
Viðskipti

Magnús er skattakóngur ársins 2021: Með tæplega 118 milljónir á mánuði
Magnús Steinarr Norðdahl, fyrrverandi forstjóri LS Retail var launahæsti Íslendingurinn árið 2021 með tæplega 118 milljónir króna í launatekjur á mánuði.

Rúmlega tólf þúsund laus störf
Alls voru 12.240 laus störf á íslenskum vinnumarkaði á öðrum ársfjórðungi 2022. Hlutfall lausra starfa er nú 5,1 prósent og hefur ekki verið hærra í þrjú ár.

Stytta afgreiðslutímann í Árbæ vegna manneklu
Afgreiðslutími líkamsræktarstöðvar World Class í Árbæ mun styttast frá og með í næstu viku. Mun stöðin loka klukkan 20 á virkum dögum í stað klukkan 22 og klukkan 13 á laugardögum í stað klukkan 16. Þá verður stöðin lokuð á sunnudögum en var áður opin til klukkan 13 þá daga.

Vörur frá Good Good komnar í 3.500 verslanir Walmart
Vörur frá íslenska matvælafyrirtækinu Good Good fást nú í 3.500 verslunum Walmart í Bandaríkjunum. Velta fyrirtækisins nam tæpum milljarði í fyrra og Garðar Stefánsson, einn stofnenda Good Good, segir að það velta ársins í ár stefni í tvöfalda þá upphæð.

Biðja um leyfi stjórnvalda til að hækka verð á núðlum
Fimm af stærstu núðluframleiðendum Taílands hafa óskað eftir því að fá að hækka verðið á skyndinúðlum sínum. Verðið á núðlunum þar í landi hefur ekki hækkað í fjórtán ár.

Spá 0,75 prósenta hækkun stýrivaxta
Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að stýrivextir hækki um 0,75 þann 24. ágúst næstkomandi þegar peningastefnunefnd Seðlabankans fundar. Stýrivextir fara þá í 5,5 prósent en vextirnir hafa ekki verið hærri síðan árið 2016.

Vissi ekki að hundahlaup væri íþrótt
Dýrahjúkrunarfræðingurinn Kolbrún Arna hefur hlaupið með husky-hundunum sínum í mörg ár. Hún segir mikilvægt að vera með rétta búnaðinn svo að bæði hundar og fólk njóti hlaupsins.

Aðgerðir Seðlabankans farnar að hafa áhrif
Hækkun vísitölu íbúðaverðs í fjölbýli hækkaði um 0,5 prósent milli mánaða en í sérbýli um 3,7 prósent. Hagfræðideild Landsbankans telur þetta vera merki um að aðgerðir Seðlabankans til þess að bæta fasteignamarkaðinn séu að virka.

Tekur við stöðu verslunarstjóra í Hrísey
Díana Sveinbjörnsdóttir hefur verið ráðin verslunarstjóri Hríseyjarbúðarinnar. Guðrún Þorbjarnardóttir sem gegndi stöðunni til bráðabirgðar hættir 1. september.

Áttfætla fannst í víni
Hvítvínið Sancerre af árganginum 2021 frá Domaine Franck Millet hefur verið innkallað eftir að áttfætla fannst í flösku af víninu.

Leið til að gjörsamlega elska starfið okkar
Að starfa við það sem við elskum að gera og erum rosalega góð í hlýtur að vera draumur margra. Og þótt ætlunin sé hjá flestum að starfsferillinn verði akkúrat þannig, er ekki þar með sagt að við séum að ná þessu alveg 100%.

Veðja á hljóðfráar farþegaþotur að nýju
Bandaríska flugfélagið American Airlines hefur lagt inn pöntun fyrir allt að tuttugu hljóðfráun farþegaþotum frá flugvélaframleiðendanum Boom Supersonic. Hljóðfráar farþegaþotur hafa ekki verið í notkun frá því að hætt var að fljúga Concorde vélum snemma á þessari öld.

Vísitala íbúðaverðs hækkað um 25,5 prósent síðustu tólf mánuði
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 951 í júlí og hækkaði um 1,1 prósent á milli mánaða. Minni hækkun hefur ekki orðið á milli mánaða síðan í nóvember 2021 en þá var hún 0,7 prósent.

Helga Björg, Ingigerður og Páll Vignir í nýjum hlutverkum hjá Sýn
Helga Björg Antonsdóttir, Páll Vignir Jónsson og Ingigerður Guðmundsdóttir hafa ýmist verið ráðin til starfa hjá Sýn eða taka við nýjum störfum hjá fyrirtækinu. Helga Björg hefur verið ráðin markaðsstjóri Vodafone, Ingigerður sem nýr öryggis- og gæðastjóri og Páll Vignir nýr forstöðumaður fjölmiðlalausna.

Chicco bóndabærinn talar íslensku
Fyrsta íslenskumælandi leikfangið frá Chicco er komið á markað hér á landi, krúttlegur bóndabær þar sem börn á aldrinum eins til fjögurra ára geta leyst þrautir á íslensku og ensku.

