Sport

Tapaði fyrir Þóri í úrslitaleik EM og er líka hættur
Jesper Jensen hefur ákveðið að hætta sem þjálfari danska kvennalandsliðsins í handbolta. Danska handboltasambandið segist vera mjög vonsvikið með ákvörðun þjálfarans.

Lið Jóhanns Berg kært til FIFA
Forráðamenn velska liðsins New Saints hafa lagt inn formlega kvörtun til Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, vegna sádiarabíska liðsins Al-Orobah. Síðarnefnda liðið skuldi því velska rúmar 30 milljónir.

Kylfurnar eftir í Amsterdam en Gunnlaugur nýtur sín meðal þeirra bestu
„Það er mikill heiður að vera valinn til að spila fyrir land og heimsálfu, og ég er mjög þakklátur fyrir það,“ segir Gunnlaugur Árni Sveinsson, landsliðskylfingur úr GKG og einn aðeins tólf liðsmanna úrvalsliðs Evrópu í Bonallack-bikarnum í golfi. Það gekk ekki áfallalaust hjá honum að komast á mótið.

Rekinn frá West Ham og Potter að taka við
Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hefur rekið Julen Lopetegui úr starfi knattspyrnustjóra og nýr maður er að taka við.

Ronaldo hvetur Al-Nassr til að kaupa Casemiro
Cristiano Ronaldo hefur hvatt lið sitt, Al-Nassr, til að kaupa sinn gamla samherja, Casemiro.

Reynir að halda fókus á meðan Snorri gasar
Bjarki Már Elísson var nokkuð hress þrátt fyrir örlitla þreytu fyrir landsliðsæfingu handboltalandsliðsins í gærmorgun. Hann er klár í slaginn fyrir komandi heimsmeistaramót.

Æfur yfir sniðgöngunni: „Að mínu mati er þetta skandall“
Belginn Mike De Decker er æfur yfir því að gengið hafi verið framhjá honum í vali á keppendum fyrir úrvalsdeildina í pílukasti.

Sjóðheitur Gunnlaugur tryggði Evrópu einn sigur
Gunnlaugur Árni Sveinsson, landsliðskylfingur úr GKG, braut blað í íslenskri golfsögu í dag þegar hann keppti í Bonallack-bikarnum fyrir hönd Evrópu. Hann stóð sig frábærlega í fjórbolta og átti heiður að einu stigi fyrir Evrópuliðið.

Zidane líklegastur til að taka við af Deschamps
Didier Deschamps hefur nú staðfest að hann muni hætta sem landsliðsþjálfari Frakka í fótbolta eftir HM í Ameríku á næsta ári. Zinedine Zidane þykir líklegasti arftaki hans.

Mikið áfall fyrir Eyjakonur
Sennilegt þykir að markvörðurinn frábæri Marta Wawrzynkowska hafi þegar spilað sinn síðasta leik fyrir ÍBV á þessari leiktíð, í Olís-deild kvenna í handbolta.

Fóru í leikinn Hvar spilar hann?
Í síðasta þætti af Körfuboltakvöldi Extra spreyttu þeir Hörður Unnsteinsson og Tómas Steindórsson sig í liðnum Hvar spilar hann?

Skoraði ótrúlega sigurkörfu fyrir aftan miðju
Trae Young var hetja Atlanta Hawks þegar liðið vann Utah Jazz, 121-124, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Hann skoraði sigurkörfu Haukanna með skoti fyrir aftan miðju.

Gamli landsliðsmarkvörðurinn í íslenska teymið
Roland Valur Eradze verður markvarðaþjálfari íslenska karlalandsliðsins á komandi heimsmeistaramóti í handbolta. Hann snýr aftur í stöðuna eftir að hafa gegnt henni í þjálfaratíð Geirs Sveinssonar.

Rosický gæti snúið aftur til Arsenal
Tomás Rosický þykir líklegastur til að verða næsti íþróttastjóri Arsenal. Hann þekkir vel til hjá félaginu.

Situr inni með morðingjum og misyndismönnum í fangelsi hinna frægu
Fyrrverandi fótboltastjarnan Robinho situr nú í fangelsi í Brasilíu. Í fyrra hlaut hann níu ára dóm fyrir nauðgun.

Hjörtur þriðji úr vörn landsliðsins í Grikklandi
Eftir þrjú og hálft ár á Ítalíu er landsliðsmaðurinn Hjörtur Hermannsson mættur til Grikklands og orðinn leikmaður Volos.

