Appelsínugul viðvörun á morgun Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun á Austurlandi vegna norðaustan hríðar sem tekur gildi klukkan eitt á morgun, mánudaginn 2. mars. Gular viðvaranir vegna veðurs hafa sömuleiðis verið gefnar út fyrir Norðurland eystra, Austfirði, Miðhálendi og Suðausturland. Veður 1.3.2026 11:32
Vara við stórhríð á Austurlandi Varað við miklum vindi og snjókomu á norðaustanverðu landinu eftir hádegi á morgun. Veður 1.3.2026 10:08
Snjókoma víða en bjart sunnan heiða Þó að búast megi við snjókomu með köflum austanlands í dag, og jafnvel lítilsháttar éljum norðan til, verður að mestu bjart sunnan heiða. Aftur á móti eru frosttölur á bilinu 0 til 10 stig í kortunum víða um landið. Veður 1.3.2026 07:36
Snýst í norðanátt og snarpar hviður austantil Eftir sunnanáttina í gær þá snýst í norðan- og norðvestanátt í dag og verður vindur víða á bilinu 8 til 15 metrar á sekúndu en 13 til 20 með snörpum hviðum á Austfjörðum undir kvöld. Veður 24.2.2026 07:12
Útlit fyrir lægðagang og umhleypinga Veðurstofan segir að næstu daga sé útlit fyrir lægðagang og umhleypingasamt veður, en grunn lægð fyrir vestan land mun stjórna veðrinu í dag. Veður 23.2.2026 07:10
Hvöss austanátt fylgir alldjúpri lægð í dag Í dag er spáð austan fimm til þrettán metrum á sekúndu en þrettán til tuttugu syðst. Gul viðvörun er enn í gildi til hádegis á Suðurlandi og Suðausturlandi vegna hvassviðris og hríðar. Alldjúp lægð fer austur fyrir sunnan land í dag. Henni fylgir hvöss austanátt við suðurströndina en kaldi eða strekkingur annars staðar. Veður 22.2.2026 08:03
Gul veðurviðvörun á Suðausturlandi Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun á Suðausturlandi. Hún tekur gildi klukkan sex. Veður 21.2.2026 13:07
Hitinn að skríða yfir frostmark sunnan heiða Hægt vaxandi austanátt er ríkjandi í dag með stöku éljum austanlands og við suðurströndina en skýjað með köflum og þurrt í öðrum landshlutum. Frost á bilinu 2 til 12 stig en dregur úr því seinnipartinn. Veður 21.2.2026 07:29
Herðir á frosti í kvöld Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt í dag, þremur til átta metrum á sekúndu en eitthvað hvassara austast á landinu. Veður 20.2.2026 07:14
Él og snjókoma norðan- og austantil Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlæg átt í dag, fimm til þrettán metrum á sekúndu, en aðeins hvassara á Suðausturlandi. Veður 19.2.2026 07:06
Snjókoman náði ekki yfir Hellisheiðina Ekkert hefur snjóað á höfuðborgarsvæðinu eins og spáð hafði verið. Veðurfræðingur segir að litlu hafi munað, aðeins fjórum eða fimm kílómetrum, að snjókoman næði þangað. Gul viðvörun er á Suður- og Suðausturlandi en snjórinn léttur og festist illa. Veður 18.2.2026 07:27
Útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hægri norðanátt og dálitlum éljum norðanlands í dag. Spáð er hægt vaxandi austan- og norðaustanátt og mun þykkna upp vestanlands. Veður 17.2.2026 07:10
Draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga Hæð yfir Grænlandi og lægðir vestur af Noregi halda áfram að draga kalt heimskautaloft yfir landið næstu daga. Gera má ráð fyrir frosti þremur til átján stig í dag þar sem kaldast verður inn til landsins. Veður 16.2.2026 07:06
Vara við snörpum vindhviðum Veðurstofa Íslands varaði í dag við snörpum vindhviðum á Austanverðu og Suðaustanveður landinu í dag og á morgun, en viðvörunin hefur nú verið fjarlægð. Veður 15.2.2026 18:03
Köldu heimskautalofti enn beint til landsins Hæð yfir Grænlandi og lægðasvæði við Noreg beina enn köldu heimskautalofti til landsins. Áttin er því norðlæg eða breytileg en vindur verður þó ekki tiltakanlega mikill í dag, þar sem víða má reikna með golu eða kalda. Veður 13.2.2026 07:11
Kaldri norðlægri átt beint til landsins Hæð yfir Grænlandi og lægðasvæði við vesturströnd Noregs beina kaldri norðlægri átt til landsins í dag þar sem yfirleitt verður fremur hægur vindur en strekkingur austast fram á kvöld. Veður 12.2.2026 07:10
Dálítil él norðan- og austantil en annars bjart að mestu Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði norðaustan átta til þrettán metrar á sekúndu með dálitlum éljum á norðan- og austanverðu landinu. Annars verður bjart að mestu á landinu. Veður 11.2.2026 07:08
Dregur úr vindi og kólnar í kvöld Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustan tíu til átján metrum á sekúndu í dag þar sem hvassast verður á Vestfjörðum og við suðurströndina. Veður 10.2.2026 07:05
Vindasamt víða á landinu Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustlægri átt, yfirleitt strekkingi eða allhvössum vindur en sums staðar hvassviðri á norðvesturhluta landsins. Veður 9.2.2026 07:07
Áfram léttskýjað á Suðvesturhorninu Áfram er að mestu léttskýjað sunnan- og suðvestanlands en víða annars staðar á landinu er spáð éljakomu. Eftir hádegi tekur að hvessa á Vestfjörðum. Veður 8.2.2026 07:54
Éljagangur og slabb í kortunum Veðurstofa Íslands spáir austlægri eða breytilegri átt, þrír til tíu metrar á sekúndu. Á Norðaustur- og Austurlandi er spáð éljagangi en rigningu og slyddu á Vestfjörðum. Veður 7.2.2026 07:54
Skil að ganga yfir landið með tilheyrandi úrkomu Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hægum austlægum áttum yfir landinu í dag, en að það verði strekkingur með suðurströndinni. Veður 6.2.2026 07:08
Ekkert lát á austlægum áttum Ekkert lát virðist vera á áframhaldandi austlægum áttum næstu daga og gerir Veðurstofan ráð fyrir að víða verði stinningsgola eða kaldi í dag. Allhvasst eða hvasst verður með suðurströndinni og þá nálgast úrkomubakki úr suðaustri. Veður 5.2.2026 07:09
Allhvass vindur og svalari en síðustu daga Lægðasvæði suður í hafi og hæð fyrir norðan land beina enn austlægri átt til landsins. Víða verður gola eða kaldi í dag en allhvass vindur syðst á landinu. Veður 4.2.2026 07:14