Viðskipti

Frumsýning á Audi Q6 e-tron lúxussportjeppanum
Á morgun, laugardaginn 9. nóvember, mun Hekla frumsýna nýjan Audi Q6 e-tron í sýningarsal Audi að Laugavegi 174, á milli kl. 12 og 16.

Segja gjald á nikótínpúða leiða til aukinna reykinga
Eigandi nikótínpúðaverslunar fullyrðir að nýtt gjald sem á að leggja á púðana muni leiða til aukinnar notkunar rafrettna og tóbaks. Gjaldið þýði að sígarettupakkar og nikótínpúðadósir verði á svipuðu verði.

„Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“
„Þróunin er mjög hröð og það eru nokkrir verktakar sem eru til fyrirmyndar, segir Jónína Þóra Einarsdóttir, leiðtogi í sjálfbærni, öryggi og gæðum hjá Steypustöðinni. Sem á dögunum hlaut hvatningaverðlaun CreditInfo fyrir framúrskarandi árangur á sviði umhverfismála árið 2024.

„Þið hafið efni á þessari kauphækkun, borgið hana núna“
Enskt stéttarfélag krefst þess að Bakkavör greiði starfsfólki sínu í Bretlandi mannsæmandi laun, en það hefur verið í verkfalli í sex vikur. Fulltrúar stéttarfélagsins hafa varpað harðorðum skilaboðum á hús víða um borgina, til þess að ná athygli eigenda fyrirtækisins.

Staðfesta dóm héraðsdóms en lækka bætur til Vinnslustöðvar
Landsréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms frá því í fyrra um að íslenska ríkið þurfi að greiða sjávarútvegsfyrirtækinu Vinnslustöðinni bætur vegna úthlutunar aflaheimilda á makríl á árunum 2011 og 2018.

Þrír nýir stjórnendur hjá Wisefish
Þrír nýir stjórnendur hafa verið ráðnir til hugbúnaðarfyrirtækisins Wisefish ehf. Fyrirtækið starfar á sviði viðskiptalausna fyrir sjávarútveg og er hugbúnaður þess notaður víðsvegar um heiminn.

Nebraska heyrir sögunni til
Veitingastaðnum og tískuvöruversluninni Nebraska, sem var til húsa á Barónsstíg 6, hefur verið lokað.

Smána Bakkavararbræður fyrir greiðslu „fátæktarlauna“
Nokkrir fulltrúar um 700 starfsmanna í samlokuverksmiðju fyrirtækisins Bakkavarar í Bretlandi, sem er í meirihlutaeigu íslenskra fjárfesta, komu til Íslands í gær til að reyna að ná tali af Bakkabræðrum, þeim Lýði Guðmundssyni og Ágústi Guðmundssyni. Forsvarsfólk Bakkavarar segist hugsa vel um fólkið sitt.

Stækka gagnaverin á Akureyri og í Reykjanesbæ
Gagnaversfyrirtækið atNorth hefur hafið stækkun tveggja gagnavera félagsins á Íslandi, ICE02 í Reykjanesbæ og ICE03, á Akureyri.

Í beinni: Kosningafundur atvinnulífsins
Samtök atvinnulífsins efna til kosningafundar með formönnum flokka í dag klukkan 12:00. Þar verður ljósi varpað á framtíðarsýn atvinnulífsins og áherslur ólíkra flokka. Fundurinn er í beinni á Vísi en yfirskrift hans er: SOS - Höldum okkur við aðalatriðin.

Sætanýtingin aldrei verið betri í október
Flugfélagið Play flutti 138.155 farþega í október 2024, samanborið við 154.479 farþega í október í fyrra. Sætanýting félagsins í mánuðinum var 85,3 prósent, og hefur hún aldrei verið hærri í októbermánuði í sögu félagsins. Sætanýtingin í október á síðasta ári var 83 prósent.

Máttu rukka íslenska konu um 1,2 milljónir fyrir dvöl á spítalanum
Heilbrigðisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Landspítalans um að rukka íslenska konu um 1,3 milljónir króna vegna dvalar hennar og þjónustu sem hún þáði vegna veikinda á Landspítalanum í sumar. Konan var með lögheimili í Bandaríkjunum þegar hún veiktist hér á landi og var ekki tryggð hjá Sjúkratryggingum Íslands.

ECIT AS kaupir meirihluta í Bókað frá KPMG
Norska fjármála og tæknifyrirtækisins ECIT AS hefur keypt meirihluta í bókhalds- og launaþjónustu KPMG sem rekin hefur verið undir heitinu Bókað. Gert er ráð fyrir endanlegum frágangi viðskiptanna í ársbyrjun 2025 en KPMG verður áfram hluthafi. Greint er frá þessu í tilkynningu frá KPMG.

Þurfti ekki að sýna fram á að greitt hafi verið fyrir duldar auglýsingar
Héraðsdómur hefur sýknað Fjölmiðlanefnd og íslenska ríkið af öllum kröfum Sýnar í máli sem sneri að hálfrar milljónar króna sekt, sem nefndin lagði á Sýn vegna dulinna auglýsinga í raunveruleikaþáttunum LXS, sem sýndir voru á Stöð 2 og Stöð 2+. Sýn krafðist þess að sektin yrði endurgreidd og vísaði meðal annars til þess að félagið hefði ekkert fengið greitt fyrir auglýsingar í þættinum.

