Viðskipti innlent

Segja innheimtufélag smálánafyrirtækja hafa brotið lög
Úrskurðarnefnd lögmanna er sögð hafa komist að þeirri niðurstöðu að Almenn innheimta, sem starfað hefur fyrir smálánafyrirtæki, hafið brotið innheimtulög. Neytendasamtökin segja að engu að síður sé engin leið til þess að stöðva það sem þau telja ólöglega innheimtu smálána.

Flugmenn og Icelandair funda
Samninganefndir Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair eru fundi þar sem samningaviðræður fara fram um hugsanlega kjarasamninga. Samninganefndirnar hittust klukkan hálf tvö í húsakynnum Félags íslenskra atvinnuflugmanna.

„Það er ljós við enda ganganna“
Íslenska hagkerfið gæti dregist saman um 9,2% á þessu ári vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins en náð fyrri styrk eftir tvö ár. Í nýrri þjóðhagsspá greiningar Íslandsbanka er gert ráð fyrir hóflegri verðbólgu á komandi misserum og frekari lækkun vaxta.

Framkvæmdastjóri Krónunnar hættir
Gréta María Grétarsdóttir hættir sem framkvæmdastjóri Krónunnar.

Telur að ef eitthvað fyrirtæki eigi inni aðstoð sé það Icelandair
Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, skorar á íslensk stjórnvöld að horfa til þeirra tekna sem Icelandair hefur skapað ríkissjóði í gegnum árin. Hann fullyrðir að ef eitthvað fyrirtæki eigi inni aðstoð þá sé það Icelandair.

„Grafalvarlegt ef Icelandair færi í þrot“
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að ef Icelandair yrði gjaldþrota myndi það þýða að batanum í efnahagslífinu hér á landi yrði seinkað um eitt til tvö ár.

Íslendingar munda greiðslukortin af krafti á ný
Svo virðist sem hagkerfið sé nú að taka við sér samhliða því sem faraldur kórónuveiru rénar og stjórnvöld slaka á veiruaðgerðum.

Bauhaus sektað vegna verðverndarinnar
Byggingavöruverslunin Bauhaus hefur verið sektuð um 500 þúsund krónur vegna fullyrðinga verslunarinnar um að þar sé lægsta verðið á markaðnum.

Spá efnahagsbata á næsta ári eftir harðan skell
Íslenska hagkerfið gæti dregist saman um 9,2% á þessu ári vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins en náð fyrri styrk eftir tvö ár. Í nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka er gert ráð fyrir hóflegri verðbólgu á komandi misserum og frekari lækkun vaxta.

M&C Saatchi stolt af því að hafa orðið fyrir valinu
Auglýsingastofan M&C Saatchi er stolt að hafa orðið fyrir valinu í útboði vegna nýrrar markaðsherferðar fyrir íslenska ferðaþjónustu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stofunni.

Samherji endurgreiðir ríkinu hlutabætur
Stjórnendur Samherja Íslands og Útgerðarfélag Akureyringa hafa ákveðið að endurgreiða ríkinu hlutabætur sem það greiddi starfsmönnum. Félög Samherja muni í staðinn sjálf bera allan kostnað af skertu starfshlutfalli starfsmanna sinna.

Ekki greint frá rannsókn fjármálaeftirlits í gögnum frá M&C Saatchi
Allar tillögurnar sem sendar voru inn vegna útboð markaðsverkefnisins „Ísland - Saman í sókn“ áttu það sameiginlegt að vera samstarf innlendra og erlendra aðila en ekkert kom fram um rannsókn breska fjármálaeftirlitsins í gögnum sem auglýsingastofan M&C Saatchi sendi inn en stofan í samvinnu við íslensku stofuna Peel varð fyrir valinu.

Umsóknir 96% umsækjenda um greiðslufrest á lánum fyrirtækja samþykktar
Tæplega 1.500 fyrirtæki hafa sótt um og fengið samþykkta greiðslufresti á lánum sínum vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar.

Jón Ásgeir og Ingibjörg vilja þrjá milljarða í bætur frá Sýn
Þau Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir og félag hennar 365 hf. hefur stefnt fjarskiptafyrirtækinu Sýn hf., forstjóra þess og öllum stjórnarmönnum til að greiða þeim alls þrjá milljarða í skaðabætur. Áður hafði Sýn stefnt hjónunum og krafist um 1,7 milljarða króna vegna meintra brota á kaupsamningi.

300 milljónirnar verði ekki algjörlega sendar úr landi
Þrjú hundruð milljón krónurnar sem Íslandsstofa hyggst verja í nýja auglýsingaherferð, sem féll í skaut bresku auglýsingastofunnar M&C Saatchio og hinnar íslensku Peel, hverfa ekki með öllu úr hagkerfinu að sögn fulltrúa auglýsingastofanna.