Hefur störf sem hagfræðingur BSRB
Heiður Margrét Björnsdóttir hefur hafið störf sem hagfræðingur BSRB – heildarsamtaka starfsfólks í almannaþjónustu. Í tilkynningu segir að um sé að ræða nýja stöðu á skrifstofu samtakanna.

Ráðast í úttekt á tryggingamálum á Íslandi
Neytendasamtökin hafa ákveðið að ráðast í allsherjarúttekt á tryggingamálum á Íslandi, þar sem meðal annars stendur til að athuga hvort lagaumhverfið hérlendis leggi þyngri byrðar á tryggingafélögin, sem skili sér í hærra tryggingaverði til neytenda.

Hugsmiðjan ræður til sín átta nýja starfsmenn
Hönnunar- og hugbúnaðarhúsið Hugsmiðjan hefur ráðið til sín átta nýja starfsmenn. Þeir eiga það allir sameiginlegt að vera fagfólk í sínu fagi.

Skýrslunni skilað um næstu mánaðamót
Búist er við að Ríkisendurskoðun skili skýrslu sinni um sölu á rúmlega 22 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka um næstu mánaðamót.

Umhverfisvænar byggingarvörur í fyrirrúmi - Tilvaldar fyrir íslenska veðráttu
Laugur er nýtt fyrirtæki á byggingavörumarkaði sem sérhæfir sig í palla- og byggingarefni fyrir timburhús. Markmiðið er að bjóða upp á umhverfisvænar evrópskar gæðavörur sem henta íslenskum aðstæðum á hagstæðum kjörum.

Hefur unnið með þjóðarleiðtogum, Hollywood-stjörnum, vísindamönnum og villtum dýrum
Birta Bjargardóttir, bankastjóri Blábankans og heilsumarkþjálfi ubebu er nýkomin heim frá London. Í búsetu finnst Birtu reyndar ekkert mál að skoppast á milli Balí, London og Dýrafjarðar og satt best að segja er ekki hægt að segja annað en að hún lifi hreinlega ævintýralega skemmtilegu lífi.

Byggt og búið og Kringlan 35 ára
Í dag 13. ágúst fagnar Kringlan 35 ára afmæli en ein af þeim verslunum sem hefur verið þar frá upphafi er búsáhalda- og gjafavöruverslunin Byggt og búið.

Streymisstríðið tekur stakkaskiptum
Undanfarin ár hafa forsvarsmenn streymisveitna lagt allt kapp á að fjölga notendum, sama hvað það kostar. Samhliða miklum samdrætti í fjölgun notenda á markaðinum virðist sem þeim lið streymisstríðsins, sem samkeppnin milli streymisveitna er iðulega kölluð, sé lokið. Nú sé markmiðið að auka tekjur, draga úr kostnaði og reka streymisveitur með hagnaði.

Alvotech stefnir á aðalmarkað
Stjórn Alvotech hefur samþykkt áætlun um að undirbúa skráningu félagsins á aðalmarkað Nasdaq á Íslandi.

Fómó í vinnunni er staðreynd
Fómó er nýtt hugtak sem sérstaklega ungt fólk notar en þetta orð er tilvísun í skammstöfun á ensku; Fomo, sem stendur fyrir „fear of missing out.“

Áframhaldandi sáttaviðræður milli Ardian og Samkeppniseftirlitsins
Samkeppniseftirlitið (SKE) hefur fallist á ósk Ardian um framlengdan frest á rannsókn samruna Ardian og Mílu. Fresturinn var framlengdur um tuttugu daga og rennur því út þann 15. september næstkomandi.

Félagi Davíðs barst tilboð um samruna
Stjórn Unity Software, sem Davíð Helgason stofnaði, barst á þriðjudag samrunatilboð frá hugbúnaðarfyrirtækinu AppLovin. Þrjú prósent hlutur Davíðs í Unity er metinn á 73 milljarða króna í viðskiptunum og hann færi með 1,7 prósent hlut í sameinuðu félagi, ef til samrunans kemur.

Hræðilega erfitt að lenda á milli tveggja yfirmanna
Auðvitað er það hið besta mál að vera í góðu sambandi við yfirmanninn sinn og síðan yfirmann yfirmannsins. En hvað er til ráða þegar þú lendir á milli þessara tveggja?

Disney hækkar verðið fyrir þá sem vilja engar auglýsingar
Áskrift hjá streymisveitu Disney, Disney+, kemur til með að hækka í verði á næstunni. Þá verður ný ódýrari áskriftarleið kynnt til sögunnar en þar þurfa áskrifendur að horfa á auglýsingar.

Allt það helsta sem Samsung kynnti til leiks í dag
Í dag kynnti Samsung til leiks tvo nýja síma, tvö snjallúr og ný heyrnartól. Símarnir eru báðir gæddir þeim eiginleika að hægt er að brjóta þá saman og eru þeir því svokallaðir samlokusímar.