Manneskja með von á bakvið hverja einustu umsókn
Sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun segir mörg dæmi þess að fólk í atvinnuleit fái engin svör við umsóknum sínum. Sérfræðingurinn biðlar til atvinnurekenda um að svara, stór hluti atvinnuleitenda greini nú frá því að atvinnuleitin sé orðin þeim ansi þungbær.

Linkedin sektað um tugi milljarða
Írska persónuverndarstofnunin hefur sektað samskiptamiðilinn Linkedin um 310 milljónir evra, sem eru um 46 milljarðar króna, fyrir brot á persónuverndarlöggjöf Evrópusambandsins, GDPR.

Aukning í ferðalögum til landsins
Icelandair flutti 409 þúsund farþega í október, 12 prósent fleiri en á sama tíma í fyrra. Þar af voru 35 prósent á leið til Íslands, 17 prósent frá Íslandi, 42 prósent ferðuðust um Ísland og 6 prósent innan Íslands. Eftirspurn eftir ferðum til Íslands hefur aukist á nýjan leik eftir minni eftirspurn mánuðina á undan.

Breytingar í framkvæmdastjórn Origo
Breytingar hafa verið gerðar á framkvæmdastjórn Origo ehf. í kjölfar endurskipulagningar félagsins til að skilja að starfsemi eignarhaldsfélagsins og rekstrarfélagsins Origo.

Allt í steik: Samtalið við yfirmanninn
Já það sem gerist á bestu bæjum og meira að segja hjá okkur öllum stundum að það fer hreinlega allt í steik.

„Græni punkturinn“ allt að helmingi dýrari en í Bónus og Prís
Fjöldi vara sem merktar eru lágvöruverði í Kjörbúðinni eru í raun þriðjungi til helmingi dýrari en í Bónus eða Prís samkvæmt athugun verðlagseftirlits ASÍ.

Linda ráðin framkvæmdastjóri háttsemiseftirlits
Linda Kolbrún Björgvinsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra háttsemiseftirlits Seðlabanka Íslands. Starfið var var auglýst laust til umsóknar í lok september síðastliðinn.

Ráðinn framkvæmdastjóri Marel Fish
Skúli Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Marel Fish, sem ber ábyrgð á vöruþróun, sölu, framleiðslu og þjónustu fyrir viðskiptavini Marel í fiskiðnaði.

Daði og Hrefna nýir deildarstjórar hjá Veitum
Daði Jóhannesson og Hrefna Haraldsdóttir hafa verið ráðin nýir deildarstjórar hjá Veitum.

Skipti máli fyrir rekstur iðnfyrirtækja að lækka vexti og verðbólgu
Um 92 prósent stjórnenda iðnfyrirtækja segja það skipta miklu máli fyrir rekstur þeirra að næsta ríkisstjórn skapi skilyrði fyrir lækkun vaxta og verðbólgu á næsta kjörtímabili. Um 79 prósent þeirra segja það skipta miklu máli að næsta ríkisstjórn leggi áherslu á að draga úr sköttum og gjöldum á fyrirtæki. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins.

Um 550 milljónum deilt til 27 einkarekinna fjölmiðla
Úthlutunarnefnd um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum og verður um 550 milljónum króna deilt milli alls 27 fjölmiðla. Árvakur og Sýn hljóta hæstu styrkina, um 124 milljónir króna hvor.

Byggja hótel og 1.500 fermetra baðlón í Vestmannaeyjum
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi í síðustu viku að vísa til bæjarstjórnar tillögu um byggingu nýs baðlóns á Skanshöfða í Vestmannaeyjum. Byggja á lónið og hótelið ofan á hrauni sem rann úr eldgosinu í Heimaey árið 1973.

Eybjörg Helga ráðin forstjóri Eirar, Skjóls og Hamra
Eybjörg Helga Hauksdóttir hefur verið ráðin forstjóri hjúkrunarheimilanna Eirar, Skjóls og Hamra. Hún tekur við starfinu þann 1. desember og verður þá fjórði forstjóri heimilanna og fyrsta konan í því starfi.

Akademias tekur yfir rekstur Avia
Fræðslufyrirtækið Akademias tók nýverið yfir rekstur Avia, sem stofnað var árið 2021 og þjónustar nú þegar um fimmtán þúsund notendur hjá um fjörutíu vinnustöðum.

Fjögur ráðin í stjórnendastöður hjá Íslandsbanka
Íslandsbanki hefur ráðið í fjórar stöður stjórnenda hjá bankanum. Árdís Björk Jónsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður daglegra bankaviðskipta, Freyr Guðmundsson forstöðumaður stafrænnar þróunar, Guðmundur Böðvar Guðjónsson deildarstjóri vörumerkis og Petra Björk Mogensen forstöðumaður viðskiptaumsjónar.

Lyfjastofnun Evrópu tekur umsókn Alvotech til umsagnar
Alvotech og samstarfsaðili þess, alþjóðlega lyfjafyrirtækið Advanz Pharma tilkynntu í dag að Lyfjastofnun Evrópu, EMA, hafi samþykkt að taka til umsagnar umsókn um markaðsleyfi fyrir AVT05, sem er fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða Alvotech við Simponi (golimumab), sem notað er til meðferðar við ýmsum þrálátum bólgusjúkdómum.