Viðskipti erlent

Bezos ætlar að leggja milljarða í baráttuna gegn loftslagsbreytingum
Amazon hefur legið undir gagnrýni fyrir að vanrækja loftslagsmál en stofnandi fyrirtækisins hefur nú ákveðið að styrkja málefnið um á annað þúsund milljarða íslenskra króna.

Kielsen kynnti olíukóngum Texas útboð Grænlendinga
Grænlensk stjórnvöld hafa kynnt áætlun um að bjóða út olíuleit á fimm svæðum á næstu tveimur árum, þar á meðal á tveimur við Austur-Grænland, þeirri hlið sem snýr að Íslandi.

Stórt bandarískt fjölmiðlafyrirtæki í fjárhagskröggum
Útgefandinn McClatchy, sem rekur 30 dagblöð í fjórtán ríkjum Bandaríkjanna, hefur sótt um gjaldþrotsvernd.

Rannsaka tengsl forstjóra Barclays við Jeffrey Epstein
Breska fjármálaeftirlitið er sagt rannsaka hvort forstjóri Barclays hafi sagt allan sannleikann um samand hans við bandaríska fjármálamanninn sem var sakaður um mansal og kynferðisofbeldi.

„Hvað er sannarlega skandinavískt? Ekkert“
Norræna flugfélagið SAS hefur tekið nýlega auglýsingu sína úr birtingu eftir að auglýsingin var harðlega gagnrýnd.

Heimsins stærstu farsímasýningu aflýst vegna Covid19-veirunnar
Skipuleggjendur Mobile World Congress, stærstu farsímasýningar heimsins, hafa ákveðið að aflýsa sýningunni vegna Covid19-veirunnar, nýju kórónaveirunnar sem greindist fyrst í kínversku borginni Wuhan.

Starfsfólk Isal í tvöföldu áfalli vegna mögulegrar lokunar og kjarasamninga
Starfsfólk Isal er slegið yfir fréttum af mögulegri lokun álversins í Straumsvík og segir áfallið tvöfalt þar sem eigendur hafi stoppað undirritun kjarasamninga.

Hluti af ákærum á hendur stofnanda Theranos felldur niður
Stjórnendur nýsköpunarfyrirtækisins umdeilda sæta enn ákæra fyrir svik í tengslum við blóðprufubúnað.

Samsung opinberaði nýjan samanbrjótanlegan síma
Starfsmenn Samsung kynntu í gær nýjan síma frá fyrirtækinu sem hægt er að brjóta saman.

Óvænt frumsýning Samsung á Óskarnum
Samsung kynnti óvænt nýjan síma í auglýsingahléi Óskarsverðlaunahátíðarinnar. Síminn hefur ekki verið kynntur formlega en hann er samanbrotinn og minnir einna helst á lítið peningaveski.

Ákæra Kínverja vegna meiriháttar gagnastulds frá Equifax
Fjórir liðsmenn kínverska hersins eru sakaðir um að hafa staðið að stuldi á persónuupplýsingum um nærri því helming bandarísku þjóðarinnar.

Madoff segist við dauðans dyr og leitar lausnar
Bandaríski fjársvikarinn Bernie Madoff er sagður eiga innan við átján mánuði eftir ólifaða vegna nýrnasjúkdóms.

Hraðamet slegið í Atlantshafsflugi vegna óveðursins Ciara
Vél British Airways, sem tók á loft frá JFK-flugvelli í New York á laugardag og lenti á Heathrow í London, var einungis fjórar klukkustundir og 56 mínútur á leiðinni.

Apple sektað fyrir að hægja á símum
Tæknirisinn Apple hefur verið sektaður um 25 milljónir evra, sem samsvarar tæplega þremur og hálfum milljörðum íslenskra króna, af franska samkeppniseftirlitinu.

Viaplay hirðir enska boltann af TV2
Norræna fjölmiðlafyrirtækið Nordic Entertainment Group (NENT), sem gerir út streymisveituna Viaplay, hefur öðlast sýningarréttinn að ensku úrvalsdeildinni í Noregi, Finnlandi, Svíþjóð og Danmörku árin 2022 til 2028.

