
Viðskipti

Pjúra lúxus í öllum atriðum
Sænski bílaframleiðandinn Polestar ætlar sér stóra hluti í rafbílavæðingu heimsbyggðarinnar og vill flýta fyrir breytingum til sjálfbærra ferðamáta með hágæða hönnun og tækni. Fyrirtækið stefnir á að vera með fimm tegundir rafbíla í vörulínu sinni árið 2026.

Ráðin framkvæmdastjóri Bakkans vöruhótels
Eva Guðrún Torfadóttir verkfræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Bakkans vöruhótels og kemur á sama tíma inn í framkvæmdastjórn Festi hf.

María Rut verður framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar
Stjórn Tónlistarmiðstöðvar Íslands hefur ráðið Maríu Rut Reynisdóttur, skrifstofustjóra menningarmála hjá Reykjavíkurborg sem framkvæmdastjóra nýrrar Tónlistarmiðstöðvar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Tónlistarmiðstöð.

Tekur við ritstjórn Lifðu núna
Steingerður Steinarsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Vikunnar, hefur tekið við stöðu ritstjóra Lifðu núna. Hún tók við stöðunni um mánaðamótin.

71 sagt upp í fjórum hópuppsögnum
Fjórar tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í nýliðnum septembermánuði þar sem 71 starfsmönnum var sagt upp störfum.

Töldu sig svikna eftir milljarða sölu og stefndu Helga
Helgi Hermannsson, stærsti hluthafi og framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Sling, var í sumar dæmdur til að greiða fjórum hönnuðum samanlagt 67 milljónir króna. Starfsmennirnir stefndu Helga sem þeir töldu hafa svikið sig um gerða samninga þegar Sling var selt fyrir fleiri milljarða króna. Fyrirtæki sem þeir höfðu tekið þátt í að byggja upp og átt kauprétt í.

Ekki lengur hægt að kaupa bensín á Litlu kaffistofunni
Hætt hefur verið að selja bensín á Litlu kaffistofunni á Sandskeiði. Rúmlega 63 ára sögu bensínsölu þar er því lokið.

Lilja ráðin deildarstjóri Auðlindastýringar HS Orku
Lilja Magnúsdóttir hefur tekið við stöðu deildarstjóra Auðlindastýringar HS Orku. Hún var áður yfirforðafræðingur HS Orku og hefur starfað hjá fyrirtækinu frá 2020.

„En hvers vegna þurfum við að vera feimin?“
„Það er ekkert óalgengt að fólk sé með fyrirlestur hér og þar og segi frá því sem vinnustaðurinn er að gera eða takast á við. En þegar kemur að því að bjóða fólki „heim“ er eins og við verðum eitthvað feimnari,“ segir Margrét Tryggvadóttir skemmtana- og forstjóri Nova.

Samrunaviðræður Eikar og Reita í strand
Fasteignafélögin Eik og Reitir hafa hætt viðræðum um mögulegan samruna fasteignafélaganna tveggja.

Segja heita síma Apple ekki skrifast á nýja hönnun
Forsvarsmenn Apple segja það ekki nýrri hönnun iPhone 15 að kenna að símarnir eigi það til að hitna, heldur sé að mestu um hugbúnaðargalla að ræða. Til stendur að laga þennan galla í nýrri uppfærslu fyrir iOS 17, stýrikerfi Apple.

Vinkonurnar með nammipoka að horfa á Santa Barbara og Leiðarljós
Arna Hauksdóttir, prófessor og forstöðumaður við Miðstöð í lýðheilsuvísindum, Háskóla Íslands og stjórnarkona í Vísindagörðum HÍ, rifjar upp þá gósentíð sem hófst þegar Dallas var ljósið í myrkrinu og sápuóperur eins og Santa Barbara og Leiðarljós hófu sýningar í íslensku sjónvarpi.

Spá 0,5 prósentustiga stýrivaxtahækkun
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki vexti bankans um 0,5 prósentustig í næstu viku. Hækkunin yrði sú fimmtánda í röð og meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, færu úr 9,25% í 9,75%.

Móðurfélag Arnarlax mætt First North-markaðinn
Icelandic Salmon AS, móðurfélag laxeldisfyrirtækisins Arnarlax, var skráð á Nasdaq First North vaxtarmarkaðinn á Íslandi. Félagið verður með auðkennið ISLAX.

