þessu frá sér að tilkynna hópinn. Núna tekur við smá bið. Ég hlakka til að fá þá í hendurnar og byrja að æfa,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, sem kynnti leikmannahópinn sem keppir fyrir Íslands hönd á HM í Zagreb í janúar.
Eftir rúmlega tveggja ára söluferli hefur Farhad Moshiri loks losnað undan eignarhaldi á enska úrvalsdeildarfélaginu Everton. Bandaríkjamaðurinn Dan Friedkin hefur fest kaup á 99,5 prósenta hlut, sem talið er að hann greiði rúmar fjögur hundruð milljónir punda fyrir.
Ange Postecoglou, knattspyrnustjóri Tottenham, segir ekki sé til erfiðara starf en að vera fótboltaþjálfari, ekki einu sinni að vera forsætisráðherra.
Mathias Pogba hlaut í dag þriggja ára fangelsisdóm fyrir að kúga fé af yngri bróður sínum, franska fótboltamanninum Paul Pogba.
Nýliðaval MLS-deildarinnar í fótbolta í Bandaríkjunum fer fram á morgun. Búist er við því að Úlfur Ágúst Björnsson verði valinn snemma í nýliðavalinu.
Snæfríður Sól Jórunnardóttir og Anton Sveinn McKee eru sundfólk ársins 2024, en þetta tilkynnti Sundsamband Íslands í dag.
Thelma Dís Ágústsdóttir og Tryggvi Snær Hlinason hafa verið valin körfuknattleikskona og körfuknattleikskarl ársins 2024 af KKÍ. Þau hljóta nú nafnbótina í fyrsta sinn.
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari í handbolta, segir það í raun fínt að Ómar Ingi Magnússon sé ekki „spurningamerki“ fyrir heimsmeistaramótið í næsta mánuði. Meiðsli hans séu þannig að Snorri þurfti strax að finna leiðir til að spila án Ómars.
Snorri Steinn Guðjónsson tilkynnti í dag hvaða leikmenn fara fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramót karla í handbolta í næsta mánuði.
Strákarnir okkar hefja keppni á HM í handbolta í Zagreb 16. janúar. Snorri Steinn Guðjónsson tilkynnti í dag hvaða leikmenn verða í HM-hópnum, í beinni útsendingu á Vísi.
Víkingar þurfa stig gegn LASK í Austurríki í kvöld til þess að þurfa ekki að treysta á nein önnur úrslit, í lokaumferð deildarkeppni Sambandsdeildarinnar í fótbolta. Þeir eiga þó ágæta von um að komast á næsta stig keppninnar.
Víðir Sigurðsson hefur gefið út bókina Íslensk knattspyrna 2024 en þetta er 44. bókin í bókaflokknum og hefur Víðir komið að 43 þeirra.
Freyr Alexandersson, fráfarandi þjálfari fótboltaliðs Kortrijk í Belgíu, er brattur þrátt fyrir uppsögn í vikunni. Hann hefur ekki heyrt frá KSÍ varðandi landsliðsþjálfarastarfið en mun taka upp tólið, komi símtalið.
NBA-liðið Charlotte Hornets hefur beðist afsökunar á að hafa gefið ungum stuðningsmanni PlayStation 5 leikjatölu en tekið hana síðan til baka.
Ástralski pílukastarinn Gordon Mathers keppti í gær í fyrsta sinn á HM í þrjú ár. Hann hefur breyst talsvert á þeim tíma.
Þorvaldur Örlygsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, gerir ráð fyrir að nýr landsliðsþjálfari verði ekki ráðinn fyrr en eftir áramót. Enn eigi eftir að boða kandídata í viðtöl.
Nú er orðið ljóst hver mun aka fyrir Red Bull liðið ásamt heimsmeistaranum Max Verstappen, eftir að ákveðið var að reka Sergio Perez.
Ruben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, hefði kosið að Marcus Rashford hefði rætt við sig áður en hann fór í viðtal þar sem hann sagðist vera tilbúinn fyrir nýja áskorun.
Mike Rogers er 71 árs gamall maður frá Texas fylki í Bandaríkjunum en hann er enginn meðalmaður.
Einkar sigursælum ferli Þóris Hergeirssonar með norska kvennalandsliðið í handbolta lauk með Evróputitli á sunnudaginn var. Framtíðin er óljós en hann skilur sáttur eftir 23 ára starf fyrir norska handknattleikssambandið.
Christian Kist varð sá fyrsti á HM í pílukasti 2025 til að ná níu pílna leik. Þrátt fyrir það tapaði hann viðureign sinni gegn Madars Razma.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er á leiðinni á sitt fimmta Evrópumót í röð næsta sumar en það verður mikill munur á einu frá Evrópumótinu fyrir fjórum árum síðan.
Það er mikið um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag og kvöld eins og vanalega á fimmtudögum.
Sádi-arabíska félagið Al Nassr gerði ekki upp á milli leikmanna sinna þegar félagið úthlutaði jólagjöfum sínum í ár. Það kostaði líka sitt.