
Viðskipti erlent

Ekkert lát á verðhækkunum á olíu
Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka og er tunnan af Brent olíunni komin í tæpa 106 dollara og hefur hækkað um 2 dollara síðan í gærdag. Samsvarandi hækkanir hafa orðið á bandarísku léttolíunni sem nú er komin aftur yfir 90 dollara á tunnuna.

Notendum Facebook fækkar
Notendum samskiptasíðunnar Facebook hefur fækkað í Bandaríkjunum og Evrópu á síðustu mánuðum. Þetta kemur fram í rannsóknarniðurstöðum greiningarfyrirtækisins Capstone Investments.

Næsti iPhone með nýja tengibraut - aukahlutir úreltir
Tæknirisinn Apple hefur tryggt sér einkaleyfi á nýrri tengibraut fyrir jaðartæki og snjallsíma. Talið er að nýjasta útgáfa iPhone snjallsímans verði búin tenginu. Það þýðir að flest allir aukahlutir sem fólk hefur keypt hingað til verða úreltir.

Sikiley rambar á barmi gjaldþrots
Ítalska eyjan Sikiley rambar nú á barmi gjaldþrots. Ef stjórnvöld á Ítalíu grípa ekki inn í og reyna að koma skikki á gerspillt og lítt virkt stjórnkerfi Sikileyjar lendir eyjan í greiðslustöðvun í náinni framtíð.

Olíuverðið fer aftur hækkandi
Heimsmarkaðsverð á olíu fer hækkandi aftur og hefur ekki verið hærra síðustu sjö vikur. Tunnan af Brent olíunni er komin í tæpa 104 dollara og tunnan af bandarísku létttolíunni er komin í tæpa 90 dollara.

Enn eitt gott uppgjör hjá Nordea
Stórbankinn Nordea er sá banki á Norðurlöndunum sem hvað best hefur siglt í gegnum fjármálakreppuna.

Lögreglurannsókn hafin á peningaþvætti HSBC
Lögreglurannsókn er hafin í Bandaríkjunum á starfsemi HSBC stærsta banka Evrópu. Svo virðist sem glæpamenn hafi átt greiðan aðgang að viðskiptum í bankanum.

Office 2013 opinberað
Nýjasta útgáfa Office hugbúnaðarpakkans verður sérsniðin að spjaldtölvum og snertiskjám. Loks verður hægt að vinna með PDF-skjöl að einhverju ráði en útlit og notendaviðmót uppfærslunnar tekur mið af Windows 8, væntanlegu stýrikerfi Microsoft.

Manchester United ennþá verðmætasta lið heimsins
Þrátt fyrir magurt tímabil á síðasta vetri er enska fótboltaliðið Manchester United enn verðmætasta íþróttalið heimsins.

Hlutabréf í Facebook aftur í frjálsu falli
Ekkert lát er á hremmingum eigenda Facebook hlutabréfa en þau voru nánast í frjálsu falli á Nasdag markaðinum í New York í gærkvöldi.

Stærsti banki Evrópu í peningaþvætti fyrir fíkniefnagengi í Mexíkó
HSBC stærsti banki Evrópu stundaði peningaþvætti um allan heiminn og þar á meðal fyrir stærstu fíkniefnagengin í Mexíkó.

Nýr forstjóri Yahoo!
Enn á ný hafa orðið mannabreytingar í stjórn tæknifyrirtækisins Yahoo! Nýjasti forstjóri fyrirtækisins er Marissa Mayer en hún var áður háttsettur stjórnandi hjá Google, helsta samkeppnisaðila Yahoo!

Nexus 7 fær glimrandi viðtökur
Nýjasta spjaldtölva Google, Nexus 7, er uppseld víðast hvar í Bandaríkjunum. Tölvan var opinberuð á I/O tækniráðstefnunni í síðasta mánuði en hún er knúin af nýrri útgáfu Android stýrikerfisins, Jelly Bean.

Fasteignabóla ógnar norska hagkerfinu
Vaxandi fasteignabóla er orðin ógn við efnahagsstöðugleikann í Noregi. Norðmenn hafa ekki tekið fleiri lán til íbúðakaupa síðan árið 2008.