Sleppa söluþóknun og lækka verð á ferðum um allt að 50 prósent
Ferðaþjónustufyrirtæki borga ekki neitt fyrir að skrá sig á nýtt markaðstorg, engin söluþóknun er tekin og fyrir vikið hefur því verið hægt að bjóða tugprósenta lægra verð en á hefðbundnum bókunarsíðum

Leggur til að barir og skemmtistaðir megi opna á nýjan leik 25. maí
Stefnt er að því að barir og aðrir staðir með vínveitingaleyfi sem ekki hafa getað haft opið í samkomubanninu megi opna á nýjan leik frá og með 25. maí.

Landsframleiðsla gæti dregist saman um 13% vegna veirunnar
Það kæmi Konráði S. Guðjónssyni, aðalhagfræðingi Viðskiptaráðs Íslands, á óvart ef Seðlabankinn lækkar ekki vexti í næstu viku þegar peningastefnunefnd tilkynnir um ákvörðun bankans.

„Ótrúlega stutt“ á milli flugmanna og Icelandair
Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir stutt á milli í kröfum flugmanna og Icelandair. Hann segir óheppilegt að Icelandair hafi ákveðið að senda tilboð sitt á alla flugmenn Icelandair eftir að samninganefnd flugmanna hafði hafnað að bera það undir félagsmenn

Leiðinlegt að stærsta verkefnið á markaðnum fari til Bretlands í ójafnri keppni
Valgeir Magnússon, stjórnarformaður íslensku auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, segir það leiðinlegt, og skjóta skökku við, að stærsta verkefni á Íslandsmarkaði hafi fallið í skaut breskrar auglýsingastofu, einkum í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi á íslenskum vinnumarkaði.

Vilja tengja kaupaukakerfi flugmanna við rekstarárangur Icelandair
Ein af tillögum Icelandair í kjaraviðræðum við Félag íslenskra atvinnuflugmanna er að kaupaukakerfi flugmanna verði breytt þannig að þeir fái hlutdeild í rekstarhagnaði Icelandair, frekar en en vegna stundvísi og lágmörkun eldsneytisnotkunar

Evran kosti áfram 160 krónur á næsta ári
Ekki er að vænta frekari sveifla á gengi krónunnar í ár gangi spár 28 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði eftir.

Nýr gæðastjóri hjá Samherja
Sunneva Ósk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin gæðastjóri landvinnslu Samherja og Útgerðarfélags Akureyringa (ÚA).

Einn og hálfur milljarður í markaðsátak erlendis
Ríkið mun verja einum og hálfum milljarði í markaðsátak erlendis til að kynna Ísland sem áfangastað fyrir ferðamenn.

Festi hefur haft samband við Vinnumálastofnun vegna endurgreiðslu hlutabótaleiðarinnar
Eignarhaldsfélagið Festi hefur haft samband við Vinnumálastofnun með það að markmiði að endurgreiða þá upphæð sem fyrirtækið sparaði sér með aðgerðunum.

Össur endurgreiðir Vinnumálastofnun
Össur hf. hefur tekið ákvörðun um að endurgreiða Vinnumálastofnun það fé sem runnið hefur til 165 starfsmanna félagsins á meðan þeir voru í hlutastarfi vegna COVID-19 faraldursins og hætta að nota úrræðið hér á landi.

Búið að semja við bankana um brúarlánin
Samningar hafa verið undirritaðir við viðskiptabankana fjóra um veitingu viðbótarlána til fyrirtækja, svonefndra brúarlána.

„Algjör einhugur“ á meðal flugfreyja að hafna útspili Icelandair
Algjör einhugur er meðal félagsmanna FFÍ um að hafna útspili Icelandair frá 10. maí að því er fram kemur í tilkynningu frá Flugfreyjufélagi Íslands. Afstaða félagsmanna til tilboðs Icelandair var könnuð á fundi þeirra í hádeginu.

Flugstjórar með 2,1 milljón á mánuði að meðaltali
Flugstjórar hjá Icelandair eru með 2,1 milljón króna í heildarlaun að meðaltali miðað við árið 2019. Flugmenn hjá flugfélaginu eru með 1,1 milljón krónur í heildarlaun að meðaltali.

Bein útsending: Hvert er ferðinni heitið?
Staðan í efnahagsmálum og aðgerðir ríkisstjórnarinnar verða efni þriðjudagsfyrirlesturs Háskólans í Reykjavík og Vísis í hádeginu í dag.