Sjáðu mörk Newcastle gegn Arsenal
Newcastle vann góðan 2-0 útisigur á Arsenal í fyrri undanúrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum í gærkvöld. Alexander Isak, sem var orðaður við Skytturnar í sumar, átti þátt í báðum mörkum gestanna.

„Jafnvel Salah væri í vandræðum hjá Tottenham“
Ange Postecoglou, knattspyrnustjóri Tottenham, segir að ástandið hjá liðinu sé svo slæmt að jafnvel Mohamed Salah, markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildinni, ætti erfitt uppdráttar hjá því.

Kennir boltanum um slaka færanýtingu Arsenal
Knattspyrnustjóri Arsenal, Mikel Arteta, telur að boltinn sem er notaður í enska deildabikarnum hafi haft áhrif á færanýtingu liðsins gegn Newcastle United.

Valdi Ísland ekki Danmörku: „Snerist um hvað mig langaði mest að gera“
Emilía Kiær Ásgeirsdóttur segir það hafa verið lúxusvandamál að þurfa að velja á milli íslenska og danska landsliðsins í fótbolta. Á endanum valdi hún Ísland og dreymir um að komast á stórmót með liðinu í sumar.

Öskraði í miðju vítaskoti
Hörður Unnsteinsson var gestur vikunnar í Körfuboltakvöldi Extra á Stöð 2 Sport í gærkvöldi. Eins og vanalega var farið í dagskrárliðinn Góð vika/ slæm vika enda var 12. umferðin viðburðaríki í Bónusdeildinni.

„Á örugglega eftir að sjá eftir því á einhverjum tímapunkti“
Hvernig fer maður að því að vinna til 17 verðlauna á stórmótum á 15 árum? Fáir þekkja slíka velgengni en Þórir Hergeirsson gerir það svo sannarlega. Nokkrir þættir þurfa að vera til staðar.

„Maður fær bara hnút í magann að koma hingað inn“
Bræðurnir Jóhann Þór og Ólafur Ólafssynir eru allt í öllu í karlaliði Grindavíkur í körfuboltanum. Jóhann þjálfar liðið og Ólafur er fyrirliði liðsins. Þegar Grindvíkingar þurftu að flýja bæinn sinn á síðasta tímabili þá reyndi mjög mikið á þá tvo við að halda liðinu gangandi.

Dagskráin: Undanúrslit hjá Liverpool og Körfuboltakvöld kvenna
Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á miðvikudögum.

Hentu yfir hundrað þúsund böngsum inn á völlinn
Nýtt glæsilegt heimsmet var sett í árlegum bangsaleik bandaríska íshokkíliðsins Hershey Bears.

Man United goðsögnin mjög ósátt: Hafa ekki gert neitt jákvætt
Paul Scholes, fyrrum miðjumaður Manchester United og ellefufaldur Englandsmeistari með félaginu, er vægast ósáttur með innkomu Sir Jim Ratcliffe og INEOS fyrirtækisins inn í eigandahóp félagsins.

„Kannski bara ágætt að tapa einum og ná jarðtengingu“
Tindastólskonur máttu sætta sig við tap í kvöld þegar liðið sótti Val heim í Bónus-deild kvenna. Fyrir leikinn hafði Tindastóll unnið fimm leiki í röð en leikmenn liðsins voru hreinlega eins og skugginn af sjálfum sér á löngum köflum í kvöld.

Deschamps hættir með Frakka eftir HM 2026
Didier Deschamps mun samkvæmt erlendum fréttamiðlum hætta sem þjálfari franska karlalandsliðsins í fótbolta eftir heimsmeistarakeppnina sumarið 2026.

Uppgjörið: Valur - Tindastóll 73-64 | Valskonur kældu Stólana niður
Valskonur tóku á móti einu heitasta liði landsins í N1-höllinni í kvöld en nýliðar Tindastóls voru búnir að vinna fimm leiki í röð fyrir þennan. Það var þó ekki að sjá á leik liðsins að þessu sinni að hér væri á ferðinni sjóðheitt lið.

Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Haukar 75-82 | Haukakonur juku forskotið
Haukakonur sóttu tvö stig í nýju Ljónagryfjuna í kvöld eftir sjö stiga sigur á heimaskonum í Njarðvík í toppslag deildarinnar.