Vodafone ver 200 milljónum evra í að fjarlægja Huawei-búnað
Fjarskiptafyrirtækið Vodafone hefur í hyggju að fjarlægja íhluti frá kínverska tæknirisanum Huawei úr kjörnum fjarskiptaneta sinna í Evrópu.

Banna misvísandi kosningaáróður á Youtube
Bannað verður að dreifa röngum upplýsingum um framkvæmd kosninga í Bandaríkjunum, villa á sér heimildir og dreifa ósannindum um kjörgengi eða ríkisborgararétt frambjóðenda.

Olíuverð lækkaði töluvert á mörkuðum
Olíuverð á heimsmörkuðum lækkaði töluvert á mörkuðum í gær og hefur ekki verið lægra í heilt ár.

Johnson segir Breta ekki þurfa að samræma sig evrópskum reglum
Viðræður á milli Bretlands og Evrópusambandsins um viðskiptasamband þeirra eiga að hefjast í næstu viku.

Annar Samherjatogari sagður hafa yfirgefið Namibíu
Geysir, einn af togurum Samherja sem veitt hefur við strendur Namibíu, er sagður hafa yfirgefið Namibíu, án þess að áhöfn skipsins hafi fengið skýringar.

WorldCom-forstjórinn látinn
Bernard Ebbers hlaut 25 ára fangelsisdóm fyrir sinn þátt í umfangsmesta bókhaldssvikamáli í Bandaríkjunum.

SAS stöðvar ferðir til Kína
Norræna flugfélagið SAS hefur ákveðið að aflýsa öllum flugferðum félagsins til og frá Kína fram til 9. febrúar hið minnsta.

Nafnið Greta Thunberg verður skrásett vörumerki
Greta Thunberg hefur sóst eftir að skrásetja nafnið sitt og fleira sem vörumerki. Segir hún það nauðsynlegt til að "vernda hreyfinguna“ og koma í veg fyrir að hún verði misnotuð í viðskiptalegum tilgangi.

IKEA lokar öllum verslunum sínum á meginlandi Kína
Sænski verslunarrisinn IKEA hefur ákveðið að loka öllum verslunum sínum á meginlandi Kína vegna útbreiðslu Wuhan-veirunnar.

Breska ríkisútvarpið fækkar störfum fréttastofunnar um 450
Breska ríkisútvarpið BBC tilkynnti í hádeginu að stjórnendur hygðust ráðast í umfangsmiklar skipulagsbreytingar og niðurskurð og verða 450 stöðugildi lögð niður til að hagræða í rekstrinum.

Boeing tapar milljörðum á milljarða ofan
Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1997 sem Boeing skilar ekki hagnaði.

Airbus semur um 500 milljarða sekt vegna mútugreiðslna
Samkomulag hefur náðst í viðræðum Airbus við bresk, frönsk og bandarísk yfirvöld. Dómstólar eiga enn eftir að leggja blessun sína yfir samkomulagið.

BA aflýsir ferðum og Starbucks lokar tvö þúsund stöðum í Kína
Breska flugfélagið British Airways hefur aflýst öllum flugferðum sínum til og frá meginlandi Kína vegna útbreiðslu Wuhan-kórónaveirunnar.

Heimila takmarkaða aðkomu Huawei að uppsetningu 5G
Bresk stjórnvöld hafa ákveðið að heimila þátttöku kínverska fjarskiptafyrirtækisins Huawei við uppsetningu á 5G kerfi landsins, þó með ákveðnum takmörkunum.

Boeing glímir við fálkavandamál
Flugbann og framleiðslustöðvun á Boeing 737 MAX flugvélum bandaríska flugfélagaframleiðandans hefur ekki bara bakað vandræði fyrir flugfélagið og starfsmenn þess. Nú er útlit fyrir að fálkapar verði heimilislaust.