„Ég þoli ekki að bíða eftir þóknanlegum viðbrögðum frá einhverjum yfirmanni“
„Ég þarf að vera hluti af lausninni fyrir íslenskt samfélag, en ekki vandamálið,“ segir Snorri Másson fjölmiðlamaður, býsna brattur.

Tap Isavia var 221 milljón á fyrri árshelmingi
Heildarafkoma Isavia á fyrri árshelmingi var neikvæð um 221 milljón króna samanborið við jákvæða afkomu upp á 501 milljón króna fyrir sama tímabil í fyrra. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu.

Sjá fram á 550 milljóna króna hagnað á þriðja ársfjórðungi
Flugfélagið Play sér fram á að skila hagnaði sem nemur um 550 milljónum króna, eða því sem nemur fjórum milljónum Bandaríkjadala á þriðja ársfjórðungi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu félagsins.

Kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar heimiluð
Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar án skilyrða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ljósleiðaranum.

Vivaldi bítur í Eplið
Vafrinn Vivaldi er nú aðgengilegur notendum snjalltækja Apple. Búið er að gera útgáfu af vafranum fyrir iOS stýrikerfið sem hægt er að nálgast í App Store.

Kvartað undan of heitum iPhone 15
Margir notendur iPhone 15 síma Apple hafa kvartað yfir því að símarnir hitni mjög mikið. Því hefur verið haldið fram að símar hafi orðið allt að 47 gráður en þetta virðist sérstaklega eiga við öflugri útgáfur iPhone 15.

Breytingarnar á gjaldskyldu og gjaldskrá taka gildi um helgina
Breytingar á gjaldskyldu og gjaldskrá bílastæða Reykjavíkurborgar taka gildi núna um mánaðamótin.

Steinunn Linda frá Marel til Varðar
Steinunn Linda Jónsdóttir hefur verið ráðin rekstrarstjóri hjá Verði og mun hefja störf 15. nóvember næstkomandi. Hún kemur til fyrirtækisins frá Marel.

Jysk-skiltin komin upp og Rúmfatalagerinn heyrir sögunni til
Rúmfatalagerinn heyrir nú sögunni til en nafnbreytingin, þar sem nafninu var skipt út fyrir Jysk, átti sér stað í dag.

Birta Kristín fengin til að leiða orkusvið Eflu
Birta Kristín Helgadóttir hefur tekið við stöðu sviðsstjóra Orku hjá Eflu og tekur þar með sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Orkusvið er eitt af fjórum kjarnasviðum fyrirtækisins og telur yfir þrjátíu sérfræðinga.

Booking.com í tugmilljóna skuld við danska hótelrekendur
„Við höfum heyrt að það eru einhverjir aðilar sem eru ennþá að verða varir við þetta en við höfum ekki heyrt af því að vandamálið hafi aukist eða að það hafi batnað.“

Fimm nýir veitingastaðir opna á Keflavíkurflugvelli
Fimm nýir veitingastaðir bætast við veitingaflóru Keflavíkurflugvallar næsta vor þegar þekktir og nýir veitingastaðir munu opna á tveimur svæðum inni á flugvellinum. Þrír munu opna í aðalbyggingu flugvallarins og tveir í suðurbyggingu.

Verðbólgan mælist átta prósent
Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í september 2023 er 599,9 stig og hækkar um 0,35 prósent frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkar um 0,18 prósent.

Stemning í viku: Svo gaman að fókusera á gleðina en ekki bara vandamálin
„Já við ætlum að taka þátt og ég sá þetta strax fyrir mér sem frábært tækifæri,“ segir Dagbjört Una Helgadóttir mannauðstjóri fyrirtækisins AÞ Þrif.

Guðmundur hættir aftur hjá Bónus
Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, hefur óskað eftir því að láta af störfum hjá félaginu frá og með áramótum. Hann hefur gegnt starfinu síðan árið 1998, 25 ár. Björgvin Víkingsson, aðstoðarframkvæmdastjóri og innkaupastjóri Bónus hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra og tekur við um áramótin.

Samskip krefja Eimskip um bætur
Samskip hafa falið Mörkinni lögmannsstofu að sækja bætur á hendur Eimskipi vegna þess sem félagið kallar ólögmætar og saknæmar athafnir félagsins gagnvart Samskipum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.