
Viðskipti innlent

Samherjabörnin fá hlutabréfin frá foreldrunum
Fjórir aðaleigendur útgerðarfyrirtækisins Samherja, þar af forstjórinn Þorsteinn Már Baldvinsson, hafa framselt hlutabréfaeign sína í fyrirtækinu til barna sinna.

Þakkar flugmönnum fyrir að leggjast á árar með Icelandair
Nýr kjarasamningur felur í sér talsverðar breytingar og styrkir samheppnishæfi félagsins til lengri tíma, að sögn forstjóra Icelandair.

Taka á sig kjaraskerðingu til að mæta ástandinu
Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna kveðst vongóður um að samningurinn verði samþykktur.

Flugmenn og Icelandair gerðu „tímamótasamning“ í nótt
Icelandair Group og Félag íslenskra atvinnuflugmanna hafa gert nýjan kjarasamning á milli félaganna til 30. september 2025.

Félag Björgólfs Thors eini lánveitandi DV og helsti bakhjarl
Félagið Novator ehf., sem er í eigu kaupsýslumannsins Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur verið eini lánveitandi Frjálsrar fjölmiðlunar og helsti bakhjarl fjölmiðilsins frá árinu 2017.

Skúli segir allt tilbúið og Play klárt í bátana
Skúli Skúlason, stjórnarformaður og aðaleigandi Play, segir að flugfélagið muni fara í loftið. Það sé bara spurning um dagsetningu sem ráðist af ytri aðstæðum, frekar en hitt.

Stutt samdráttarskeið en hægur bati
Útlit er fyrir að landsframleiðsla hér á landi dragist saman um tæp níu prósent samkvæmt þjóðhagsspá hagfræðideildar Landsbankans. Þar kemur fram að samdráttarskeiðið af völdum kórónuveirufaraldursins verði stutt, en efnahagsbatinn hægur.

Ætla að segja upp samningi við Thorsil í Helguvík
Samningi Reykjaneshafnar og Thorsil ehf. um uppbyggingu kísilverksmiðju á Helguvík verður sagt upp. Stjórn Reykjaneshafnar fól hafnarstjóra að rifta samningnum frá og með mánaðamótum á fundi sínum í dag.

Segja innheimtufélag smálánafyrirtækja hafa brotið lög
Úrskurðarnefnd lögmanna er sögð hafa komist að þeirri niðurstöðu að Almenn innheimta, sem starfað hefur fyrir smálánafyrirtæki, hafið brotið innheimtulög. Neytendasamtökin segja að engu að síður sé engin leið til þess að stöðva það sem þau telja ólöglega innheimtu smálána.

Flugmenn og Icelandair funda
Samninganefndir Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair eru fundi þar sem samningaviðræður fara fram um hugsanlega kjarasamninga. Samninganefndirnar hittust klukkan hálf tvö í húsakynnum Félags íslenskra atvinnuflugmanna.

„Það er ljós við enda ganganna“
Íslenska hagkerfið gæti dregist saman um 9,2% á þessu ári vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins en náð fyrri styrk eftir tvö ár. Í nýrri þjóðhagsspá greiningar Íslandsbanka er gert ráð fyrir hóflegri verðbólgu á komandi misserum og frekari lækkun vaxta.

Framkvæmdastjóri Krónunnar hættir
Gréta María Grétarsdóttir hættir sem framkvæmdastjóri Krónunnar.

Telur að ef eitthvað fyrirtæki eigi inni aðstoð sé það Icelandair
Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, skorar á íslensk stjórnvöld að horfa til þeirra tekna sem Icelandair hefur skapað ríkissjóði í gegnum árin. Hann fullyrðir að ef eitthvað fyrirtæki eigi inni aðstoð þá sé það Icelandair.

„Grafalvarlegt ef Icelandair færi í þrot“
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að ef Icelandair yrði gjaldþrota myndi það þýða að batanum í efnahagslífinu hér á landi yrði seinkað um eitt til tvö ár.

Íslendingar munda greiðslukortin af krafti á ný
Svo virðist sem hagkerfið sé nú að taka við sér samhliða því sem faraldur kórónuveiru rénar og stjórnvöld slaka á veiruaðgerðum.

Bauhaus sektað vegna verðverndarinnar
Byggingavöruverslunin Bauhaus hefur verið sektuð um 500 þúsund krónur vegna fullyrðinga verslunarinnar um að þar sé lægsta verðið á markaðnum.

Spá efnahagsbata á næsta ári eftir harðan skell
Íslenska hagkerfið gæti dregist saman um 9,2% á þessu ári vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins en náð fyrri styrk eftir tvö ár. Í nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka er gert ráð fyrir hóflegri verðbólgu á komandi misserum og frekari lækkun vaxta.

