Viðskipti

Ís í brauðformi búinn að rjúfa þúsund króna múrinn
Stór ís í brauðformi með súkkulaðidýfu og lakkrískurli hefur rofið þúsund króna múrinn víða í ísbúðum á höfuðborgarsvæðinu á meðan stór bragðarefur kostar sum staðar meira en tvö þúsund krónur. Vísir gerði óformlega verðkönnun meðal nokkurra ísbúða en þar er skammt stórra högga á milli, ísinn hefur hækkað í verði eins og flestar vörur landsins.

„Mætti halda að ég væri að fara til útlanda á hverjum morgni“
Sigþrúður Ármann, Culture & Communication Manager hjá Controlant, stjórnarformaður Exedra og stjórnarformaður Von harðfiskverkunar, segist vakna svo snemma að það mætti halda að hún væri að fara til útlanda á hverjum morgni.

„Glæsilegt“ að Costco selji nú áfengi
Dómsmálaráðherra segir löngu tímabært að endurskoða áfengislöggjöfina hér á landi. Hins vegar hafi gengið illa að koma frumvörpum um áfengi út úr ríkisstjórn. Viðskiptavinir Costco virðast flestir hlynntir sölu áfengis í versluninni.

Kjörræðismaður Rússlands hættir hjá Kaupfélaginu
Ólafur Ágúst Andrésson, kjörræðismaður Rússa á Íslandi og forstöðumaður kjötafurðasviðs Kaupfélags Skagfirðinga, hefur ákveðið að láta af störfum hjá Kaupfélagi Skagfirðinga eftir 27 ára starf fyrir félagið.

Spyr hvort Hreyfli sé heimilt að meina bílstjórum að skrá sig hjá Hopp
Framkvæmdastjóri Hopp leigubíla segist ekki rangtúlka lög um leigubíla líkt og framkvæmdastjóri Hreyfils hefur haldið fram. Stöðvaskylda sem framkvæmdastjórinn vísi til hafi breyst og nú megi leigubílstjórar vera skráðir á fleiri en einni stöð og vera sjálfstætt starfandi. Hún spyr sig hvort Hreyfill megi í raun meina bílstjórum sínum að skrá sig hjá Hopp.

Ráðin í starf fjármálastjóra Kaldalóns
Sigurbjörg Ólafsdóttir hefur verið ráðin í starf fjármálastjóra Kaldalóns hf. Hún hefur undanfarin ár gegnt starfi forstöðumanns fasteigna- og innviðateymis Arion Banka.

Kaupa hlut Hannesar í Lind fasteignasölu
Stærstu hluthafar fasteignasölunnar RE/Max, þeir Gunnar Sverrir Harðarson og Þórarinn Arnar Sævarsson undir formerkjum fjárfestingarfélagsins IREF, hafa keypt hlut Hannesar Steindórssonar í fasteignasölunni Lind.

Alþingi taki hausinn úr sandinum í áfengismálum
Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir Alþingi verða að hætta að stinga höfðinu í sandinn þegar kemur að þróuninni á áfengismarkaði. Taka þurfi áfengislöggjöfina algjörlega í gegn þar sem hún hindri samkeppnishæfi innlendra fyrirtækja.

Spotify segir upp hlaðvarpssamningnum við Harry og Meghan
Spotify hefur ákveðið að segja upp samningi sínum við hertogann og hertogaynjuna af Sussex, Harry og Meghan. Síðustu misserin hefur parið framleitt hlaðvarpið Archetypes fyrir streymisveituna.

Fjárhagsáhyggjur fólks hafa bein áhrif á vinnuna
Stýrivaxtahækkanir, verðbólga, greiðsluvandi fólks og erfiðleikar framundan eru allt fréttir sem hafa verið fyrirferðarmiklar í fréttum fjölmiðla undanfarið.

Aldrei jafn margir með sparnaðarreikning eins og á síðustu og verstu
Óverðtryggður sparnaðarreikningur Íslandsbanka er orðinn sá stærsti á einstaklingssviði bankans. Framkvæmdastjóri einstaklingssviðsins segir verðbólgutíð þar spila stærstan þátt. Aldrei hafi eins margir spáð í sparnað og nú.

Jómfrúin opnar dyr sínar í Leifsstöð
Veitingastaðurinn Jómfrúin hefur opnað dyr sínar á Keflavíkurflugvelli. Jakob Einar Jakobsson, eigandi Jómfrúarinnar, segir markmiðið vera að fanga sömu stemningu og ríkt hefur á Lækjargötunni í áratugi.

Skoðar að selja áfengi til matvöruverslana
Forstjóri Ölgerðarinnar segir að fyrirtækið geti ekki annað en skoðað það hvort hægt verði að selja áfengi til matvöruverslana í kjölfar yfirlýsingar ráðherra um lögmæti sölunnar. Ölgerðin hefur hingað til ekki selt áfengi til netverslana vegna óvissu um lögmæti hennar.