Telja svindlað með olíuverðið svipað og Libor vextina
Alþjóðasamtök fjármálaeftirlita (IOSCO) telja að svipað svindl sé í gangi með heimsmarkaðsverð á olíu og átt hefur sér stað með Libor vextina.

Danir borða hollari mat í kreppunni
Kreppan hefur gert það að verkum að Danir borða nú mun hollari mat en þeir gerðu áður en kreppan skall á árið 2008.

Ákærur vegna Libor-hneykslisins í farvatninu
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna er að undirbúa málaferli gegn fjármálastofnunum og starfsmönnum þeirra vegna LIBOR-hneykslisins. Meira en 10 stórir bankar í Bandaríkjunum og Bretlandi eru í skotlínunni. Frá þessu er greint í fréttum The New York Times.

BlackBerry í andarslitrunum
BlackBerry snjallsímarnir mega muna sinn fífil fegurri en fyrir um fjórum árum voru þeir heitasta græjan á markaði. Í dag eru þeir "á dánarbeðinu" að mati fjárfesta.

Tekjuhæstu ungstjörnur veraldar
Breska söngkonan Adele þénaði rúmlega 35 milljónir dollara á síðasta ári, eða það sem nemur 4.5 milljörðum króna. Adele er þó aðeins hálfdrættingur á við við launahæstu ungstjörnu veraldar.

Tveggja turna tal á snjallsímamarkaði
Tveir af hverjum þremur farsímum sem seldir eru í Bandaríkjunum eru snjallsímar. Þetta kemur fram í reglubundnu yfirliti greiningarfyrirtækisins Nielsen sem tekur saman upplýsingar um snjallsímanotkun Bandaríkjamanna.

Gammel Dansk er komið í norska eigu
Hinn þekkti danski snaps Gammel Dansk er kominn í norska eigu. Eins og raunar aðrir danskir eðalsnapsar eins og Álaborgar ákavíti og Bröndum.

Digg seld keppinauti sínum
Eigendaskipti hafa orðið á einni vinsælustu vefsíðu veraldar, fréttasíunni Digg, en bandaríska fyrirtækið Betaworks hefur nú tryggt sér eignarrétt á léni, kóða og þar með umferð um síðuna.

Kaup Watson á Actavis skoðuð nánar
Bandaríska samkeppniseftirlitið hefur óskað eftir nánari upplýsingum á kaupum Watson lyfjafyrirtækisins á Actavis í apríl s.l.

Danir spara sér þúsundir milljarða á að vera utan evrunnar
Danskir hagfræðingar hafa reiknað það út að Danir hafi sparað sér þúsundir milljarða króna með því að halda sig fyrir utan evruna.

Moody´s lækkar lánshæfiseinkunn Ítalíu
Matsfyrirtækið Moody´s hefur lækkað lánshæfiseinkunn Ítalíu niður í A3 og er einkunnin þar með aðeins tveimur stigum frá ruslflokki í bókum Moody´s. Þar að auki er einkunnin með neikvæðum horfum.

Töluvert hægari hagvöxtur í Kína
Töluvert hefur hægt á hagvexti Kína en hann mældist 7,6% á öðrum ársfjórðungi ársins. Hefur hagvöxtur ekki verið minni þar í landi s.l. þrjú ár.

Útlit fyrir að nýja Batman myndin slái öll sölumet
Allt útlit er fyrir að nýjasta Batman myndin muni slá öll sölumet þegar hún verður frumsýnd um næstu mánaðarmót.

Peugeot Citroen sker niður 8.000 störf
Franski bílaframleiðandinn Peugeot Citroen hefur boðað mikinn niðurskurð á næstu mánuðum og árum.

Grikkir uppfylla ekki skilyrði IMF
Yfirvöldum í Grikklandi hefur ekki tekist að uppfylla skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins fyrir fjárhagsaðstoð. Stjórnvöld í landinu hafa farið fram á að breytingar verði gerðar á skilyrðunum en talsmaður IMF sagði að slíkar hugleiðingar væru ótímabærar.

Gengi Groupon nær nýjum lægðum
Virði hlutabréfa í tilboðasíðunni Groupon féll um 6.5 prósent í gær og var gengi félagsins skráð á 7.77 dollara þegar Kauphöllin í New York lokaði fyrir viðskipti. Við skráningu var stakur hlutur í síðunni metinn á 20 dollara.