M&C Saatchi stolt af því að hafa orðið fyrir valinu
Auglýsingastofan M&C Saatchi er stolt að hafa orðið fyrir valinu í útboði vegna nýrrar markaðsherferðar fyrir íslenska ferðaþjónustu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stofunni.

Samherji endurgreiðir ríkinu hlutabætur
Stjórnendur Samherja Íslands og Útgerðarfélag Akureyringa hafa ákveðið að endurgreiða ríkinu hlutabætur sem það greiddi starfsmönnum. Félög Samherja muni í staðinn sjálf bera allan kostnað af skertu starfshlutfalli starfsmanna sinna.

Ekki greint frá rannsókn fjármálaeftirlits í gögnum frá M&C Saatchi
Allar tillögurnar sem sendar voru inn vegna útboð markaðsverkefnisins „Ísland - Saman í sókn“ áttu það sameiginlegt að vera samstarf innlendra og erlendra aðila en ekkert kom fram um rannsókn breska fjármálaeftirlitsins í gögnum sem auglýsingastofan M&C Saatchi sendi inn en stofan í samvinnu við íslensku stofuna Peel varð fyrir valinu.

Umsóknir 96% umsækjenda um greiðslufrest á lánum fyrirtækja samþykktar
Tæplega 1.500 fyrirtæki hafa sótt um og fengið samþykkta greiðslufresti á lánum sínum vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar.

Jón Ásgeir og Ingibjörg vilja þrjá milljarða í bætur frá Sýn
Þau Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir og félag hennar 365 hf. hefur stefnt fjarskiptafyrirtækinu Sýn hf., forstjóra þess og öllum stjórnarmönnum til að greiða þeim alls þrjá milljarða í skaðabætur. Áður hafði Sýn stefnt hjónunum og krafist um 1,7 milljarða króna vegna meintra brota á kaupsamningi.

300 milljónirnar verði ekki algjörlega sendar úr landi
Þrjú hundruð milljón krónurnar sem Íslandsstofa hyggst verja í nýja auglýsingaherferð, sem féll í skaut bresku auglýsingastofunnar M&C Saatchio og hinnar íslensku Peel, hverfa ekki með öllu úr hagkerfinu að sögn fulltrúa auglýsingastofanna.

Sleppa söluþóknun og lækka verð á ferðum um allt að 50 prósent
Ferðaþjónustufyrirtæki borga ekki neitt fyrir að skrá sig á nýtt markaðstorg, engin söluþóknun er tekin og fyrir vikið hefur því verið hægt að bjóða tugprósenta lægra verð en á hefðbundnum bókunarsíðum

Leggur til að barir og skemmtistaðir megi opna á nýjan leik 25. maí
Stefnt er að því að barir og aðrir staðir með vínveitingaleyfi sem ekki hafa getað haft opið í samkomubanninu megi opna á nýjan leik frá og með 25. maí.

Landsframleiðsla gæti dregist saman um 13% vegna veirunnar
Það kæmi Konráði S. Guðjónssyni, aðalhagfræðingi Viðskiptaráðs Íslands, á óvart ef Seðlabankinn lækkar ekki vexti í næstu viku þegar peningastefnunefnd tilkynnir um ákvörðun bankans.

„Ótrúlega stutt“ á milli flugmanna og Icelandair
Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir stutt á milli í kröfum flugmanna og Icelandair. Hann segir óheppilegt að Icelandair hafi ákveðið að senda tilboð sitt á alla flugmenn Icelandair eftir að samninganefnd flugmanna hafði hafnað að bera það undir félagsmenn

Leiðinlegt að stærsta verkefnið á markaðnum fari til Bretlands í ójafnri keppni
Valgeir Magnússon, stjórnarformaður íslensku auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, segir það leiðinlegt, og skjóta skökku við, að stærsta verkefni á Íslandsmarkaði hafi fallið í skaut breskrar auglýsingastofu, einkum í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi á íslenskum vinnumarkaði.

Vilja tengja kaupaukakerfi flugmanna við rekstarárangur Icelandair
Ein af tillögum Icelandair í kjaraviðræðum við Félag íslenskra atvinnuflugmanna er að kaupaukakerfi flugmanna verði breytt þannig að þeir fái hlutdeild í rekstarhagnaði Icelandair, frekar en en vegna stundvísi og lágmörkun eldsneytisnotkunar

Evran kosti áfram 160 krónur á næsta ári
Ekki er að vænta frekari sveifla á gengi krónunnar í ár gangi spár 28 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði eftir.