Fyrrverandi forstjóri Microsoft í Danmörku í stjórn Carbfix
Ný stjórn Carbfix hf. hefur verið skipuð og er nýr stjórnarformaður hennar Nana Bule, sem var forstjóri Microsoft í Danmörku og á Íslandi þar til fyrr á þessu ári.

Bílstjórar Hreyfils megi ekki aka fyrir Hopp
Framkvæmdastjóri Hreyfils segir að fyrirtækið samþykki ekki að leigubílstjórar sem hafi stöðvarpláss á Hreyfli keyri fyrir aðrar stöðvar líkt og Hopp á sama tíma. Hann segir framkvæmdastjóra Hopp rangtúlka lög um leigubíla.

Aukið aðgengi að áfengi ekki framfaraskref
Ögmundur Jónasson, fyrrverandi innanríkisráðherra Vinstri Grænna, segir að netverslun á áfengi sé ekki framfaraskref og spyr hvert Íslendingar stefni í áfengismálum.

Brim semur um 33 milljarða lán
Útgerðarfélagið Brim hf. hefur undirritað samning um 33 milljarða króna sambankalán til að endurfjármagna eldra lán.

Lukas tekur við af Agli sem hættir eftir 27 ára starf hjá Össuri
Egill Jónsson, framkvæmdastjóri framleiðslusviðs Össurar hf., hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu í lok árs, þar sem hann hyggst fara á eftirlaun.

Ætla að umbylta framleiðslu málma með íslensku hugviti
Fyrr í vikunni lauk íslenska hátæknifyrirtækið DTE við 1,4 milljarða króna hlutafjáraukningu.

Marta Guðrún nýr framkvæmdastjóri hjá ORF Líftækni
Marta Guðrún Blöndal hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fyrirtækjaþróunar hjá ORF Líftækni og mun hún koma inn í framkvæmdastjórn fyrirtækisins.

Fyrirframákveðið gjald og stjörnugjöf í nýju leigubílaforriti
Samkeppni á leigubílamarkaði höfuðborgarsvæðisins jókst í dag þegar Hopp leigubílar hófu starfsemi. Fyrirtækið ætlar sér meðal annars að mæta mikilli eftirspurn eftir leigubílum í miðborginni um helgar.

Níu milljónir ferna drukknar af Kókómjólk árlega
Því er núna fagnað að Kókómjólkin á fimmtíu ára afmæli en hún hefur alltaf verið framleidd í mjólkurbúinu á Selfossi. Í dag eru um níu milljónir ferna drukknar af Kókómjólk á ári en Kókómjólkin er eitt dýrmætasta vörumerki Mjólkursamsölunnar í dag.

Póstboxum fjölgar á Vestfjörðum
Nýjum póstboxum hefur verið komið fyrir í sex bæjarfélögum á Vestfjörðum, á Patreksfirði, Bolungarvík, Tálknafirði, Flateyri, Þingeyri og Bíldudal.

Hagkaup bætist í hóp verslana sem selja áfengi
Hagkaup stefnir að því að hefja netverslun áfengis á næstu misserum. Verslunin mun þá bætast í hóp með Costco, Heimkaupum og fjölda smærri netverslana. Dómsmálaráðherra segist ekki getað dregið aðra ályktun en að vefverslun með áfengi sé lögmæt.

Henning nýr deildarforseti tölvunarfræðideildar HR
Dr. Henning Arnór Úlfarsson hefur verið skipaður deildarforseti tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík.

Tuttugu missa vinnuna þegar rækjuvinnsla Hólmadrangs verður stöðvuð
Snæfell, sem er dótturfélag Samherja, hefur ákveðið að stöðva rækjuvinnslu Hólmadrangs á Hólmavík um næstu mánaðarmót. Tuttugu starfsmönnum verður sagt upp.

Spá talsverðri hjöðnun verðbólgu í júní
Íslandsbanki spáir því að verðbólga muni hjaðna hratt á næstu mánuðum og að ársverðbólga muni mælast 8,7 prósent í júnímánuði. Það yrði í fyrsta skipti í heilt ár þar sem ársverðbólgan fer undir níu prósent.

Sláandi munur á risarækjum sem kostuðu jafnmikið
Eyþór Jóvinsson, bóksali, birti færslu á Facebook í dag þar sem hann vakti athygli á sláandi mun á tveimur risarækjuréttum sem hann borðaði. Réttirnir kostuðu báðir 3500 krónur en munurinn á framsetningu og bragði var gífurlegur.

Arnór stýrir SIV eignastýringu sem fær starfsleyfi
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur veitt SIV eignastýringu hf., dótturfélags tryggingafélagsins VÍS, starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða með viðbótarheimild til eignastýringar auk móttöku og miðlun fyrirmæla varðandi fjármálagerninga.

Trixið sem klikkar ekki: Að koma sér í gang í vinnunni
Við höfum öll upplifað það að vera mætt í vinnuna en eiga erfitt með að koma okkur í gang. Ekkert endilega vegna þess að við erum þreytt eða syfjuð, heldur einfaldlega náum við ekki að bretta þannig upp ermarnar að við keyrumst í gang.